Morgunblaðið - 25.01.2018, Page 48
48 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
„VOXIS ER MITT FYRSTA VAL“
Gissur Páll Gissurarson, tenór
SÆKTU
RADDSTYRK Í
ÍSLENSKA
NÁTTÚRU
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
85
70
3
VELDU VOXIS FYRIR RÖDDINA
Voxis hálstöflur og mixtúrur eru unnar
úr laufum íslenskrar ætihvannar og njóta
mikilla vinsælda.
Sykurlaus Voxis, klassískur og
sykurlaus með engifer.
NÝTTHÁLSMMEÐOG LA
IXTÚRUR
ENGIFERKKRÍS
Voxis hálsmixtúrur með hvönn og
engifer- eða lakkrísbragði.
Gagnast gegn hósta, kvefi og þurrki í hálsi.
Í fyrri grein okkar
um stöðu heilbrigðis-
þjónustunnar var
fjallað um helstu
styrkleika og veikleika
ásamt nauðsyn þess
að skilgreina lykil-
áherslur og samhæfa
betur mismunandi
þætti þessarar flóknu
en afar mikilvægu
þjónustu. Við teljum alls ekki nægja
að auka fjárframlög til heilbrigðis-
kerfisins, heldur sé óhjákvæmilegt að
yfirfara og samhæfa meginþætti
kerfisins og marka heildræna stefnu
til framtíðar, ekki síst til að nýting
fjárveitinga verði sem best. Í þessari
grein munum beina kastljósinu að að-
gerðum sem við teljum að ráðast
þurfi í sem allra fyrst.
Stórar áskoranir
Við stöndum nú frammi fyrir
stærri áskorunum í heilbrigðisþjón-
ustunni en oft áður. Mikil fjölgun
aldraðra, sem margir hverjir stríða
við fjölþætta sjúkdóma og/eða færni-
skerðingu, er risavaxið verkefni. Enn
fremur hefur orðið geysileg framþró-
un í greiningu og meðferð margra
sjúkdóma á undanförnum áratugum
sem m.a. hefur leitt til þess að sjúk-
lingar með erfiða sjúkdóma lifa leng-
ur en áður. Á hinn bóginn hefur
auknu framboði meðferðarúrræða
fylgt ört vaxandi kostnaður og er
skýrasta dæmið geysileg útgjalda-
aukning vegna nýrra lyfja undanfarin
ár. Þessari þróun hefur ekki verið
mætt með skipulegum hætti, hvorki
viðeigandi uppbyggingu innviða né
raunhæfri aukningu fjárveitinga til
heilbrigðismála. Af því leiðir fremur
ómarkviss nýting úrræða sem end-
urspeglast m.a. í þeim fjölda aldraðra
sem dvelja að jafnaði í bráðalegurými
á Landspítala. Aðrar vestrænar þjóð-
ir eru að glíma við samskonar vanda
en ólíkt okkur hafa margar þeirra
unnið markvisst að úrbótum á und-
anförnum árum.
Hvað er til ráða?
Að mati undirritaðra þarf að nálg-
ast umbætur á heilbrigðiskerfinu á
fjölþættan máta með áherslu á skýra
verkaskiptingu, öfluga verkstjórn og
forgangsröðun verkefna. Að okkar
áliti er afar brýnt að skilgreina hlut-
verk og samhæfa verkaskiptingu
heilsugæslustöðva, þjónustu sjálf-
stætt starfandi sérfræðilækna, Land-
spítala, sjúkrahúsa á landsbyggðinni
og hjúkrunarheimila. Það gefur kost
á að nýta möguleika til samlegðar
sem liggja víða. Með öflugra heild-
arskipulagi fæst sömuleiðis betri nýt-
ing fjármuna. Á sama tíma er mik-
ilvægt að huga að stefnumótun og
fjármögnun til 5 eða jafnvel 10 ára
því ella er hætt við að árangurinn
verði ófullnægjandi. Við erum fylgj-
andi fjölbreyttum rekstrarformum í
heilbrigðisþjónustunni en teljum
jafnframt nauðsynlegt að skýrt sé
hvaða þjónustu ríkið sé að kaupa.
Með öðrum orðum þá verður að
liggja fyrir ákveðin kröfulýsing kaup-
enda þjónustunnar og hún verður að
vera í samræmi við heildarskipulag
heilbrigðiskerfisins. Þá þarf að
tryggja réttláta nálgun við forgangs-
röðun verkefna innan heilbrigð-
isþjónustunnar. Um þessar mundir
er sérlega knýjandi að takast á við
gríðarlegan kostnað sem fylgir inn-
leiðingu nýrra lyfja. Ef svo heldur
fram sem horfir munu lyfjaútgjöld
sliga heilbrigðiskerfi flestra vest-
rænna þjóða. Finna þarf lausn á þess-
um vanda og virðist samvinna milli
ríkja vera skynsamlegasta leiðin. Því
ættu íslensk heilbrigðisyfirvöld að
beita sér fyrir stórauknu samstarfi
Norðurlandaþjóða á þessum vett-
vangi.
