Morgunblaðið - 17.03.2018, Síða 38
38 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2018
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur er Guðmundur Guðmundsson. Kammerkór-
inn Ísold og Stúlknakór Akureyrarkirkju syngja.
Sigurlína Jónsdóttir leikur á flautu. Organisti er
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Sunnudagaskóli
í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Tinna Her-
mannsdóttir og Hjalti Jónsson.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma í
Núpalind 1, Kópavogi, kl. 14. Biblíufræðsla,
söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fermingarmessa
kl.10.30. Sunnudagaskóli kl. 11 í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Fermingarmessa kl.
13.30. Organisti Kristina Kalló Szklenár. Jón
Heiðar Þorkelsson leikur á trompet.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í
umsjá Kristnýjar Rósar Gústafsdóttur djákna
og Benjamíns Hrafns Böðvarssonar guð-
fræðinema. Brúður, bænir, söngur, sögur.
ÁSTJARNARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Kór og barnakór kirkjunnar syngja
undir stjórn Keiths Reed. Fræðsla í höndum
barnastarfsfólks. Prestur er Kjartan Jónsson.
Á eftir guðsþjónustu munu unglingar í starfi
kirkjunnar selja vöfflur til ágóða fyrir húsbygg-
ingu munaðarlausra barna í Úganda. Kl. 12.20
verður aðalsafnaðarfundur. Dagskrá: Venjuleg
aðalfundarstörf.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11 í Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Sigrún
Ósk og Guðmundur Jens. Ferming kl. 13. Sr.
Hans Guðberg og Margrét djákni þjóna fyrir alt-
ari. Álftaneskórinn syngur undir stjórn Ástvald-
ar Traustasonar organista.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11
í tilefni 30 ára vígsluafmælis Breiðholtskirkju.
Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup
prédikar. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar
fyrir altari. Kór Breiðholtskirkju syngur. Hildi-
gunnur Halldórsdóttir leikur á fiðlu, Júlía
Traustadóttir og Særún Harðardóttir syngja
einsöng. Orgelleikur og kórstjórn: Örn Magnús-
son og Marta Guðrún Halldórsdóttir. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma, afmæliskaffi á eftir.
Bænastund á ensku kl. 14. Sr. Toshiki Toma
þjónar.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
Gunnar Sigurjónsson. Organisti Bjartur Logi
Guðnason. Söngvinir kór eldri borgara í Kópa-
vogi leiða söng. Sunnudagaskóli í kapellu á
neðri hæð. Veitingar í safnaðarsal að messu
lokinni.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30
á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Messa virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 (vigil-
messa).
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Sveinn
Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Svava Bernharðsdóttir og Ólafur Hjálmarsson
lesa ritningarlestrana. Sunnudagaskóli á
kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar
Jóns. Dómkórinn og Kári Þormar. Æðruleys-
ismessa kl. 20. Séra Fritz Már Berndsen og
Díana Ósk leiða stundina. Kristján Hrannar við
flygilinn.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
10.30. Brúður, söngur og sögur. Hressing og
litastund í lokin. Messa kl. 20. Torvald Gjerde
og félagar úr kór Egilsstaðakirkju leiða söng.
Þorgeir og Ólöf Margrét þjóna. Kvöldkaffi eftir
messu. Vænst er þátttöku fermingarbarna.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunn-
arsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syng-
ur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur org-
anista. Guðný Jónsdóttir og Ásdís Björnsdóttir
syngja einsöng og dúetta. Meðhjálpari Kristín
Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa
kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson safn-
aðarprestur þjónar fyrir altari. Hljómsveitin
Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða
sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni org-
anista.
GARÐAKIRKJA | Fermingarmessur laug-
ardag kl. 13 og kl. 15. Sunnudag kl. 10.30 og
kl. 15. Prestar Friðrik J. Hjartar og Jóna Hrönn
Bolladóttir. Kór Vídalínskirkju. Organisti Jó-
hann Baldvinsson.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. Sr.
Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Gler-
árkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Välja-
ots organista. Umsjón með sunnudagaskóla
hefur Sindri Geir Óskarsson guðfræðingur.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er
Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli á
neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Umsjón hefur
Þóra Björg Sigurðardóttir og undirleikari er
Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG
| Selmessa kl. 13. Séra Sigurður Grétar Helga-
son prédikar og þjónar. Ragnheiður Gröndal
syngur og organisti er Hilmar Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli, Daníel Ágúst, Ásta Lóa og Sóley taka á
móti börnunum í messunni sem hefst kl. 11
og svo fara þau í sitt starf. Í messunni þjónar
sr. María Ágústsdóttir ásamt messuþjónum.
Samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Organisti
er Ásta Haraldsdóttir og félagar úr kirkjukór
Grensáskirkju syngja. Einsöng syngur Ólöf Ing-
ólfsdóttir. Kaffisopi á undan og eftir messu.
Bænastund kl. 10.15. Hversdagsmessa á
fimmtudag kl. 18.10-18.50.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi
presta klukkan 14 í hátíðasal Grundar. Séra
Valgeir Ástráðsson þjónar. Grundarkórinn leiðir
söng undir stjórn Kristínar Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur Sigurjón
Árni Eyjólfsson, organisti Hrönn Helgadóttir og
kvennakór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í
umsjá Sigurðar Óskars og Hákons Darra.
Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir, kaffisopi
eftir messu.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur.
Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Thelma Sig-
urdórsdóttir syngur einsöng. Organisti Björn
Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs Inga
Harðardóttir. Bænastund mánud. kl. 12.10.
Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Ár-
degismessa miðvikud. kl. 8 og hádegiserindi
kl. 12. Kyrrðarstund fimmtud. kl.12.
HAUKADALSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur Egill Hallgrímsson. Organisti Jón
Bjarnason.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Þema: Boð-
unardagur Maríu. Kór Háteigskirkju syngur.
Organisti Þorvaldur Örn Davíðsson. Prestur Ei-
ríkur Jóhannsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Fermingarguð-
sþjónustur kl. 10.30 og kl. 13.30. Nöfn ferm-
ingarbarna eru á hjallakirkja.is. Kór Hjallakirkju
syngur undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur org-
anista. Prestar eru Sunna Dóra Möller og Kar-
en Lind Ólafsdóttir. Sunnudagaskóli kl. 11 í
safnaðarheimili. Páskaeggjaleit í lok stundar.
HRUNAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Barnakór Flúðaskóla syngur ásamt kirkju-
kórnum. Organisti Stefán Þorleifsson. Stjórn-
andi barnakórs er Anna Þórný Sigfúsdóttir.
HVALSNESSÓKN | Leonard Cohen-messa í
Safnaðarheimilinu í Sandgerði kl. 17. Keith
Reed og kirkjukór Ástjarnarkirkju sjá um tón-
listina, sem er öll eftir Leonard Cohen. Keith
Reed syngur einsöng. Arnar Jónsson leikari
flytur texta. Sr. Sigurður Grétar leiðir stundina.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Gautaborg:
Íslensk-sænsk guðsþjónusta, sameiginleg
með V-Frölunda söfnuði, kl. 11. Íslenski kórinn
í Gautaborg syngur undir stjórn Lisu Fröberg.
Frölunda Mótettukór syngur undir stjórn Mariu
Lindkvist Renman. Prestar eru Ingrid Svens-
son og Ágúst Einarsson. Kirkjukaffi.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma kl. 13 með lofgjörð og fyrirbænum. Ald-
ursskipt barnastarf á sama tíma. Bjarki Clau-
sen prédikar. Kaffi að samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sunnudagaskóli. Stefán og Guðrún sinna
messuþjónustu. Kórfélagar syngja undir stjórn
Arnórs organista.Sr. Erla Guðmundsdóttir þjón-
ar. Súpa og brauð.
