Morgunblaðið - 25.01.2018, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Já, þetta er skemmtileg vinna. Ann-
ars væri ég ekki í henni. Starfið er fjöl-
breytt og maður veit aldrei hvað dag-
urinn ber í skauti sér. Svo er gaman að
taka þátt í allri uppbyggingunni sem
er hér í Svarfaðardal,“ segir Karl Ingi
Atlason, bóndi á Hóli í Svarfaðardal.
Bú þeirra hjóna, Karls og Erlu
Hrannar Sigurðardóttur, varð næst-
afurðahæsta kúabú landsins á síðasta
ári.
Meðalafurðir mjólkurkúnna á Hóls-
búinu jukust um rúm 600 kíló á milli
ára og voru í fyrra 8.356 kg. Við það
lyfti búið sér úr 17. sæti í 2. sætið á
lista Ráðgjafarmiðstöðvar landbún-
aðarins yfir afurðahæstu kúabú lands-
ins. Þess má geta að árið þar á undan
var búið í 78. sæti sama lista. Aðeins
kúabúið á Brúsastöðum hefur náð
betri árangri í sögunni.
Karl segir að skýringa á auknum
meðalafurðum sé fyrst og fremst að
leita í tilkomu nýs fjóss sem tekið var í
notkun haustið 2014. Í því er mjalta-
þjónn. „Afurðirnar aukast þegar kýrn-
ar láta mjólka sig þrisvar á sólarhring
og hámjólka kýr jafnvel fjórum sinn-
um. Það fylgir því vinna að hafa róbót,
við eftirlit, og ef menn sinna henni vel
skilar það árangri,“ segir Karl.
Hann segir að nokkrar sérlega
nytháar kýr haldi uppi meðaltali bús-
ins en þær séu komnar á síðasta snún-
ing þannig að hann býst ekki við jafn
góðum tölum á nýbyrjuðu ári.
Hann reiknar því ekki með að kom-
ast ofar á listann. „Ég held líka að
þetta sé eins og með Manchester City
í enska boltanum að ekki er hægt að
ná efsta sætinu af þeim,“ segir Karl og
vísar til bændanna á Brúastöðum í
Vatnsdal sem hafa síðustu ár verið
með langhæstu meðalafurðir yfir land-
ið.
Segir Karl að fram hafi komið í við-
tölum við bændurna á Brúsastöðum
að stöðug endurræktun túna og
heyöflun væri lykillinn að þeirra ár-
angri. „Ég hefði gjarnan viljað hafa
aðstöðu til þess en er með allt of mikið
grjót í mínum túnum til að það sé
hægt. Þetta er ekki landmikil jörð og
grýtt og endurræktun því erfið. Ég er
alltaf að brasa í henni en kemst ekki
yfir eins marga hektara og þeir sem
búa á frjósamari jörðum,“ segir Karl.
Hann bætir því við að markmiðið sé
alltaf að reyna að vera með rekstur
sem skilar tekjum en ekki sýna sig á
listum. „Það er vissulega gaman að
vera ofarlega núna en mikilvægast er
að líta á reksturinn og sjá hvar hægt
er að gera betur.“
Nýtur ættliðaskiptanna
Karl og Erla tóku við búinu á Hóli
af foreldrum hans fyrir ári. Þau voru
reyndar búin að vera viðloðandi bú-
skapinn áður. „Það er allur gangur á
því hvernig er að hefja búskap, fer eft-
ir því við hvaða aðstæður það gerist.
Við tókum við af foreldrum mínum.
Það er allt öðru vísi en að kaupa af
ótengdum. Ég hafði unnið við þetta
með þeim og naut þess. Þetta er samt
sem áður mikil fjárfesting. Það er ekk-
ert mál fyrir pólitíkusana að leggja ís-
lenskan landbúnað niður, ef þeir ætla
sér það. Það verður alltaf pólitísk
ákvörðun um það hvort hér eigi að
stunda landbúnað eða ekki. Mér finnst
frekar jákvæðari horfur um það núna.
Að vísu hefur ekki heyrst mikið í nýj-
um landbúnaðarráðherra en ég upplifi
það þannig að hann tali meira fyrir
okkur en forverinn,“ segir Karl.
Hann segist ekki hafa hugað mikið
að annarri vinnu. Alltaf verið með
hugann við búskapinn, viljað komast í
hann. „Áður en við byrjuðum að
byggja fjósið á árinu 2011 kom til
greina að hætta búskap hér. For-
eldrar mínir vildu vera með í því að
byggja upp. Annars hefði verið erfitt
fyrir okkur að taka við jörðinni og fara
síðan beint í uppbyggingu. Það hefði
ekki gengið upp. Ég nýt þeirra for-
réttinda að fá að taka við búinu eins og
það er í dag, með nýju fjósi, og geta
unnið með það.“
Svarfdælingar eru farnir að telja
niður dagana til þorrablótsins sem
verður um helgina. Ýmsar uppákomur
voru við byggingu fjóssins á Hóli og
fengu bændurnir þar á sig skot á
þorrablótum öll árin sem fram-
kvæmdir stóðu yfir. „Ég á ekki von á
því að það breytist núna, það finnst
eitthvað nýtt,“ segir Karl.
