Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 67
MINNINGAR 67
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
✝ Ingibjörg DanKristjánsdóttir
fæddist á Horna-
firði 15. júní 1925.
Hún lést á Vífils-
staðaspítala 13.
desember 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Kristján
Þorgeir Jakobs-
son, f. 11. janúar
1900, fórst í Atl-
antshafi í sept-
ember 1942, og Olga Ágústa
Margrét Þórhallsdóttir, f. 31.
maí 1903, d. 3. júní 1963.
Systkini: Haukur Dan, f. 1923,
d. 2011, Þórhallur Dan, f.
1926, d. 1975, Jóhanna Gerð-
ur, f. 1928, lést í Bandaríkj-
unum 2004, Heimir, f. 1931, d.
1931, Hulda Ída, f. 1933, d.
1999, Kristján Þorgeir, f.
1935, d. 2008, og Örvar, f.
1937, d. 2014.
Ingibjörg giftist 5. júní 1948
Guðmundi Kr. Jóhannssyni,
viðskiptafræðingi og kór-
stjóra, f. 29.6. 1922, d. 27. nóv-
ember 2008. Börn þeirra eru:
1) Jóhann, tannlæknir í Nor-
egi, f. 18.11. 1948, maki Erla
Valsdóttir sjúkraliði, f. 30.11.
1952. Börn þeirra eru: a) Orri
Valur, b) Unnur Ýr, börn
hennar eru Kirsten Katla og
Hekla Marín og c) Daði, sam-
býliskona Birna Sigurbjarts-
dóttir, dóttir hans af fyrra
sambandi er Erla Mjöll, börn
Daða og Birnu eru Óðinn
Trausti og Ylfa. Jóhann á
eru a) Arnór Freyr, sambýlis-
kona Karen Kristinsdóttir, b)
Fannar Ingi og c) María
Björg.
Ingibjörg fæddist á Horna-
firði. Skömmu síðar fluttust
foreldar hennar til Siglu-
fjarðar en hún varð eftir í
fóstri hjá afa sínum og ömmu,
Þórhalli Daníelssyni og Ingi-
björgu Friðgeirsdóttur. Þar
bjó hún til tíu ára aldurs en
fluttist þá með foreldrum sín-
um til Reykjavíkur. Fjórtán
ára að aldri flutti hún aftur til
Hornafjarðar og bjó hjá móð-
ursystur sinni, Huldu Þór-
hallsdóttur, og manni hennar
Knúti Kristinssyni læknir. Á
þeim tíma vann hún á símstöð-
inni. Skömmu síðar flutti hún
aftur til Reykjavíkur og þaðan
til Reykhóla þar sem Knútur
og Hulda bjuggu. Tveimur ár-
um seinna fór hún, þá nítján
ára, í Húsmæðraskólann í
Reykjavík og stundaði þar
nám veturinn 1944-1945. Að
því búnu hélt hún til Siglu-
fjarðar og fór að vinna hjá
móðurbróður sínum, Daníel
Þórhallssyni kaupmanni. Þar
kynntist hún Guðmundi árið
1946. Þau bjuggu um skeið í
Reykjavík en fluttu árið 1949
til Ólafsfjarðar þar sem Guð-
mundur gegndi starfi bæjar-
gjaldkera. Um mitt ár 1960
fluttist fjölskyldan til Akur-
eyrar. Ingibjörg annaðist bú
og börn, en vann líka úti þeg-
ar börnin uxu úr grasi og þá
helst við skrifstofustörf. Hún
var ætíð virk í félagsmálum
og var um árabil meðlimur í
Lionsklúbbnum og Oddfellow-
reglunni.
Útför Ingibjargar fór fram í
kyrrþey 21. desember 2017.
einnig d) Sunnu,
maki Arnar Þór
Stefánsson, börn
hennar af fyrra
hjónabandi eru
Embla Mjöll og
Sól, börn Sunnu
og Arnars eru
Vala og Auður, og
e) Guðmund, maki
Hjördís Guðlaugs-
dóttir, börn þeirra
eru Tekla Mist og
Guðlaugur Tristan, 2) Inga
tækniteiknari, f. 11.5. 1950,
maki Haraldur Ó. Tómasson
læknir, f. 27.8. 1947. Börn
þeirra eru: a) Ingibjörg Edda,
maki Daníel Erlingsson, börn
þeirra eru Eyrún Inga og
Hjördís. b) Tumi og c) Katrín,
maki Hjalti Guðmundsson,
börn þeirra eru Inga Bryndís,
Heiðrún og Sunneva. 3) Krist-
ján Þorgeir tónlistarmaður, f.
