Morgunblaðið - 17.03.2018, Side 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2018
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Magnús Sævar Magnússon,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Faðir okkar
Hreinn Jónasson er
látinn. Hann var
veikur síðustu ár
ævi sinnar, en kvartaði þó ekki
yfir örlögum sínum, heldur var
ljúfur í viðmóti fram í það síðasta.
Elsku móðir okkar er nú ein eftir
Hreinn Jónasson
✝ Hreinn Jónas-son fæddist 13.
október 1933. Hann
lést 20. febrúar
2018.
Útför Hreins fór
fram 26. febrúar
2018.
langa samveru. Á
erfiðri stundu leitar
hugurinn aftur í
tímann til æskuára
okkar. Öll þrjú eig-
um við okkar sér-
stöku minningar um
hvernig pabbi
kenndi okkur alls
kyns veraldlega
hluti, svo sem að
gera við hjólið, aka
bíl skynsamlega eða
laga hitt og þetta. Ekki síður
munum við þann stuðning sem
hann gaf ef eitthvað vafðist fyrir í
náminu. Þá breytti engu hvort
um var að ræða íslenska tungu
eða raungreinarnar. Áhugi hans
á tækninýjungum og útskýringar
á hvernig hlutirnir virka gerði líf-
ið spennandi á tímum þar sem
tækniframfarir og þróun gerðu
framtíðina bjarta og spennandi.
Menn voru sendir til tunglsins og
mannkyninu virtust engin tak-
mörk sett. Seinna meir þegar við
sjálf vorum orðin foreldrar og
öxluðum þá stóru ábyrgð að
koma börnum okkar upp, jókst
skilningur okkar á mikilvægi
þess sem pabbi gerði þrátt fyrir
langa vinnudaga, nefnilega að
gefa sig að börnunum, hlusta,
skilja og sýna skilning á barns-
huganum. Allt var þetta gert góð-
lega en þó leiðbeinandi. Barna-
börnin hafa einnig fengið sinn
hlut af gæsku afa og sakna hans
sárt. Börn hafa reyndar alltaf
dregist að honum, sóst eftir sín-
um skerf. Fyrir allt þetta erum
við þakklát og kveðjum pabba
með kærleik.
Við viljum að lokum koma á
framfæri þökk til ykkar allra, í
Maríuhúsi og í Skógarhlíð, sem
önnuðust pabba síðustu ár æv-
innar, og sáuð til að honum liði
sem best.
Jónína, Jónas og
Anna Katrín.
Fallinn er frá kær frændi og
vinur, Hreinn Jónasson. Hreinn
var elstur þriggja systkina og var
fæddur og uppalinn á Hranastöð-
um í Eyjafirði, þar sem foreldrar
hans bjuggu fyrstu búskaparár-
in. Fyrstu minningar okkar um
Hrein frænda eru frá jólaboði í
Skólastíg 1 á Akureyri, en þang-
að fluttu foreldrar hans, þegar
þau hættu búskap á Hranastöð-
um. Hreinn kunni að spila á
harmonikku og við sem vorum 10
og 12 árum yngri hlustuðum agn-
dofa á hvað hann var flinkur
þarna í jólaboðinu. Okkur fannst
hann töframaður á fleiri sviðum
og verðug fyrirmynd. Þegar
Hreinn kom í heimsókn í Fjólu-
götu 3, þar sem við áttum heima,
fékk hann stundum það verkefni
að gera við straubolta eða jóla-
seríu, því hann var þá orðinn raf-
fræðingur eins og amma orðaði
það. Alltaf var auðvelt að leita til
hans því hann var sérstaklega
ættrækinn, greiðvikinn og hafði
góða nærveru. Svo hélt hann
áfram námi og eitt sinn heyrðist
nafnið hans í útvarpinu, þegar
hann dúxaði í rafmagnsdeild Vél-
skólans. Síðan fór hann til Mann-
heim í Þýskalandi, þá orðinn fjöl-
skyldumaður, og lærði þar
rafmagnstæknifræði. Síðast þeg-
ar við hittum Hrein í janúar síð-
astliðnum í Skógarbæ, þá kvaddi
hann okkur með þeim orðum að
við mættum ekki láta þennan
þráð slitna. Að leiðarlokum þökk-
um við Hreini frænda ævilanga
vináttu og vottum systkinum
hans, eiginkonu hans Sigríði
Halblaub, börnum og barnabörn-
um, okkar dýpstu samúð.
Magni og Þórir
Hjálmarssynir.
Elsku Styrmir.
