Morgunblaðið - 25.01.2018, Side 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Yfir 30 verk verða heimsfrumflutt á
hátíðinni í ár,“ segir Gunnar Karel
Másson, listrænn stjórnandi nútíma-
tónlistarhátíðarinnar Myrkra músík-
daga (MM), sem hefst í dag og
stendur til laug-
ardags. Markmið
hátíðarinnar, sem
Tónskáldafélag
Íslands stofnaði
til 1980, er að
sögn Gunnars að
flytja og kynna
samtímatónlist
með áherslu á
nýja, íslenska
tónlist og flytj-
endur í bland við
erlend verk og flytjendur.
„Í ár bjóðum við á þremur dögum
upp á 23 viðburði á níu ólíkum
tónleikastöðum,“ segir Gunnar, en
um er að ræða Hörpu, Iðnó, Gallerý
Port, Fríkirkjuna, Listasafn Íslands,
Húrra, Safnahúsið við Hverfisgötu,
Norræna húsið og Mengi, en sérstök
hliðardagskrá fer einnig fram í
Mengi samhliða hátíðinni. „Við ráð-
um fjárhagslega ekki við að halda
alla hátíðina í Hörpu, líkt og síðustu
ár, auk þess sem rýmið setti okkur
býsna þröngar skorður. Við getum
breitt betur úr okkur með því að
dreifa viðburðum milli ólíkra tón-
leikastaða í miðborginni. Svo felst
ákveðinn sjarmi í því að rölta á milli
staða,“ segir Gunnar og bendir á að
prógramminu sé stillt þannig upp að
hátíðargestir eigi að geta mætt á alla
tónleika. „Allir tónleikar hátíðar-
innar, fyrir utan opnunartónleikana,
eru innan við klukkutími að lengd,“
segir Gunnar og bendir á að á vefn-
um darkmusicdays.is megi nálgast
hátíðarpassa fyrir 15 þúsund kr.,
klippikort á fimm tónleika fyrir 7.500
kr. og miða á staka tónleika sem
kosta 2.000 kr. nema hjá SÍ, en að-
gangur er ókeypis á ýmsa viðburði.
Aðspurður segir Gunnar hlutfall
kventónskálda vera um 30%, en
markmið Tónskáldafélagsins er að
hækka hlutfallið á næstu árum. „Það
er nóg af flottum tónskáldum af báð-
um kynjum til að hægt sé að breyta
kynjahlutfallinu. Mér þætti líka
áhugavert að auka fjölbreytnina í
hópi höfunda, því yfirgnæfandi fjöldi
nútímatónskálda á uppruna sinn í
Vestur-Evrópu. Þetta eru upp til
hópa hvítir, gamlir karlar,“ segir
Gunnar og tekur fram að reyndar sé
stór hluti verkanna í ár eftir ung tón-
skáld undir þrítugu. „Okkur þykir
mjög mikilvægt að passa vel upp á
grasrótina,“ segir Gunnar og bendir
á að ásókn listamanna sé mikil í há-
tíðina. „Við fengum næstum 300 um-
sóknir þetta árið bæði frá íslensku
og erlendu listafólki sem sækist eftir
því að koma fram eða fá verk sín
spiluð á hátíðinni. Þannig að við finn-
um fyrir miklum áhuga,“ segir
Gunnar.
Einn af hápunktunum
„Opnunarathöfn MM verður á
Norðurbryggju Hörpu í dag kl.
16.30, en þeir sem vilja hita upp fyrir
hátíðina geta mætt á spennandi inn-
setningu slagverksrannsakandans
Jennifer Torrence og tónskálda-
rannsakandans Trond Reinholdtsen
í Gallerý Port milli kl. 15 og 18, en
innsetningin verður endurtekin á
morgun milli kl. 15 og 19. Pólska El-
blaska-kammersveitin heldur tón-
leika í Kaldalóni Hörpu í dag kl. 17
þar sem pólsk tónskáld verða í fyrir-
rúmi, þeirra á meðal Witold Luto-
sławski. Klukkan 17.30 leikur Ung-
sveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
Hörpuhorni Sila: The Breath of the
World eftir John Luther Adams
undir stjórn Daníels Bjarnasonar,“
segir Gunnar og bendir á að Daníel
stjórnar einnig formlegum opnunar-
tónleikum MM sem eru tónleikar
Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ) í
Eldborg Hörpu kl. 19.30 þar sem
Sæunn Þorsteinsdóttir og Víkingur
Heiðar Ólafsson leika einleik.
