Morgunblaðið - 03.01.2018, Page 33
33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
Vatnajökull Í forgrunni sjást Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls en uppi á því eru skálar Jöklarannsóknafélags Íslands. Í fjarska sér til Heklu sem ber við himin hægra megin.
RAX
Lái mér hver sem
vill. Ég hef áhyggjur af
því hvernig margir
nálgast umræðu um
skattheimtu ríkisins.
Hugmyndafræðin sem
liggur þar að baki er
mér ekki aðeins óskilj-
anleg heldur gengur
hún gegn öllum hug-
myndum mínum um
frelsi einstaklinga til
orðs og athafna, eignarrétt og tilgang
ríkisvaldsins.
Alþingi afgreiddi fjárlög fyrir árið
sem nú er gengið í garð síðastliðinn
föstudag. Aldrei hafa tekjur ríkisins
verið áætlaðar hærri og hið sama á
við um útgjöldin. Heildargjöld ríkis-
ins samkvæmt fjárlögum verða rúm-
lega 807 milljarðar króna en út-
gjöldin hækkuðu um liðlega tvo
milljarða í meðförum þingsins. Heild-
artekjur verða 840 milljarðar gangi
frumvarpið eftir – um 64 milljörðum
krónum hærri en fjárlög síðasta árs
en rúmlega 25 milljörðum hærri en
endurmetin tekjuáætlun ríkissjóðs.
Á þessu ári gera fjárlög ráð fyrir að
skatttekjur og tryggingagjald verði
yfir 35 milljörðum hærri en endur-
skoðuð áætlun fyrir síðasta ár gerir
ráð fyrir. Á móti lækka arðgreiðslur
til ríkissjóðs verulega. Á þessu ári er
gert ráð fyrir að arð-
greiðslur til ríkissjóðs
verði um 18,7 millj-
arðar en á síðasta ári
námu arðgreiðslur um
39,8 milljörðum, langt
umfram það sem reikn-
að var með. Munaði þar
mest um háar arð-
greiðslur frá bönk-
unum.
Ríkissjóður hefur
fitnað ágætlega á síð-
ustu árum – hann hefur
fengið að njóta hag-
vaxtar líkt og flestir landsmenn.
Þrátt fyrir að slakað hafi verið á
skattaklónni undir forystu Sjálfstæð-
isflokksins – almenn vörugjöld af-
numin, tollar felldir niður af flestum
vörum, tekjuskattur einstaklinga
lækkaður, milliþrep afnumið og
tryggingagjald lækkað – verða skatt-
tekjur og tryggingagjald rúmlega
187 milljörðum krónum hærri á
þessu ári að nafnverði en árið 2013. Á
föstu verðlagi er hækkunin um 150
milljarðar króna eða yfir 27%.
„Getuleysi“ við tekjuöflun
Þessi gríðarlega tekjuaukning er
ekki nægjanleg í huga þeirra sem
kalla á aukna skattheimtu. Í um-
ræðum um fjárlög var ríkisstjórnin
sökuð um „getuleysi“ til að afla
tekna. „Milljarðar tekna eru gefnir
eftir í frumvarpinu,“ sagði formaður
Samfylkingarinnar í þingræðu. Fé-
lagi hans og fulltrúi í fjárlaganefnd
var sama sinnis: „Tekjuleiðirnar eru
svo sannarlega fyrir hendi. Þær eru
bara ekki nýttar.“
Af málflutningi flestra þingmanna
stjórnarandstöðunnar um fjárlög var
ekki hægt að draga aðra ályktun en
að ríkisstjórnin væri að boða um-
fangsmikla lækkun skatta. Fátt var
fjær sannleikanum (því miður). Kol-
efnisgjöld voru hækkuð um 50% og
fjármagnstekjuskattur hækkaður úr
20% í 22% (en á móti var frítekju-
mark vaxtatekna hækkað). Flest
gjöld voru hækkuð til samræmis við
spá um þróun verðlags.
Það var helst Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Miðflokks-
ins, sem gerði athugasemdir við fyr-
irhugaðar hækkanir. Logi Einarsson
botnaði ekkert í þeim athuga-
semdum: „Ég skildi ekki alveg hvað
hann [Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son] var að tala um vegna þess að
nettóeftirgjöf tekna í fjárlögunum
frá fjárlögum Benedikts Jóhannes-
sonar er um 15 milljarðar og það á að
gefa frekar eftir.“
„Eftirgjöfin“ sem formaður Sam-
fylkingarinnar kallaði svo var meðal
annars fólgin í því að hækka ekki kol-
efnisgjöld um 100% heldur „aðeins“
um 50%. Í frumvarpi sem Benedikt
Jóhannesson, þáverandi fjármála-
ráðherra, lagði fram í september síð-
astliðnum var tillaga um tvöföldun
kolefnisgjaldsins. Rétt er að taka
fram að í umræðum um frumvarpið,
sem aldrei náði fram að ganga þar
sem ríkisstjórnin sprakk, lýsti ég yf-
ir andstöðu við slíka hækkun og var
ekki einn meðal stjórnarþingmanna í
andstöðunni.
Eitthvað er öfugsnúið
En 50% hækkun skatta er engu að
síður „eftirgjöf“ á tekjum í huga
skattaglaðra stjórnamálamanna.
Þegar Ágúst Ólafur Ágústsson,
fulltrúi Samfylkingar í fjárlaga-
nefnd, gerði grein fyrir nefndaráliti
sagði hann meðal annars:
„Við erum núna í dag eða vorum
að greiða atkvæði um í morgun að
ekki ætti að hækka kolefnisgjaldið
eins og til stóð. Það eru tveir millj-
arðar sem ríkisstjórn Vinstri-
grænna er að afsala sér.“
Í andsvörum við Willum Þór Þórs-
son, formann fjárlaganefndar, sagði
Ágúst Ólafur að með því að ýta á
„einn takka“ hefðu tveir milljarðar
farið frá ríkinu:
„Hið sama má segja um fjár-
magnstekjuskattinn. Við ýttum á
einn takka og ákváðum að fjár-
magnstekjuskatturinn yrði 22%. Af
hverju ekki 25%? Auðlegðarskatt-
urinn er ekki flókið framlag. Við vor-
um með auðlegðarskatt sem gaf 5-10
milljarða, allt eftir því hvernig áraði.
Þetta er ekkert svo flókið, það sem
skortir er pólitískur vilji þessara
blessuðu stjórnarflokka.“
Það er eitthvað öfugsnúið við þá
röksemdafærslu að ríkissjóður sé að
„afsala“ sér tekjum með því að
hækka ekki skatta og álögur meira
en lagt er til. Að þingmenn setjist
niður og reikni hve „nettóeftirgjöf
tekna“ er mikil vegna þess að skatt-
heimta á fyrirtæki og einstaklinga er
ekki eins þung og þeir vilja er
áhyggjuefni – ekki aðeins fyrir mig
sem hægrimann heldur fyrir allt
launafólk. Virðingin fyrir sjálfsaflafé
og eignum einstaklinga er lítil. Engu
er líkara en hinir skattaglöðu stjórn-
málamenn líti svo á að ríkið eigi rétt
á öllu því sem einstaklingurinn aflar
og að ríkið „afsali sér“ því sem hann
fær að halda eftir þegar búið er að
greiða skatta – veiti „nettóeftirgjöf“ í
góðsemi sinni.
Eftir Óla Björn
Kárason »Það er eitthvað
öfugsnúið við þá
röksemdafærslu að
ríkissjóður sé að „afsala“
sér tekjum með því
að hækka ekki skatta
og álögur meira en
lagt er til.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Að afsala sér tekjum annarra