Morgunblaðið - 25.01.2018, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is
Marta María
mm@mbl.is
Getur þú lýst starfinu þínu sem
aðstoðardagskrárstjóri?
„Ég mun vinna með Skarphéðni
Guðmundssyni að dagskrártengd-
um málefnum sjónvarps, koma að
verkefnavali og þróun dagskrár-
efnis, fylgja innanhúsframleiðslu
eftir og tryggja að gæðamark-
miðum sé náð, svo eitthvað sé
nefnt. Ég er virkilega spennt fyrir
þessu.“
Hvað skiptir máli fyrir konur að
hafa í huga ef þær ætla að ná
langt á vinnumarkaði?
„Ef ég ætti að gefa fólki ráð
þegar kemur að því að ná mark-
miðum sínum þá er það að hræð-
ast ekki að gera mistök! Þú skorar
aldrei ef þú þorir ekki að skjóta á
markið.“
Fljót að endurskoða
markmiðin
Hvernig hefur ferill þinn verið?
„Það má í rauninni segja að ég
hafi slysast inn í dagskrágerð þeg-
ar Helgi Jóhannesson pródúsent
bauð mér að koma í prufur fyrir
unglingaþáttinn Ópið. Ég gleymi
því seint þegar ég tók fyrsta
prufuviðtalið við Jóhönnu Vigdísi
Hjaltadóttur fréttamann. Ég fékk
starfið og unglingaþátturinn Ópið
var í loftinu í eitt ár. Þaðan fór ég
svo yfir í Kastljós og starfaði þar,
meðfram öðrum sjónvarpsþáttum,
til ársins 2011. Þar öðlaðist ég
dýrmæta reynslu. Viðtölin voru
fjölbreytt og ég vann með öflugu
fólki sem kenndi mér margt. Síðan
þá hef ég snert ýmsa fleti fram-
leiðslunnar, framleitt og leikstýrt
heimildarmyndum, gefið út bók,
setið í framkvæmdastjórn Söngva-
keppninnar, skrifað handrit og
klippt þætti fyrir RÚV. Síðustu ár
hefur Skarphéðinn Guðmundsson
fengið mig til að sinna ýmsum
hlutverkum er snerta þróun efnis
og framsetningu og því var þessi
framþróun í starfi, að verða að-
stoðardagskrárstjóri, afskaplega
ánægjuleg. Varðandi markmiðin,
þá tel ég mig vera búna að ná
mörgum af þeim markmiðum sem
ég hef sett mér í gegnum tíðina en
ég er líka fljót að endurskoða
markmiðin og setja mér ný þegar
þörf er á.“
Hvað gefur vinnan þér?
„Vinnan er áhugamál mitt. Þar
fær ég ákveðna útrás fyrir sköp-
unarþörf, forvitni og löngunina til
að hafa áhrif á fólk í kringum
mig.“
Hefur þú átt það til að ofkeyra
þig, og ef svo er, hvernig hefur þú
brugðist við því?
„Já, ég hef svo sannarlega of-
keyrt mig af og til en ég er að
reyna að læra af reynslunni. Ég
tel að ímynd „ofurkonunnar“ sé
stórhættuleg. Mér finnst mik-
ilvægt að halda henni ekki á lofti.
Ég hef lært að setja mér raunhæf
en jafnframt háleit markmið og
sætta mig við að sumt get ég og
annað ekki. Í mínum huga er vel-
gengni ekki bundin við áhorfs-
tölur, tilnefningar til Eddunnar
eða launaumslag. Það var það
kannski einu sinni en í dag er vel-
gengni víðara hugtak í mínum
huga. Ég finn reglulega fyrir því
að ég hef tæmt bensíntankinn og
þá hefur mér gefist best að setja
útiveru og nærandi samtöl við vini
og fjölskyldu í fyrsta sæti.“
Hallar verulega á hlut kvenna
Finnst þér konur þurfa að hafa
meira fyrir því að vera ráðnar
stjórnendur í fyrirtækjum en karl-
menn?
„Það er nokkuð ljóst að það
hallar verulega á hlut kvenna þeg-
ar kemur að stjórnendastöðum.
Fáar konur verma forstjórastólinn
hér á landi. Stjórnir og stjórn-
endur fyrirtækja þurfa að taka
meðvitaða ákvörðun um að breyta
þessu. Við þurfum líka að gera
bæði konum og körlum kleift að
samræma fjölskyldu- og atvinnulíf,
ekki bara konum. Það þarf að efla
fæðingarorlofskerfið og efla dag-
vistunarúrræði að loknu orlofi. Á
meðan þakið er of lágt og feður
hafa hærri laun verður ákvörðunin
kynbundin. Feður hreinlega neyð-
ast til að taka stutt orlof til að
halda heimilinu á floti. Þetta er
vítahringur sem hefur óhjákvæmi-
lega áhrif á jafnrétti á vinnumark-
aði og framgang kvenna. Við meg-
um samt ekki gleyma því að
fæðingarorlofið á auðvitað fyrst og
fremst að tryggja barni sam-
verustundir með báðum foreldrum
þótt það sé sterkt tól til að hafa
áhrif á annað.
