Morgunblaðið - 25.01.2018, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
Þ
ið þekkið örugglega New
York af eigin raun, að lík-
indum Boston sömuleiðis og
mögulega Los Angeles. En
færri hér á landi hafa komið til Cle-
veland, enn sem komið er. Það er
hins vegar að fara að breytast því
fljótlega býðst þér beint flug til
þessarar líflegu borgar og þá er
eins víst að staðan breytist. Fljót-
lega munu flestir sem þú þekkir
hafa heimsótt borgina og næsta
víst að þeir verða þá þegar með
áform á prjónunum um að kíkja
þangað aftur. Þannig er bara Cle-
veland.
Borgin þar sem sagan lifir
Borgin Cleveland hlaut nafn sitt
árið 1796, fyrir rúmlega 220 árum,
og býr því að ríkulegri sögu. Borg-
in er ekki tiltakanlega stór á
bandarískan mælikvarða - þar búa
um 395.000 manns - og því þægileg
að skoða. Borgaryfirvöld hafa borið
gæfu til þess að varðveita sögu-
legar byggingar og þar er að finna
stórbrotin dæmi um arkitektúr frá
því um aldamótin 1900. Hér laga
menn þegar þörf er á, aðlaga að
nútímanum ef aðstæður kalla á það
en rífa ekki eða rústa gamlar bygg-
ingaperlur. Dæmi um þetta er al-
gerlega stórkostleg bygging sem
kallast The Arcade. Þar er á ferð-
inni ein fyrsta verslunarmiðstöð
Bandaríkjanna og um leið heimsins.
Að ganga þar um er eins og að
stíga inn í risastóra tímavél því inn-
réttingarnar eru hreint með ólík-
indum fallegar. Verslaðu fyrir alla
muni ef þú vilt - en það kostar ekk-
ert að kíkja inn og það er vel þess
virði að skoða sig um í The Arcade
bara til að gapa af undrun. Enn-
fremur er ómissandi fyrir áhuga-
fólk um sígildan arkitektúr að
spóka sig um Cleveland Mall, opið
svæði sem umlukið er byggingum
sem reistar voru í upphafi 20. aldar
í nýklassískum stíl. Þar á meðal er
dómshúsið, bókasafnið og fleiri op-
inberar byggingar.
Afþreying á afþreyingu ofan
Ertu tónlistarunnandi? Íþrótta-
áhugamaður? Matgæðingur?
Spennufíkill? Eða kannski allt í
senn? Þá er vissara að gefa sér
tíma í Cleveland því borgin sér um
sína hvað afþreyingu varðar. Í Cle-
veland er til dæmis sjálf frægð-
arhöll rokksins - The Rock ’n’ Roll
Hall of Fame - þar sem rokksagan
er skrifuð í hástöfum fyrir gesti,
skreytt hvers konar mögnuðum
minjagripum og ljósmyndum. Fyrir
íþróttaáhugamenn er spennandi að
skella sér á leik með Cleveland Ca-
valiers og sjá einn allra besta leik-
mann NBA deildarinnar, Lebron
James, taka mótherja sína til bæna.
Þess utan er tilvalið að skella sér í
stemninguna með heimamönnum
og fá ameríska stemningu beint í
æð á hafnaboltaleik með Cleveland
Indians, ruðningsleik með Clevel-
and Browns, hokkíleik með Clevel-
and Monsters eða bara fótboltaleik
með Cleveland Gladiators. Ef
spennan er ekki næg á vellinum er
lag að bregða sér í Cedar Point
skemmtigarðinn, sem kallaður er
höfuðborg rússíbananna; þar eru
hvorki fleiri né færri en 70 tæki til
að skemmta gestum, og þar af eru
17 mis-ógnvekjandi rússíbanar sem
eru allt frá því að vera hressilega
snaggaralegir upp í að vera hroll-
vekjandi sturlaðir. Þá er ótalinn
heljarmikill vatnsleikjagarður með
fjölmörgum rennibrautum af ýms-
um stærðum.
