Morgunblaðið - 25.04.2018, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018
Íbúum Seyðis-
fjarðar fjölgaði sl. ár
um 4% eftir árlega
fólksfækkun mörg
síðustu ár. Á tæpum
þrem áratugum hefur
Seyðisfjörður færst
frá því að vera sterkt
iðnaðar- og sjávar-
pláss á Austurlandi í
að vera leiðandi
ferðaþjónustu-, menn-
ingar- og lista-
samfélag með traust og gott sjáv-
arútvegsfyrirtæki. Höfnin er sem
fyrr „gullkista“ íbúanna og sterk
undirstaða.
Ferðaþjónustan eflist og menn-
ing og listir blómstra. Smyril-Line
hefur siglt stöðugt frá 1975 og nú
með Norrænu, fólks- og bílferju,
sem siglir vikulega allt árið. Árleg
fjölgun skemmtiferðaskipa stefnir
nú í 60 skipakomur í sumar. Höfn-
in er fjórða stærsta skemmti-
ferðaskipahöfn landsins. Fjölgun
ferðamanna hefur því verið stöðug
síðustu ár Umferð bíla fram og til
baka um Fjarðarheiði gerir hana á
stundum umferðarþyngsta veg á
Austurlandi. Ferðamálastofa áætl-
ar að tæplega 300.000 ferðamenn
hafi komið til Seyðisfjarðar sl. ár
og um 17% gisti á staðnum. Síld-
arvinnslan, sem á og
rekur frystihúsið,
togarann og bræðsl-
una, stendur mynd-
arlega að sinni starf-
semi með því t.d. að
klæða fallega frysti-
húsið við Hafnargöt-
una og tækjakostur
innandyra er í end-
urnýjun. Hráefni í
vinnsluna með Gullver
NS í fararbroddi hef-
ur verið stöðugt.
Næga atvinnu er að
hafa í kaupstaðnum
en nú sárvantar húsnæði, t.d. fyrir
ungt fólk sem flytja vill í bæinn
okkar. Sama eða svipuð staða er á
flestum minni stöðum úti á landi.
Þar er verkefni sem þarf að leysa.
Það eru því spennandi tímar
framundan að takast á við krefj-
andi verkefni í samfélagi sem hef-
ur á örfáum árum aftur orðið eft-
irsótt og þekkt, fyrir sína einstöku
staðsetningu, náttúrufegurð og
gæði mannlífsins sem hér þrífst.
Seyðisfjörður hefur verið á for-
síðum og í aðalhlutverki leikstjór-
ans Ben Stillers og leikstjórans
Baltasars í Ófærð. Samgöngustofa
lét gera kynningarmyndband fyrir
Ísland þar sem Steindi leiddi söng
í umgjörð Seyðisfjarðar með eft-
irminnilegum hætti. Regnbogagat-
an við Bláu kirkjuna, sem sló í
gegn á einni nóttu, færir m.a.
fjölda brúðhjóna og gesti utan úr
heimi til myndatöku á staðnum.
Nýjast er auglýsingin sem fylgir
kynningu KSÍ á búningunum sem
strákarnir okkar spila í á HM í
Rússlandi í sumar. Þar er fjörð-
urinn, í vetrarbúningi, í stóru
hlutverki. Norsku húsin okkar
fanga mjög athygli ferðamannsins.
LUNGA, árleg sumar-istahátíð
ungs fólks, sækja þátttakendur
m.a.víðsvegar að úr heiminum sem
stunda listsköpun og leiki á hátíð-
inni. Listalýðháskólinn, sá eini á
landinu, er að festa sig vel í sessi.
Með dvöl sinni setja nemendur
hans skemmtilegan alþjóðlegan
svip á bæinn okkar á veturna.
Ljósahátiðin List í ljósi í febr-
úarmánuði er magnað, fjölsótt fyr-
irbæri. Skaftfell, miðstöð mynd-
listar á Austurlandi í samstarfi við
Tækniminjasafn Austurlands við
Hafnargötu, flétta saman sín sér-
svið m.a. í sýningarhaldi og ýms-
um verkefnum sem lífgar og setur
skemmtilegan svip á bæjarlífið.
