Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landsnet er að þróa hugbúnað sem
sér fyrir truflanir í raforkuflutnings-
kerfinu og auðveldar stjórnstöð að
stýra framhjá þeim. Búnaðurinn er
afrakstur stórs Evrópuverkefnis sem
nefnist Garpur og er Landsnet fyrsta
flutningsfyrirtækið sem getur reikn-
að út áhættu í rekstri á rauntíma í
stjórnstöð sinni. Hefur búnaðurinn
reynst vel til þessa.
„Okkur hefur vantað aðferðir til að
meta áhættuna í raforkukerfinu og
setja fram tölulegar upplýsingar um
samfélagsleg áhrif truflana,“ segir
Íris Baldursdóttir, framkvæmda-
stjóri kerfisstjórnunarsviðs Lands-
nets. Hún sat í framkvæmdastjórn
evrópska verkefnisins og bar ábyrgð
á þeim verkhluta sem snéri að þróun
nýrrar aðferðafræði í áreiðanleika-
greiningu fyrir stjórnstöðvar. „Við
erum með mikið lestað kerfi sem oft
reynir á. Við viljum lágmarka
straumleysi og veita notendum eins
mikið afhendingaröryggi og mögu-
legt er. Krafa þeirra er að öryggið sé
yfir 99,99% og það er okkar viðmið. Á
sama tíma viljum við geta nýtt fjár-
festinguna í kerfinu eins vel og unnt
er. Þessi sjónarmið togast sífellt á,“
segir Íris.
Mikill kostnaður af straumleysi
Landsnet er eitt af sjö raforku-
flutningsfyrirtækjum í Evrópu sem
tóku þátt í rannsóknarverkefninu en
það hlaut íslenska nafnið Garpur
enda kom hugmyndin héðan. Einnig
tóku tólf háskólar og rannsókn-
arstofnanir þátt. Evrópusambandið
styrkti verkefnið í 7. rammaáætlun
en það kostaði tæplega 11 milljónir
evra eða sem nemur tæplega 1,4
milljörðum króna. Verkefninu er nú
lokið.
„Þótt háspennubúnaðurinn okkar
sé tiltölulega áreiðanlegur og við
stöndumst fyllilega samanburð við
nágrannalönd okkar, þá leiða bilanir
hér á landi oftar til straumleysis hjá
notendum en þekkist á hinum Norð-
urlöndunum. Það er merki um að
kerfið okkar er ekki eins samtengt
og önnur kerfi og tengingar veikar
milli landsvæða. Hefur þetta mikinn
kostnað í för með sér, bæði hjá not-
endum og raforkuframleiðendum,“
segir Íris.
Samfélagslegur kostnaður vegna
straumrofs er metinn rúmlega 1,4
milljarðar króna á ári, samkvæmt
nýútgefinni skýrslu starfshóps um
rekstrartruflanir á Íslandi. Mestu
áhrifin eru á verslun og viðskipti. Íris
bendir á að til mikils sé að vinna þeg-
ar reynt er að draga úr truflunum.
Samfélagið nánast lamist. Þá sé tölu-
vert um keyrslu varaaflsstöðva sem
ganga fyrir olíu og valda aukinni kol-
efnislosun.
„Rannsóknin gekk út á það að þróa
aðferðafræði til að meta hættu á
truflunum í rauntíma,“ segir Íris.
Áhættan er metin á þjóðhagslegum
grunni þar sem tekið er tillit til
kostnaðar samfélagsins vegna
straumleysis og kostnaðar markaðs-
aðila vegna óhagkvæmni í raforku-
framleiðslu og orku sem fer til spill-
is.“
Aðferðafræði Garps grundvallast
á líkindafræði. Íris bendir á að hér á
landi hafi í þrjátíu ár verið safnað
upplýsingum um truflanir, hvenær
þær hafa orðið, hvar og við hvaða að-
stæður. Búnaðurinn noti þessar upp-
lýsingar auk upplýsinga um kostnað
og möguleg viðbrögð til að koma í
veg fyrir truflun. Það kemur sér
einnig vel að Landsnet stendur fram-
arlega við þróun hátæknilausna við
stjórnun raforkukerfisins og sjálf-
virkni.
