Morgunblaðið - 03.01.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Ráðist var á eldri konu á heimili sínu á Sléttuvegi síð-
degis þann fyrsta janúar. Árásarmaðurinn var ungur
maður í annarlegu ástandi sem réðst inn í íbúð kon-
unnar og veitti henni áverka. Maður úr næstu íbúð
reyndi að skerast í leikinn en fékk sjálfur áverka í and-
lit. Gestum í húsinu tókst að halda árásarmanninum þar
til lögreglan mætti á svæðið. Árásarmaðurinn er nú í
fangageymslu lögreglunnar en fólkið sem varð fyrir
árásinni var flutt á bráðamóttöku Landspítalans.
„Sem betur fer eru mjög fáar svona árásir á eldri
borgara,“ sagði Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður
Landssambands eldri borgara. „Upp til hópa eru hús
eins og á Sléttuvegi mjög vel varin. Oft á tíðum eru
myndavélar við dyrnar. Það að óvelkomnir komist inn
er ekki algengt. Helst gerist það þegar einhver annar
hleypir þeim inn. Við hörmum það þegar eldra fólk
verður fyrir árásum af þessum toga vegna þess að það
skapar óöryggi hjá öðrum eldri borgurum. Við erum
alltaf á tánum yfir öryggi í heimahúsum. Það verða
miklu fleiri slys í heimahúsum en fólk gerir sér grein
fyrir. Það er verið að leita leiða til að draga úr því.
Mörg af þeim slysum eru ekki bara árásir heldur varða
þau öryggismál eldri borgara.“
Fjárglæpir algengari
Þórunn segist eiga von á því að fjárglæpir gegn eldra
fólki aukist á næstu árum og hþeir afi þegar færst
nokkuð í vöxt á Norðurlöndum. „Bankar eru í auknum
mæli að loka á allt annað en rafræna þjónustu,“ segir
Þórunn. „Fólk sem ekki hefur netaðgang verður að leita
hjálpar hjá fólki sem það treystir, sem er stundum ekki
traustsins vert. Það er töluverður hópur ennþá sem er
ekkert inni á netinu og líður fyrir það þegar frétta-
miðlar segja að framhald fréttar í blöðum eða sjónvarpi
sé á ruv.is eða einhverri annarri netsíðu.“
Ráðist var á eldri konu
í heimahúsi á nýársdag
„Fáar svona árásir á eldri borgara,“ segir formaður LEB
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þegar er búið að selja 47 af 71 íbúð í
nýjum fjölbýlishúsum í Jaðarleiti
sunnan við Útvarpshúsið í Efstaleiti.
Áformað er að afhenda fyrstu íbúðir
í apríl en þær síðustu í júní.
Samkvæmt fasteignavef mbl.is er
verð óseldra íbúða 43,4 til 99,9 millj-
ónir. Það bendir til að verð seldra
íbúða hlaupi á milljörðum.
Meðal kaupenda er Pétur Stefáns-
son, fjárfestir í Lúxemborg. Sam-
kvæmt fasteignaskrá á félagið C4
ehf. allar íbúðir í Jaðarleiti 8. Það er
skráð í eigu Péturs hjá Creditinfo.
Fram kom í kaupsamningi í október
að C4 greiddi 778,86 milljónir fyrir
18 íbúðir í húsinu. Meðalverð var því
43,27 milljónir. Afhenda skal íbúð-
irnar eigi síðar en í lok október í ár.
Alls 390 milljónir skulu greiddar af
kaupverðinu er húsin eru fokheld.
Félagið Skuggi byggir íbúðirnar í
Jaðarleiti 2-8. Þær eru í fjórum fimm
hæða fjölbýlishúsum. Margar íbúð-
anna eru með góðu útsýni.
Í takt við væntingar
Hilmar Ágústsson, framkvæmda-
stjóri Skugga, segir söluna í takt við
væntingar. Margir hafi komið milli
jóla og nýárs að skoða íbúðirnar.