Sushi restaurant Nordica og Café
Lára í Norðurgötunni eru þekktir
og rómaðir veitingastaðir. Skíða-
svæðið í Stafdal stendur vel fyrir
sínu.
Það eru því spennnandi og ögr-
andi tímar fram undan í firðinum
fagra á milli Bjólfs og Strand-
artinds. Þrjú krefjandi verkefni
eru í undirbúningi og þarf að
framkvæma þau sem allra fyrst til
að mæta betur vaxandi ákalli íbú-
anna.
1. Framkvæmdir við Fjarð-
arheiðargöng, sem eru í sam-
gönguáætlun næst á eftir Dýra-
fjarðargöngum, þurfa að hefjast
ekki síðar en seinni hluta árs
2020. Tæp tvö ár tekur að bora í
gegn.
2. Hefja þarf íbúðabyggingar í
kaupstaðnum að nýju til að mæta
fólksfjölgun sem bíður og kallar á
lausnir.
3. Huginn, eitt sterkasta karla-
knattspyrnulið Austurlands síð-
ustu ára, er stolt flestra Seyðfirð-
inga. Liðið er án heimavallar þar
sem knattspyrnuvöllurinn (ljóna-
gryfjan) við Garðarsveg er ónýtur.
Allir heimaleikir liðsins, sem nú
leikur í 2. deild, fara fram á Fella-
velli, handan Fjarðarheiðar á
Fljótsdalshéraði. Æfingar liðsins
fara þar fram en ekkert æfinga-
svæði er til staðar heimafyrir.
Kostnaðaráætlun og útboðsgögn
fyrir nýtt yfirborð á knatt-
spyrnuvöllinn liggur fyrir. Verið
er að leita leiða til að fjármagna
verkefnið sem kostar sitt. Ef ein-
hverjir sem þetta lesa og aðrir
sem áhuga hafa vilja styrkja með
einhverjum hætti þetta bráðnauð-
synlega verkefni þá hafið bara
samband sem fyrst. Áfram Hug-
inn.
Í lokin má geta þess að Golf-
klúbbur Seyðisfjarðar, GSF, einn
fámennasti golfklúbbur landsins,
rekur skemmtilegan golfvöll,
Hagavöll, 9 holur. Öflug starfsemi
klúbbfélaga hefur vakið athygli
innan og utan lands. Á næstu dög-
um halda þeir, hressir og kátir 18
saman til Suður-Spánar í tíu daga
að spila golf og leika sér. Meðal
leikfélaga eru unglingarnir Jón
Magnússon 88 ára og Ingvi Svav-
arsson 84 ára. Leikið er golf alla
daga (18+9 holur).
Já, elskurnar mínar, sagt hér og
skrifað: „Það eru eftirsótt forrétt-
indi að fá að þroskast og telja í
aldurinn í Firðinum ykkar þar
sem allt er að gerast þessa dag-
ana.“ Sjáumst!
Seyðisfjörður – spennandi tímar framundan
Eftir Þorvald
Jóhannsson » Sagt hér og skrifað:
„Það eru eftirsótt
forréttindi að fá að
þroskast og telja í ald-
urinn í Firðinum fagra
þar sem allt er að gerast
þessa dagana.“
Þorvaldur
Jóhannsson
Höfundur er eldri borgari á Seyð-
isfirði og Hugins- og GSF-félagi.
brattahlid10@simnet.is
Fyrr í þessum mán-
uði birti danski þing-
maðurinn Jan-Erik
Messmanns grein þar
sem hann lýsti reynslu
sinni þegar hann fór
um Keflavíkurflugvöll
nýlega, meðal annars
óánægju sinni gagn-
vart starfsmanni í ör-
yggisleit sem fór að
hans mati harkalegum
höndum um hann. Við
hjá Isavia tökum öllum ábendingum
er varða okkar verklag alvarlega og
er mál þingmannsins þar engin und-
antekning.
