Morgunblaðið - 25.01.2018, Qupperneq 43
43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
Reykjavík Byggingarkranar, sem risið hafa vegna framkvæmda í miðborginni, gnæfa yfir umhverfið. Turnar Fríkirkjunnar og Iðnaðarmannahússins eru ekki stórir í samanburðinum.
Árni Sæberg
Ein stærsta áskorun
þessarar aldar er auk-
inn lífaldur fólks og
þar með fjölgun eldri
borgara. Lengra og
betra líf er ein mesta
breyting í samfélögum
heimsins. En þessi
áskorun er ekki síður
stórt tækifæri.
Stærsta breyting í at-
vinnuþátttöku á 20. öld
fólst í þátttöku kvenna. Stærsta
tækifæri í þátttöku í þjóðfélaginu á
21. öld felst í þátttöku eldri borgara.
Sífellt fleiri eru við ágæta heilsu og
hafa áhuga á að láta til sín taka með
einum eða öðrum hætti. Við eigum
að taka í útrétta hönd
þeirra sem vilja leggja
sitt af mörkum. Við eig-
um ekki að refsa þeim
sem vilja vinna og eru
komnir á efri ár. Þvert
á móti eigum við að
fagna þátttöku þeirra
enda eflir hún hagvöxt,
andlega og líkamlega
heilsu og styrkir fé-
lagsleg bönd.
Hvað getur
borgin gert?
Reykjavíkurborg þarf að móta sér
framsækna stefnu í málefnum eldri
borgara. Aðstoða fólk sem getur og
vill búa áfram á heimilum sínum og
stuðla að sjálfstæði fólks til þátttöku
í samfélaginu. Reykjavík á að lág-
marka álögur á þá sem hafa nú þeg-
ar lagt sitt til samfélagsins og gera
borgina eftirsóknarverða fyrir þá
sem komnir eru á efri ár. Fasteigna-
skattar leggjast þungt á marga eldri
borgara. Húsnæðismál þurfa að vera
heilbrigðari og búsetuúrræði trygg-
ari. Höfuðborgin á ekki að sitja eftir
í þessum málum heldur sýna for-
ystu. Slíkar breytingar vil ég sjá.
Eldri borgarar –
þátttakendur í framtíðinni
Eftir Eyþór
Arnalds
Eyþór Arnalds
»Reykjavíkurborg
þarf að móta sér
framsækna stefnu í mál-
efnum eldri borgara.
Höfundur gefur kost á sér
í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
Reykvíkingar hafa
þurft að þola átta ára
óstjórn vinstri flokka í
málefnum borgarinnar.
Þegar litið er yfir sviðið
er augljóst að stefna
Samfylkingarinnar hef-
ur orðið ofan á í flestum
málaflokkum en sú
stefna þjónar ekki al-
menningi í Reykjavík.
Tími er kominn til að
breyta um stefnu og
leiða sjálfstæðisstefnuna til öndvegis
á ný við stjórn borgarinnar.
Eign fyrir alla
Húsnæðisstefna meirihlutans
byggist á lóðaskorti og háu húsnæð-
isverði. Með því leggja vinstri flokk-
arnir stein í götu þeirra sem vilja
eignast húsnæði, en vilja þess í stað
gera sem flesta að leiguliðum.
Ég vil hverfa frá þessari stefnu og
gera sem flestum kleift að eignast
eigið húsnæði, ekki síst ungu fólki
sem vill stofna eigið heimili. Stórauka
á framboð lóða á hagstæðu verði í
nýjum hverfum og bæta þannig úr
ófremdarástandi í húsnæðismálum.
Öruggar og greiðar samgöngur
Mikil þörf er á samgöngufram-
kvæmdum á vegum ríkisins í Reykja-
vík. Undir stjórn Dags B. Eggerts-
sonar hefur Reykjavíkurborg hafnað
slíkum framkvæmdum.
Rjúfa þarf þá stöðnun sem ríkir í
samgöngumálum höfuðborgarinnar
og hefja framkvæmdir sem fyrst, t.d.
við mislæg gatnamót til að greiða fyr-
ir umferð og auka umferðaröryggi.
Vinna þarf að lagningu Sundabraut-
ar en vinstri meirihlutinn hefur tor-
veldað slíkt með skipulagsákvörð-
unum sínum.
Betri skólar
Samfylkingin hefur farið með
stjórn skólamála frá 2010-2018 og má
í því sambandi tala um tvö týnd kjör-
tímabil í þessum málaflokki. Lestr-
arkunnáttu skólabarna fer hrakandi
og vanhugsaðar breytingar hafa
valdið mikilli ólgu í leikskólum og
grunnskólum.
Bæta þarf grunnskólamenntun,
m.a. með því að notast
við skýr og mælanleg
markmið. Virkja á for-
eldra til góðs í skóla-
starfi og upplýsa þá um
árangur barna sinna.
Leita þarf nýrra leiða
til að manna leikskóla
borgarinnar og efla
dagforeldrakerfið.