„Þetta verður einn af hápunktum
hátíðarinnar. Kvöldinu lýkur í
Hörpuhorni kl. 22 þar sem frumflutt
verða tvö verk eftir Erik DeLuca og
Jesper Pedersen sem samin eru
undir áhrifum frá Still Park eftir
Satoshi Ashikawa, sem einnig verð-
ur flutt. Þetta verður dúndurvið-
burður, enda er dagskrá fimmtu-
dagsins algjör bomba,“ segir Gunnar
og tekur fram að gott sé að byrja há-
tíðina með trukki til að fanga áhorf-
endur. „Þetta gefur tóninn og síðan
liggur leiðin bara upp á við,“ segir
Gunnar.
Frábært framtak
Dagskrá morgundagsins hefst
með skólatónleikum í Iðnó kl. 09.30 á
vegum Töfrahurðar þar sem Hall-
veig Rúnardóttir, með aðstoð Shé-
hérazade-hópsins, leiðir áheyrendur
inn í heim samtímatónlistar og sýnir
hvernig ný tónlist er hugsuð. „Að
mínu mati er mjög mikilvægt að
huga að menntun almennings á nú-
tímatónlist, því annars lokumst við
mögulega af með tilheyrandi doða,“
segir Gunnar.
Í hádeginu á morgun, kl. 12 í
Norðurljósum Hörpu, verða Yrkja
III uppskerutónleikar þar sem
frumflutt eru Rift eftir Veronique
Vöku Jacques og Akvocirkulado eft-
ir Gísla Magnússon undir stjórn
Daníels Bjarnasonar. „Það verður
spennandi að heyra hvað komið hef-
ur út úr þessu starfi, enda er þetta
frábært framtak hjá Sinfóníunni,“
segir Gunnar sem sjálfur starfaði
með SÍ undir merkjum Yrkju I á sín-
um tíma.
„Einn af fremstu klarínettuleik-
urum Bandaríkjanna af sinni kyn-
slóð, Gleb Kanasevich, kemur fram á
tónleikum í Safnahúsinu á föstudag
[í dag] kl. 16. Hann flytur Inner
Time II, Op.42 „Homage to Calder“
eftir rúmenska tónskáldið Horatiu
Rãdulescu sem skrifað er fyrir sjö
klarínett. Kanasevich flytur verkið
með upptökum af sjálfum sér sem
hljóma í sex hátölurum. Þetta er
mjög ágengt verk, en mikilvægt í
tónlistarsögunni. Það verður afar
spennandi að heyra þennan flutn-
ing,“ segir Gunnar.
Hlín Pétursdóttir Behrens og Una
Sveinbjarnardóttir leika í Fríkirkj-
unni kl. 17.15 verk eftir Unu, Kaiju
Saariaho, Hauk Þór Harðarson og
Elínu Gunnlaugsdóttur. „Þetta er
spennandi blanda af nýjum og eldri
verkum.“
The Riot Ensemble kemur fram í
Iðnó kl. 20 og flytur verk eftir m.a.
Jose Manuel Serrano og Arlene
Sierra auk þess að frumflytja Seven
heavens (of different heights (and
depths)) eftir Báru Gísladóttur.
„Þarna er á ferðinni einn fremsti
samtímatónlistarhópur í Bretlandi.