Et, drekk og ver glaður –
í Cleveland, nema hvað!
Það er sægur spennandi veit-
ingastaða í Cleveland, eins og við
er að búast í stórri borg í Banda-
ríkjunum, allt frá steikhúsum til
sushi-staða. En eins og víðast hvar
annars staðar í henni Ameríku er
gríðarleg gróska í handverksbjór-
menningunni í Cleveland um þessar
mundir og áhugafólk um brugg á
hér ótrúlega gott í vændum. Meðal
áfangastaða sem bjórnördar mega
ekki missa af er Great Lakes
Brewing Company sem býr ekki
bara til dásamlegan bjór heldur
býður upp á ógleymanlegar skoð-
unarferðir um brugghúsið; Butcher
& The Brewer er gastro-pöbb með
geggjuðum mat og úrvalsbjór; Cle-
veland Brew Bus er stórskemmti-
leg skoðunarferð um nokkur af
helstu brugghúsum borgarinnar, í
lítilli rútu, og þar er best að skella
sér í smakkferðir í góðra vina hópi;
Fat Head’s Brewery & Saloon er
svo staðurinn fyrir vængi, borgara,
pizzur og verðlauna-handverksbjór
hússins og loks má ekki gleyma
Forest City Brewery þar sem einn
elsti bjórgarðurinn selur bjór sem
bruggaður er í takmörkuðu upplagi
og er til húsa í byggingu frá 1915.
Þéttustu þyrpingu allra handa mat-
sölustaða er svo að finna í Ohio
City hverfinu, sem kalla mætti
Williamsburg Cleveland-borgar,
þar sem meira en 150 veitinga-
staðir eru samankomnir á litlu,
heillandi svæði í húsum frá 19. öld.
Ef hugur gesta stendur til að ráfa í
rólegheitunum um yndislega mark-
aði er rétt að punkta hjá sér nafnið
West Side Market, þar sem ótal
fjársjóðir bíða þess að vera upp-
götvaðir.
Ekki bíða eftir öllum hinum…
Það munu því margir fagna
möguleikanum á því að geta flogið
beint til hinnar líflegu Cleveland-
borgar. Sumir munu eflaust bíða
þess að heyra ferðasögur frá öðrum
en skemmtilegast er auðvitað að
vera með þeim fyrstu til að upplifa
það sem þessi iðandi skemmtilega
borg hefur upp á að bjóða.
Heill heimur
út af fyrir sig
AFP
King James, eins og Lebron kallar
sig sjálfan sig réttilega, treður hér
boltanum með tilþrifum í leik með
liði sínu, Cleveland Cavaliers.
The Arcade, oft kallað „Old Arcade“, er ein allra fyrsta verslunarmiðstöð eða „mall“ Bandaríkjanna. Þar hafa upp-
runarlegar innréttingar fengið að halda sér og heimsókn þangað er ómissandi.
Í Cedar Point skemmtigarðinum er ekki bara að finna 17 rússíbana af öllum
stærðum og gerðum, ásamt rúmlega 50 öðrum tækjum, heldur líka gríð-
armikinn vatnsleikjagarð með skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Bjórnördar eru á heimavelli í Cle-
veland því handverksbjórsenan lifir
þar fantagóðu lífi.
Ohio City hverfið er líklega mest „hipp og kúl“ hluti borgarinnar og þar
liggja spennandi veitingastaðir, krúttleg kaffihús og flottir barir hver við
annan í húsum frá seinni hluta 19. aldar.
Bæjarstæði Cleveland er með falleg-
asta móti þar sem borgin stendur við
Lake Erie, sem er eitt af vötnunum
miklu í Bandaríkjunum.
ÁSKRIFTARHAPPADRÆTTI MORGUNBLAÐSINS
Drögum alla fimmtudaga í 10 vikur og nöfn vinnings
hafa verða birt í Morgunblaðinu á föstudögum.Cleveland