Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 18
18 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Áeyjunni Tulipop býrsveppastrákurinn og nátt-úruunnandinn Bubble,systir hans Gloomy, sem
er hugrökk og ævintýragjörn upp-
finningamanneskja, furðuverurnar
Fredd, Miss Maddý, herra Tré og
mamma Skully og fleiri geðþekkar
verur sem allar búa yfir mannlegum
kostum og göllum. „Tulipop er sann-
kölluð ævintýraeyja með skraut-
legum persónum þar sem megin-
skilaboðin eru að enginn sé full-
kominn og fjölbreytileikinn frábær,“
segir Helga Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri hönnunarfyrirtæk-
isins Tulipop, sem hún og Signý
Kolbeinsdóttir, teiknari og vöru-
hönnuður, stofnuðu árið 2010.
Tulipop snýst um Tulipoppara;
karaktera sem Signý hefur gefið líf í
gegnum myndheim, sem og alls kon-
ar tilheyrandi varning, mjúkdýr,
töskur og fleira. Þær stöllur hófu
fljótlega landvinninga og opnuðu
skrifstofu í New York þar sem
Signý hefur starfað í tvö ár á meðan
Helga heldur um stjórnartaumana
hér heima.
Síðan hefur margt drifið á daga
Tulipopparanna. „Nýjasta nýtt er að
í kvöld tala þeir í fyrsta skipti opin-
berlega íslensku,“ segir Helga stolt
af sínum og skírskotar til fyrsta
þáttar í tíu þátta teiknimyndaseríu,
sem frumsýndur verður á RÚV í
kvöld kl. 18.47. Hver þáttur er tvær
og hálf mínúta.
Skemmtilegt og lærdómsríkt
„Stjörnulið íslenskra leikara
ljær Tulipoppurunum rödd sína.
Ólafur Darri Ólafsson talar fyrir
Fred, eina aðalpersónu þáttanna,
eins og hann gerði reyndar líka í
ensku útgáfunni. Meðal annarra
leikara eru Salka Sól, Ólafía Hrönn
og Laddi. Tónlistin í þáttunum er
eftir Herdísi Stefánsdóttur og
James Newberry, en Úlfur Eldjárn
samdi upphafsstefið.“
Fyrir sléttu ári fengu þær
Signý og Helga handritshöfundinn
Tobi Wilson til að vinna með sér
handritið, en hann hefur skapað sér
nafn í heimi teiknimynda, sem einn
helsti handritshöfundur þáttaraðar-
innar The Amazing World of Gum-
ball. „Við framleiðum þættina í sam-
starfi við bandaríska fyrirtækið
Wildbrain, sem er leiðandi í fram-
leiðslu afþreyingarefnis fyrir vef-
miðla. Það hefur verið ótrúlega
skemmtilegt og lærdómsríkt ferli að
búa til okkar fyrstu teiknimyndir
byggðar á Tulipop-ævintýraheim-
inum. Upphaflega var hugmyndin
að sýna fyrstu seríuna einungis á
rás Tulipop á YouTube, en við-
brögðin voru svo góð að við
ákváðum í samstarfi við RÚV að tal-
setja seríuna á íslensku,“ segir
Helga.
Ensku þættirnir fóru í loftið á
rás Tulipopparanna í október,
áhorfið er komið í 1,5 milljónir og
eru helstu aðdáendur Tulipoppar-
anna í Bandaríkjunum og Kanada.
„Ný tíu þátta sería er komin í fram-
leiðslu og stefnt að því að fyrsti
þátturinn fari í loftið síðsumars,“
segir Helga og bætir við að einnig
sé í bígerð að talsetja þá þætti á ís-
lensku.
Yndislegir en meingallaðir
Af öðru á döfinni hjá Tulipop
nefnir hún að viðræður standi yfir
við stórt alþjóðlegt fyrirtæki um að
framleiða 52 þátta seríu þar sem
hver þáttur yrði 11 mínútur. „Klass-
ísk sjónvarpssería af því taginu er
gríðarlega stórt verkefni sem tekur
minnst tvö ár og er rosalega spenn-
andi. Næstu skref er að gera fleiri
stutta og skemmtilega þætti, sem
væntanlega verða sýndir á RÚV í
haust. Núna erum við að hefja tal-
setningar á þýsku og spænsku, sem
verða tilbúnar í sumar. Fyrr en var-
ir verða Tulipoppararnir farnir að
tala mörgum tungum,“ segir Helga
brosandi og fer að lokum fögrum
orðum um mannkosti þessara litlu,
krúttlegu ævintýravera:
„Tulipoppararnir eru yndislegir
en meingallaðir, svona bara eins og
fólk er flest. Innblástur þeirra er
enda fólkið í kringum okkur, kóm-
ískir og fyndnir karakterar, sem
enginn skortur er á í fjölskyldum og
vinahópum flestra.“
Tulipopparar tala tungum
Teiknimyndirnar um Tulipopparana hugljúfu verða frumsýndar með íslensku tali á RÚV í kvöld. Fram til þessa hafa þeir aðeins
tjáð sig á ensku á Tulipop-rásinni sinni á YouTube, en nú hafa þeir lært íslensku og eru komnir langleiðina með að læra þýsku og
spænsku. Og hver veit nema Tulipoppararnir eigi frekari frama í vændum, t.d. í 52 þátta sjónvarpsþáttaröð er fram líða stundir?
Málamanneskjur Tungumálin eru Bubble, Gloomy, Maddý, Fred, Mömmu Skully og Herra Tré ekki til trafala.
Athafnakonur Helga Árnadóttir og Signý Kolbeinsdóttir hjá Tulipop.
„Tulipopparar eru
kómískir og fyndnir
karakterar, sem
enginn skortur er á
í fjölskyldum og
vinahópum flestra.“
Mörgum finnst alltaf tilhlökkunar-
efni á vorin að fara á útskriftarsýn-
ingar listnema og virða fyrir sér
verk upprennandi listamanna. Út-
skriftarsýning nemenda Myndlista-
skólans í Reykjavík ætti engan að
svíkja, því á sýningunni eru verk
eftir 114 nemendur sem stunda
samfellt nám í dagskólanum. Sýn-
ingin verður opnuð kl. 14 í dag,
fimmtudaginn 10. maí, í húsnæði
skólans á 2. og 3. hæð í JL-húsinu,
Hringbraut 121, og verður opin kl.
13 til 18 frá föstudeginum 11. maí til
og með mánudeginum 14. maí.
Á sýningunni sýna nemendur á
fyrra ári listnámsbrautar verk sem
þeir hafa unnið í íslenskuáfanga við
skólann en útskriftarnemendur úr
eins og tveggja ára námi við deild-
ina sýna sjálfstæð lokaverkefni.
Nemendur á keramikbraut, list-
málarabraut, teiknibraut og text-
ílbraut sýna sjálfstæð verkefni en
um er að ræða tveggja ára náms-
brautir í myndlist, hönnun og list-
handverki ætlaðar nemendum með
stúdentspróf af listnámsbraut.
Útskriftarsýning nemenda Myndlistaskólans í Reykjavík
114 listnemar á ýmsum sviðum
sýna afrakstur vetrarins
Morgunblaðið/Jim Smart
Listnám Í Myndlistaskólanum í Reykjavík læra nemendur meðal annars
að beita aðferðum og tækni á fjölbreyttu sviði myndlistar og hönnunar.
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Láttu dæluna
ganga!
Hjá Dynjanda færðu öflugar
háþrýstidælur fyrir fjölbreyttar
aðstæður og verkefni.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.