Við getum öll verið sammála um
að öryggisleit á alþjóðlegum flug-
völlum er nauðsynlegur hluti af
ferðalaginu og það er okkar sem
störfum á flugvöllunum að tryggja
að ferlið gangi snurðulaust fyrir sig
og valdi farþegum lágmarks óþæg-
indum. Þetta hefur tekist ein-
staklega vel á Keflavíkurflugvelli,
sérstaklega í ljósi þeirrar fjölgunar
sem orðið hefur á ferðamönnum á
undanförnum árum. Biðtími er afar
stuttur, eða um 5 mínútur að með-
altali, og við þökkum þeim öfluga
hópi starfsfólks Isavia sem starfar í
öryggisleitinni fyrir það.
Við öryggisleit er farþegum ekki
mismunað eftir þjóðerni eða stöðu
þeirra í samfélaginu og allir þurfa að
fara í gegnum sama ferli. Í grein
danska þingmannsins segist hann
vera ósáttur við það hvernig leitað
var á honum og að starfsmaður ör-
yggisleitarinnar hafi ekki tekið tillit
til þess að hann væri þingmaður.
Eins og fyrr segir tökum við ábend-
ingum alvarlega og höfum skoðað
hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis
við þessa öryggisleit og þannig var
það ekki. Starfsmaðurinn vann sína
vinnu í samræmi við reglur og gerði
engan greinarmun á því hvort við-
komandi væri þingmaður eða ekki.
Öryggisleit gengur best þegar góð
samvinna er milli flugöryggisvarða
og farþega.
Svona er þessu einnig háttað á
öðrum flugvöllum og þurfa farþegar
með innvortis málmhluti oftar en
ekki að fara í ítarlegri
leit sökum þess. Aukin
leit sem þessi getur
vissulega verið erfið
þeim sem í henni lend-
ir. Við erum meðvituð
um að farþegar upplifa
mismikil óþægindi á
meðan á henni stendur.
Því miður er hún þó
nauðsynlegur hluti af
starfi þessa starfsfólks
og framkvæmd til þess
eins að stuðla að auknu
öryggi á flugvellinum.
Starfsmenn í örygg-
isleit leggja mikinn metnað í að lág-
marka þessi óþægindi sem sést á því
að óháðar mælingar veita okkur
góða einkunn samanborið við helstu
flugvelli Evrópu, en Keflavíkur-
flugvöllur hefur mælst þar í topp 5
síðastliðin þrjú ár.
Einnig gagnrýndi danski þing-
maðurinn að ferðamenn þurfi að
sýna brottfararspjöld sín þegar þeir
kaupi tollfrjálsar vörur í fríhöfn
flugstöðvarinnar. Ástæða þessa er
að tollayfirvöld gera þá kröfu, í sam-
ræmi við lög, að þegar tollfrjáls
varningur er keyptur verði það
sannarlega að vera ferðamenn sem
eiga í þeim viðskiptum. Þannig er
þetta einnig á öllum alþjóða-
flugvöllum.
Við hjá Isavia leggjum áherslu á
að sömu reglur gilda um alla farþega
sem fara um Keflavíkurflugvöll,
þingmenn, ráðherra og aðra. Starfs-
fólk Keflavíkurflugvallar hefur stað-
ið sig með eindæmum vel í hröðum
vexti undanfarin ár og við munum
eftir sem áður taka vel á móti öllum
ferðalöngum sem um völlinn fara og
gerum ekki greinarmun á neinum.
Eftir Björn Óla
Hauksson
» Við öryggisleit er
farþegum ekki
mismunað eftir þjóðerni
eða stöðu þeirra í sam-
félaginu og allir þurfa
að fara í gegnum sama
ferli.
Björn Óli
Hauksson
Höfundur er forstjóri Isavia.
