Morgunblaðið - 25.01.2018, Qupperneq 62
62 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
Það verður afmælistjútt um helgina, alvöru fylliríspartí,“ segirSnæbjörn Ragnarsson, bassaleikari og textahöfundur þunga-rokkssveitarinnar Skálmaldar, en hann fagnar 40 ára afmæli
sínu í dag. „Ég hugsaði aðeins um hvort ég ætti að halda upp á afmælið
og fyrst ég ákvað að halda upp á það þá ákvað ég að fara alla leið. Ég
ætla síðan að gista á hóteli og set börnin í hendurnar á einhverjum öðr-
um.“ Þau eru Anna tveggja ára og Björgvin fjögurra mánaða, og sam-
býliskona og barnsmóðir Snæbjarnar er Agnes Grímsdóttir, förðunar-
og snyrtifræðingur.
Skálmöld hefur lengi verið vinsæl hér á landi og nú fer aðdáendahóp-
urinn stöðugt stækkandi utan landsteinanna. „Þetta bara vex og dafnar
hjá okkur, þess vegna er þetta svona gaman. Við erum samt ekki orðnir
hrokafullir, dópfullir og moldríkir þungarokkarar, en vonandi kemur
að því fyrir utan dópið og hrokann. Við förum í stutta ferð til Slóveníu
um mánaðamótin og höldum tónleika þar, síðan skreppum við aftur í
vor og svo förum við í mánaðartúr um Skandinavíu, England og Eystra-
salt í apríl/maí. Við spilum á mörgum hátíðum í sumar og svo er stefnt á
nýja plötu á árinu.“ Þrátt fyrir auknar vinsældir verða textarnir áfram
á íslensku. „Það mun aldrei breytast og það vinnur frekar með okkur að
syngja á íslensku. Það eru milljónir af hljómsveitum sem syngja á ensku
en ekki svo margar sem syngja á íslensku.“ Yrkisefnin eru alltaf þau
sömu. „Goðafræðin, víkingar og sverð. Það er nærtækt að syngja um
sverð þegar maður er í þungarokkinu.“
Dagsdaglega vinnur Snæbjörn á auglýsingastofunni Pipar/TBWA.
„Þegar maður er rokkari á Íslandi þá þarf að maður að vera í 9 til 5
vinnu. Ég vinn sem texta- og hugmyndasmiður og samfélagsgúrú. Einn
kollegi minn kallaði þetta sniðugmenni.“
Ný plata með
Skálmöld á árinu
Snæbjörn Ragnarsson er fertugur í dag
Fjölskyldan Snæbjörn og Agnes ásamt Önnu og Björgvini.
B
aldur fæddist á Selfossi
25.1. 1968 en ólst upp á
bænum Ægissíðu á
bökkum Ytri-Rangár í
Rangárvallasýslu.
Baldur var í Grunnskólanum á
Hellu, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum að Laugarvatni
1988, BA-prófi í stjórnmálafræði frá
HÍ 1991, MA-prófi í samanburð-
arstjórnmálum, stjórnmálum Vest-
ur-Evrópu, 1994 og doktorsprófi í
stjórnmálafræði 1999, frá Háskól-
anum í Essex í Englandi.
Baldur var stundakennari í
stjórnmálafræði við HÍ 1995-2000,
lektor þar frá 2000, dósent frá 2002
og hefur verið prófessor í stjórn-
málafræði frá 2006.
Baldur hefur sérhæft sig í rann-
sóknum og kennslu um smáríki í
Evrópu, svo sem Norðurlöndin,
samvinnu ríkja Evrópu, Evrópu-
sambandið og utanríkisstefnu Ís-
lands.
Baldur var skorarformaður
Stjórnmálafræðideildar 2000-2002
og er deildarforseti frá 2014. Hann
endurreisti Alþjóðamálstofnun Há-
skóla Íslands og stofnaði Rann-
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ – 50 ára
Fjölskyldan Baldur og Felix, ásamt börnum sínum og tengdabörnum fyrir framan húsið sitt við Starhagann.
Hefur sérhæft sig í
smáríkjum Evrópu
Á brúsapallinum Baldur, fimn ára, ásamt æskuvini sínum, Ólafi Einarssyni,
sem nú býr á Ægissíðu og starfrækir verktakafyrirtækið Þjótanda.
Reykjavík María Björk Hjaltalín
fæddist 19. janúar 2017 kl. 9.43.
Hún vó 3.750 g og var 49 cm löng.
Foreldrar hennar eru Jóhanna María
Ríkharðsdóttir og Guðmundur
Helgi Hjaltalín.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af