KÓPAVOGSKIRKJA | Fermingarmessa kl.
11. Sigurður Arnarson sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur
djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu Borgum á sama
tíma.
KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í hliðarsal
Hallgrímskirkju klukkan 20. Veitingar, samtal,
bænir, predikun og sálmar. Séra Hulda Hrönn
M. Helgadóttir predikar og verður boðin vel-
komin til starfa. Aðalheiður Þorsteinsdóttir
spilar undir sálma og Ragnhildur Ásgeirsdóttir
syngur.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Jóhanna Gísladóttir æskulýðsprestur
þjónar og predikar. Organisti er Magnús Ragn-
arsson. Gradualekór Langholtskirkju syngur.
Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður og
messuþjónar aðstoða við helgihaldið. Sara
Grímsdóttir og Hafdís Davíðsdóttir taka á móti
sunnudagaskólabörnum á öllum aldri. Kaffi,
djús og ávextir eftir stundina. Starf aldraðra
alla miðvikudaga kl. 12-15.30.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Eva
Björk Valdimarsdóttir þjónar fyrir altari og pré-
dikar. Flugfreyjukórinn syngur. Sunnudagaskóli
á meðan. Kaffi og samvera á eftir.
Mánudagur 19. mars. Aðalfundur Kvenfélags
Laugarneskirkju kl. 20.
Miðvikudagur 21. mars. Helgistund kl. 14 Fé-
lagsmiðstöðinni Dalbraut 18-20 með sr. Davíð
Þór og Elísabetu organista.
Fimmtudagur 22. mars. Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist, hugvekja, altarisganga og fyrirbænir.
Súpa á eftir. Samvera eldri borgara kl. 13.30.
Helgistund kl. 16 Hásalnum Hátúni 10.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar ásamt
sunnudagaskólaleiðtogunum. Brúður, bibl-
íusögur og barnasálmar. Guðsþjónusta kl. 20.
Tónlistina leiða bræðurnir Markús Bjarnason
og Birkir Bjarnason. Sr. Guðni Már Harðarson
predikar. Kaffi og samfélag eftir messu.
Mosfellskirkja í Grímsnesi | Föstumessa
miðvikudagskvöld 21. mars kl. 20.30. Egill
Hallgrímsson sóknarprestur og Kristján Valur
Ingólfsson Skálholtsbiskup annast prestsþjón-
ustuna.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur.
Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur
Skúli S. Ólafsson. Söngur í sunnudagskól-
anum. Umsjón Ása Laufey, Katrín Helga, Heba
og Ari. Samfélag og kaffi á Torginu eftir
messu.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Ræðumaður Skúli Svavarsson. Túlkað á
ensku. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
Ninna Sif Svavarsdóttir, organisti Edit Molnár,
kór kirkjunnar syngur. Sunnudagaskóli í
safnaðarheimilinu á sama tíma í umsjón Jó-
hönnu Ýrar Jóhannsdóttur. Súpa og brauð
gegn vægu gjaldi í safnaðarheimilinu að
messu lokinni.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Óli og Tómas leiða samveruna. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann predikar og þjónar fyr-
ir altari. Kór Seljakirkju leiðir söng. Organisti
Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. Rósa Ólöf Ólafíudóttir, hjúkr-
unarfræðingur og djákni, les úr bók sinni Kæra
nafna sem er þroskasaga hennar þar sem hún
lýsir glímu sinni við Guð, menn og sjálfa sig.
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Raddbandafélag Reykjavíkur syngur undir
stjórn Egils Gunnarssonar. Sigurður Haf-
steinsson leikur á saxófón. Kaffiveitingar og
samfélag eftir athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur í Reynivalla-
prestakalli, prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Agli Hallgrímssyni, sóknarpresti í Skál-
holtsprestakalli. Kirkjukór Reynivalla-
prestakalls syngur. Organistar prestakallanna
leika.