Ég á ekki mörg
eða merkileg orð,
enda vorum við
sammála um að orð gerðu oftast
lítið úr því sem maður finnur í
sálinni. Sorg er í brjósti en líka
þakklæti fyrir tímann sem vegir
okkar lágu saman og fyrir að
hafa fengið að vera hluti af ynd-
islegu fjölskyldunni þinni. Þótt
leiðir okkar hafi legið hvors í
sína áttina var sálartengingin
alltaf til staðar eins og máninn
á himnum og ég get varla
ímyndað mér hvernig heimur-
inn á að vera ef þú ert ekki
lengur í honum. Það logaði allt-
af í þér fallegur vonarneisti þótt
lífsvegur þinn hafi oft verið erf-
iður í gegnum grýtta og dimma
dali. Í gegnum suma þeirra urð-
um við samferða en við lékum
okkur líka í gleðinni og sælu
ástarinnar eins og börn og ein-
mitt þá sá ég best inn í hreina
og tæra hjartað þitt. Þú elsk-
aðir skilyrðislaust, það er ekki
öllum gefið. Þú varst vinur vina
þinna og vildir hjálpa þeim sem
minna máttu sín og voru beittir
misrétti. Ég veit ekki hvernig
ég get lýst því á annan hátt en
að allt hafi einhvern veginn orð-
ið öðruvísi þegar mér var beint
til þín. Ég gerði mér grein fyrir
að engar tilviljanir eru á vegi
lífsins þegar þú opnaðir hjarta
þitt fyrir mér og hleyptir mér
Styrmir Haukdal
Kristinsson
✝ Styrmir Hauk-dal Kristinsson
fæddist 19. ágúst
1977. Hann lést 13.
febrúar 2018.
Útför Styrmis
fór fram 26. febr-
úar 2018.
inn í ævintýraheim-
inn þinn þar sem
ég sá ekki lengur
heiminn í gegnum
gler svarthvítra
andstæðna heldur
opnaði augun fyrir
litbrigðum tilver-
unnar. Þú varst
seiðmaður og lista-
maður af Guðs náð,
predikari, prakk-
ari, ljón og lítill
drengur, stormur og blankalogn
undir stjörnubjörtum nóvem-
berhimni í norðri. En umfram
allt varstu stríðsmaður gæddur
persónutöfrum sem vöktu at-
hygli hvar sem þú komst. Þú
varst einstakur og minningin
um þig dvelur í hjörtum margra
sem þú snertir með fallegri sál.
Mitt er eitt af þessum hjörtum.
Takk fyrir að gefa mér nýja sýn
á veröldina og opna huga minn
og hjarta fyrir töfrum lífsins,
sorgum þess og sigrum og
ómannlegum styrk kærleikans.
Það er huggun í því að vita að
þú dvelur nú í friði og ró umvaf-
inn ástvinum þar sem hin
dimma nótt sálarinnar er liðin
og eilífur dagur tekinn við, ilm-
andi af lofnarblómi, þar til þú
ert tilbúinn í bardaga næstu
jarðvistar. En ég veit líka að þú
lætur vita af þér af og til þegar
krummi krunkar úti og kallar á
nafna sinn. Þar til við sjáumst
hinum megin, Máni biður að
heilsa, ást og friður.
Elsku Lóa mín og Ivan,
Kiddi, Ragna og Kalli, Eva
Lilja og Sara Sóley, Guð geymi
ykkur og umvefji styrk og
óendanlegum kærleika.
Þín
Linda.
Fallinn er frá
stjúpfaðir minn og
vinur, Loftur Altice
Þorsteinsson, eftir
langa og hetjulega baráttu við
taugahrörnunarsjúkdóminn
MND. Loftur kom snemma inn
í líf mitt og reyndist mér alla tíð
traustur og umhyggjusamur
stjúpfaðir. Nú þegar ég horfi til
baka koma upp margar minn-
isstæðar myndir af okkar fjöl-
breyttu og skemmtilegu sam-
skiptum.
Loftur kenndi mér snemma
listina að tefla enda skákmaður
góður. Við eyddum ófáum
stundum við taflborðið, þ.e. ég
Loftur Altice
Þorsteinsson
✝ Loftur AlticeÞorsteinsson
fæddist 25. júní
1944. Hann lést 26.
febrúar 2018.
Loftur var jarð-
sunginn 6. mars
2018.
við borðið en hann í
næsta herbergi og
ég kallaði til hans
leikina. Hann svar-
aði jafnharðan og
oftar en ekki hafði
hann síðan betur
sem gat reynst erf-
iður biti að kyngja
fyrir ungan og
kappsfullan skák-
mann.
Loftur var fræði-
maður í hjarta sínu og hafði alla
tíð mikinn áhuga á sögu og þá
sérstaklega sögu fornra þjóða
og tungumálum þeirra. Varð ég
þess aðnjótandi að fá að hlusta
á marga fróðlega fyrirlestra um
löngu gleymd tungumál þessara
þjóða og hvernig þau mögulega
gátu tengst við norræn mál.
