Morgunblaðið - 25.04.2018, Page 30

Morgunblaðið - 25.04.2018, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018 Kasper Holten, fyrrverandi óperu- stjóri hjá Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn og Konunglegu óp- erunni í Covent Garden í London, hefur verið ráðinn stjórnandi allra sviða Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn frá 1. september nk. Holten leikstýrði óperunni Brothers eftir Daníel Bjarnason sem frumflutt var í Musikhuset í Árósum í ágúst og sýnd verður í Hörpu í 9. júní sem hluti af Listahátíð í Reykja- vík í samstarfi við Íslensku óperuna, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Den jyske opera. Samkvæmt frétt danska dag- blaðsins Politiken er Holten að taka við einni valdamestu stöðu innan dansks menningarlífs. „Mér þykir vænt um Konunglega leikhúsið. Ég gæti ekki ímyndað mér mikilvægara og meira spennandi starf, en að fá tækifæri til að leiða þessa mögnuðu stofnun og frábæra starfsmenn hennar,“ segir Holten. Í frétt Politi- ken er rifjað upp að Holten hafi að- eins verið 27 ára þegar hann var ráð- inn óperustjóri Konunglega leik- hússins árið 2000. Hann var farsæll í því starfi og hlaut meðal annars Reumert-verðlaun fyrir uppfærslu sína á Niflungahringnum eftir Wag- ner sem hafði ekki verið settur upp í leikhúsinu síðan 1912. Líkt og ann- arra stjórnenda menningarstofnana í Danmörku bíður Holten það verk- efni að spara 2% í rekstrinum, sem verið hefur árleg krafa mörg sein- ustu ár, en Holten hefur gegnum tíð- ina harðlega gagnrýnt niðurskurð- inn. Stig Jarl, lektor í leikhús- fræðum við Kaupmannahafnar- háskóla, er sannfærður um að Holten verði farsæll í nýja starfinu og vonar að honum gefist tækifæri til að leikstýra eigin sýningum. Ljósmynd/Clive Barda Endurkoma Kasper Holten. Snýr aftur í Konunglega leikhúsið Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Nína Óskarsdóttir myndlistarmaður opnar á morgun, fimmtudag, klukk- an 17 sýningu í Ekkisens, sýningar- rými í kjallaranum á Bergstaða- stræti 25b. Sýninguna kallar hún Í gjótu: steinþrykk 2015-2017. Um er að ræða afrakstur tveggja ára vinnustofudvalar á Englandi. Nína útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands vorið 2014 og hélt í kjölfarið til Bretlands þar sem hún sérhæfði sig í vinnu með steinþrykk, eða litó- grafíu, grafíkmiðil eða prenttækni sem byggist á efnafræði, eðlisfræði og listrænni tjáningu, og þá fyrst og fremst teikningu að sögn Nínu. Myndin er teiknuð beint á kalk- steina sem svo eru ættir og myndin síðan prentuð á pappír í stein- þrykkspressu. Heillandi verkstæði „Já, ég sýni steinþrykk, prent- verk sem ég vann að í Leicester á Englandi síðustu tvö árin. Þetta er hálfgerð yfirlitssýning verka sem ég vann að á þeim tíma,“ segir Nína. Þegar spurt er hvers vegna hún hafi kosið að einbeita sér að þessari tækni grafíkur, segist hún fyrst hafa prófað steinþrykk þegar hún var í LHÍ og fór í skiptinám til Berlínar. „Þar var boðið upp á steinþrykk og ég ákvað að prófa því mér fannst eitthvað svo heillandi við verkstæðið. Mér fannst áhugavert að sjá þessa stóru kalksteina sem fólk var að teikna á. Það var aug- ljóslega ekki auðveld vinna en samt mikil ró og næði sem heillaði mig. Síðar flutti ég til Englands og þá sá ég að Leicester Print Workshop auglýsti eftir listamönnum að vinna á verkstæðinu. Ég sótti um og fékk tveggja ára námssamning eða „fell- owship“ í prógrammi fyrir útskrif- aða listamenn sem bauðst að læra tæknina og vinna á staðnum. Þar gat ég unnið í tvö ár eins og mig lysti og hafði leiðbeinanda sem hjálpaði með tæknina. Síðan hef ég sérhæft mig í þessu.