Morgunblaðið - 03.01.2018, Page 64
64 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
✝ Halldóra Pál-ína Jóhanns-
dóttir frá Hofsósi
fæddist 24. apríl
1936. Hún lést 17.
desember 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Jóhann
Skúlason, vinnu-
maður og bóndi, f.
25.12. 1866, d. 6.8.
1954, og Sigurrós
Guðrún Ágústs-
dóttir húsfreyja frá Vatnsenda
við Hofsós, f. 25.3. 1897, d. 16.1.
1971.
Eiginmaður Halldóru var
Guðjón Sigurðsson, f. 21.6. 1921,
d. 24.5. 2007. Börn þeirra eru: 1)
Jóhann Guðmundur, f. 12.1.
1955, eiginkona Guðrún Ingv-
arsdóttir, f. 20.7. 1955. Börn
þeirra eru Elísabet, f. 30.11.
1979, Ágúst, f. 6.3. 1982, og Jó-
hann, f. 12.2. 1986. 2) Birna, f.
19.7. 1957, eiginmaður Árni
Hrafnsson, f. 27.12. 1958. Birna
á Guðjón Birgi
Rúnarsson, f. 10.4.
1976, en börn Birnu
og Árna eru Kjart-
an Ingi, f. 9.5. 1986,
Rósa Linda, f. 24.5.
1988, og Ásdís Eva,
f. 12.1. 1992. 3) Sig-
urður, f. 20.7. 1960.
Börn hans eru Haf-
dís, f. 25.11. 1981,
Inga Dóra, f. 12.11.
1990, Guðjón, f.
14.12. 1993, og Gabríel Ísak, f.
16.10. 2009. 4) Brynja, f. 17.11.
1963. 5) Björk, f. 12.1. 1965.
Barn Brynja Dís, f. 4.7. 2014.
Uppeldissonur Guðjón Birgir
Rúnarsson, f. 10.4. 1976, sam-
býliskona Guðrún Helga Steins-
dóttir, f. 6.1. 1978. Börn þeirra
eru Ísak, f. 7.8. 2001, Theódór, f.
8.8. 2001, og Jóhann Daði, f. 8.7.
2012.
Útför Halldóru fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 3. janúar
2018, klukkan 13.
Rósin mín er gjöf til þín
Ég gef þér rós frá mér
Þú plantar, vökvar, hugsar um
Því rós er gjöf frá mér til þín.
Núna er mamma/amma farin,
bestu minningarnar eru síðan úr
Hjallalandinu þar sem foreldrar
mínir áttu heimili í 50 ár eða frá
1967, þar ólumst við upp fimm
systkini og einn uppeldissonur,
Hjallalandið var miðdepill okkar
allra þar sem við komum oft sam-
an og áttum góðar stundir.
Mamma hringdi oft í okkur og
bauð okkur í mat eða pönnukökur,
það var alltaf nóg til að borða. Vin-
ir og vandamenn voru einnig alltaf
velkomnir hvort sem þeir voru að
koma í heimsókn eða í gistingu.
Móðir mín hafði mikinn áhuga á
garðyrkju og elskaði að vera alla
daga í moldinni í garðinum sínum
þar sem hún hugsaði um blómin af
mikilli alúð og var hann líka þetta
mikla augnayndi. Einnig ræktaði
hún kartöflur, grænmeti og jurtir
í garðinum og kunni hún nöfn allra
blóma, trjáa og jurta. Móðir,
amma og langamma fór henni
einnig vel úr hendi þar sem krakk-
arnir fengu að njóta alls í garð-
inum og þótti þeim ásamt okkur
ekki leiðinlegt að grípa í ferskt
grænmetið eða smakka kartöfl-
urnar hennar sem hún ræktaði
sjálf.
Hún var vinur vina sinna og
gerði ekki greinarmun á aldri eða
stétt, allir voru jafnir fyrir henni,
gamlir eða ungir, fatlaðir eða heil-
brigðir, allir stóðu henni jafnfætis
og átti hún auðvelt með að um-
gangast fólk á öllum aldri. Dóttir
mín átti í góðu sambandi við
ömmu sína sem vildi alltaf hitta
hana hversu slöpp eða veik sem
hún var þó svo að ekki væri nema
að segja hæ við hana. Þær áttu
góðar stundir í garðinum eða
seinna meir voru þær að púsla,
teikna, lesa bók og tala saman.
Fótabað var eitt það mikilvæg-
asta, öll barnabörnin og lang-
ömmubörnin hafa líklega farið í
fótabað í eldhúsvaskinum heima
hjá henni.