STÓRA Núpskirkja | Messa kl. 11. Viðamikl-
um endurbótum innandyra í kirkjunni er lokið
og verður þeim tímamótum fagnað í mess-
unni. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Þor-
bjargar Jóhannsdóttur organista. Messukaffi í
Árnesi á eftir.
STÓRUBORGARKIRKJA Grímsnesi |
Bæna- og kyrrðarstund við kertaljós kl. 20.30.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur leiðir stund-
ina.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Tónlist, brúðuleikrit og biblíufræðsla. Unglinga-
kór frá Walter Payton High School frá Chicago í
Illinois syngur. gardasokn.is
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Ferming-
armessa kl. 10.30. Kór Víðistaðasóknar syng-
ur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmunds-
dóttur. Prestur Bragi J. Ingibergsson.
ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Orð dagsins:
Gabríel engill sendur.
(Lúk. 1)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Staðarkirkja í Hrútafirði, Vestur-Húnavatnssýslu.
Það líður vart sá
dagur þessi misserin
að ekki berist fréttir af
deilum um og í kring-
um Þjóðkirkjuna.
Samkvæmt nýrri
könnun er traust til
Þjóðkirkjunnar komið
niður í 30%. Og sífellt
fleiri kjósa að yfirgefa
Þjóðkirkjuna. Fyrir öll
þau fjölmörgu sem að
safnaðarstarfi Þjóð-
kirkjunnar koma um allt land –
hvort sem er starfsfólk, sjálf-
boðaliðar eða þátttakendur í kirkju-
starfinu – er þetta bæði sorglegt og
lýjandi – sérstaklega vegna þess að
hið blómlega safnaðarstarf end-
urspeglar ekki þessa neikvæðni. Í
söfnuðunum upplifa menn grósku
og gleði – þó auðvitað þurfi alltaf að
taka á málum þar eins og annars
staðar í mannlegu samfélagi. En
gróskan og gleðin, það eru einkenni
þeirrar kirkja sem kallar til sín
börn og fullorðna alla daga vik-
unnar um allt land. Enda starfið
fjölbreytt og kirkjan öllum opin í
gleði og í sorg. Þjóðkirkjan í fjöl-
miðlunum og umræðu dagins og
Þjóðkirkjan í söfnuðunum – stund-
um mætti halda að um tvær að-
skildar kirkjustofnanir væri að
ræða. Spyrja má hvort það sé ekki
einmitt þar sem vandi kirkjunnar í
dag á Íslandi er falinn? Fjarlægðin
milli kirkjunnar í grasrótinni og
kirkjunnar sem stofnunar? Fyrir
nokkrum árum setti ég fram hug-
mynd um allt öðruvísi Þjóðkirkju en
þá sem við heyrum af í fréttamiðl-
unum. Ef til vill er kominn tími til
að rifja hana upp á ný. Ég kallaði
þessa kirkjusýn „Lífræna grasrót-
arþjóðkirkju“. Þetta er reyndar
ekki mín hugmynd heldur hugmynd
sem er kominn beint frá Jesú. Því
umfram allt starfaði Jesús í gras-
rótinni. Hann var ekki embættis-
maður. Hann var ekki prestur.
Hann var ekki prófastur. Hann var
ekki biskup. Hann var ekki kirkju-
þingsmaður. Hann starfaði meðal
fólksins og talaði máli fólksins.
Hann taldi vellíðan fólksins meira
virði en stofnunina. Hann rak víxl-
arana og sölumennina úr musterinu
og lýsti það bænahús.
Hugtakið kirkja þýðir
samfélag, eða beint,
þau sem eru kölluð
saman í Jesú nafni – í
raun er kirkjan því
grasrótarsamfélag .
Kirkja sem vill vera
kirkja Jesú verður að
starfa á sömu for-
merkjum og hann.
Hún verður að vera
grasrótarkirkja, starfa
með grasrótinni, með
fólkinu og fyrir fólkið.