Þetta eru æðislegir flytjendur sem
enginn ætti að láta framhjá sér
fara,“ segir Gunnar og bendir á að
hópurinn verði staðsettur í miðjunni
á salnum á tónleikunum þannig að
áhorfendur eru staðsettir hringinn í
kringum þau. „Nálægðin verður því
mjög mikil, sem er alltaf gaman.“
Tónlistarhópurinn Caput flytur
blöndu af nýjum og eldri verkum á
tónleikum í Fríkirkjunni kl. 21. „Þau
frumflytja m.a. Hulið / There is
something hidden eftir Ólaf Björn
Ólafsson þar sem Skúli Sverrisson
leikur einleik og Sex ljóð úr Eyktir
eftir Úlfar Ingi Haraldsson fyrir
barítónrödd og kammersextett en
einsöngvari er Kristinn Sigmunds-
Yfir 30 verk heimsfrumflutt á
Nútímatónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar hefst í dag
Á þremur dögum er boðið upp á 23 viðburði í níu húsum
Grúsk Nordic Affect leikur í Listasafni Íslands á föstudag.
Kraftur The Riot Ensemble kemur fram í Iðnó á föstudag.
Gunnar Karel
Másson
Hauk Tómasson, en tónleikarnir eru
liður í hátíðinni Myrkum músík-
dögum sem hefst í dag. Þess má geta
að öll íslensku verkin á tónleikunum
verða tekin upp á næstu vikum og
gefin út af vegum Sono Luminus.
Sinfónían mitt heimaband
Samkvæmt upplýsingum frá SÍ
samdi Páll Ragnar sellókonsert sinn
innblásinn af lýsingu í skáldsögunni
Stóra skjálfta eftir Auði Jónsdóttur.
„Tónskáldið er í verkinu að prófa sig
áfram í áferð á hljómum. Ég er því að
spila mikið af yfirtónum en á mis-
munandi strengjum þannig að áferð-
in verður aðeins öðruvísi. Þetta er
eins og sama nótan, en jörðin breyt-
ist undir henni. Þetta er í raun
skjálfti á nótum. Mér finnst pælingar
Palla vera mjög spennandi. Þetta er
allt á mörkum hins heyranlega, því
hann er mikið að pæla í hljóði sem
kemur af boganum og strengnum
rétt áður en hljómur fer að koma.
Þetta er því mjög viðkvæmt og fín-
gert milli þess sem risasveiflur
bresta á. Það er líka ákveðinn skjálfti
að fara frá hinu viðkvæma yfir í mik-
inn massa,“ segir Sæunn og tekur
fram að afar ánægjulegt sé hversu
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er æðislegt að fá fleiri en eitt
tækifæri til að spila ný verk, enda
vaxa verkin með manni eftir því sem
maður leikur þau oftar. Ég hlakka
einnig til að koma með verkið heim,“
segir Sæunn Þorsteinsdóttir um
Quake fyrir selló og kammersveit
eftir Pál Ragnar Pálsson sem hún
flytur á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands (SÍ) í Eldborg Hörpu
í kvöld kl. 19.30. Á sömu tónleikum
leikur Víkingur Heiðar Ólafsson
píanókonsert Hauks Tómassonar.
Bæði verkin voru flutt í hinni ný-
vígðu tónleikahöll Elbphilharmonie í
Hamborg á sérstakri Íslandsviku í
febrúar 2017 og á Íslandshátíð Fíl-
harmóníuhljómsveitarinnar í Los
Angeles í apríl sama ár, en verkin
höfðu verið pöntuð sérstaklega fyrir
þessar tvær hátíðir. Listrænn stjórn-
andi hátíðarinnar í LA var Daníel
Bjarnason, sem stjórnar tónleikum
kvöldsins.
Á efnisskrá kvöldsins eru einnig
Drifts eftir Sebastian Fagerlund,
Adagio eftir Magnús Blöndal Jó-
hannsson og Í sjöunda himni eftir
„Eins og dans
á hnífsegg“
Frumflytja tvö verk með Sinfóníunni
Síðumúla 21, Selmúlamegin, sími 533 6040, stimplar@stimplar.is
Traust handtak
Áratuga reynsla
Örugg þjónusta
Verslaðu
á auðveldan hátt
á netinu
stimplar.is