Niðurstöður á mínútu fresti
Það var því ekki tilviljun að ákveð-
ið var að taka tilraunaútgáfu hug-
búnaðarins fyrst í notkun í stjórnstöð
Landsnets. Búnaðurinn reiknar
hættuna af truflunum út frá ótrúlegu
magni upplýsinga og skilar niður-
stöðum á einnar mínútu fresti. Hann
má einnig nota til að prófa mismun-
andi úrlausnir til að draga úr áhættu
í kerfinu áður en ákveðið er hvernig
skuli stýra sér frá hættunni. Það er
til dæmis hægt að gera með því að
færa framleiðslu á milli virkjana til
að draga tímabundið úr flutningi raf-
orku milli landshluta.
„Við þurfum að keyra þetta kerfi
til að sjá hvort það gefi réttar niður-
stöður. Það hefur gengið vel til þessa.
Niðurstöður hugbúnaðarins ríma við
sérfræðimat starfsmanna í stjórn-
stöð Landsnets. Þeir búa yfir mikilli
þekkingu og reynslu af rekstri kerf-
isins en fagna því jafnframt að fá að-
gang að hugbúnaði sem gefur þeim
tölulegar niðurstöður sem styðja oft
á tíðum við erfiðar ákvarðanir,“ segir
Íris. Garpur verður áfram í þróun og
Íris segir að þörf sé á að nota gervi-
greind til að bæta hugbúnaðinn enn
frekar. Landsnet er að skoða mögu-
leika á samstarfi við önnur flutnings-
fyrirtæki og birgja um þann þátt.
Staðfestir veikleika kerfisins
Niðurstöður verkefnisins nýtast
raforkuflutningsfyrirtækjum á ýms-
an annan hátt, meðal annars við eign-
astýringu og kerfisþróun til fram-
tíðar. „Við sjáum að aðferðafræðin
getur nýst okkur við valkostagrein-
ingu við ákvarðanir um fjárfestingar
til framtíðar. Hugbúnaðurinn dregur
skýrar fram áskoranir sem við höfum
lengi vitað um. Það staðfestir fyrra
mat okkar á því að truflanir á Suð-
urnesjalínu hafa mestu samfélags-
legu áhrifin og að byggðalínuhring-
urinn er veiki hlekkurinn fyrir alla
landshluta,“ segir Íris. Landsnet hef-
ur einmitt unnið að undirbúningi að
styrkingu Suðurnesjalínu og byggða-
línunni á Norður- og Norðaustur-
landi.
Garpur sér fyrir bilanir
Landsnet tekur þátt í að þróa hugbúnað sem nýtist stjórnstöð til að draga úr hættu á að straumur
fari af Tilraunaútgáfan fyrst í notkun hér Afrakstur stórs evrópsks rannsóknaverkefnis
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdastjóri Íris Baldursdóttir ber ábyrgð á rekstri flutningskerfis Landsnets og kerfisstjórnun og að alltaf
sé jafnvægi á milli raforkunotkunar og raforkuvinnslu. Svið hennar er miðstöð snjallnetsvæðingar kerfisins.
Stjórnandi
» Íris Baldursdóttir er raf-
magnsverkfræðingur frá Há-
skóla Íslands og stundaði
framhaldsnám við Kungliga
Tekniska Högskolan í Stokk-
hólmi.
» Hún hóf störf hjá Landsneti
á árinu 2006 og hefur verið
framkvæmdastjóri kerfis-
stjórnunarsviðs frá árinu 2015.
