Morgunblaðið - 17.01.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Raunverð á fermetra í fjölbýli á
Akureyri hefur aldrei verið jafn
hátt. Það var um 330 þúsund á
þriðja fjórðungi 2017 sem er um 35
þúsund krónum hærra á föstu verð-
lagi en þensluárin 2006 og 2007.
Þetta kemur fram í greiningu
Magnúsar Árna Skúlasonar, fram-
kvæmdastjóra Reykjavík Econo-
mics, sem unnin
var fyrir Íslands-
banka.
Magnús Árni
segir íbúafjölgun
og gott efnahags-
ástand eiga þátt í
verðhækkunum
fyrir norðan. Til
dæmis hafi eftir-
spurn eftir leigu-
íbúðum fyrir
ferðamenn auk-
ist síðustu misseri. Mikil tækifæri
séu til að treysta enn frekar stoðir
ferðaþjónustunnar á Norðurlandi.
Þar geti Akureyri gegnt lykilhlut-
verki. Svæðið sé vinsælt jafnt með-
al innlendra sem erlendra ferða-
manna.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands hafi
verið 8,5% ávöxtun af leiguhúsnæði
á Akureyri árið 2016. Það hafi verið
með því mesta á landinu og til
dæmis meira en í nær öllum hverf-
um Reykjavíkur. Ávöxtun leigusala
2016 hafi verið mest á Norðurlandi,
að undanskilinni Akureyri, eða
14,8%.
Um 189 einingar í útleigu
Þá bendi gögn upplýsingaveitunn-
ar Airdna til að 189 einingar (íbúðir
eða herbergi) hafi verið í virkri út-
leigu að jafnaði frá september 2016 til
nóvember 2017. Þar af séu 119 íbúðir,
68 herbergi og tvö herbergi sem deilt
er með öðrum. „Mesta eftirspurnin
eftir gistiplássi í Airbnb-íbúðum á
Akureyri er frá júní fram í miðjan
september. Tekjur af íbúðum eru
mismunandi eftir gæðum og stað-
setningu. Meðalútleiguverð á nóttu
fyrir íbúðir er um 145 evrur en um 70
evrur fyrir herbergi,“ skrifar Magnús
Árni um þennan markað.
Samkvæmt útreikningum hans var
fermetraverð í fjölbýli á Akureyri um
73% af fermetraverði á höfuð-
borgarsvæðinu á þriðja ársfjórðungi
2017. Það sé nærri 75% að meðaltali
frá 1982.
Þá hafi meginþorri kaupsamn-
inga á Akureyri verið undir 35
milljónum króna á tímabilinu frá
apríl 2016 til mars 2017, eða 76%
kaupsamninga. Það sé mun hag-
stæðara verð en til dæmis á höfuð-
borgarsvæðinu. Þar hafi sama hlut-
fall samninga verið undir 50
milljónum króna.
Á bilinu 15-30 milljónir
„Um þrír fimmtu hluti kaup-
samninga á Akureyri voru á verð-
bilinu 15-30 milljónir. Miðað við
sama hlutfall voru 60% kaupsamn-
inga á höfuðborgarsvæðinu á verð-
bilinu 25-45 milljónir til mars
2017,“ skrifar Magnús Árni um
verðbilið.
Hann bendir aðspurður á að íbú-
um Akureyrar hafi fjölgað úr um
18.200 í ársbyrjun 2015 í tæplega
18.800 í byrjun þessa árs. Með
sama áframhaldi verði Akureyring-
ar orðnir 20.000 á næsta áratug í
fyrsta sinn í sögunni.
Þessi þróun eigi þátt í að byggja
þurfi fleiri íbúðir á næstu árum. Til
dæmis hafi mjög fáar íbúðir verið í
byggingu árið 2016 og ekki færri
síðan 2003. Byggja þurfi um 100
íbúðir á ári til að anna eftirspurn.
Orðið hagstæðara að byggja
Samkvæmt útreikningum Magn-
úsar Árna er nú hagstæðara að
byggja á Akureyri en áður.
„Gera má ráð fyrir að bygging-
arkostnaður fjölbýlis utan höfuð-
borgarsvæðisins sé um 240 til 300
þúsund krónur á fermetra án bíla-
geymslu. Það þýðir að meðalverð
íbúðarhúsnæðis á Akureyri nægir
a.m.k. í sumum hverfum bæjarins
til að byggingaverktakar muni vilja
hefja frekari framkvæmdir við ný-
byggingar,“ skrifar Magnús Árni.
Fram kemur í greiningu hans að
atvinnuleysi á Akureyri var að
meðaltali 1,2% frá janúar til nóv-
ember í fyrra. Aldrei hafi jafn
margir verið skráðir vinnandi á
Norðurlandi eystra, eða 16.628
manns að jafnaði 2017 (til og með
nóvember). Þar af voru 10.201 á
Akureyri.