Markmiðið að hafa
tekjur af búinu
Nýtt fjós og róbót skilar kúabúinu á Hóli í Svarfaðardal
úr 78. sæti upp í annað afurðahæsta bú landsins
Kýr Kg mjólkur Bú
1. Nr. 851 14.199 Innri-Kleif
2. Fura 13.146 Hvanneyri
3. Skauta 13.132 Böðmóðsstaðir 2
4. Súla 13.062 Hallland
5. Lotta 13.022 Kúskerpi
6. Dalía 12.942 Kúskerpi
7. Aþena 12.908 Laxárholt 2
8. Gefjun 12.838 Skáldabúðir
9. Sigga 12.798 Þrándarholt
10. Stjörnurós 12.686 Kúskerpi
Afurðahæstu kýrnar 2017
Meðalafurðir á árskú
Heimild: rml.is
Afurðahæstu kúabúin 2017
Meðaltal eftir hverja árskú
6.500
6.000
5.500
5.000
kg
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
Bú Skýrsluhaldarar Árskýr Kg mjólkur
1. Brúsastaðir Brúsi ehf. 49,2 8.937
2. Hóll Karl Ingi og Erla Hrönn 50,7 8.356
3. Gautsstaðir Gautsstaðir ehf. 104,1 8.269
4. Flugumýri Ingimar Jónsson 78,6 8.205
5. Skáldabúðir Gunnbjörn ehf. 59,2 8.183
6. Hvanneyri Hvanneyrarbúið ehf. 73,1 8.180
7. Ytri-Skógar Félagsbúið 25,3 8.179
8. Steinnýjarstaðir Kristján S. Kristjánsson 44,9 8.170
9. Hraunháls Guðlaug og Eyberg 28,7 8.124
10. Kúskerpi Kúskerpi 102,6 8.115
11. Grænahlíð Dalanaut ehf. 64,8 8.047
12. Reykjahlíð Búkostir ehf. 74,5 8.023
13. Garðakot Jakob Smári Pálmason 69,9 8.019
14. Moldhaugar Þröstur Þorsteinsson 63,1 8.010
15. Stóru-Tjarnir Stóru-Tjarnir ehf. 54,5 8.005
16. Grund Friðrik Þórarinsson 55,4 7.927
17. Egilsstaðir Egilsstaðabúið ehf. 73,7 7.907
18. Kirkjulækur 2 Eggert, Jóna, Páll, Kristín 62,0 7.903
19. Innri-Kleif Gunnlaugur Ingólfsson 53,2 7.866
20. Espihóll Félagsbúið Espihóli 61,5 7.822
5.442
6.159
Ljósmynd/Hörður Kristjánsson
Kúabóndi Karl Ingi Atlason nýtur þess að vinna við kýrnar við góðar að-
stæður í nýju fjósi. Hefur hann náð góðum árangri í búrekstrinum.
Meðalnyt allra kúa á landinu reynd-
ist vera 6.159 kg á síðasta ári, sam-
kvæmt niðurstöðum skýrsluhalds
nautgriparæktarinnar sem Ráðgjaf-
armiðstöð land-
búnaðarins held-
ur utan um og
birti í gær. Er
þetta 30 kg meira
en á árinu 2016.
Meðalafurð-
irnar hafa aukist
á hverju ári
vegna framfara í
greininni og voru
eðli málsins sam-
kvæmt meiri í
fyrra en nokkru sinni áður. Í frétt á
vef RML er vakin athygli á því að
þetta sé eftirtektarvert í ljósi þess
að kúm í skýrsluhaldinu fjölgaði
mjög á síðasta ári vegna þess að það
var gert að skyldu fyrir stuðningi
ríkisins að taka þátt í skýrsluhald-
inu. Eru nú allir mjólkurframleið-
endur sem vilja njóta stuðnings
þátttakendur.
Bændurnir á Brúsastöðum reynd-
ust vera með mestu meðalafurð-
irnar, eins og oftast síðustu ár. Nú
skiluðu kýrnar 8.937 kg að meðaltali
og heggur það nærri Íslandsmeti
sem þetta bú setti á árinu 2016 þeg-
ar kýrnar mjólkuðu 8.990 kg að
meðaltali. Kúabúið á Hóli í Svarf-
aðardal varð í öðru sæti nú og
Gautsstaðir á Svalbarðsströnd í því
þriðja.
Íslandsmetið í mjólkurframleiðslu
var slegið að þessu sinni. Kýr nr.
851 á Innri-Kleif í Breiðdal skilaði
14.199 kg í mjólkurtankinn sem er
um 1.000 kg meira en kýrin sem
varð í öðru sæti afrekaði en það var
Fura á Hvanneyri.
Búin stækka
Innleggjendum mjólkur fækkaði
um sjö á árinu og voru 573 um ára-
mót. Samt jókst mjólkurframleiðsl-
an í landinu. Meðalbúið stækkaði því
talsvert eða um 2 árskýr og eru þær
nú 45,4, samkvæmt upplýsingum úr
skýrsluhaldinu. Búin hafa stækkað
mjög síðustu árin því meðalbúið var
um 38 kýr fyrir fjórum árum.
Mestu meðalafurðir voru í Skaga-
firði á síðasta ári, 6.537 kg. Stærstu
búin eru í Eyjafirði, þar eru liðlega
55 kýr á hvern innleggjanda.
Allir framleiðend-
ur skila skýrslum
Meðalafurðir hafa aldrei verið meiri
Kýr Fóðrun er
alltaf mikilvæg.
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími 554 4300 • solskalar.is
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í yfir 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
198
4 - 2016
ÍS
LEN
SK FRAML
EI
ÐS
LA32
Yfir 90 litir í boði!