Öryggi – samvinna
– þjónusta
Hér á landi hefur
aldrei verið mörkuð
heildarstefna í mál-
efnum aldraðra. Okk-
ar aðferðir hafa mið-
ast við að „slökkva
elda“ þegar neyðar-
ástand skapast. Árið
1998 skrifaði ég grein
í Morgunblaðið undir
yfirskriftinni „Hver
vill vera á biðlista?“
Þá voru 98 aldraðir að bíða í
sjúkrarúmum á Landspítala eftir að
fá inni á hjúkrunarheimili og hafði
svo verið lengi. Þessi tala er
óbreytt í dag, 20 árum síðar.
Í nýlegri grein heilbrigðis-
ráðherra segir að í nýrri fjármála-
áætlun ríkisstjórnarinnar sé gert
ráð fyrir uppbyggingu 550 nýrra
hjúkrunarrýma til ársins 2023. Hún
bendir einnig á að það þurfi að
fjölga fjölbreyttum úrræðum fyrir
aldraða varðandi heimaþjónustu,
heimahjúkrun og dagdvöl. Þetta er
allt saman hárrétt, en samfara því
að bæta og fjölga úrræðum þarf að
huga að grunninum,
sem er starfsfólkið.
Það þarf að hugsa til
framtíðar hvernig eigi
að fjölga fagmenntuðu
fólki til að starfa við
öldrunarþjónustu því
fyrirsjáanlegur skort-
ur er á læknum,
hjúkrunarfræðingum
og sjúkraliðum. En
orð eru til alls fyrst og
í lokaorðum sínum
segir heilbrigðis-
ráðherra að það sé
meginmarkmið sitt að stilla saman
strengi til framtíðar, móta stefnu
og skýra áherslur í þágu sam-
félagsins alls.
Ráðstefna um
réttindi aldraðra
Fimmtudaginn 26. apríl mun
Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir
ráðstefnu á Hótel Natura kl. 13-17
undir yfirskriftinni „Ráðstefna um
réttindi aldraðra – Með áherslu á
þjónustu“. Aðgangur er ókeypis og
skráning fer fram á vefsíðunni
http://www.slfi.is/. Heilbrigðis-
ráðherra og borgarstjóri munu
flytja ávarp og erindi verða flutt á
vegum velferðarráðs, velferðar-
ráðuneytis og landlæknisembætt-
isins varðandi stefnu í öldrunar-
málum auk þess sem öldrunar-
læknar munu velta fyrir sér
mikilvægi öldrunargeðdeildar og
líknardeildar fyrir aldraða.
Aðalfyrirlesarinn verður Line
Miriam Sandberg, ráðuneytisstjóri
í nýju ráðuneyti Norðmanna sem
hefur umsjón með málefnum aldr-
aðra og lýðheilsu. Hún mun fjalla
um framtíðarsýn varðandi þjónustu
við aldraða í Noregi. Það verður af-
ar fróðlegt að hlusta á hana þar
sem Norðmenn hafa löngum verið
fyrirmynd annarra Norðurlanda-
þjóða varðandi stefnumótun í þess-
um málaflokki.
Eftir Hönnu Láru
Steinsson » Okkar aðferðir hafa
miðast við að
„slökkva elda“ þegar
neyðarástand skapast.
Hanna Lára Steinsson
Höfundur er félagsráðgjafi MA,
MS og í undirbúningsnefnd
ráðstefnunnar.
Framtíð aldraðra
Úffi villtist að heiman úr
Drápuhlíð í Reykjavík
fyrir nokkru. Hann er
gulbröndóttur með þétt-
an feld, hvíta höku og
veiðihár. Nágrannar eru
vinsamlega beðnir að líta
inn í skúra í hverfinu, en
hann gæti líka verið kom-
inn út fyrir hverfið sitt.
Hafi einhver orðið ferða
hans var eða veit um af-
drif hans er hann vinsam-
lega beðinn að hafa sam-
band við Ásgerði, Fjölni,
Úlf eða Fúsa í síma 897
0652 og 897 4368.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Úffi
týndist
í Hlíð-
unum
Fasteignir