Ráðdeild í rekstri
Meirihluti Samfylk-
ingar, Bjartrar fram-
tíðar, Pírata og Vinstri
grænna hefur engin tök á fjármálum
borgarinnar. Þrátt fyrir stórauknar
tekjur og hámarksskattheimtu halda
skuldir borgarinnar áfram að hækka.
Þessari óheillaþróun verður að snúa
við með víðtækri hagræðingu.
Lækka þarf álögur á Reykvíkinga
með lækkun fasteignaskatts og út-
svars.
Þrífum borgina!
Allir sjá að þrifum og umhirðu hef-
ur farið aftur undir stjórn vinstri
meirihlutans. Stórbæta þarf verklag
og eftirfylgni með þrifum, umhirðu
og snjómokstri í Reykjavík, ekki síst
í eystri hverfunum. Vinna þarf mark-
visst gegn veggjakroti.
Aukum ábyrgð borgarfulltrúa
Ég leggst alfarið gegn því að borg-
arfulltrúum verði fjölgað um 53% eða
úr 15 í 23 eins og vinstri meirihlutinn
hefur beitt sér fyrir. Þess í stað vil ég
endurskoða kosningafyrirkomulag,
binda kosningu borgarfulltrúa við
ákveðin kjörhverfi og sjá til þess að
öll hverfi eigi sér málsvara í borg-
arstjórn. Þannig verður ábyrgð borg-
arfulltrúa aukin og boðleiðir styttar
milli þeirra og kjósenda.
Eftir Kjartan
Magnússon
Kjartan
Magnússon
»Eftir átta ára óstjórn
vinstri flokka þarf að
leiða sjálfstæðisstefn-
una til öndvegis á ný
við stjórn borgarinnar
Höfundur er borgarfulltrúi og er
í framboði í leiðtogaprófkjöri
Sjálfstæðisflokksins á laugardag.
kjartan@reykjavik.is
Rjúfum kyrrstöðuna
í Reykjavík
Reykjavík hefur allt
til að bera til að vera í
fremstu röð sem borg-
arsamfélag. Ég bjó eitt
sinn í borg í Bandaríkj-
unum sem hafði upp-
lifað mikla hnignun á
einu augnabliki og það
hnignunarskeið stend-
ur enn. Borgin er í 20
mínútna fjarlægð frá
nafla heimsins, New
York, með alþjóða-
flugvöll í túnfætinum. Borgin er
Newark.
Það sem borgin líður fyrir er for-
ystuleysi. Stundum finnst mér mín
fæðingarborg líða fyrir forystuleysi,
þó ekki eins magnað og Newark.
Reykjavík er miðstöð viðskipta og
þjónustu á Íslandi. Í borginni eru
menningarstofnanir, sem hafa að-
dráttarafl fyrir fólk alls staðar að úr
heiminum. Í borginni eiga að vera
frjó vísinda- og listasetur.
Í stað aðlögunar að þeim sem eiga
að njóta er gert ráð fyrir
að þeir, sem njóta eiga,
eigi að aðlagast hug-
arheimi borgarfulltrúa.
Almennings-
samgöngum er stefnt
gegn einkabíl, rétt eins
og um andstæða hags-
muni sé að ræða. Þétt-
ingu byggðar er stefnt
gegn nauðsynlegum ný-
byggingarsvæðum fyrir
25 til 40 þúsund nýja
íbúa.
Háskólasamfélagi er
stefnt gegn einkaflugi
með því að semja um svæði Flug-
garða til afnota fyrir Háskóla Íslands.
Háskólar geta verið á heims-
mælikvarða með fluggörðum, sem
eru í raun hátæknisetur.
Flest smáatriði í rekstri borg-
arinnar eru úr lagi gengin, rétt eins
og skólp flæðir í sjó á röngum stöðum.
Fjármál borgarinnar eru ekki smáat-
riði en fjármál borgarinnar stefna í
það að verða ósjálfbær vegna skulda-
söfnunar.
Þegar illa gengur eru embætt-
ismenn sendir til svara, en þegar
borgarstjóri heldur að vel gangi þá
mælir hann, þó án þess að nokkur
borgarbúi viti um hvað hann fjallar.
Skiljanlegur og árangursríkur
borgarstjóri
Reykjavík þarf skiljanlegan borg-
arstjóra.
Ég býð mig fram til forystu í
Reykjavík. Verk mín á fjármála-
markaði, í kennslu og á Alþingi hafa
verið árangursrík. Á þeirri reynslu
mun ég byggja.
Ég býð mig fram til forystu til að
ljúka hnignunarskeiði Reykjavíkur.
Eftir Vilhjálm
Bjarnason »Ég býð mig fram tilforystu í Reykjavík.
Verk mín á fjármála-
markaði, í kennslu og á
Alþingi hafa verið ár-
angursrík. Á þeirri
reynslu mun ég byggja.
Vilhjálmur
Bjarnason
Höfundur er lektor.
Borg viðskipta og þjónustu,
menningar, vísinda og lista