Morgunblaðið - 17.01.2018, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Perris, Kaliforníu. AFP.| Lögregluyf-
irvöld í borginni Perris, sem er um
110 kílómetra suðaustan við Los
Angeles, héldu áfram rannsókn sinni
í gær á því hvernig hinn 57 ára gamli
David Allen Turpin og kona hans,
Louise Anna Turpin, hefðu getað
haldið afkvæmum sínum þrettán
föngnum á heimili sínu án þess að
nokkur yrði þess var.
Hjónin voru handtekin eftir að 17
ára dóttir þeirra náði að sleppa og
hringja í neyðarlínuna á sunnudags-
morguninn. Sagði í fréttatilkynningu
lögreglunnar að lögreglumennirnir
sem sendir voru á vettvang hefðu
fyrst talið að stúlkan sem hringdi
gæti ekki verið eldri en tíu ára vegna
þess hversu vannærð hún var.
Við nánari húsleit fundu lögreglu-
mennirnir hin tólf afkvæmi Turpin-
hjónanna, á aldrinum tveggja til 29
ára, og voru sum þeirra hlekkjuð við
rúm sín þegar lögregluna bar að
garði. Voru aðstæður allar sagðar
skítugar og hörmulegar og sagði í til-
kynningu lögreglunnar að foreldr-
arnir hefðu ekki „veitt neinar rök-
réttar skýringar á því hvers vegna
börn þeirra væru hlekkjuð“. Virtist
sem að öll börnin þrettán væru mjög
illa haldin og sögðust þau vera ban-
hungruð.
Kom aðstandendum á óvart
Foreldrar Davids Turpin sögðu
við bandaríska fjölmiðla að þau væru
slegin vegna málsins, en þau hafa
ekki séð son sinn eða barnabörnin í
um það bil fimm ár. Þá lýstu ná-
grannar hjónanna allir undrun sinni
á málavöxtum og hafði engan þeirra
grunað að börnin, sem sáust sjaldan
utandyra, þyrftu að búa við jafn-
vondar aðstæður og lýst hefur verið.
Á Facebook-síðu hjónanna mátti
finna margar myndir af þeim ásamt
börnum sínum við ýmis gleðileg til-
efni. Var þar meðal annars mynd af
ferð Turpin-fjölskyldunnar til
Disneyland og voru afkvæmin öll
klædd í eins föt og brostu dauflega.
Þá mátti einnig finna myndir af
fjölskyldunni í Las Vegas ásamt Elv-
is-eftirhermu, sem mun hafa gefið
hjónin saman að nýju. Virðist því
sem að Turpin-hjónin hafi gengið
ansi langt til þess að fela hinar öm-
urlegu aðstæður sem þau bjuggu
börnum sínum.
Hlekkjuðu börn við rúmin
Hjón í Kaliforníu sögð hafa vanrækt þrettán börn sín og misþyrmt þeim
AFP
Sakamál Fjölmiðlafólk hópaðist
saman við heimili Turpin-hjónanna.
Frans páfi heimsótti Síle í gær, en það var fyrsta heim-
sókn hans til landsins síðan hann tók við embætti. Baðst
páfinn afsökunar á þeim kynferðislegu hneykslis-
málum sem hafa skekið kaþólsku kirkjuna í Síle á síð-
ustu árum. Ekki voru þó allir sáttir við komu páfans og
brutust út skærur á milli lögreglunnar og fólks sem
vildi mótmæla komu páfa. Þeir voru þó heldur fleiri
sem tóku páfanum opnum örmum.
AFP
Komu páfa mótmælt í Síle
Jafnaðarmanna-
flokkur Rúmeníu
lagði til að Evr-
ópuþingmað-
urinn Viorica
Dancila yrði
gerður að næsta
forsætisráðherra
landsins, eftir að
Mihai Tudose
sagði af sér í
fyrradag. Hafði hann misst stuðn-
ing meðal samflokksmanna sinna
vegna innanflokkserja.
Dancila hefur setið á Evrópu-
þinginu frá árinu 2009 og myndi út-
nefning hennar vera líkleg til þess
að styrkja tengsl Rúmeníu við Evr-
ópusambandið. Gert er ráð fyrir að
Klaus Iohannis, forseti landsins,
muni taka afstöðu til þess í dag
hvort hann skipi Dancilu í emb-
ættið. Yrði hún þar með fyrsta kon-
an til þess að gegna embætti for-
sætisráðherra í Rúmeníu, en það er
næstfátækasta ríki Evrópusam-
bandsins á eftir Búlgaríu.