Raforkunotkun er oft í hámarki
vikurnar fyrir jól bæði vegna kulda
en fyrst og fremst vegna aukinnar
verslunar og þjónustu. Á þessum
tíma er líka oft slæmt veður og því
geta fylgt truflanir í flutningskerf-
inu. „Í desember urðum við vör við
mikið álag í raforkukerfinu og
sáum álagstopp sem var hærri en
áður hefur mælst. Á síðustu árum
hefur álagstoppurinn þó verið að
færast fram í febrúar og aftur til
nóvember, meðal annars vegna
rafvæðingar fiskimjölsverksmiðja
á landinu, og því er að lengjast sá
hluti ársins þar sem raforkunotk-
un er í hámarki,“ segir Íris Bald-
ursdóttir.
Stjórnstöð Landsnets er í góðu
sambandi við Veðurstofu Íslands
og byggir viðbragð á gögnum það-
an og segir Íris að þau séu orðin
mun nákvæmari og áreiðanlegri en
áður var. Aðferðafræði Garps taki
einnig inn veðurspárgögn enda
hafi veðurfar töluverð áhrif á líkur
á truflunum, til viðbótar öðrum
þáttum eins og viðhaldi í kerfinu
og ástandi búnaðar.
„Við erum alltaf á vaktinni og
fylgjumst vel með veðurspá og
metum möguleg áhrif á kerf-
isreksturinn. Garpur gerir okkur
líka kleift að meta áhættuna með
tölulegum hætti og miðla því
áfram til okkar viðskiptavina.“
Íris segir að með bættri grein-
ingu í stjórnstöð og bættum upp-
lýsingum sé mögulegt með réttu
viðbragði að koma í veg fyrir að
bilanir valdi truflun á raf-
orkuafhendingu til notenda. Í vik-
unni fyrir jól gengu nokkrar lægðir
yfir landið og þá var brugðist við
með því að jafna flutning milli
landshluta eins og hægt var og
minnka þannig áhrif truflana eftir
byggðalínunni. „Slíkar aðgerðir
hafa oft borið árangur en að þessu
sinni reyndi hins vegar ekki á þær
því bilanir urðu ekki í flutnings-
kerfinu. Á jólanótt varð hins vegar
bilun á Sultartangalínu 3 sem ligg-
ur frá Sultartangastöð og niður í
Hvalfjörð. Þetta er sterkbyggð
400 kV lína, rekin á 220 kV, með
mikla flutningsgetu. Kerfið á Suð-
vesturlandi er hins vegar möskvað
með mörgum tengingum og tóku
aðrar línur við flutningi hennar
þegar hún bilaði og urðu notendur
því ekki varir við þessa truflun
nema mögulega blikk í ljósum sem
varð í skammhlaupinu. Á meðan
gert var við línuna þurfti að biðja
framleiðendur um að breyta fram-
leiðslu sinni til að jafna aflflutning
eftir þeim línum sem tóku við og
koma í veg fyrir yfirlestun og frek-
ari truflanir,“ segir Íris.
Hærri álagstoppur en
áður hefur sést fyrir jól
STJÓRNSTÖÐ FYLGIST MEÐ VEÐURSPÁ
Skútuvogur 1c, 104 Reykjavík | Sími 550 8500 | www.vv.is
sjáu
mst!
Frískleg og hugvitsamleg hönnun,
þau eru afar létt og þæginleg í notkun.
Lýsing og rafhlöðuending er framúrskarandi.
• Ljósstyrkur: 220 lm
• Drægni: 130 m
• Þyngd: 93 g
• Endurhlaðanlegt
• Vatnsvarið: IPX6
• Stillanlegur fókus og halli
• Hvítt kraftmikið LED ljós og
eitt rautt LED ljós sem hentar vel
til að halda nætursjón
Útsölustaðir:
Ísleifur Jónson, Gangleri Outfitters, Hverfisgötu 82, Rvk. Afreksvörur, Glæsibæ, Rvk.
Byko Granda, Rvk. KM Þjónustan, Vesturbraut 20, Búðardal.
Eins og fætur toga, Bæjarlind 4, Kópavogi.