13.6. 1952, maki Erna Margrét
Viggósdóttir prentsmiður, f.
27.9. 1957. Sonur Kristjáns er
Davíð Rafn, sambýliskona
Dagný Berglind Gísladóttir. 4)
Eydís Ýr framhaldsskólakenn-
ari, f. 1.3. 1960, maki Friðrik
Rafnsson þýðandi, f. 5.2. 1959.
Börn þeirra eru: a) Elvar,
sambýliskona Guðrún Alma
Einarsdóttir, sonur þeirra er
Birgir Snær og b) Helga Þór-
ey, sambýlismaður Snorri Örn
Daníelsson. 5) Fjölnir Freyr
læknir, f. 13.2. 1966, maki
Jónína Guðjónsdóttir þroska-
þjálfi, f. 3.2. 1969. Börn þeirra
Þá er komið að leiðarlokum,
Ingibjörg tengdamóðir mín er
sofnuð inn í ljósið eins og hún
orðaði það svo fallega þegar
hún frétti að einhver sem hún
þekkti hefði fengið hægt and-
lát. Eftir sitjum við með hug-
ann fullan af minningum um
yndislega manneskju sem átti
merkilega ævi og skilur eftir
sig myndarlegan hóp afkom-
enda, fimm börn og fjölda
ömmu- og langömmubarna.
Ingibjörg og Guðmundur
bjuggu í Háagerði á Akureyri
þegar ég fór að gera hosur
mínar grænar fyrir dóttur
þeirra, Eydísi Ýri, fyrir næst-
um fjörutíu árum. Þau tóku
strákunum strax furðu vel og
þær eru ófáar stundirnar sem
við sátum í sumarbirtunni í
stofunni hjá þeim og ræddum
bókmenntir og ferðalög, það
tvennt sem Ingibjörg unni best.
Sjaldan hef ég kynnst mann-
eskju sem hefur eins brennandi
áhuga á skáldskap og Ingi-
björg. Davíð Stefánsson var
eitt af uppáhaldsskáldunum
hennar, hún sagðist sem ung
kona jafnvel hafa sofið með
ljóðabók hans, „Svartar fjaðr-
ir“, undir koddanum, slíkt dá-
læti hafði hún á skáldskap
hans. Enda voru líka gerðar
kröfur til nýja tengdasonarins
á heimilinu. Þegar upp komst
að hann hefði ekki lesið grund-
vallarrit eins og „Veröld sem
var“ eftir Stefan Zweig eða
söguperluna „Rauðamyrkur“
eftir Hannes Pétursson var
hann eindregið en elskulega
hvattur til að bæta úr því hið
snarasta, ella teldist hann
varla viðræðuhæfur. Úr því
bætti ég snarlega og bý enn að
þessum og fleiri heillaráðum
Ingibjargar á sviði bókmennt-
anna.
Árin liðu, fjölskyldan stækk-
aði og ævinlega var hápunktur
hvers sumars að fara norður
til Akureyrar og seinna austur
í sumarbústaðinn Garð við
Skjálfandafljót þar sem þau
Guðmundur höfðu komið sér
upp sælureit með góðu útsýni
til Kinnarfjallanna í norðri og
upp eftir Skjálfandafljóti til
suðurs þar sem hinn ægifagri
Ullarfoss blasir við. Það var
alltaf notalegt að koma þangað
til þeirra og fyrir börnin okk-
ar, Elvar og Helgu Þóreyju,
var alltaf algert ævintýri að
dveljast hjá afa og ömmu í
þessari náttúruparadís.
Þegar ég sá Ingibjörgu síð-
ast, nokkrum dögum áður en
hún andaðist, var reisn yfir
henni eins og ævinlega. Þrátt
fyrir erfið veikindi var hún af-
ar vel tilhöfð og virðuleg þar
sem hún sat í hægindastól í
herbergi á Vífilsstaðaspítala
þar sem hún naut einstakrar
umönnunar síðustu mánuðina.
Þarna sat hún, dáðist að feg-
urð skýjanna sem voru eins og
gullbalderuð í desembersól-
inni, og naut þess allt til hinstu
stundar að vera til.
Blessuð sé minning hennar.
Friðrik Rafnsson.