Íbúðaverð aldrei
hærra á Akureyri
Fermetraverð í fjölbýli á Akureyri 1982-2017
300
250
200
150
100
50
0
Fermetraverð Ve
rð
-
br
ey
tin
g
30%
20%
10%
0%
-10%
-20%
-30%
1982 1987 1992 1997 2002 2007 2012 2017
.000
Meðalstaðgreiðsluverð á
fermetra á föstu verðlagi
Raunverðsbreyting %
Heimild: Þjóðskrá Íslands
og Reykjavik Economics
Meðalraun-
verð frá
árinu 2004
Hlutfall fermetraverðs í fjölbýli á Akureyri
af fermetraverði á höfuðborgarsvæðinu 1982-2017
1982 1987 1992 1997 2002 2007 2012 2017
85%
80%
75%
70%
65%
60%
Heimild: Þjóðskrá Íslands
og Reykjavik Economics
Hlutfall íbúðaverðs á Akureyri af
íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu
Meðaltalshlutfall 1982 til 2017
86%
80%
65%
66%
70%
70%
81%
73%
Magnús Árni
Skúlason
Raunverð á fermetra um 35 þúsund kr. hærra en árið 2006
„Hugmyndin með þessu er að skapa
hvatningu til hreyfingar og bæta líðan
og lífsgæði eldri borgara,“ segir
Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri
fjölskylduþjónustu hjá Hafnarfjarð-
arbæ, um styrki sem bæjarfélagið
veitir íbúum 67 ára og eldri til íþrótta-
og tómstundastarfs. Á fundi fjöl-
skylduráðs bæjarins í síðustu viku var
samþykkt að leggja til við bæjar-
stjórn að styrkurinn verði hækkaður
og fylgi framvegis þróun frístunda-
styrkja fyrir börn og ungmenni.
Rannveig segir að þetta þýði að
mánaðarlegur íþrótta- og tómstunda-
styrkur til hvers eldri borgara í Hafn-
arfirði hækki í 4.000 krónur, 48 þús-
und krónur á ári, en hann er nú 1.700
krónur ellefu mánuði ársins. Hún seg-
ir að stuðningur af þessu tagi við eldri
borgara hafi verið við lýði í Hafnar-
firði frá 2011 og notið mikilla vin-
sælda. Upphaflega var hann bundinn
við æfingagjöld hjá Íþróttabandalagi
Hafnarfjarðar en nú er hægt að nota
hann hjá hvaða viðurkenndum aðila
sem er.
Rannveig sagðist ekki þekkja til
þess hvort sambærilegur stuðningur
við íþrótta- og tómstundastarf eldri
borgara væri í öðrum sveitarfélögum.
Lausleg athugun bendir til þess að
svo sé ekki. Í Langanesbyggð geta þó
samtök eða hópar eldri borgara, 67
ára og eldri og öryrkja, sótt um styrki
til sveitarfélagsins til greiðslu á
kostnaði við íþróttaþjálfun eða tóm-
stundaiðkun.
Í byrjun þessa mánaðar gerði bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar samstarfs-
samning við Janus heilsueflingu slf. til
eins og hálfs árs í tengslum við heilsu-
eflingu allt að 160 íbúa Hafnarfjarð-
arbæjar á aldrinum 65 og eldri. Um
er að ræða þolþjálfun sem fer fram
einu sinni í viku í frjálsíþróttahöllinni
við Kaplakrika og styrktarþjálfun
sem fram fer tvisvar í viku í heilsu-
ræktarsal Reebokfitnes við Ásvalla-
laug. Rannveig segir að þeir eldri
borgarar sem það kjósi geti m.a. not-
að styrkinn til þátttöku í þessari
heilsueflingu.
gudmundur@mbl.is
Styrkja heilsu-
rækt aldraðra
í Hafnarfirði
Styrkir verða 4.000 krónur á mánuði
Morgunblaðið/Kristinn
Hreyfing Hvers kyns líkamsrækt
bætir heilsu og líðan eldri borgara.
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
HLÍFÐARHÚÐ Á RÚÐUR
u Kemur í veg fyrir að óhreinindi safnist
á rúðuna / sólaselluna
u Eykur öryggi og útsýni allt að
tvöfalt í bleytu og rigningu
u Kemur í veg fyrir að flugur, drulla,
snjór og ísing safnist á rúðuna
u Heldur regnvatni frá rúðunni
u Býr til brynju á rúðunni fyrir
leysiefnum og vökvum
u Þolir háþrýstiþvott
u Virkar við -30°C til + 30°C
u Endingartími er 6 – 12 mánuðir
Frábært á bílrúður – gluggarúður – sólasellur
kr. 99.900,-
49”
kr. 129.900,-
55”
Sería: 6100 • Tegund: UHD - 4K •
Stærð: 49” eða 123cm • Upplausn skjás:
3840x2160 (4K) - 8M pixlar • Tegund skjás:
LED • PQI: 1300 PQI (Picture Quality Index)
MU6175
7 KG. 1400 SN.
Eco Bubble
Verð áður: 64.900,-
Verð 59.900,-
TM
59.90
0,-
7 KG. barkarlaus þurrkari.
Varmadæla í stað elements.
Verð áður: 89.900,-
Verð nú: 76.415,-
januar
stormur
FULL BÚÐ AF TILBOÐSVÖrUM -
kæliskápar - Uppþvottavélar
- Þvottavélar - Þurrkarar -
Frystiskápar - Sjónvörp - Hljómtæki
SÍÐUmúla 9 · SÍmi 530 2900 samsungsetrid.islágmúla 8 - SÍmi 530 2800