Morgunblaðið - 03.01.2018, Síða 60

Morgunblaðið - 03.01.2018, Síða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018 Heilbrigði og heilsa Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Guðný Jóna kennir hjá Reebok Fit- ness og er lærður heilsunuddari, ÍAK einkaþjálfari og er um þessar mundir að læra til styrktarþjálfara hjá Keili. Þess utan á hún að baki fleiri námskeið í líkamsþjálfun og heilsurækt en hún treystir sér til að telja upp að svo stöddu. Bætir bæði þol og styrk „Það eru komin mörg ár síðan ég kynntist tabata-kerfinu en ég hef kennt tabata-tíma í Reebok Fitness núna á annað ár,“ segir Guðný, spurð um æfingarnar. „Ég hef notað þetta kerfi bæði í einkaþjálfun ásamt hópþjálfun í mörg ár.“ Tabata-æfingakerfið er að sögn Guðnýjar uppfinning japanska vís- indamannsins dr. Izumi Tabata og rannsóknarliðs hans við National Institute of Fitness and Sports í Tókýó. Tabata fann það út að þetta æfingakerfi skilaði þátttakendum sérstaklega miklu í að bæta þol og styrk. „Ein tabata-lota stendur yfir í 4 mínútur. Þessum fjórum mínútum er skipt niður í 8 smálotur sem sam- anstanda af hámarks ákefð og áreynslu í 20 sekúndna vinnu á móti 10 sekúndna hvíld,“ útskýrir Guðný. „Æfingarnar eru sambland af þol- og styrktaræfingum, þar sem við vinnum ýmist með lóð og stangir eða okkar eigin líkamsþyngd. Æfing- arnar eru til dæmis armbeygjur og hnébeygjur – jafnvel hnébeygju- hopp, planki, fjallaklifur, framstig og afturstig,“ bætir hún við. „En það eru endalausir möguleikar á æfing- um sem hægt er að leika sér með og nota. Nánast allir geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi í tabata Þegar talið berst að því hvort ta- bata þjálfar einhvern ákveðinn vöðvahóp eða líkamshluta öðrum fremur segir Guðný svo ekki vera. „Nei, þetta eru bara alhliða æfing- ar, allt frá því að nota okkar eigin líkamsþyngd yfir í harðkjarna lyft- ingar. Mér finnst persónulega mjög gott að vinna með efri og neðri hluta líkamans í sömu æfingunni og einnig gerum við það oft að breyta aðeins og hendum í stöðvahring og jafnvel aukum í 30 sekúndna vinnu á móti 15 sekúndna hvíld.“ Guðný Jóna er heldur ekki í vafa um hvað það er sem skapar þessu kerfi ákveðna sérstöðu og aðgreinir það um leið frá öðrum. „Fyrst og fremst að þetta er mjög einfalt kerfi. Það geta nánast allir fundið æfingu við sitt hæfi,“ segir hún. „Það er hægt að stunda tabata hvar sem er, hvort sem það er í vinnunni eða heima í stofu. Eins og ég sagði áðan þá ertu að vinna í 20 sekúndur á fullu gasi með 100% ákefð. Ekki 60% eða 75% heldur 100%. Það halda margir eflaust að það sé ekki hægt að halda út í 100% ákefð í þennan tíma, en þetta eru smálotur sem þú gefur allt sem þú hefur. Þó að hraðinn og þyngdir minnki eftir því sem líður á, þá ert þú samt að gera þitt allra besta. Mjög fjölbreytt og áhrifaríkt.“ Mikilvægt að hlusta á líkamann Guðný Jóna segir að í raun geti allir stundað tabata, svo fremi sem fólk fer ekki fram úr sjálfu sér. „Í rauninni geta þetta allir, já. Tímarnir henta fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna þar sem hver og einn stjórnar sínu álagi. Ég myndi þó ekki mæla með því að byrjendur fari á fullum krafti í tabata-tíma, og það er í raun eitthvað sem á við um öll æfingakerfi. Það er mikilvægast að hlusta á líkamann og fara ekki Að gefa allt sem þú átt Tabata er æfingakerfi sem sífellt fleiri falla fyrir enda fjölbreytilegt og árangursríkt, eins og Guðný Jóna Þórsdóttir segir frá. Hún hefur kennt tabata um nokkurt skeið og segir það í senn einfalt og óendanlega fjölbreytt. Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR –– Meira fyrir lesendur Þorrinn Þann 19. janúar gefur Morgunblaðið út sérblað tileinkað þorranum PÖNTUN AUGLÝSINGA ER TIL 15. JANÚAR Nánari upplýsingar gefur: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.