Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 59
59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Margir ganga með þann draum í
maganum að verða flinkir í bar-
dagalistum og geta sparkað og kýlt
eins og hetjurnar í bíómyndunum.
Hjá sumum kviknaði draumurinn
þegar Ralph Macchio lét fantana
kenna á því í Karate Kid, eða þegar
Uma Thurman lumbraði á David
Carradine í Kill Bill. Fyrirmyndin
gæti líka verið Keanu Reeves í Mat-
rix, eða hinn fótafimi Jean-Claude
Van Damme í Kickboxer.
Það skal ósagt látið hvort raun-
veruleikinn á mikið skylt við kvik-
myndirnar, en
bardagaíþróttir
geta verið af-
skaplega góð lík-
amsrækt og gott
veganesti út í líf-
ið. Halldór Stef-
ánsson er þjálfari
hjá Karatefélagi
Reykjavíkur og
segir hann hægt
að fara ýmsar
leiðir þegar fólk
leggur stund á japönsku bardaga-
listina karate:
„Það má stunda karate sem n.k.
listform, sem á sér fornar rætur í
bardagalistum Asíu. Þá má líka æfa
karate sem sjálfsvarnaríþrótt, eða
einfaldlega sem líkamsrækt sem
eykur styrk, úthald og liðleika.
Loks er hægt að æfa karate sem
keppnisíþrótt. Hjá félaginu æfir
fjölbreyttur hópur fólks, á öllum
aldri, og stundar karate eftir eigin
áherslum.“
Fullkomið vald á líkamanum
Þeir sem þekkja bardagalistir
bara úr bíómyndunum vita oft ekki
hvers má vænta á karateæfingum.
Er nokkur hætta á því að koma
heim með glóðarauga eða brotið nef
eftir fyrstu æfingu? Þvert á móti,
segir Halldór: „Í karate er einmitt
lögð megináhersla á að ná fullkom-
inni stjórn á hreyfingum líkamans
með það fyrir augum að snerta ekki
andstæðinginn. Eflaust er leitun að
þeirri íþrótt hér á landi þar sem
slysin á keppnismótum eru fátíðari
en í karate.“
Karate er líka aðgengileg íþrótt,
og þurfa byrjendur ekki að vera
kattliðugir, þvengmjóir eða með
krafta í kögglum. „Á æfingum æfir
hver og einn eins og hann getur, á
sínum forsendum. Eftir því sem
íþróttin er stunduð lengur kemst
fólk í meiri skilning um tilgang æf-
inga sem kemur iðkendum í betra
form, og eins og í mörgum ein-
staklingsíþróttum ræður þolin-
mæðin töluverðu um það hversu
langt hver og einn nær í íþróttinni.“
Galli innifalinn í
æfingagjöldum
Karatefélag Reykjavíkur er til
húsa í kjallara Laugardalslaugar og
hefur þar tvo rúmgóða æfingasali
og lítinn tækjasal auk þess að iðk-
endur fá að nota þá aðstöðu sem
Laugardalslaugin býður upp á. Að
vanda býður félagið upp á
byrjendanámskeið fyrir börn, ung-
linga og fullorðna í janúar en árið
um kring er tekið vel á móti nýlið-
um. Halldór segir ekki þurfa að
mæta í karate-galla í fyrsta tímann
og geti fólk komið í þeim íþrótta-
fatnaði sem því þykir þægilegastur
en karategalli er innifalinn í æfinga-
gjaldi allra byrjenda.
Bardagaíþróttir eins og karate
snúast ekki aðeins um úthugsaðar
hreyfingar og fimi heldur um þann
aga og lífsstíl sem fylgja íþróttinni.
„Í kringum æfingarnar er lögð
áhersla á virðingu gagnvart íþrótt-
inni og þeim hefðum sem henni
fylgja, en þar með er ekki sagt að
ekki ríki léttleiki og gleði í salnum.“
Foreldrar sjá þennan aga oft í
hyllingum og vænta þess að með því
að læra karate tileinki börnin sér
betri hegðun. Halldór segir karate
enga töfralausn í þeim efnum, en
enginn vafi sé á að íþróttin geri
ungviðinu gott. „Sjálfur á ég fjögur
börn sem æfa karate af miklu kappi
og hafa náð mjög góðum árangri í
íþróttinni eins og reyndar lang-
flestir sem koma og æfa hjá okkur.“
Morgunblaðið/Golli
Halldór
Stefánsson
Einbeiting Beltaprófin kalla á
góðan undirbúning og aga.
Aðgengileg
íþrótt sem
æfa má á eigin
forsendum
Slysin eru sjaldgæf í karate enda ganga æfing-
arnar út á að ná fullkomnu valdi á hreyfingum
líkamans og snerta ekki andstæðinginn.
Kraftur Börn á karate-
móti. Janúar er góður tími
til að byrja og gæti jafnvel
tekist að krækja í nýtt belti
fyrir sumarið ef íþróttin er
stunduð samviskusamlega.