Morgunblaðið - 25.01.2018, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 25.01.2018, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018 Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is Marta María mm@mbl.is Getur þú lýst starfinu þínu sem aðstoðardagskrárstjóri? „Ég mun vinna með Skarphéðni Guðmundssyni að dagskrártengd- um málefnum sjónvarps, koma að verkefnavali og þróun dagskrár- efnis, fylgja innanhúsframleiðslu eftir og tryggja að gæðamark- miðum sé náð, svo eitthvað sé nefnt. Ég er virkilega spennt fyrir þessu.“ Hvað skiptir máli fyrir konur að hafa í huga ef þær ætla að ná langt á vinnumarkaði? „Ef ég ætti að gefa fólki ráð þegar kemur að því að ná mark- miðum sínum þá er það að hræð- ast ekki að gera mistök! Þú skorar aldrei ef þú þorir ekki að skjóta á markið.“ Fljót að endurskoða markmiðin Hvernig hefur ferill þinn verið? „Það má í rauninni segja að ég hafi slysast inn í dagskrágerð þeg- ar Helgi Jóhannesson pródúsent bauð mér að koma í prufur fyrir unglingaþáttinn Ópið. Ég gleymi því seint þegar ég tók fyrsta prufuviðtalið við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttamann. Ég fékk starfið og unglingaþátturinn Ópið var í loftinu í eitt ár. Þaðan fór ég svo yfir í Kastljós og starfaði þar, meðfram öðrum sjónvarpsþáttum, til ársins 2011. Þar öðlaðist ég dýrmæta reynslu. Viðtölin voru fjölbreytt og ég vann með öflugu fólki sem kenndi mér margt. Síðan þá hef ég snert ýmsa fleti fram- leiðslunnar, framleitt og leikstýrt heimildarmyndum, gefið út bók, setið í framkvæmdastjórn Söngva- keppninnar, skrifað handrit og klippt þætti fyrir RÚV. Síðustu ár hefur Skarphéðinn Guðmundsson fengið mig til að sinna ýmsum hlutverkum er snerta þróun efnis og framsetningu og því var þessi framþróun í starfi, að verða að- stoðardagskrárstjóri, afskaplega ánægjuleg. Varðandi markmiðin, þá tel ég mig vera búna að ná mörgum af þeim markmiðum sem ég hef sett mér í gegnum tíðina en ég er líka fljót að endurskoða markmiðin og setja mér ný þegar þörf er á.“ Hvað gefur vinnan þér? „Vinnan er áhugamál mitt. Þar fær ég ákveðna útrás fyrir sköp- unarþörf, forvitni og löngunina til að hafa áhrif á fólk í kringum mig.“ Hefur þú átt það til að ofkeyra þig, og ef svo er, hvernig hefur þú brugðist við því? „Já, ég hef svo sannarlega of- keyrt mig af og til en ég er að reyna að læra af reynslunni. Ég tel að ímynd „ofurkonunnar“ sé stórhættuleg. Mér finnst mik- ilvægt að halda henni ekki á lofti. Ég hef lært að setja mér raunhæf en jafnframt háleit markmið og sætta mig við að sumt get ég og annað ekki. Í mínum huga er vel- gengni ekki bundin við áhorfs- tölur, tilnefningar til Eddunnar eða launaumslag. Það var það kannski einu sinni en í dag er vel- gengni víðara hugtak í mínum huga. Ég finn reglulega fyrir því að ég hef tæmt bensíntankinn og þá hefur mér gefist best að setja útiveru og nærandi samtöl við vini og fjölskyldu í fyrsta sæti.“ Hallar verulega á hlut kvenna Finnst þér konur þurfa að hafa meira fyrir því að vera ráðnar stjórnendur í fyrirtækjum en karl- menn? „Það er nokkuð ljóst að það hallar verulega á hlut kvenna þeg- ar kemur að stjórnendastöðum. Fáar konur verma forstjórastólinn hér á landi. Stjórnir og stjórn- endur fyrirtækja þurfa að taka meðvitaða ákvörðun um að breyta þessu. Við þurfum líka að gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf, ekki bara konum. Það þarf að efla fæðingarorlofskerfið og efla dag- vistunarúrræði að loknu orlofi. Á meðan þakið er of lágt og feður hafa hærri laun verður ákvörðunin kynbundin. Feður hreinlega neyð- ast til að taka stutt orlof til að