Matur var hennar áhugamál og
eldaði hún mat og góðgæti af mik-
illi snilld, allur matur lék í höndum
hennar og veislurnar sem hún
gerði og hélt, allt unnið frá grunni.
Fermingarveislur okkar systkina
gerði hún sjálf, ásamt skírnar-
veislum nokkurra barnabarna,
þorrablót voru haldin á hverju ári
með hennar stæl og komust færri
að en vildu.
Ég var svo heppin að njóta þess
kraftaverks að fæða barn og þeg-
ar barn dregur andann í fyrsta
skipti er það það dásamlegasta
sem þú verður vitni að. Ég varð
einnig vitni að því þegar móðir
mín dró andann í síðasta skipti
sem var í raun dásamlegt en einn-
ig það sorglegasta sem ég hef upp-
lifað, hún var umvafin börnum sín-
um alveg eins og hún vildi hafa
það, að vera umvafin fjölskyldunni
sinni sem var henni mjög kær. Við
fundum það alla tíð í uppvextinum
hversu fjölskylduvæn hún var og
hélt góðu sambandi við ættmenni
sín, ásamt sínum góðu vinkonum.
Núna líður henni vel og er eng-
ill á himni eins og afi Guðjón,
blessuð sé minning þeirra. Guð
geymi þig mamma/amma mín/
okkar, þín er sárt saknað en minn-
ingin um þig varir alltaf.
Björk og Brynja Dís.
Látin er í Reykjavík Halldóra
Jóhannsdóttir. Fyrstu kynni mín
af Dóru voru er hún kom í sínar
fyrstu ferðir að Sauðhúsvelli í
fylgd Gauja frænda. Bílaumferð
undir Eyjafjöllum, í samanburði
við það sem nú er, svo framandi,
að nánast var tiltökumál. Kaiser--
drossía renndi í hlað. Þvílík sjón,
þvílík upplifun.
Fólk var að koma úr Reykjavík.
Sveitasíminn hafði ekki hringt og
ekki látið vita að burtfluttur Guð-
jón væri að koma í sumarferð.
Það hafði heldur ekki verið látið
vita að Gaui frændi væri að koma
með kærustu, konuefni! Alveg
óvart! Fyrir ungum dreng sem
stóð á hlaðinu á Sauðhúsvelli, var
það í fyrstu Kaiserinn sem skipti
máli. Gaui frændi, jú stjarna í mín-
um augum, leigubílstjórinn í
Reykjavík. En með honum var
farþegi „önnur stjarna“, Dóra. Og
er síðar varð, oft svo náin kær-
leiksrík nærvera. Hvers vegna
skyldi maður muna það? Sæt
kona, fjörug, heilsteypt mann-
gerð, samkvæm sjálfri sér, og
staðföst í afstöðu sinni ef hún tók
hana á annað borð. Heimboðin,
svignandi veisluborð. Allt af öllum
myndarskap, nánast töfrum líkt.
Töfrum sem Dóra beitti allskostar
í umgengni við víðfeðma vinafjöld.
Sauðhúsvallarætt og allt er henni
viðkom var Dóru ríkulegur eld-
móður og sameiningartákn í virð-
ingu við Gauja, sinn samtaka eig-
inmann.
Við munum þetta allt er við
þökkum samfylgd og kveðjum í
verðugri þakkarskuld. Afkomend-
um, ættingjum og venslafólki vott-
um við samúð.
Margrét Jóna og Þorberg.
Í dag kveðjum við kæra vin-
konu. Saman kölluðum við okkur
spilasystur. Ein af okkur kunni
brids og Dóra stakk upp á að hún
kenndi okkur og það varð úr. Við
fórum saman á nokkur námskeið í
brids til að fullnuma okkur. Við
hittumst heima hjá hver annarri
til skiptis og það voru sannkallaðir
hátíðisdagar. Við klæddum okkur
upp á, eins og sagt var. Við tókum
daginn snemma, hittumst á há-
degi og vorum að langt fram á
kvöld. Mikið var spilað, svo ekki sé
talað um kræsingarnar sem voru á
borðum. Við fórum einnig í nokkr-
ar spilaferðir í sumarbústaði og
vorum í þrjá til fjóra daga í einu.
Þar var Dóra hrókur alls fagnaðar
og heldur betur liðtæk í eldhúsinu.
Þessara daga nutum við í botn.
Við þökkum henni samfylgdina,
hennar verður sárt saknað. Við
sendum börnum hennar og fjöl-
skyldum þeirra okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Ragnheiður (Ragga),
Fríða og Anna Lilja.
Halldóra Pálína
Jóhannsdóttir
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR INGIMARSSON
bóndi,
Flugumýri, Skagafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 21. desember. Útför hans fer fram frá
Flugumýrarkirkju laugardaginn 6. janúar klukkan 14.