Ljóst er að stórefla þarf grunn-
þjónustu innan heilbrigðiskerfisins
og teljum við æskilegt að það verði
gert innan heilsugæslunnar. Að okk-
ar mati ætti heilsugæslan að gegna
mun stærra hlutverki í eftirliti og
meðferð langvinnra kvilla en nú er
auk þess að vera einn af hornsteinum
öldrunarþjónustu. Ýmsir telja einka-
rekstur heilsugæslustöðva lykil-
úrræði í viðleitni til að koma grunn-
þjónustunni í ásættanlegt horf. Við
erum ekki alveg sannfærðir um að
það sé besti kosturinn en teljum engu
að síður að afkastahvetjandi launa-
kerfi sé forsenda þess að fullnægj-
andi árangur náist, því ella er hætt
við að verkefni færist til sérhæfðari
eininga. Þetta er raunar sú leið sem
margar þjóðir hafa farið. Jafnframt
er óhjákvæmilegt að leitað verði
nýrra leiða. Það kunna t.d. að felast
áhugaverð tækifæri í aukinni sam-
vinnu heilsugæslulækna og sér-
fræðilækna, sem og annarra fag-
stétta, s.s. hjúkrunarfræðinga og
sálfræðinga, til að styrkja þessa
grunnstoð innan heilbrigðiskerfisins.
Þannig kæmi mögulega til greina að
færa hluta af þeirri þjónustu sem sér-
fræðilæknar veita á göngudeildum
sjúkrahúsa og einkareknum lækn-
ingastofum inn á heilsugæslustöðvar.
Auk þess að veita ráðgjöf varðandi
þjónustu við sjúklinga gætu sér-
fræðilæknarnir unnið með læknum
og öðru starfsliði heilsugæslunnar að
þróun verkferla fyrir ýmsa algenga
langvinna sjúkdóma. Þá er líklegt að
þessi nálgun muni stuðla að aukinni
samvinnu milli heilsugæslunnar og
sérfræðilækna. Þessi hugmynd kann
í fljótu bragði að virðast byltingar-
kennd en við teljum að vert sé að
skoða nýjar leiðir þar sem hefð-
bundin nálgun hefur engan veginn
skilað tilætluðum árangri.
Almennt er æskilegt að ein-
staklingar fái úrlausn á viðeigandi
stað innan heilbrigðisþjónustunnar.
Illa skilgreindir farvegir fyrir aðkall-
andi vandamál leiða gjarnan til heim-
sókna á bráðamóttöku og jafnvel
sjúkrahúsinnlagna sem koma hefði
mátt í veg fyrir og eru mjög dýr úr-
lausn. Mikilvægt er að skilgreina bet-
ur þjónustufarvegi fyrir sjúklinga
sem haldnir eru alvarlegum lang-
vinnum sjúkdómum, bæði af lík-
amlegum og sálrænum toga. Útbúa
þarf skýrar og aðgengilegar leiðbein-
ingar um hvert beri að leita með til-
tekin heilsufarsvandamál, bæði sím-
leiðis og á netinu.
Við tökum undir lýðheilsusjón-
armið í boðaðri aðgerðaáætlun rík-
isstjórnarinnar. Auk hefðbundinna
forvarna er ástæða til að hyggja sér-
staklega að markvissum aðgerðum
sem miða að heilsueflingu með
áherslu á lífsstílstengda þætti. Það
skyldi seint vanmeta jákvæð áhrif
þátta eins og hreyfingar, holls mat-
aræðis, kjörþyngdar og góðra svefn-
venja á heilbrigði. Í því tilliti kynni að
vera sérstaklega áhugavert að beina
sjónum sínum að yngstu kynslóð-
unum. Það liggja fyrir áhugaverðar
rannsóknir sem styðja slíka nálgun.
Loks er mikilvægt að efla fram-
haldsmenntun í heilbrigðisvísinda-
greinum, m.a. í því skyni að nýta
starfskrafta nemanna. Hér ríkja þær
sérstöku aðstæður að flestir læknar
stunda sérfræðinám erlendis þar sem
þeir dvelja gjarnan í 6-8 ár. Okkur
skortir að verulegu leyti vinnu-
framlag námslækna, sem eru mik-
ilvægur hluti af mannafla heilbrigð-
isþjónustunnar í öðrum löndum. Á
síðustu árum hafa verið stigin mik-
ilvæg skref í átt að því að efla fram-
haldsmenntun í læknisfræði hér á
landi og er brýnt að haldið verði
áfram á þeirri braut. Jafnframt þarf
að leita árangursríkari leiða til að
laða aðrar heilbrigðisstéttir til starfa
á Landspítala. Einsýnt virðist að
bæta verði kjör ýmissa heilbrigðis-
stétta því ella mun mannekla í þeirra
röðum verða vaxandi vandamál á
komandi árum.
