Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.04.2018, Page 20
Parið leggur mikla áherslu á þægindi
og notagildi á heimilinu og skapar
ákeðið jafnvægi með því að blanda
saman nýjum hlutum og notuðum.
Faðir Sindra, Tryggvi Tryggvason
arkitekt, hannaði eldhúsið auk þess
að hanna og smíða stofuborð, hljóð-
vegg, rúmgafl og fleira á heimilinu.
Tryggvi Tryggvason hannaði einnig þennan
skemmtilega rúmgafl. Viðurinn tónar vel við lit-
inn á veggnum enda leggur parið áherslu á fal-
legar litasamsetningar á heimilinu líkt og sjá má.
Fataskáparnir eru úr Ikea
en Unnur og Sindri ákváðu
að hafa þá innbyggða.
Bitana í loftinu
hannaði Tryggvi
og smíðaði.
HÖNNUN
Útskriftarsýning meistaranema
í hönnun og myndlist
Laugardaginn 28. apríl verður opnuð útskriftarsýning meistaranema í hönnun og
myndlist frá Listaháskóla Íslands í Gerðarsafni, Kópavogi. Sýningin er opin frá kl.
14:00-17:00. Á sýningunni má sjá afrakstur tveggja ára háskólanáms á meistarastigi.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.4. 2018