Hann segir aðspurður það til
marks um áhuga á verkefninu að svo
margar íbúðir séu seldar nokkru
áður en húsin eru tilbúin. Margir séu
tilbúnir að kaupa íbúðir af Skugga út
frá teikningum. Íbúðirnar séu óðum
að taka á sig mynd. Því megi gera
ráð fyrir að kaupendur sem kjósa að
kaupa íbúðirnar meira tilbúnar muni
skila sér eftir hátíðar og fram á vor.
Hilmar segir búið að selja íbúðir af
mörgum stærðum og gerðum. Þær
séu að meðaltali um 90 fermetrar og
flestar íbúðir 2. til 3. herbergja.
Hluti kaupenda komi úr sérbýli.
„Almennt dregur úr eftirspurn á
markaðnum þegar verð íbúða er
komið í 45-50 milljónir. Fasteigna-
markaðurinn er ein keðja. Sala á sér-
býli hangir stundum saman við kaup
á stærri íbúðum. Við höfum engu að
síður fengið þó nokkuð marga fyrstu
kaupendur í Jaðarleiti.“
Íbúðir í Efstaleitinu seljast hratt
Skuggi hefur selt 47 af 71 íbúð í fjórum turnum Ætla má að söluverðið hlaupi á milljörðum króna
Pétur Stefánsson, fjárfestir í Lúxemborg, keypti einn turninn Borgaði tæpar 800 milljónir fyrir
Morgunblaðið/RAX
Jaðarleiti 2-8 Byrjað er að klæða turnana. Framkvæmdum lýkur í sumar.
„Ég er nú ekki alveg tilbúin til þess
strax að gefa upp við hvað ég er að
fara að vinna, en það má segja að
ég sé að fara að einbeita mér að
öðru,“ segir Jóna Sólveig Elínar-
dóttir, fyrrver-
andi þingmaður
Viðreisnar og
varaformaður
flokksins, í sam-
tali við Morgun-
blaðið, en hún til-
kynnti í gær að
hún hygðist láta
af embætti sem
varaformaður
Viðreisnar. „Með
þessu er ég þó
ekki að hætta afskiptum af stjórn-
málum. Það er bara að hefjast nýr
kafli með nýjum viðfangsefnum,“
segir Jóna Sólveig.
Í facebookfærslu segir hún
ákvörðunina hafa verið vel ígrund-
aða. „[O]g í ljósi þess að nú er nýr
áfangi í lífi mínu að hefjast tel ég
mig ekki geta gefið mig af fullum
krafti í embættið.“ Að endingu
þakkar Jóna Sólveig stjórn flokks-
ins, trúnaðarmönnum og stuðnings-
mönnum fyrir gott samstarf.
Nýr varaformaður Viðreisnar
verður kosinn á landsþingi flokksins
sem haldið verður aðra helgina í
mars. Ekki er búist við að einhver
annar taki við embættinu tímabund-
ið, en Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir er formaður Viðreisnar.
Snýr sér
að öðrum
málum
Jóna Sólveig
Elínardóttir
Fyrsti formlegi starfsdagur hins nýja Landsréttar var í gær. Það mun
skýrast eftir rúmar tvær vikur hvaða mál verður fyrst flutt fyrir rétt-
inum. Rétturinn mun hins vegar taka strax fyrir kærur ef berast
vegna úrskurða í héraðsdómi, t.d. um gæsluvarðhald eða farbann.
Landsréttur mun taka við sakamálum sem voru ódæmd í Hæstarétti
um áramótin. Um er að ræða 75 sakamál sem munu fara til Lands-
réttar, þar af voru 28 þeirra tilbúin til flutnings fyrir Hæstarétti, sam-
kvæmt upplýsingum Þorsteins A. Jónssonar skrifstofustjóra Hæsta-
réttar.
Alls var áfrýjað 24 málum til Hæstaréttar á milli jóla og áramóta.
Þessi fjöldi er með mesta móti að sögn Þorsteins. Um áramót voru 270
einkamál ódæmd sem Hæstiréttur mun ljúka. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Hanna
Landsréttur fær 75 sakamál frá Hæstarétti
Nýtt dómstig er nú formlega tekið til starfa