Áhugaverð sóknarfæri
Þó að heilbrigðiskerfi okkar krefj-
ist margvíslegra umbóta má ekki
vanrækja að hlúa að verkefnum sem
geta haft veruleg áhrif til framþróun-
ar í læknisfræði. Ísland hefur verið í
fararbroddi þjóða heimsins á sviði
mannerfðafræði og liggja nú fyrir hjá
Íslenskri erfðagreiningu upplýsingar
um arfgerð meginþorra þjóðarinnar.
Nýting erfðaupplýsinga í því skyni að
sníða meðferðarúrræði að þörfum
einstakra sjúklinga er líkleg til að
skapa einstök tækifæri í viðureign við
ýmsa alvarlega sjúkdóma og kann að
eiga eftir að breyta því hvernig heil-
brigðisþjónusta verður veitt í fram-
tíðinni. Hér á landi erum við í ein-
stakri stöðu til að láta að okkur kveða
með rannsóknum á hvernig við get-
um best nýtt fyrirliggjandi erfða-
upplýsingar til að bæta heilbrigði.
Þetta er tækifæri sem við megum
ekki láta renna okkur úr greipum.
Tillögur
Að lokum setjum við fram tillögur
um verkefni er við teljum brýnust í
aðgerðaáætlun sem miðar að því að
koma íslenska heilbrigðiskerfinu hér-
lendis í fremstu röð. Við teljum ekki
vera þörf fyrir kúvendingu heilbrigð-
isþjónustunnar, heldur fyrst og
fremst endurskipulagningu með
markvissari hlutverkaskipan, aukinni
samvinnu, betri verkstjórn og skyn-
samlegri nýtingu úrræða.
Ráðast í stefnumótun og aðgerða-
áætlun til næstu 5 ára hið minnsta.
Skilgreina grundvallarskipulag
heilbrigðiskerfisins, verkaskiptingu
megineininga, verkstjórn og for-
gangsröðun verkefna.
Skapa heildstæða mynd af heil-
brigðisþjónustunni frá vöggu til graf-
ar með áherslu á grunnþjónustu með
greiðu aðgengi ásamt auknu samstarfi
heilsugæslu, einkarekinnar sérfræði-
þjónustu og sjúkrahúsa.
Leitast við að tryggja hagkvæma
nýtingu fjármuna með vandaðri lýs-
ingu á þjónustu sem keypt er, gæða-
eftirliti og aðgerðum sem draga úr só-
un fjármuna.
Skoða nýjar leiðir til að efla hlut-
verk heilsugæslunnar sem miðstöðvar
grunnþjónustu.
Styrkja heilbrigðisþjónustu á
landsbyggðinni, m.a. með fjarþjón-
ustu.
Skapa skýra þjónustufarvegi fyrir
einstaklinga með langvinna sjúkdóma
af líkamlegum og geðrænum toga.
Efla skipulag öldrunarþjónustu,
með áherslu á þjónustu heimahúsum
og aðgerðir til að mæta þörf fyrir
hjúkrunarrými.
Flýta byggingu nýs Landspítala
eins og frekast er unnt.
Skilgreina skynsamlega forgangs-
röðun við innleiðingu nýrra lyfja, m.a.
með alþjóðlegu samráði.
Ljúka samtengingu rafrænnar
sjúkraskrár fyrir allt landið.
Stórefla forvarnir og heilsueflandi
aðgerðir með áherslu á fræðslu um
heilbrigðismál fyrir almenning og
þátttöku í varðveislu heilbrigðis og
meðferð sjúkdóma sinna.
Bæta kjör heilbrigðisstétta, ekki
síst hjúkrunarfræðinga.
Efla framhaldsmenntun heilbrigð-
isstétta.
Stuðla að nýtingu fyrirliggjandi
heilbrigðisupplýsinga hérlendis, m.a.
erfðaupplýsinga, sem leitt geta til
framþróunar í heilbrigðisþjónustu.
Heilbrigðiskerfi á tímamótum
– hver eru brýnustu verkefnin?
Eftir Davíð O.
Arnar og
Runólf Pálsson
» Óhjákvæmilegt er að
yfirfara og samhæfa
meginþætti kerfisins og
marka heildræna stefnu
til framtíðar, ekki síst til
að nýting fjárveitinga
verði sem best.
Davíð O. Arnar
Davíð er yfirlæknir hjartalækninga á
Landspítala og formaður Félags ís-
lenskra lyflækna. Runólfur er yfir-
læknir nýrnalækninga á Landspítala
(í leyfi) og forseti Evrópusamtaka lyf-
lækna.
Runólfur Pálsson