Morgunblaðið - 17.01.2018, Page 18

Morgunblaðið - 17.01.2018, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018 17. janúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 102.17 102.65 102.41 Sterlingspund 140.99 141.67 141.33 Kanadadalur 82.23 82.71 82.47 Dönsk króna 16.83 16.928 16.879 Norsk króna 12.969 13.045 13.007 Sænsk króna 12.747 12.821 12.784 Svissn. franki 106.19 106.79 106.49 Japanskt jen 0.9232 0.9286 0.9259 SDR 147.22 148.1 147.66 Evra 125.4 126.1 125.75 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 152.0219 Hrávöruverð Gull 1334.95 ($/únsa) Ál 2227.0 ($/tonn) LME Hráolía 69.88 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Stefnt er að því að ljúka vinnu við skýrslu Seðlabanka Íslands um veit- ingu þrautavara- láns til Kaupþings haustið 2008 í þessum mánuði, ef hægt verður. Þetta segir Stefán Jó- hann Stefánsson, ritstjóri Seðlabank- ans, í svari við fyrirspurn mbl.is. Morgunblaðið greindi frá því í nóv- ember að til stæði að skýrslan liti dags- ins ljós í þessum mánuði og jafnvel fyrr. Það var byggt á svari frá Seðlabank- anum en skýrslan hefur verið í vinnslu um árabil. Lánið sem Seðlabankinn veitti Kaupþingi hinn 6. október nam 500 milljónum evra með veði í danska bankanum FIH og fólst í veitingu þess tilraun til að fleyta bankanum áfram þegar lokaðist fyrir allt aðgengi íslenska bankakerfisins að lánsfé á mörkuðum. FIH-skýrsla í þessum mánuði „ef hægt er“ FIH Seðlabankinn vinnur að skýrslu. STUTT BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Heimsmeistaramót í knattspyrnu er stærsta svið veraldar. „Ekkert nálgast það sem fær jafn mikla at- hygli,“ segir Jón Ásbergssn, for- stjóri Íslandsstofu. Íslandsstofa, sem rekið hefur Inspired by Iceland-herferðina í sjö ár, hyggst blása til markaðsher- ferðar vegna þátttöku Íslands í heimsmeistaramótinu í Rússlandi undir nafninu #TeamIceland. Nýta á Inspired by Iceland í ár til þess að Ísland sýni sínar bestu hliðar í kringum HM. Markmiðið er ekki einvörðungu að kynna Ísland sem ferðamannastað heldur einnig vörur og þjónustu frá landinu. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslandsstofu í gær. Tekin í bólinu Grímur Sæmundsen, formaður Samaka ferðaþjónustunnar, segir okkur hafa verið „tekin í bólinu“ þegar íslenska knattspyrnuliðið tók þátt í EM í Frakklandi árið 2016 og það var ekki nýtt í markaðslegum tilgangi. „Nú ætlum við að gera betur í þessu efni fyrir íslensk fyr- irtæki. Tækifærin eru óendanleg.“ George Bryant, meðeigandi hjá markaðsfyrirtækinu The Brooklyn Partners, segir að á meðan EM stóð hafi ferðatengd leit á Google aukist um 73%. „Það er greinilega aukinn áhugi. Stóra spurningin er: Nú erum við á enn stærra sviði, hvernig ætlum við að nýta það?“ Hann bendir á að jarðarbúar séu 7,5 milljarðar og búist sé við að 3,5 milljarðar manna fylgist með HM í Nýta athyglina frá HM til að kynna land og þjóð AFP Fótbolti Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir að orðspor þjóða geti haft mikil áhrif á efnahag þeirra.  Grímur Sæmundsen segir að tækifærið hafi ekki verið gripið á EM 2016 ár, að minnsta kosti að hluta. Bryant segir að mótið sé stórkost- legt tækifæri til þess að grípa áhuga fólks og kynna því Ísland, ferðaþjónustuna og vörur frá land- inu. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að orðspor þjóða hafi mikil áhrif á efnahag þeirra. „Jákvætt orðspor getur aukið áhuga ferða- fólks á að heimsækja landið, ýtt undir eftirspurn eftir vöru, þekk- ingu og þjónustu, hvatt til áhuga hæfileikafólks til búsetu og starfa og eflt áhuga erlendra fyrirtækja á að fjárfesta.“ Virðisaukaskattsskyld velta erlendra aðila sem selja rafræna þjónustu hér á landi óx hlutfallslega langmest í september og október 2017 saman- borið við sama tímabil árið áður, eða um 117%. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands, en velta þessara aðila nam um einum milljarði króna á þessu tveggja mánaða tímabili. Á 12 mánaða tímabili til loka október nam velta þessara aðila samtals sjö milljörðum króna. Sigrún Halldórsdóttir, sérfræðing- ur hjá Hagstofunni, segir í samtali við Morgunblaðið að þarna sé á ferð til- tölulega nýtt ákvæði í lögum sem eigi við um þegar til dæmis er keypt efni frá erlendum efnisveitum og rafbóka- sölum. „Samkvæmt lögunum þurfa þessir aðilar að greiða hér virðisauka- skatt,“ segir Sigrún. Velta alls jókst um 8,1% Heildarvelta í virðisaukaskatts- skyldri starfsemi, fyrir utan lyfja- framleiðslu, starfsemi ferðaskrifstofa og farþegaflutninga á vegum, var 716 milljarðar króna í september og októ- ber 2017. Það er 8,1% hækkun frá sama tímabili árið 2016. Veltan jókst um 2,4% á tímabilinu nóvember 2016 til október 2017 miðað við síðustu 12 mánuði þar á undan. Hagstofan áréttar á vef sínum að starfsemi tengd farþegaflutningum og ferðaskrifstofum hafi ekki verið virðisaukaskattsskyld fyrr en í árs- byrjun 2016 og því sé nauðsynlegt að taka tillit til þess þegar velta frá og með 2016 sé borin saman við fyrri ár. tobj@mbl.is AFP Efni Netflix er erlend efnisveita. Erlend rafræn þjónusta vex mest  Heildarvelta í september og októ- ber upp um 8% Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra segir að framlag ríkisins til verkefnisins #TeamIceland verði allt að 200 milljónir króna gegn jafn háu framlagi frá atvinnulífinu. Hún segir að á HM skíni líklegast sterkasta kastljós í okkar sögu á Ísland. Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu, bendir á að ríkið muni ekki reiða fram 200 milljónir nema það takist að safna öðru eins frá fyrir- tækjum. Gert sé ráð fyrir að hvert fyrirtæki greiði tvær milljónir eða meira í verkefnið. Icelandair hafi þegar lagt til 100 milljónir og ferðaþjónustan 30 milljónir. „Við gerum ráð fyrir að aðrar atvinnugreinar komi að máli.“ Ríkið leggur til allt að 200 milljónir MÆTIR JÖFNU FRAMLAGI FRÁ ATVINNULÍFINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.