“ Vinna við steinþrykk og hina stóru kalksteina er mjög líkamleg. „Mér finnst gott að vinna við eitt- hvað áþreifanlegt. Það er ákveðin hvíld fyrir hugann að gera eitthvað mjög líkamlegt inn á milli,“ segir Nína. Þegar spurt er um upplag verka segir hún flest vera í fjórum til sex eintökum. „Það fer mikil vinna í hvert prent. Oft þarf að prenta allt að tíu blöð áður en mað- ur fær eitt gott prent; það eru mikil afföll.“ En hvaða myndefni er þetta? „Ég var ekki mikill teiknari áður en ég byrjaði á þessu en í stein- þrykki verður að teikna og hægt og rólega þróaðist myndheimurinn. Ég dró inn ákveðna þætti úr íslenskri náttúru og náttúruvættum, ég velti líka fyrir mér trúarbrögðum, og þá trú á náttúruna og öfl í henni, og fór bæði að teikna landslag og fígúrur í því. Þá komu inn kvenlegir þættir eins og fléttur, en vitaskuld gerði ég líka tilraunir með ýmislegt.“ Nína segist sýna um tuttugu verk að þessu sinni. Hún sýndi talsvert á Englandi og einkum í Leicester. „Það kemur á óvart hvað það er mikil menning í Leicester, þar er ýmislegt í gangi,“ svarar hún hlæj- andi þegar spurt er hvort heima- menn þar í borg hafi áhuga á öðru en knattspyrnu. Nú er Nína flutt heim og kveðst hafa hug á að vinna áfram í stein- þrykk en góð aðstaða er á verkstæði félagsins Íslensk grafík. „Maður gengur ekki frá svona löguðu, eftir að hafa verið í þessari sérhæfingu. Ég vinn steinþrykk áfram, í bland við annað. Ég er líka vön að vinna með skúlptúra, innsetningar og víd- eó, hef aðeins saknað þess undan- farið og ætla að grípa líka í það. Mér finnst gott að vinna í ólíka miðla.“ Myndheimur af kalksteinum  Nína Óskarsdóttir opnar á morgun sýningu í Ekkisens á úrvali steinþrykks- verka sem hún vann að á Englandi síðustu tvö árin  „Hálfgerð yfirlitssýning“ Morgunblaðið/Einar Falur Grafík „Mér fannst áhugavert að sjá þessa stóru kalksteina sem fólk var að teikna á. Það var augljóslega ekki auð- veld vinna en samt mikil ró og næði sem heillaði mig,“ segir Nína Óskarsdóttir um fyrstu kynnin af steinþrykki. Steinþrykk Eitt steinþrykksverk- anna á sýningu Nínu í Ekkisens. Tilnefningar til Maístjörnunnar voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í gær. Tilnefnd eru, í stafrófsröð: Bergþóra Snæbjörnsdóttir fyrir Flórída; Elísabet Kristín Jökulsdóttir fyrir Dauðinn í veiðarfæraskúrnum; Eydís Blöndal fyrir Án tillits; Jónas Reynir Gunnarsson fyrir Stór olíu- skip og Kristín Ómarsdóttir fyrir Kóngulær í sýningargluggum. Til- nefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar. Gjaldgengar voru allar útgefnar ís- lenskar ljóðabækur ársins 2017 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dóm- nefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Magnea J. Matthíasdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Rannver H. Hannesson fyrir hönd Landsbókasafnsins. Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfunda- sambands Íslands og Lands- bókasafns Íslands – Háskóla- bókasafns, verður veitt í annað sinn í Þjóðarbókhlöðunni 18. maí, á degi ljóðsins. Verðlaunafé er 350 þús. kr. Maístjarnan er einu verðlaun á Ís- landi sem veitt eru eingöngu fyrir út- gefna íslenska ljóðabók. Verðlaun- unum er ætlað að hvetja skáld til að yrkja og koma ljóðum sínum í útgáfu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ljóðskáldin Frá afhendingu tilnefninga í Gunnarshúsi í gær. Fimm ljóðskáld voru til- nefnd til Maístjörnunnar HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.