Ingibjörg Dan
Kristjánsdóttir
✝ Benedikt Guð-mundur
Björnsson fæddist
í Torfustaða-
húsum í Miðfirði
11. júní 1943.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 12.
desember 2017.
Foreldrar hans
voru Björn Bene-
diktsson, f. 27.4.
1905, d. 5.5. 1964, og Anna
María Sigurvinsdóttir, f. 20.6.
1909, d. 29.11. 2001. For-
eldrar Benedikts eignuðust
fjögur börn. Þau eru auk
Benedikts Böðvar Sigurvin, f.
24.1. 1946, Katrín Ragnheið-
Torfustöðum. Börn þeirra
eru: Ármann, Kristrún og
María. 2) Bogey Erna, f. 15.4.
1970, maki Axel Rúnar Guð-
mundsson, f. 31.5. 1963, bú-
sett í Valdarási í Fitjárdal.
Dætur þeirra eru: Heiðrún
Nína og Anna Elísa. 3)
Drengur, f. 23.6. 1980, d.
23.6. 1980. 4) Björn Eyþór, f.
27.11. 1985, maki Katrín Ósk
Guðmannsdóttir, f. 3.12.
1981, búsett í Reykjavík. Son-
ur þeirra er Benedikt Kári.
Fyrir átti Katrín þau Emmu
Karen, Ísak Erni og Kötlu Ís-
old.
Á fyrsta aldursári flutti
Benedikt ásamt foreldrum
sínum úr Torfustaðahúsum að
Neðri-Torfustöðum. Þar tóku
þau Benedikt og Heiðrún við
búi af móður hans árið 1966
og hafa stundað þar búskap
síðan.
Benedikt var jarðsunginn
21. desember 2017.
ur, f. 24.7. 1949,
og Guðrún Að-
alheiður, f. 12.3.
1952. Auk þess
ólu þau upp
Hrefnu Frímanns-
dóttur, f. 29.5.
1938, d. 13.5.
2007.
Þann 1. sept-
ember 1967
kvæntist Benedikt
Heiðrúnu Brynju
Guðmundsdóttur frá Urriðaá
í Miðfirði, f. 1.9. 1942. Bene-
dikt og Heiðrún Brynja eign-
uðust fjögur börn. 1) Bjarney
Alda, f. 21.6. 1967 maki Pétur
Hafsteinn Sigurvaldason, f.
13.9. 1964, búsett á Neðri-
Elsku afi, kveðjustundin sem
kom of fljótt er verulega þung-
bær. Mikill missir er að góð-
mennsku þinni og því fordæmi
sem þú leiddir með.
Þakklæti er mér þó ofarlega í
huga. Þakklæti fyrir allar þær
fjölmörgu samverustundir sem
við áttum frá því ég fæddist og
að þú hafir getað sinnt búskapn-
um sem þér var svo hjartfólginn
alla tíð.
Allt frá barnæsku kenndir þú
okkur systkinunum að vanda til
verka og taka ábyrgð. Þolin-
mæðin og hvatningin voru alltaf
í fyrirrúmi. Þau gildi sem við
námum koma til með að fylgja
okkur alla tíð. Þegar ég komst til
vits og ára var gott að geta end-
urgoldið þó ekki nema hluta af
þeirri kennslu í formi tölvu-
kennslu og leiðbeininga. Merki-
legt þótti mér að sama hlutinn
þurfti ég sjaldan að kenna oftar
en tvisvar, þú varst alltaf tilbú-
inn að læra og tileinka þér nýj-
ungar.
Heimili ykkar ömmu var líkt
og annað heimili okkar og minn-
ingarnar um hringsólandi hafra-
graut með súru slátri fleytt um á
mjólk eftir að morgunverkunum
í fjárhúsunum var lokið eru hlýj-
ar. Takk fyrir allt, afi.
Nú húmi slær á hópinn þinn,
nú hljóðnar allur dalurinn
og það, sem greri á þinni leið
um því nær heillar aldar skeið.
Vor héraðsprýði horfin er:
öll heiðríkjan, sem fylgdi þér.
Og allt er grárra en áður var
og opnar vakir hér og þar.
Þér kær var þessi bændabyggð,
þú battst við hana ævitryggð.
Til árs og friðar – ekki í stríð –
á undan gekkstu í háa tíð.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
En styrrinn aldrei stóð um þig,
– hver stormur varð að lægja sig,
er sólskin þinnar sálar skein
á satt og rétt í hverri grein.
