Morgunblaðið - 25.01.2018, Blaðsíða 73
MENNING 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Rokksveitin Pink Street Boys var
stofnuð árið 2013 í Kópavogi og kenn-
ir sig við Smiðjuhverfi þar í bæ, nán-
ar tiltekið bleika
götu. Þar æfir
hún enn, um fimm
árum síðar, og í
nóvember í fyrra
gaf hún út þriðju
breiðskífuna,
Smells Like Boys,
eða Lyktar eins og drengir, og hefur
hún að geyma grjóthart og pönkað
bílskúrsrokk líkt og þær fyrri. Ein
var að vísu safn af demo-upptökum
og segir Jónbjörn Birgisson, gítar- og
bassaleikari sveitarinnar og einn
söngvara hennar, að platan nýja sé
því í raun önnur „viljandi“ plata
drengjanna. Hin er Hits #1.
Smells Like Boys er ein af 25 plöt-
um sem tilnefndar voru til Kraums-
verðlaunanna í fyrra, hlaut þau ekki
en engu að síður er það hrós fyrir þá
drengi að komast á þann virðulega
tilnefningalista. Bleikstrætisdrengir
stæra sig af því að vera háværasta
hljómsveit Íslands og gott betur, ef
marka má fésbókarsíðu sveitarinnar,
því þar stendur að hljómsveitin sé sú
háværasta í heimi. Og vissulega er
hún hávær.
Enn sami hávaðinn
Jónbjörn er spurður að því hvort
eitthvað hafi dregið úr hávaðanum
milli platna. „Mér finnst það ekki, þú
verður bara að hækka í græjunum
þínum,“ segir hann og hlær. „En ég
veit það ekki, kannski er þetta orðið
dýnamískara og við heyrum það al-
veg að fólki finnist við orðnir popp-
aðri, en ég held að það sé kjaftæði.“
–Stíllinn er ekkert að breytast?
„Nei, nei, alls ekki, við erum bara
að verða eldri og …“
–Vitrari?
„… og vitrari. Við vitum ekki leng-
ur hvað er töff.“
–Þið eruð nú ekki mjög gamlir …?
„Nei, ég er að verða 28 ára, við er-
um hættir að vera unglingar,“ svarar
Jónbjörn en auk hans eru í hljóm-
sveitinni Axel Björnsson sem leikur á
gítar og syngur, Víðir Alexander
Jónsson sem leikur á gítar, bassa og
syngur, Einar Björn Þórarinsson sem
leikur á trommur og Alfreð Óskarsson
sem leikur á tambúrínu og stuð.
–Þið hafið spilað býsna mikið frá
stofnun hljómsveitarinnar?
„Já, alltof mikið. Þegar við vorum
að byrja spiluðum við nánast hverja
helgi til að koma okkur á kortið.“
Textarnir bara bull
–Hvernig er með textana, hafa þeir
tekið breytingum milli platna?
„Með nýju plötunni gáfum við út
textablað af því okkur fannst textarn-
ir okkar svo fyndnir. En nei, þeir hafa
ekkert breyst, eru bara eitthvert
bull,“ segir Jónbjörn og tekur undir
með blaðamanni að í tilfelli Pink
Street Boys sé tónlistin eflaust mik-
ilvægari en textarnir, enda ekki alltaf
hægt að greina orðaskil.
–Áttuð þið ykkur fyrirmyndir þeg-
ar þið voruð að byrja, ákveðnar
hljómsveitir sem þið lituð til?
„Já, við vorum mikið í „sixtís“-
pönki, safnplötum sem heita Back
from the Grave, hlustuðum mikið á
þær. Svo ólumst við allir upp í „nu
metal“,“ svarar Jónbjörn.
Bitrari en fyrir þremur árum
–Ég spjallaði við þig fyrir þremur
árum og spurði þá hvort þið væruð
bitur hljómsveit. Hefur biturleikinn
minnkað?
„Nei, nei, alls ekki, hann er bara
meiri eftir að hipphoppið tók svona
yfir. Fyrir þremur árum var það ekki
þannig.“
–Þetta eru slæmir tímir?