Þessi viðfangsefni fylgdu Lofti
alla tíð og hann skilur eftir sig
stórt og mikið bókasafn sem nú
bíður nánari skoðunar.
Áhugasvið Lofts voru fjöl-
breytt og hann var jafnan virk-
ur í þjóðfélagsumræðunni. Ung-
ur að árum var hann róttækur
vinstrimaður og við gengum
saman Keflavíkurgöngu til að
mótmæla veru erlends herliðs
hér á landi. En áður en langt
var um liðið gekk hann til liðs
við Sjálfstæðisflokkinn og tók
virkan þátt í starfi hans á með-
an krafta hans naut við. Ég
man enn þá ánægjulegu stund
þegar ég ungur að árum fór
snemma morguns fram til þess
að kíkja á frekar fábrotnar
íþróttasíður Þjóðviljans en í
stað hans var nú skyndilega
kominn þykkur og safaríkur
Moggi.
Eftir að Loftur hætti störfum
sem verkfræðingur hjá Vega-
gerð ríkisins stofnaði hann
heildverslunina Hlutverk og rak
hana um árabil. Á þessu sviði
sem öðrum sýndi hann fljótt
hæfileika sína og reksturinn var
mjög arðbær um langt skeið.
Hann var hagsýnn maður, þol-
inmóður og úrræðagóður og bjó
ástvinum sínum alla tíð fallegt
og gott heimili.
Lofti varð sjálfum ekki barna
auðið en hann tók barnabörnum
sínum opnum örmum frá fyrsta
degi. Hann var óþreytandi við
að sinna þeim og leika við og
hjálpa við heimanám ef svo bar
undir. Hann naut þess að kenna
og lauk fjölbreyttri starfsævi
við framhaldsskólakennslu
nokkur ár.
Loftur greindist með MND
fyrir um níu árum. Hann tók
þessum erfiða sjúkdómi af yf-
irvegun og þolinmæði lengst af
og í anda fræðimannsins lagðist
hann fljótt í að kynna sér til
hlítar allt sem tengdist honum.
En kraftarnir fóru þverrandi og
lestrargetan sömuleiðis en í
stað hennar jókst áhugi hans á
íþróttum. Við sóttum ófáa kapp-
leiki saman þar sem íslensk
landslið áttu í hlut og frábær
árangur íslenskra íþróttamanna
á undanförnum árum færði hon-
um mikla ánægju. Loftur var
mikill Íslendingur alla tíð og
stolt yfir landi og þjóð jókst
mjög á síðustu æviárunum.
Það er með miklum söknuði
sem ég, Kolbrún og Kári kveðj-
um nú kæran vin og lífsförunaut
en minning um góðan mann
mun lifa.
Takk fyrir okkur, elsku vin-
ur.
Arnar Þór Sveinsson.
Í dag syrgjum
við fallinn félaga,
elskulegan vin og
traustan samstarfs- og stuðn-
ingsmann til margra ára, Jó-
hann Jóhannsson.
Við eigum margar góðar
minningar um samveru okkar
með Jóhanni. Fljótlega eftir að
við opnuðum 12 Tóna hóf hann
að venja komur sínar og var
duglegur að notfæra sér hlust-
unaraðstöðuna, um leið og hann
fékk sér einn eða fleiri kaffi-
bolla. Jóhann var spenntur fyrir
Jóhann Gunnar
Jóhannsson
✝ Jóhann GunnarJóhannsson
fæddist í Reykjavík
19. september
1969. Hann lést 9.
febrúar 2018.
Útför Jóhanns
fór fram 9. mars
2018.
því nýja úrvali sem
við buðum upp á og
ekki síst fyrir
þeirri klassísku
tónlist og hljóð-
mynd sem reis úr
rústum tveggja
heimsstyrjalda,
enda var hann alla
tíð forvitinn og leit-
andi á lendum tón-
listarinnar. Við
nýttum okkur yfir-
gripsmikla þekkingu Jóhanns á
framsækinni tónlist á þessum
tíma. Hann hvatti okkur til
dæmis til að hefja innflutning
frá ítalska útgáfufyrirtækinu
CAM sem gefur meðal annars
út kvikmyndatónlist Goblin,
Nino Rota og Ennio Morricone.
Ekki datt okkur í hug þá að
einungis nokkrum árum síðar
ætti Jóhann eftir að feta svo
eftirminnilega í fótspor þessara
meistara sem höfðu svo mikil
áhrif á hann.