Þrír ráðherrar í for-
sæti á sjö mánuðum
Viorica Dancila
RÚMENÍA
Kósóvó-
serbneski stjórn-
málamaðurinn
Oliver Ivanovic
var skotinn í
gærmorgun til
bana úti á miðri
götu í borginni
Mitrovica í Kós-
óvó. Hann lést
samstundis.
Ivanovic var umdeildur í heima-
landi sínu en hann beið þess að rétt-
að yrði á ný í máli þar sem hann var
sakaður um að hafa framið stríðs-
glæpi í átökunum í Kósóvó á tíunda
áratug 20. aldar.
Morðið er einnig talið líklegt til
þess að spilla fyrir viðræðum á milli
stjórnvalda í Serbíu og í Kósóvó um
bætt samskipti en þær hófust í gær
eftir meira en eins árs bið. Þykir
líklegt að morðið muni ýfa upp
spennu á milli Kósóvó-Serba og
Kósóvó-Albana, en ekki liggur fyrir
hver beri ábyrgð á verknaðinum.
Stjórnmálamaður
skotinn á miðri götu
Oliver Ivanovic
KÓSÓVÓ
Leiðtogar Evrópusambandsins
skjölluðu Breta í gær og lýstu því yfir
að ennþá væri möguleiki til þess að
hætta við útgönguferlið úr samband-
inu, sem kennt er við Brexit. Nokkur
umræða hefur verið í Bretlandi á síð-
ustu vikum um það hvort að rétt væri
að boða til annarrar þjóðaratkvæða-
greiðslu um útgönguna og hefur Nig-
el Farage, fyrrverandi formaður
flokks breskra sjálfstæðissinna,
UKIP, meðal annars lýst því yfir að
hann sé opinn fyrir hugmyndinni.
Nokkur umræða spannst um þetta
á fundi Evrópuþingsins í gær, og
sagði Donald Tusk, forseti Evrópu-
sambandsins, meðal annars að „við á
meginlandinu höfum ekki skipt um
skoðun. Hjörtu okkar eru ennþá opin
gagnvart ykkur“, og beindi orðum
sínum að Bretum.
Jean-Claude Juncker, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, tók í sama streng og bað bresk
stjórnvöld um að hlusta á ákall Tusks
um að vera áfram innan sambandsins.
Að öllu óbreyttu munu Bretar yfir-
gefa Evrópusambandið í mars á
næsta ári, en 52% kjósenda greiddu
atkvæði með útgöngu í Brexit-at-
kvæðagreiðslunni í júní 2016.
Ekki sögð á borðinu
Farage, sem barðist fyrir útgöngu
Breta með kjafti og klóm á sínum
tíma, kom mörgum á óvart þegar
hann sagðist opinn fyrir annarri at-
kvæðagreiðslu, þar sem hún gæti
þaggað endanlega niður í þeim Bret-
um sem ennþá þráist við útgönguferl-
inu.
Talsmaður Theresu May, forsætis-
ráðherra Breta, sagði hins vegar að
önnur atkvæðagreiðsla væri ekki í
boði. Kjósendur hefðu sagt vilja sinn
og hann bæri að virða.
„Hjörtu okkar
ennþá opin“
Tusk opnar á
að hætt verði við
útgöngu Breta
AFP
Brexit Nigel Farage hefur talað
fyrir annarri atkvæðagreiðslu.
Stjórnvöld í Búrma og Bangladess
hafa gert með sér samkomulag um að
fjölda fólks af ættbálki Róhingja verði
gert kleift að snúa aftur heim til sín á
næstu tveimur árum.
Samkomulagið nær til um 750.000
manns sem flúðu heimili sín þegar her-
inn í Búrma hóf aðgerðir sínar gegn
Róhingjum síðasta haust. Þeim að-
gerðum var ætlað að svara árásum
öfgamanna á herstöðvar, en aðförum
hersins hefur m.a verið lýst af bæði
Sameinuðu þjóðunum og Bandaríkja-
stjórn sem þjóðarmorði. Samkomulag-
ið nær hins vegar ekki til um 200.000
manns sem flúið höfðu yfir landamær-
in til Bangladess fyrir október 2016.
Stjórnvöld í Búrma sögðu í yfirlýs-
ingu að ferlið myndi hefjast 23. janúar
næstkomandi og standa yfir í tvö ár frá
þeim tíma. Munu viðkomandi þurfa að
fylla út eyðublað til þess að geta snúið
aftur heim.
Fá að snúa
aftur heim
til sín
Samkomulag
um Róhingja