„Mjög slæmir.“
–Hvað er hægt að gera í þessu?
„Við erum byrjaðir að semja á ís-
lensku og gefum fljótlega út lag á ís-
lensku og þá getur fólk kannski skilið
okkur.“
–Og smám saman fellur hipp-
hoppið þá í skuggann?
„Já, það hlýtur að gerast bráðum.
Þetta gerist á 10-15 ára fresti, vona
ég,“ segir Jónbjörn kíminn. „Svo er
líka bara leiðinlegt popprokk úti, það
er fullt af góðu rokki líka en það er
bara svo falið og grafið.“
–Þið ætlið að bæta úr þessu?
„Ja, alla vega að gera „extreme“
rokk þannig að fólk sjái að rokkið er
ekki bara popp.“
Morgunblaðið/Hari
Í bleiku stræti Pink Street Boys í æfingahúsnæði sínu við bleika götu í Smiðjuhverfi Kópavogs.
Rokk er ekki bara popp
Pink Street Boys eru háværir sem fyrr á nýrri plötu
„Vitum ekki lengur hvað er töff,“ segir Jónbjörn Birgisson
Tónlistarkonan Jónína Ara leggur í
tónleikaferð um landið til að fylgja
eftir nýjustu plötu sinni, Rem-
ember, sem kom út í fyrra. Í kvöld
heldur hún tónleika í Pakkhúsinu í
Höfn kl. 21.30, á laugardag í Vala-
skjálf á Egilsstöðum kl. 21, 2. febr-
úar í Arinstofunni á Siglufirði kl. 21
og 3. febrúar á R5 Bar á Akureyri
kl. 21.
Það tók Jónínu um þrjú ár að
klára plötuna og segir hún að
stemningin á plötunni sé á ljúfum
nótum, sótt í poppaða alþýðutónlist
og kántrírokk. Hún segir plötuna
hafa fengið góðar viðtökur og þá
m.a. prýðilega umfjöllun hjá út-
varpsstöðinni Blues & Roots Radio
(sjá www.bluesandrootsradio.com/
jonina-ara).
Að tónleikaferð lokinni heldur
Jónína til Írlands í enda febrúar og
heldur tónleika skammt frá Galway
og nokkra í Dublin. „Svo er ég að
skipuleggja túr um Norðurlönd í
maí. Ég ætla að fá mér húsbíl og
keyra um og spila og ef vel gengur
held ég því áfram fram á haust,“
segir Jónína. Hún ætli að leika á há-
tíðum, börum og í skólum og muni
setja inn upplýsingar um ferðalagið
á www.joninamusic.com en þar má
einnig finna frekari upplýsingar
um tónlistarkonuna.
Jónína á faraldsfæti vegna Remember
Í ferðalag Jónína Ara leggur land undir
fót vegna plötunnar Remember.
Kvikmyndahátíðin Stockfish verð-
ur haldin í fjórða sinn 1.-11. mars
næstkomandi og hefur nú verið til-
kynnt um nokkrar kvikmyndir sem
bætast við dagskrá hennar en þeg-
ar hefur verið greint frá því að
Loveless, Communion, The Golden
Dawn Girls og What Will People
Say? verði á hátíðinni.
Kvikmyndirnar sem nú hefur
verið greint frá eiga sameiginlegt
að hafa verið sýndar á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes í fyrra og ein
þeirra, rússneska kvikmyndin A
Gentle Creature, eða Krotkaya á
frummálinu, keppti um aðal-
verðlaun hátíðarinnar, Gull-
pálmann. Hinar kvikmyndirnar eru
túniska myndin Beauty and the
Dogs (Aala Kaf Ifrit), Before We
Vanish, (Sanpo suru shinryakusha)
frá Japan og The Workshop (L’Ate-
lier) frá Frakklandi.
Cannes-myndir sýndar á Stockfish
Geimverur Úr Sanpo suru shinryakusha.
Geimverur ferðast til jarðar, taka sér ból-
festu í manneskjum og undirbúa innrás.
Láttu birtuna ekki trufla þig
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 5.30
Sýnd kl. 8, 10.15 Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 5.30 Sýnd kl. 5.30