Morgunblaðið - 17.03.2018, Síða 24
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Skipverjar á nýju togurunum
Breka VE og Páli Pálssyni ÍS gera
nú klárt fyrir heimsiglingu frá
Kína. Ráðgert er að skipin leggi af
stað frá Rongcheng á þriðjudaginn
kemur, 20. mars,
og komi til lands-
ins um miðjan
maí. Heimkoman
verður þá um 20
mánuðum síðar
en vonir stóðu til
þegar Vinnslu-
stöðin í Vest-
mannaeyjum og
Hraðfrystihúsið-
Gunnvör á Hnífs-
dal gengu frá
smíðasamningum í byrjun maí
2014.
„Þegar upp er staðið teljum við
okkur vera að fá mjög góð skip á
hagstæðu verði en eðlilega á eftir
að reyna á það eins og með önnur
ný skip,“ segir Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum, um nýjan Breka. Hann seg-
ir að síðustu mánuðir hafi verið erf-
iðir í samskiptum við kínverska
fyrirtækið og þá ekki síst lokametr-
arnir.
„Þegar við gengum frá sam-
ingum reiknuðum við í sjálfu sér
ekki með að skipasmíðastöðinni
tækist að afhenda skipið á árinu
2016 eins og áskilið var í samningi.
Hins vegar gerðum við okkur vonir
um að fá skipin síðsumars 2017 og
geta þá jafnvel siglt heim norðaust-
urleiðina, norður fyrir Síberíu.
Af því varð ekki en núna eru
skipin komin í okkar eigu og undir
íslenskan fána. Ég er að vona að
skipin verði komin á lokadegi
vetrarvertíðar, föstudaginn 11.
maí.“
Tekist á á síðasta fundinum
Sigurgeir segir að í raun hafi
skipin verið að mestu leyti tilbúin
síðasta vor. Þá hafi verið eftir að
ljúka ýmsum minni háttar atriðum
en einnig lokafrágangi til að upp-
fylla íslenskar kröfur um aðbúnað
og öryggi við erfiðar aðstæður á Ís-
landsmiðum. Það hafi hins vegar
dregist úr hömlu að ganga frá þess-
um þáttum þó svo að ákvæði smíða-
samnings hafi legið ljós fyrir en nú
sé búið að laga allt, sem út af hafi
staðið.
„Þessi töf sem varð til viðbótar
um nánast heilt ár er algerlega
óskiljanleg,“ segir Sigurgeir. „Hug-
myndir Kínverjanna voru að af-
henda skipin ekki eftir þeirri lýs-
ingu sem við gáfum þeim og samið
var um. Þeir ætluðu einhvern veg-
inn að þreyta okkur til að taka við
skipinu í því ástandi sem þeir vildu
en það var ekki í samræmi við
samningskröfur. Ekki heldur í sam-
ræmi við íslensk viðmið, sérstak-
lega um aðbúnað sjómanna.
Hugsunarháttur Kínverja er
gjörólíkur okkar og í raun hófust
samningaviðræður þegar leið á
smíði skipanna og við lentum í
þeim pakka að reynt var að toga og
teygja öll ákvæði samningsins. Síð-
asti fundurinn um afhendingu skip-
anna stóð í 16 klukkutíma eins og
gerist verst í kjarasamningum á Ís-
landi. Á þeim fundi var tekist á og
allur tónskalinn tekinn en á end-
anum náðum við að loka samningi.
Gengið var frá uppgjöri á skip-
unum og þau komust í okkar eigu,“
segir Sigurgeir.
Traust er ágætt
en eftirlit betra
Hann hefur eindregnar skoðanir
á kínversku samfélagi og heldur
áfram: „Kína er fornfrægt menn-
ingarríki sem kommúnísk alræð-
isstjórn hefur leikið grátt. Jap-
önskum samstarfsmönnum varð
afar starsýnt á það þegar þeir voru
að hefja endurvinnslu á afurðum
þar fyrir 2-3 áratugum að gamla
fólkið var ofan í skurðum að grafa,
bar þunga hluti og vann almennt
mestu erfiðisstörfin en unga fólkið
vann við pappíra, samskipti og
stjórnun.
Þeir spurðu eðlilega að því
hverju það sætti. Svarið var hræði-
legt. Í menningarbyltingu Maó for-
manns lét hann taka af lífi alla þá
sem höfðu aflað sér menntunar og
þekkingar. Þeir sem lifðu hana af
voru án menntunar og þekkingar.
Í Kína, eins og í öðrum fyrrver-
andi kommúnistaríkjum, var mark-
miðið að breyta grunngildum sam-
félagsins. Afleiðingin er sú að
fullkomið vantraust skapaðist milli
einstaklinga og stofnana samfélags-
ins. Það er afar merkilegt að ef þú
semur við Japani þarf ekkert að
skrifa. Allt stendur eins og stafur á
bók. Handtak skiptir öllu, alveg
eins og við þekktum hér á Íslandi.
Afleiðing kommúnísks þjóðskipu-
lags er að í Kína snýr allt á haus.
