Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 48
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Rut Káradóttir innanhússarkitekt hannaði þetta eldhús
sem er í Fossvoginum. Hér eru gluggar hafðir svartir í
stíl við innréttingu.
Marta María
mm@mbl.is
Eiga gluggarnir að vera svartir
eða hvítir?
Kæra Marta María.
Ég er að fara að flytja í raðhús í
grónu hverfi í Reykjavík sem var
byggt 1972. Í loftunum er panill með
svörtum bitum. Það er líka planið að
setja svarta innréttingu í eldhúsið
og á baðherbergi. Ég er alltaf hrifn-
ari af hvítum gluggum en ég óttast
að þeir passi ekki við húsið. Hvað
myndir þú gera?
Kveðja, Björg.
Sæl Björg.
Ég myndi alltaf lakka gluggana í
svörtu ef það er planið að setja
svartar innréttingar og ef það eru
svartir birtar í loftinu. Ef þú ætlar
að lakka gluggana sjálf skiptir mjög
miklu máli að pússa þá vel og
grunna áður en þeir eru lakkaðir.
Einnig skiptir máli að sparsla vel
upp í allar misfellur svo áferðin
verði rennislétt og lýtalaus. Hægt er
að fara mismunandi leiðir þegar
kemur að gljástigi. Mött áferð er
ákaflega móðins þessa dagana en
gljástig er smekksatriði. Ef þú
spyrðir starfsmenn í málning-
arverslun myndu þeir eflaust flestir
mæla með 30% glans. Vonandi
hjálpar þetta.
Er mikið mál að lakka Ivar-hillur
úr IKEA?
Á dögunum fékk ég spurningu um
hvernig best væri að mála eða lakka
Ivar-hillur frá sænska móðurskipinu
IKEA. Ég er að sjálfsögðu með svar
á reiðum höndum enda búin að mála
Ivar-hillur margoft. Þegar ég var
krakki var ég með slíkar hillur í her-
bergi mínu sem var sniðugt því í hill-
unum var bæði hægt að hafa míní-
skrifstofu sem nýttist við heimanám
en á sama tíma var líka hægt að vera
með Barbie-hús á mörgum hæðum.
Í dag er ég með slíkar hillur bæði í
bílskúrnum, þvottahúsinu og í
barnaherbergjum. En hvernig er
best að lakka eða mála Ivar-hillur?
Kosturinn við Ivar-hillurnar er að
viðurinn er ómeðhöndlaður sem ger-
ir að verkum að það er auðvelt að
meðhöndla hann. Það er auðvitað
hægt að pússa hillurnar létt yfir,
grunna og lakka en það er líka hægt
að lakka þær beint.
Ég mæli með svörtu möttu lakki.
Það er auðvelt að bera það á og það
verður ekki skellótt. Gott er að nota
bæði pensil og svamp-rúllu við
verknaðinn. Ef þú ert að lakka hill-
urnar inni á heimilinu er best að
setja dagblöð undir svo lakkið smit-
ist ekki í neitt annað og svo er best
að vera í vinnufötum við verknaðinn.
Í dag er lakk orðið svo þróað að það
er hægt að fá það algerlega lykt-
arlaust.
Þegar þú ert búin/n að fara eina
umferð er gott að leyfa lakkinu að
þorna almennilega og fara aðra um-
ferð daginn eftir. Það kemur virki-
lega vel út að mála hillurnar í svört-
um lit og hægt er að fara ýmsar
leiðir í að raða í þær þannig að út-
koman verði heillandi, ekki druslu-
leg.
Kær kveðja, Marta María.
Endilega verið með í hópnum
Smartland – heimili á Facebook.
Einnig er hægt að fylgjast með
framkvæmdum og örðum skemmti-
legheitum á instagramsíðunni
Smartland Mörtu Maríu.
Vertu með í lok-
uðum heimilis-
hóp Smartlands
Frá því Smartland fór í loftið hefur umfjöllun um
heimili og hönnun verið fyrirferðarmikil á vefnum.
Það hefur leitt til þess að tölvupósturinn minn er
oftar en ekki fullur af fyrirspurnum frá fólki um hitt
og þetta sem tengist heimilinu. Í tilefni af sjö ára
afmæli Smartlands bjó ég til lokaðan facebookhóp
sem kallast Smartland – heimili. Í þessari grúppu
er ætlunin að skiptast á skoðunum og hjálpast að
við að fegra heimilið og auðvitað heiminn um leið.
Fasteignaljósmyndun.is
Hér eru gluggar málaðir svartir og passsar það vel við
innréttinguna. Myndin birtist á Smartlandi á dögunum.
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Hér eru gluggar málaðir svartir í húsi sem Rut Káradóttir hannaði í Fossvogi.
Hér eru gluggarnir málaðir svartir og kemur það vel út. Innlit á heimilið
sem er í Fossvogi birtist í SunnudagsMogganum fyrir nokkru.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Illuminate colour
Illuminate colour línan er byggð á lífrænni Acai olíu og hörfræ olíu.
Þessar nærandi olíur eru notaðar til að byggja upp mýkt
og hjálpar við viðgerð á hárinu.
Næringaríka olían er full af omega 3, omega 6 og
öðrum fjölbreyttum vítamínum. Eins og t.d. B1,B2, B3
og Vítamín C+D. Ávinningur þessara efna bjóða
upp á fullkomna blöndu af auknum gljáa og ljóma.
Modus Hár og Snyrtistofa - Smáralind | harvorur.is
REF Stockholm er 12 ára gamalt
Professional haircare merki
REF Stockholm er 100 % Vegan ,
sulfate, Paraben, glúten
og Cruelity free
Sjá nánar á harvorur.is