Svo finnst mér líka mikilvægt
innlegg í jafnréttisumræðuna að
minna á að metnaður allra kvenna
felst ekki endilega í því að verða
forstjórar eða framkvæmdastjór-
ar. Við megum ekki setja þá
pressu á ungar konur að þær þurfi
að eiga sér þann eina draum til að
verða hampað fyrir störf sín.“
Tileinkar sér eftirsótta
eiginleika viðmælenda
Áttu þér einhverja kvenfyrir-
mynd?
„Já, ég er umkringd flottum
konum. Hvar á ég að byrja? Í
bókinni okkar Eddu Hermanns-
dóttur, Forystuþjóð, ræddum við
við fullt af flottum konum og körl-
um. Ég hef líka tamið mér í gegn-
um mína vinnu að reyna tileinka
mér eftirsótta eiginleika viðmæl-
enda minna. Ég er sífellt að safna
púslum til að verða betri útgáfa af
sjálfri mér.“
Ertu með hugmynd um hvernig
hægt er að útrýma launamun
kynjanna fyrir fullt og allt?
„Fyrsta skrefið í öllum breyt-
ingum er að fólk fái innsæi í að
breytinga er þörf. Mér finnst við
vera komin á þann stað og er
bjartsýn á framhaldið.“
Hvernig skipuleggur þú daginn?
„Verkefnastjórnunarkerfið
Trello bjargar mér! Það hjálpar
mér að halda mörgum boltum á
lofti og hafa yfirsýn yfir hvað hef-
ur forgang og hvað má bíða betri
tíma.“
Hvernig er morgunrútínan þín?
„Hún er nú ósköp óspennandi ef
ég á að vera hreinskilin. Vakna,
klæða börn og reyna að koma öll-
um út fyrir klukkan 8.15. Stund-
um byrja ég vinnudaginn heima á
skrifstofunni en mér finnst algjör
lúxus að geta fengið mér góðan
kaffibolla í kyrrð og ró yfir fyrstu
verkefnum dagsins. Þetta geri ég
oft þegar ég þarf að skrifa texta
því þá á ég það til að tala mikið
við sjálfa mig.“
Vinnudagurinn langur
Nærðu að vinna bara átta
stunda vinnudag eða teygist
vinnudagurinn fram á kvöld?
„Nei, oftast næ ég ekki að halda
mig við átta stunda vinnudag og
mér finnst það ekki virðingarvert.
Þessi dýrkun á duglega fólkinu
sem vinnur allan sólarhringinn er
hættuleg. Mér finnst mjög mik-
ilvægt að finna eitthvert jafnvægi
og að fjölskyldan sé í forgangi
þegar leikskóla og skóla lýkur.
Það geta margir leyst þig af í
vinnunni en það ætti enginn að
leysa þig af í foreldrahlutverkinu.
Ég hef fundið jafnvægi í því að
skipta vinnudeginum í tvö holl. Í
fyrra holli frá klukkan níu til fjög-
ur sinni ég praktískum hlutum
eins og fundum, skipulagsmálum,
bóka viðtöl og tek upp þætti. Ég
stend svo alltaf upp frá skrifborð-
inu klukkan fjögur til að sækja
fjölskylduna og trúðu mér það er
oft erfitt að stimpla sig út með
þeim fyrstu. Á kvöldin, þegar
börnin eru sofnuð, tekur seinna
hollið við hjá mér. Þá klára ég að
skrifa handrit, klippi efni og aðra
lausa enda. Mér finnst mörkin
milli vinnu og áhugamála líka oft
óljós þar sem mér finnst flest sem
ég fæst við ferlega skemmtilegt.“
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera utan vinnutíma?
„Vera með fjölskyldu og vinum.
Ég er mjög heimakær og finnst
gott að vera með fólkinu mínu.“
„Vinnan er
áhugamál
mitt“
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er nýráðin aðstoð-
ardagskrárstjóri sjónvarps og dagskrárgerðarmað-
ur á RÚV. Hún er 36 ára í sambúð með tvö börn.
Smartland spurði hana spjörunum úr.
Hugrekki „Ef ég ætti
að gefa fólki ráð þeg-
ar kemur að því að ná
markmiðum sínum þá
er það að hræðast
ekki að gera mistök!
Þú skorar aldrei ef þú
þorir ekki að skjóta á
markið. “