Morgunblaðið - 04.05.2018, Page 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert með óþarflega miklar áhyggj-
ur af fjárhagnum en hann er ekki eins slæm-
ur og þú heldur. Mundu að erfiðleikarnir eru
til þess að sigrast á þeim.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú kannt að bjarga þér út úr erfiðri að-
stöðu sem þú lendir í en þarft þó að taka á
öllu sem þú hefur. Illu er best aflokið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er í mörg horn að líta hjá þér
bæði í leik og starfi. Farðu varlega því ein-
hver reynir að villa þér sýn. Reynsla þín, álit,
skoðanir og tilfinningar eru algerlega ein-
stakar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Spennandi tilboð gætu borist þér til
eyrna í dag. Leggðu þig allan fram og þá
mun framlag þitt verða mikils metið. Litlar
dyggðir eru stórir áfangar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert friðsæll og í góðu jafnvægi og
hefur því góð áhrif á alla í kringum þig.
Njóttu þess að ræða málin og freista þess
að fá botn í hlutina.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þín bíða listræn viðfangsefni á næst-
unni, sama hvert lifibrauð þitt er. Sum svörin
liggja í augum uppi en önnur þarftu að finna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Réttu fram hjálparhönd þar sem hennar
er þörf. Sjálfstraust þitt mun verða öðrum
innblástur og gæfan fylgir þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þekking er voldugt afl og þú
þarft að nýta þekkingu þína betur en þú hef-
ur gert hingað til. Reyndu að fylgjast vel
með því sem er að gerast í kring um þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fólk er óvenju gagnrýnið í dag og
því er þetta er ekki heppilegur dagur til mik-
ilvægra fjölskylduviðræðna. Hlustaðu vand-
lega á það sem aðrir segja og dragðu þínar
ályktanir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það getur reynt á þolinmæðina að
þurfa að hafa hlutina fyrir sig. En mundu að
allt sem þú dæmir í öðrum gætirðu fundið
innra með sjálfum þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það gengur ýmislegt á í kring um
þig og þess vegna ríður á miklu að þú haldir
ró þinni hvað sem á dynur. Skilningur þinn á
þörfum vina og nágranna er meiri en endra-
nær.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér gengur flest í haginn þessa dag-
ana og átt það skilið, því þú hefur lagt hart
að þér til að koma hlutunum í höfn. Þú finn-
ur til örlætis og þarft að fá tækifæri til að
sýna það.
Falsvonir“ gerir Helgi R. Ein-arsson sér að yrkisefni:
Í raun er hún frekar fyndin
forboðna, lævísa girndin.
Ýfir upp löngun,
áræði’ og döngun.
Upp er svo migið í vindinn.
Og veltir fyrir sér „veikum
grunni“:
Hugrún í gildruna gekk
er gullhring frá Sigurði fékk,
en lánið er valt
og var ekki falt.
Á bláþræði hamingjan hékk.
Hafsteinn Reykjalin Jóhannesson
orti á Boðnarmiði á mánudags-
kvöld:
Kvöldið birtist kalt og svalt,
kul í andlit bítur.
Myrkrið leggst nú yfir allt
svo enginn dagsljóss nýtur.
Krummi Hrafns krunkar: „Næt-
urfrost í kortunum:“
Söngfuglanna sumarkór
sýndist flest á kosið
en vorið kom og vorið fór,
vorið senn er frosið.
Skógarþrasta greddugarg
glymur spart í nótt
Laus við herjans leiða þvarg
í laupnum sef ég rótt.
Sagan endurtekur sig – Hall-
mundur Kristinsson yrkir:
Nú fjáðir menn í flestum löndum,
sem fagna löngum eigin hag
og sínum auði bindast böndum
banka geta keypt í dag.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
er með á nótunum:
Ekki hugsa maður má
mein er það til ára.
Bankar geta borið þá
beint í glötun sára:
Alltaf er gott að rifja upp gamlar
vísur:
Sigurður Gíslason kvað margt,
sá var skáld í Dölum;
sumt var gaman, sumt var þarft,
sumt vér ekki um tölum.