Þar sem allir eru kallaðir og hlustað
er á alla. Og allir fá að segja sitt-
.Tala nú ekki um ef hún er Þjóð-
kirkja, kirkja þjóðarinnar eins og
okkar kirkja er. Þjóðkirkjan á því
að vera grasrótarþjóðkirkja um-
fram allt. Því kirkjan varð til
mannsins vegna, en ekki maðurinn
vegna kirkjunnar. Slík grasrótar-
þjóðkirkja verður þá fyrst og
fremst lifandi samfélag þegar andi
Guðs fær að streyma í gegnum hana
og lífga hana, gerir hana að lifandi
heild, lifandi líkama, lifandi einingu
þar sem hver og ein fruma og vel-
ferð hennar skiptir máli. Hún verð-
ur lífræn grasrótarþjóðkirkja sem
hefur frelsara sinn í æðakerfinu,
opnar hina andlegu sýn, leggur af
úrelt titlatog og embættismannatal
en hlustar beint á hvern og einn
lærisvein Jesú – köllum við þetta
ekki lýðræði svona dags daglega?
Sem þýðir að allir meðlimir kirkj-
unnar þurfa að fá að koma að
stjórnun hennar með beinum kosn-
ingum, til dæmis til Kirkjuþings og
til biskups og vígslubiskupa. Aðeins
þannig verður hún sönn grasrótar-
kirkja. Og þá hverfur aðgreiningin í
tvær kirkjur, söfnuðinn og stofnun-
ina, sem við því miður verðum vitni
að í dag.
Eftir Þórhall
Heimisson
» Þjóðkirkjan á því að
vera grasrótarþjóð-
kirkja umfram allt. Því
kirkjan varð til manns-
ins vegna, en ekki mað-
urinn vegna kirkjunnar
Þórhallur
Heimisson
Höfundur er prestur
og starfar í Svíþjóð.
Grasrótarþjóðkirkja?
Ég horfði á heimildarmynd á Netflix
sem heitir Plastic Ocean. Við áhorf
myndarinnar varð ég fyrir hálfgerðu
áfalli. Hvað verður um næstu kyn-
slóðir og fæðukeðjuna okkar ef þessi
plastmengun í hafinu heldur áfram?
Við verðum að bregðast við strax,
áður en það er orðið of seint. Meng-
unin er orðin svo alvarleg að hvalir,
skjaldbökur, fuglar og ungarnir
þeirra drepast í hrönnum mjög
kvalafullum dauðdaga. Jafnvel fisk-
urinn í sjónum er farinn að éta plast í
miklu magni og er að drepast vegna
þess.
Plast er mjög auðendurvinnanlegt
og það er hægt að endurvinna það
með því að vinna úr því díselolíu. Það
er byrjað í Þýskalandi og næstum því
allt plast er endurunnið þar. Þetta er
nokkuð sem við Íslendingar getum
auðveldlega gert.
Ég sá einnig frétt á BBC 1 um það
hvernig hægt er að minnka notkun
plastbolla í „take away“ frá kaffi-
húsum. Við gætum tekið höndum
saman og komið með okkar eigin
kaffimál sem eru fjölnota. Þau eru
þegar til í þó nokkrum verslunum. Í
Bretlandi eru þeir byrjaðir á þessu
og þeir sem koma með sín eigin kaffi-
mál á kaffihúsin fá afslátt af kaffinu.
Þetta sparar kostnað kaffisalanna
og okkar allra. Það mætti þar að auki
innleiða eitthvað slíkt á „take away“-
stöðum sem selja mat. Ef við bregð-
umst við núna og tökum höndum
saman getum við jafnvel snúið þess-
ari hræðilegu þróun við.
Ég mæli líka með því að styrkja
samtökin sem gerðu myndina. Þessi
samtök eru að reyna að gera allt sem
í þeirra valdi stendur til þess að gera
eitthvað í málunum. Þau eru með vef-
síðu, http:www.plasticocean.org.
Svandís Ásta Jónsdóttir
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Hafið fullt af plasti
Skjáskot/A Plastic Ocean