Það er okkur mjög í fersku
minni þegar Jóhann kom í
heimsókn einn góðan veðurdag
árið 2001 og skildi eftir brennd-
an geisladisk sem hann vildi að
við hlustuðum á. Þetta var tón-
listin úr leikritinu Englabörn,
en sú sýning var þá ekki enn
komin á fjalirnar. Við hlustuð-
um og hlustuðum. Næst þegar
Jóhann kom föðmuðum við
hann innilega og þökkuðum
þannig fyrir þessa dásamlegu
gjöf sem hafði snert okkur svo
djúpt. Það sagði margt um hóg-
værð Jóhanns að honum komu
þessi sterku viðbrögð á óvart.
En svo brosti hann sínu fallega
brosi. Við hvöttum hann ein-
dregið til að koma tónlistinni á
framfæri og mæltum með
breska útgáfufyrirtækinu To-
uch sem vænlegan vettvang fyr-
ir þessa tónlist. Það gekk eftir
og með Englabörnunum bláu
hófst glæsilegur alþjóðlegur
sólóferill Jóhanns. Síðar vorum
við svo lánsamir að gefa út
fimm geisladiska með tónlist
Jóhanns, og fjóra með hljóm-
sveitum hans Apparat Organ
Quartet og Evil Madness. Þetta
voru ólík en allt saman
skemmtileg og gefandi verkefni.
Þar kynntumst við vel því
hvernig Jóhann vann og þeim
fókus sem hann hafði á öllu
ferlinu, frá upptöku til umslags-
hönnunar og loks umgjörð tón-
leikahalds.
Það var einstaklega ánægju-
legt að fá að fylgjast með Jó-
hanni vaxa sem tónskáld og
þeirri velgengni sem fylgdi í
kjölfarið. Á sama tíma höfum
við notið þeirra forréttinda að
fá á hverjum degi að kynna tón-
list hans fyrir þeim fjölmörgu
innlendu og erlendu gestum
sem hafa heimsótt verslun okk-
ar í gegnum árin. Við höfum séð
hvernig tónlistin hefur snert þá
sem eru að heyra hana í fyrsta
sinn. Og þó Jóhann sé nú farinn
þá lifir hann áfram í hjörtum
okkar í tímalausri tónlist sinni.
Við sendum Karólínu og fjöl-
skyldu Jóhanns innilegar sam-
úðarkveðjur.
Lárus Jóhannesson,
Jóhannes Ágústsson,
Einar Þ. Kristjánsson.
Elsku bróðir
minn, nú hefur þú
kvatt þetta líf, og þú
háðir harða baráttu
við þennan hræði-
lega sjúkdóm sem svo marga hef-
ur lagt að velli.
Árni Guðbjartsson
✝ Árni PéturGuðbjartsson
fæddist 20. janúar
1943. Hann lést 20.
febrúar 2018.
Útför Árna fór
fram 2. mars 2018.
En ég dáðist að
æðruleysi þínu sem
þú sýndir alveg fram
á síðustu stundu,
enda varstu alltaf
eins og klettur í lif-
anda lífi og dugnað-
ur þinn og þitt hlýja
hjartalag sem ein-
kenndi þig alla tíð
mun fylgja okkur
öllum sem kynnt-
umst þér á lífsleið-
inni. Ég man er við vorum börn
fyrir vestan, þá var ýmislegt brall-
að og oftast fékk ég að elta ykkur
eldri bræðurna er þið voruð að
leik og oft háskaleg uppátæki,
enda voruð þið mínar fyrirmyndir
í öllu. Þið leyfðuð mér oftast nær
að vera með þótt ég væri þetta
yngri en þið. Ég veit að það kost-
aði ykkur oft ærna fyrirhöfn að
hafa mig í eftirdragi en þið senduð
mig heim þegar þið voruð að fara
að prófa eitthvað sem hefði getað
reynst ykkur hættulegt, hvað þá
mér svo mikið yngri, en þið voruð
alltaf með velferð mína í huga.
Oft reyndi ég að hylma yfir
með ykkur þegar var farið að
ganga á mig um það hvar þið vær-
uð en var ofurliði borin af foreldr-
um okkar sem þekktu ykkur af
því að ef ég var send heim þá
stæði eitthvað til sem væri ekki al-
veg í lagi.
Þessar minningar eru ansi
margar og ljúfar um ævintýri
okkar í barnæsku, það væri of
langt mál og af svo mörgu að taka
elsku bróðir minn, en þú verður
alltaf í minningunni hinn góði og
sanni bróðir sem þú varst mér alla
tíð.
Hafðu þökk fyrir allt, Árni
minn. Hvíl í friði og Guð geymi
þig.
Elsku Alla mín, við vottum þér
og fjölskyldu þinni allri okkar
innilegustu samúð og Guð styrki
ykkur og styðji.
Eygló og Sævar.