Hér er mannlýsing, – svo langt
sem hún nær:
Það er í einu orði sagt
og að fullu sannað
að þér er flest til lista lagt
– lygin jafnt og annað.
Páll Vídalín orti:
Einatt heyri ég eitthvað nýtt,
ýmist gerir að viðra,
núna kemur á norðan hlýtt,
njóti þeir þess hér syðra.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af mannlegum breysk-
leika og veðrinu
Í klípu
“HANN ER BARA AÐ VINNA VINNUNA SÍNA.
REYNDU AÐ BÍTA EKKI HÖFUÐIÐ AF
HONUM.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERS KONAR MONTRÆFILL ERT ÞÚ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem gerist þegar
samtalið klárast.
24 KLUKKU-
TÍMAR Í DEGI
EÐA, EINS OG ÉG
KALLA ÞAÐ…
5 MÁLTÍÐIR, 4 BLUNDAR, 11 NÖSL
OG NOKKRIR SJÓNVARPSÞÆTTIR
ÞAÐ VERÐUR BRÁÐUM
SVALT Í LOFTI!
JÁ! ÉG ELSKA
HAUSTIÐ!
ÉG VAR AÐ TALA UM YFIRVOFANDI HEIMSÓKN
MÓÐUR ÞINNAR!
Kunningi Víkverja hefur upp á síð-kastið tileinkað sér breytt hug-
arfar. Er orðinn öllu jákvæðari en áður
og kemur sífellt á óvart þegar kunn-
ingjanum tekst að finna pollýanska
vinkla á aðstæðum sem upp kunna að
koma hér á eyjunni.
x x x
Í gærmorgun birti hann mynd afhvítri jörð í höfuðstaðnum og snjó-
komu, sem kunninginn tók líklega frá
vinnustað sínum 3. maí 2018. Eftir að
hafa „barist í gegnum veðrið“ og til
vinnu þá gat kunninginn engu að síður
séð björtu hliðarnar á tilverunni eins
og Stormskerið og Stebbi Hilmars
gerðu um árið.
x x x
Kunninginn skrifaði á samskipta-miðla um leið og hann birti mynd-
ina: „Þegar veðrið er svona á Íslandi í
maí er ágætt að muna að við fáum ekki
mannskæðar hitabylgjur eða fellibylji
#blessings.“
x x x
Lengi er greinilega hægt að finnaleiðir til að sætta sig við veðrátt-
una við nyrsta haf. En jú, hitabylgjur
eru líklega nokkuð sem við þurfum
ekki að hafa ýkja miklar áhyggjur af.
Víkverji man þó eftir einni fyrir um
fimmtán árum seint í ágúst. Var það
einkennileg upplifun en líklega var
bylgjan ögn mildari hér en sunnar í álf-
unni.
x x x
Í snjókomunni í gær spurði annarkunningi Víkverja eftirfarandi
spurningar: „Veist þú hvenær vatns-
rennibrautagarðurinn í Úlfarársdal
sem Björn Ingi lofaði verður opnaður?“
x x x
Ef til vill hefur veðráttan kallað framþörf hjá kunningjanum til að kæla
sig örlítið en auðheyrt var á honum að
hann var svekktur út í sinn gamla
vinnufélaga að hafa ekki skilað garð-
inum í Úlfársdalinn. „Kominn smá
spenningur í mig. Pantaði skýlu úr
Freemans,“ sagði kunninginn. Víkverji
ætlaði að nefna þetta við samstarfs-
félaga sinn sem sýndi þessu engan
áhuga og þóttist vera í símanum að fal-
ast eftir viðtali við meðlimi Slayer.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Eins og faðir sýnir miskunn börnum
sínum, eins hefur Drottinn sýnt mis-
kunn þeim er óttast hann.
(Sálm: 103.13)
Fæst í Apóteki Garðabæjar
og Lyfjaveri Suðurlandsbraut