halda heimilinu á floti. Þetta er vítahringur sem hefur óhjákvæmi- lega áhrif á jafnrétti á vinnumark- aði og framgang kvenna. Við meg- um samt ekki gleyma því að fæðingarorlofið á auðvitað fyrst og fremst að tryggja barni sam- verustundir með báðum foreldrum þótt það sé sterkt tól til að hafa áhrif á annað. Svo finnst mér líka mikilvægt innlegg í jafnréttisumræðuna að minna á að metnaður allra kvenna felst ekki endilega í því að verða forstjórar eða framkvæmdastjór- ar. Við megum ekki setja þá pressu á ungar konur að þær þurfi að eiga sér þann eina draum til að verða hampað fyrir störf sín.“ Tileinkar sér eftirsótta eiginleika viðmælenda Áttu þér einhverja kvenfyrir- mynd? „Já, ég er umkringd flottum konum. Hvar á ég að byrja? Í bókinni okkar Eddu Hermanns- dóttur, Forystuþjóð, ræddum við við fullt af flottum konum og körl- um. Ég hef líka tamið mér í gegn- um mína vinnu að reyna tileinka mér eftirsótta eiginleika viðmæl- enda minna. Ég er sífellt að safna púslum til að verða betri útgáfa af sjálfri mér.“ Ertu með hugmynd um hvernig hægt er að útrýma launamun kynjanna fyrir fullt og allt? „Fyrsta skrefið í öllum breyt- ingum er að fólk fái innsæi í að breytinga er þörf. Mér finnst við vera komin á þann stað og er bjartsýn á framhaldið.“ Hvernig skipuleggur þú daginn? „Verkefnastjórnunarkerfið Trello bjargar mér! Það hjálpar mér að halda mörgum boltum á lofti og hafa yfirsýn yfir hvað hef- ur forgang og hvað má bíða betri tíma.“ Hvernig er morgunrútínan þín? „Hún er nú ósköp óspennandi ef ég á að vera hreinskilin. Vakna, klæða börn og reyna að koma öll- um út fyrir klukkan 8.15. Stund- um byrja ég vinnudaginn heima á skrifstofunni en mér finnst algjör lúxus að geta fengið mér góðan kaffibolla í kyrrð og ró yfir fyrstu verkefnum dagsins. Þetta geri ég oft þegar ég þarf að skrifa texta því þá á ég það til að tala mikið við sjálfa mig.“ Vinnudagurinn langur Nærðu að vinna bara átta stunda vinnudag eða teygist vinnudagurinn fram á kvöld? „Nei, oftast næ ég ekki að halda mig við átta stunda vinnudag og mér finnst það ekki virðingarvert. Þessi dýrkun á duglega fólkinu sem vinnur allan sólarhringinn er hættuleg. Mér finnst mjög mik- ilvægt að finna eitthvert jafnvægi og að fjölskyldan sé í forgangi þegar leikskóla og skóla lýkur. Það geta margir leyst þig af í vinnunni en það ætti enginn að leysa þig af í foreldrahlutverkinu. Ég hef fundið jafnvægi í því að skipta vinnudeginum í tvö holl. Í fyrra holli frá klukkan níu til fjög- ur sinni ég praktískum hlutum eins og fundum, skipulagsmálum, bóka viðtöl og tek upp þætti. Ég stend svo alltaf upp frá skrifborð- inu klukkan fjögur til að sækja fjölskylduna og trúðu mér það er oft erfitt að stimpla sig út með þeim fyrstu. Á kvöldin, þegar börnin eru sofnuð, tekur seinna hollið við hjá mér. Þá klára ég að skrifa handrit, klippi efni og aðra lausa enda. Mér finnst mörkin milli vinnu og áhugamála líka oft óljós þar sem mér finnst flest sem ég fæst við ferlega skemmtilegt.“ Hvað finnst þér skemmtilegast að gera utan vinnutíma? „Vera með fjölskyldu og vinum. Ég er mjög heimakær og finnst gott að vera með fólkinu mínu.“ „Vinnan er áhugamál mitt“ Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er nýráðin aðstoð- ardagskrárstjóri sjónvarps og dagskrárgerðarmað- ur á RÚV. Hún er 36 ára í sambúð með tvö börn. Smartland spurði hana spjörunum úr. Hugrekki „Ef ég ætti að gefa fólki ráð þeg- ar kemur að því að ná markmiðum sínum þá er það að hræðast ekki að gera mistök! Þú skorar aldrei ef þú þorir ekki að skjóta á markið. “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.