Loks beygði þreytan þína dáð,
hið þýða fjör og augnaráð;
sú þraut var hörð – en hljóður nú
í hinsta draumi brosir þú.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Ármann Pétursson.
Benedikt Guð-
mundur Björnsson
Pedro Ólafs-
son Riba
✝ Pedro Ólafsson Riba, PéturÓlafsson, fæddist 22. októ-
ber 1935. Hann lést 17. desem-
ber 2017.
Útförin fór fram 27. desem-
ber 2017.
Meira: mbl.is/minningar
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Minningargreinar
✝ Joseph PeterHubert fæddist.
3. júlí 1931 í Duluth,
Minnesota. Hann
andaðist eftir stutta
sjúkdómslegu 13.
október 2017 í Du-
luth, Minnesota.
Foreldrar Joe
voru Joseph og
Alma (Peterson)
Hubert. Systkini
Joe eru Wanda Ben-
son Emanuel, Jeanne Sederberg
og Elísabet. Joe var rithöfundur,
skrifaði bókina Salmon-Salmon:
With a chapter on Iceland. Hann
afhenti forseta Ís-
lands eintak númer
eitt. Fyrstu 10 ein-
tökin voru ánöfnuð
og var eintak númer
tvö afhent Philip
Bretaprins, númer
þrjú ekkju Eisenho-
wer, forseta Banda-
ríkjanna, og númer
fjögur Haraldi Stef-
ánssyni. Joe heill-
aðist af Íslandi og
veiddi í 40 laxveiðiám hérlendis.
Joe var jarðsettur 19. október
2017 frá St. Paul Episcopal-
kirkjunni í Minnesota.
Vinur minn Joseph P. Hubert
er látinn. Hann lést 13. október
2017 í Duluth, Minnesota. Joe var
jarðfræðingur, rithöfundur og
laxveiðimaður. Allt sem Joe gerði
var af einstakri snilld. Við Joe
veiddum lax saman í fjölda ára í
helstu laxveiðiám Íslands og verð
ég að segja að Joe var yfirburða
veiðimaður, hann tók laxinn á
gömlu ensku flugurnar þannig að
fiskurinn tók mjög grimmt hjá
Joe, betur en hjá öðrum veiði-
mönnum. Joe skrifaði laxveiði-
bók, Salmon-Salmon – With a
chapter on Iceland. Eintak núm-
er eitt er í höndum forseta Ís-
lands, númer tvö hjá Philip
Bretaprins, númer þrjú hjá ekkju
Eisenhowers, fyrrum forseta
USA. Númer fjögur hjá þeim
sem þetta ritar. 90 eintök voru
seld og 10 ánöfnuð. Joe var mikill
Íslandsvinur og dáði fegurð
landsins. Minning Mr. Joseph
Hubert mun lifa. Guð blessi
minningu hans.
Haraldur Stefánsson
Joseph Peter
Hubert
Ástkær móðir okkar, amma, langamma og
langalangamma,
ELSA I. HANSEN
frá Skálabergi í Hafnarfirði,
lést 26. desember á hjúkrunarheimilinu Eiri.
Útförin fer fram frá Garðakirkju
fimmtudaginn 4. janúar klukkan 15.
Ann-Mari Hansen
Mariann Setterström Hansen
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
ELÍSA BJÖRG WÍUM,
Aratúni 26,
Garðabæ,
lést laugardaginn 23. desember.
Útför hennar fer fram 8. janúar klukkan 13
frá Garðakirkju.
Guðfinna N. Gunnarsdóttir Jóhann Ingi Gunnarsson
Guðmundur R. Gunnarsson Margrét Káradóttir
Dóra Sif Wíum
ömmu- og langömmubörn
Ástkær sambýliskona og móðir,
SIGURVEIG SIGURÐARDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Otrateigi 3, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn
20. desember, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju, Reykjavík, fimmtudaginn 4. janúar klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað.
Björn Sævarr Ingvarsson
Svanhvít Ada Björnsdóttir
Sigrún Sif Kristjánsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSLAUG BRYNJÓLFSDÓTTIR,
fyrrverandi fræðslustjóri í Reykjavík,
Suðurlandsbraut 62,
lést á Landspítalanum hinn 31. desember.
Útför verður auglýst síðar.
Ragnheiður Guðmundsdóttir
Birgir Guðmundsson Gunnar Bragi Guðmundsson
Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn