Morgunblaðið - 04.05.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 / Audi.is
Úr vönduðu að ráða
Nokkrar gerðir Q5 á einstöku verði
5
á
ra
á
b
yr
g
ð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
íl
u
m
H
E
K
L
U
a
ð
u
p
p
fy
ll
tu
m
á
k
væ
ð
u
m
á
b
yr
g
ð
a
rs
k
il
m
á
la
.
Þ
á
e
r
a
ð
fi
n
n
a
á
w
w
w
.h
e
k
la
.i
s/
a
b
yr
g
d
Audi Q5 Sport Quattro
Listaverð 8.650.000 kr
Tilboðsverð frá 7.290.000 kr.
Dæmi:
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Fyrsta sjálfstýrða bifreiðin á Íslandi,
af fjórða stigi sjálfkeyrandi bifreiða,
var til sýnis og reynslu á ráðstefnunni
Snjallborgin Reykjavík, sem fram fór í
Hörpu í gær.
Bifreiðinni var ekið 250 metra hring
við Hörpu og farþegar í fyrsta akstri
voru Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherrra og Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri, en allir gestir Snjall-
borgarinnar sem vildu fengu einnig að
fara rúnt.
Fram kemur á vefsíðu framleiðanda
að bifreiðin, sem er rafknúin, sé af
gerðinni Nayva Arma og sé nú þegar í
notkun í borgunum Sion, Detroit,
Lyon og Las Vegas. Hún kemst um
100 km á einni hleðslu sem dugir í 8
tíma og er hámarkshraði 45 km/klst.
Bifreiðin tekur 11 farþega í sæti og
fjóra standandi að auki. Hún er með
drif að framan og aftan og keyrir jafnt
fram og til baka.
Enginn undir stýri
„Eins og nafnið gefur til kynna er
enginn undir stýri, þar sem ekkert er
stýrið, en bifreiðin er forrituð fyrir
ákveðna leið og skynja leysigeislar um-
hverfi bílsins. Bifreiðin er frá danska
fyrirtækinu Autonomous Mobility og
kemur hingað til lands á vegum bif-
reiðaumboðsins Heklu, en danska fyr-
irtækið Semler Group á eignarhlut í
báðum fyrirtækjum,“ segir í tilkynn-
ingu.
„Við leitumst við að horfa til þess
hvernig bílar framtíðarinnar verða og
framtíðarsýn okkar er skýr, að koma
með lausn á hvernig fólk kemst á milli
staða með sem hagkvæmustum og
vistvænustum hætti. Sjálfkeyrandi
bílar eru næsta skref,“ segir Peter Sor-
genfrei, framkvæmdastjóri Autonomo-
us Mobility, en hann hélt erindi á
Snjallborgarráðstefnunni í gær.
,,Það er afar ánægjulegt að fyrsta
sjálfkeyrandi bifreiðin hafi verið próf-
uð hér á Snjallborgarráðstefnunni í
dag þar sem verið er að ræða fram-
tíð Reykjavíkur og hvaða nýjungar
eru framundan í innviðum og þjón-
ustu borgarinnar. Tæknin er kom-
in mjög langt. Þetta snýst fyrst og
fremst um vakningu varðandi inn-
viði, lög og reglugerðir sem snúa
að sjálfkeyrandi bílum þannig að
við verðum tilbúin fyrir þessa
sjálfstýrðu framtíð sem er hand-
an við hornið,“ segir Kristinn
Jón Ólafsson, verkefnastjóri
Snjallborgarinnar Reykjavíkur.
Sjálfrennireið ók með gestina
Sjálfstýrð bifreið var á meðal þess sem var sýnt á Snjallborginni Reykjavík Gestir fengu að fara
rúnt við Hörpu Snjallgötulýsing með LED-ljósgjafa gæti sparað yfir 90% í raforkukostnaði
Ljósmynd/Aðsend
Enginn undir stýri Sigurður I. Jóhannsson samgönguráðherra og Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri í fyrstu ferð sjálfkeyrandi bifreiðarinnar í gær.
Guðjón L. Sigurðsson, lýsingar-
hönnuður hjá fyrirtækinu Liska,
hélt erindi um ljósvist á Snjall-
borgarráðstefnunni.
„Með því að skipta um gömlu
kvikasilfurslýsinguna í ljósastaur-
um og nota LED-ljósgjafa í staðinn,
ásamt því að bæta við sjálfvirkri
miðnæturdimmingu, þá væri hægt
að ná allt að 83% orkusparnaði. En
með því að nota skynjaratækni að
auki, þá væri hægt að ná yfir 90%
sparnaði,“ segir
Guðjón í samtali við Morgunblaðið.
Akureyri og Árborg eru komin vel á
veg með að taka LED-ljósgjafa í
notkun og um 450 slíkir hafa þeg-
ar verið settir upp í Reykjavík auk
skynjara sumstaðar.
Guðjón segir LED-ljósgjafann
búinn sendi sem bjóði upp á mögu-
leika á að einstakir lampar láti t.d.
vita ef þeir þarfnast viðhalds og að
hægt væri að fjarstýra lýsingu
þeirra frá stjórnstöð. LED-
ljósgjafinn endist í 15-20 ár, því
ætti að vanda til verks hvað varðar
ljósvist, segir Guðjón að lokum.
Gunnar Hansson, markaðs-
stjóri hjá Farsýn, kynnti snjall-
stýringu á götu- og stígalýs-
ingum. Skynjarar á ljósastaurum
geti t.d. numið birtustig eða
manneskjur eða farartæki á
ferð og stillt lýsingu eftir því.
Þeir nemi hreyfingu og auki
lýsingu á meðan en deyfi eða
slökkvi á henni þegar viðkom-
andi er farinn hjá. Með því ná-
ist orkusparnaður og betri
þjónusta.
Snjallir ljósastaurar geta
skynjað þörf fyrir lýsingu
NÝJUNGAR Í LÝSINGU OG LJÓSASTÝRINGU SPARA GRÍÐARLEGA