Allt vald og eftirlit var komið í
hendur ríkisins og engin ábyrgð
lengur hjá einstaklingum. Afleið-
ingin er hrikaleg því hugsunarhátt-
urinn verður ábyrgðarleysi. Í við-
skiptum er það því þannig að ef
einhverjum tekst að svindla á þér,
þá er það ekki hans sök heldur þín,
þar sem þú tékkaðir vinnubrögðin
ekki af. Þú varst svo vitlaus að láta
svindla á þér!
Kristín Jóhannsdóttir, nágranna-
kona mín í Eyjum, skrifaði góða
bók um námsdvöl sína austan járn-
tjalds. Þar hefur hún eftir Lenín að
traust sé ágætt en eftirlit betra.
Eftir þessa reynslu játa ég að mér
verður ansi mikið hugsað til þeirrar
þróunar sem er að eiga sér stað
hér á landi,“ segir Sigurgeir Brynj-
ar.
Hagstæðara en annars staðar
Hann segir að kaupverð hvors
skips sé 11,5 milljónir Bandaríkja-
dala eða hátt í 1.200 milljónir
króna. Frá þeirri upphæð dragist
dagsektir en á móti komi eftirlits-
kostnaður sem hafi verið mikill á
smíðatímanum. Eigi að síður séu
fyrirtækin að fá skipin á hagstæð-
ara verði en annars staðar hefði
boðist. Gengið hafi verið til samn-
inga við kínversku skipasmíðastöð-
ina eftir að hafa fengið tilboð frá
stöðvum í Danmörku, Kína, Nor-
egi, Póllandi og Tyrklandi. Kínverj-
arnir hafi einfaldlega boðið best.
Hann segir að það hafi verið
mikil glíma að ljúka þessu og hún
hafi reynt á þolrifin. Ekki síst hjá
eftirlitsmönnum fyrirtækjanna,
hönnuðum og skipverjum, sem hafi
staðið sig mjög vel við erfiðar að-
stæður og dvalið langdvölum í
Kína. Þeir eigi miklar þakkir skild-
ar fyrir frábært starf við erfiðar
aðstæður.
Ekki gott að hafa ekki skip
Sigurgeir segir að tafirnar hafi
haft talsverða erfiðleika í för með
sér fyrir Vinnslustöðina.
„Við seldum Jón Vídalín 2016 og
síðan Gullbergið 2017. Það er auð-
vitað ekki gott fyrir útgerðarfyr-
irtæki að hafa ekki skipakost og við
gátum ekki afkastað því sem til
stóð með útgerð Breka. Við keypt-
um gamla Pál Pálsson að vestan,
nú Sindra VE, til að brúa bilið að
hluta en gerðum að sjálfsögðu ráð
fyrir því að Breki yrði löngu komin
og ekki seinna en haustið 2017.“
Mikil glíma sem reyndi á þolrifin
Breki VE og Páll Pálsson ÍS leggja af stað heim frá Kína í næstu viku 20 mánuðum seinna
en kveðið var á um í samningi Reynt að toga og teygja öll ákvæði Góð skip á hagstæðu verði
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
Á siglingu Útgerðarmenn Breka og Páls Pálssonar eru sammála um að þeir fái góð skip á hagstæðu verði. Á myndinni er Breki í reysnlusiglingu.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2018
Stórar skrúfur
» Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum og Hraðfrystihúsið-Gunnvör á
Hnífsdal sömdu um smíði skipanna í byrjun júní 2014 og var miðað við
að þau kæmu til landsins á miðju ári 2016.
» Togararnir eru hannaðir af verkfræðistofunni Skipasýn og eru 50
metra langir og 13 metra breiðir. Skrúfur skipanna eru óvenju stórar en
eiga að skila miklum sparnaði í orkunotkun.
» Skipin voru sjósett í Huanghai skipasmíðastöðinni 19. apríl 2016.
» Magnús Ríkarðsson verður skipstjóri á Breka og skipstjóri á nýjum
Páli Pálssyni verður Páll Halldórsson. Skipsnafnið er sótt til Páls út-
vegsbónda Pálssonar í Hnífsdal, afa skipstjórans.
» Átta manns verða í áhöfn Breka á heimleiðinni og sjö manns í áhöfn
Páls Pálssonar.
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónass
Sími 520 5200 – ferdir.is
Vesturvör 34, 200 Kópavogur, outgoing@gjtravel.is
Fararstjóri
Emil Örn Kristjánsson
Þýzkaland og Tékkland
Spennandi þriggja landa sýn
Gist verður í þýzku borginni Passau, þar
sem stórfljótin Dóná og Inn mætast, og
farið þaðan m.a. í dagsferð til Tékklands til
borgarinnar Český Krumlov og á siglingu
niður Dóná til Austurríkis.
Passau er forn og falleg borg með skemmti-
legan miðbæ. Gist verður á IBB Hotel City
Center, sem er vel staðsett í miðbæ Passau.
Morgunverður og allar skoðunarferðir
innifaldar.
o
10.-14. maí
Verð 136.500
miðað við gistingu í tvíbýli.