Ásta Kristín Sigurbjörnsdóttir
Sigrún Inga Sigurðardóttir Oddgeir Þórðarson
Eyrún Anna Sigurðardóttir
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI SCHEVING STEFÁNSSON
frá Firði, Seyðisfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossahlíð,
Seyðisfirði mánudaginn 1. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju
mánudaginn 8. janúar kl. 14. Blóm og
kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeir
sem vilja minnast hans láti Hollvinasamtök
Sjúkrahússins á Seyðisfirði njóta þess.
Ingibjörg Rafnsdóttir
Ásdís Benediktsdóttir Bergur Tómasson
Anna Dóra Árnadóttir Magnús Guðmundsson
Guðrún Katrín Árnadóttir Sigurður Gunnarsson
Stefán Árnason Bryndís Egilson
Rafn Árnason Arndís Pálsdóttir
Ragnhildur Billa Árnadóttir Jóhann Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn,faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
OTTÓ M. ÞORGILSSON
frá Hrísey
lést að kvöldi annars dags jóla.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 4. janúar klukkan 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð Akureyri.
Svandís Gunnarsdóttir
Hafdís Hrönn Ottósdóttir Sigurður Leópoldsson
Fjóla Björk Ottósdóttir
Gunnhildur Ottósdóttir Elías Björnsson
og afabörnin
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
KRISTÍN TRYGGVADÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést 28. desember á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
þriðjudaginn 9. janúar klukkan 13.
Ástvinir þakka starfsfólki Báruhrauns á Hrafnistu í Hafnarfirði
fyrir einstaka umönnun og hlýhug í garð hennar og okkar allra.
Jón Harðarson
Páll Harðarson Valdís Andersen
Kristín Harðardóttir
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BÖÐVAR SIGVALDASON,
Barði, Miðfirði,
lést laugardaginn 23. desember á
Landspítala Fossvogi.
Hann verður jarðsunginn frá Melstaðarkirkju
í Miðfirði föstudaginn 5. janúar klukkan 14.
Eva Thorstensen
Anna Rósa Böðvarsdóttir Sigurður Benedikt Stefánsson
Sigríður Klara Böðvarsdóttir Steindór J. Erlingsson
Sigvaldi Vilmar Böðvarsson Tina Jeanette Holm
Þorvaldur Óli Böðvarsson Louise Skovholm Christiansen
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HALLDÓRA KRISTÍN
ÞORLÁKSDÓTTIR,
lést miðvikudaginn 27. desember.
Útför hennar fer fram frá Lindakirkju
föstudaginn 5. janúar klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð dvalar-
og hjúkrunarheimilisins Grundar.
Gylfi Guðbjörn Guðjónsson Þorbjörg Magnúsdóttir
Guðjón Guðjónsson Guðrún Soffía Pétursdóttir
Hjálmfríður Guðjónsdóttir Sævar Berg Ólafsson
Bryndís Björk Guðjónsdóttir Gunnar Þór Gunnarsson
Anna Dröfn Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELÍN FANNEY ÞORVALDSDÓTTIR
frá Vatnsenda, Héðinsfirði,
lést þriðjudaginn 26. desember á Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Útför hennar fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 5. janúar
klukkan 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurgeir Helgi Guðjónsson
Ólína Þórey Guðjónsdóttir Ólafur Kárason
Hulda Björk Guðjónsdóttir Ólafur Ragnarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma, langalangamma, systir og
mágkona,
ÞÓRUNN ÓLAFÍA KRISTBJÖRG
SIGURÐARDÓTTIR,
(Þóra Sigurðardóttir),
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 5. janúar klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkað, þeim sem vildu minnast
hennar er bent á sambýlið Svöluhrauni 19, kt. 4706012640,
reikn. 536-26-6684.
Sigríður Pétursdóttir Jónas Már Ragnarsson
Þorgerður R. Pétursdóttir Öyvind Glömmi
Bjarni Júlíus Einarsson
Gísli Pétursson
Rúna Pétursdóttir Egill Lárusson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Guðrún Sigurðardóttir Bragi Guðnason
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir, tengdasonur og mágur,
HAUKUR ÞÓR BERGMANN
tölvunarfræðingur,
Kögurseli 1,
Reykjavík,
lést á heimili sínu föstudaginn 29.
desember. Útförin verður auglýst síðar.
Aðalheiður Kristjánsdóttir
Halldóra Rún Bergmann
Þóra Lilja Bergmann
Hekla Lind Bergmann
Þóra Jónsdóttir
Sigurður Bergmann Sólveig St. Guðmundsdóttir
Halldóra Gísladóttir