Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 73
MENNING 73 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Unnendur danstónlistar tíunda áratugar síðustu aldar geta farið að pússa dansskóna því á laugar- daginn, 12. maí, verður blásið til mikillar dansveislu í Valshöll þar sem fram koma þrjár danstónlist- arsveitir sem nutu mikilla vinsælda á fyrrnefndum áratug: 2 Unlimi- ted, C&C Music Factory og Co- rona. Auk þess troða upp fjórir íslenskir plötu- snúðar sem þekkja bæði vel til sveitanna og „næntís“ tónlist- ar, þeir DJ Kiddi Bigfoot, DJ Hlynur Mastermix, DJ Gunni Tutti Frutti og DJ Arnold Babyface. Maðurinn sem stendur fyrir teit- inni er Atli Rúnar Hermannsson en hann er alvanur skífuþeytingum, tónleikahaldi af ýmsu tagi og öðru skemmtanahaldi, bæði hér á landi sem erlendis. „Ég er bara miðaldra bumbu- karl,“ svarar Atli sposkur þegar hann er spurður að því hvers vegna hann sé að flytja inn þessa tónlist- armenn. „Ég er 41 árs og þetta var í botni þegar ég var yngri þannig að ég tengi við þetta. En það er ekki ástæðan fyrir því að ég er að gera þetta, mér fannst þetta bara vanta. Úti í heimi eru haldin risa- stór „næntís“ kvöld og það er eng- inn að gera þetta af þessari stærð- argráðu sem ég er að gera þetta núna. Menn eru bara að henda Pottþétt 18 í spilarann og fá sér volgan bjór eins og í gamla daga.“ Hitað upp með Eurovision Valshöll er stór tónleikastaður og Atli er spurður að því hvort ekki sé töluverð áhætta fólgin í því að halda tónleika með þessum gömlu stjörnum í svo stóru húsi. „Jú, að sjálfsögðu er þetta áhætta eins og í öllu tónleikahaldi og ég er alltaf að fá síðastur útborgað, ef ég fæ þá útborgað. En ég hef bara mikla trú á þessu og sem betur fer hafa við- brögðin verið gríðarlega góð þann- ig að áhyggjurnar eru ekki fyrir- ferðarmiklar,“ svarar hann. Aðalkeppni Eurovision lýkur um kl. 22 á laugardaginn og Valshöllin verður opnuð hálftíma síðar, kl. 22.30. Eflaust munu því margir hita sig upp fyrir tónleikana í Eurovision-partíum. „Við byrjum á íslenskum plötusnúðum á meðan fólk er að safnast í húsið og klukk- an hálftólf eða rétt fyrir tólf byrja stóru bomburnar að koma og svo verða einhverjir íslenskir leyni- gestir,“ segir Atli. Óli sér um dyravörslu – En fyrir þá sem ekki þekkja til danstónlistar tíunda áratugarins, hvaða tónlistarmenn eru þetta? „Þetta eru náttúrlega þrjár af langstærstu hljómsveitunum frá þessum áratug. 2 Unlimited voru „the shit“ á árunum 1992-4 og C&C Music Factory er amerískt band og var alveg risastórt,“ segir Atli. Corona hafi að sama skapi notið mikilla vinsælda og fólk kannist enn við helstu smelli þeirrar sveit- ar, t.d. „Rythm of the Night“. Af smellum 2 Unlimited er „No Limit“ líklega þekktastur og af smellum C&C Music Factory er það án efa „Gonna Make You Sweat (Every- body Dance Now)“. Sem fyrr segir verður byrjað að hleypa inn kl. 22.30 og mun Óli King opna dyrnar. En hver er Óli King? Atli hlær. „Óli King er goð- sögn í íslenska dyravarðabrans- anum, hann var á öllum vinsælustu skemmtistöðunum frá 1990 til 2000 og eitthvað. Það þekkja mjög margir Óla King, Óla kóng. Hann var alltaf í dyrunum á vinsælustu stöðunum,“ segir Atli. „Og þessir fjórir íslensku plötusnúðar eru allir „næntís“ plötusnúðar sem voru upp á sitt besta og grennsta á þessu tímabili,“ bætir Atli við kím- inn. Miðasala á viðburðinn, sem ber yfirskriftina Næntís nostalgía, fer fram á tix.is og er miðaverð 5.500 kr. Tvíeyki 2 Unlimited mun flytja sína helstu smelli í Valshöll og þá m.a. „No Limit“. Svitabað? C&C Music Factory á smellinn „Gonna Make You Sweat (Everybody Dance Now)“. Fortíðarþrá í Valshöll  Danssmellasmiðirnir í 2 Unlimited, C&C Music Factory og Corona bjóða upp á „næntís nostalgíu“ 12. maí Atli Rúnar Hermannsson Corona Ítalska danstónlistarsveitin er leidd af Olgu Mariu De Souza. Rokksveitin Guns N’ Roses, sem heldur tónleika á Laugardalsvelli 24. júlí, ákvað að sleppa einu lagi á sérstakri og væntanlegri viðhafn- arútgáfu sem hefur að geyma 73 lög eftir hljómsveitina í endurhljóð- blönduðum útgáfum. Lagið nefnist „One in a Million“ og er textinn ástæðan fyrir því að lagið fékk ekki að fljóta með en textinn þykir fela í sér fordóma í garð þeldökkra, inn- flytjenda og samkynhneigðra. Textann samdi söngvari hljómsveit- arinnar, Axl Rose, og segir m.a. að innflytjendur og hommar vefjist fyrir honum þar sem þeir „komi til landsins og haldi að þeir megi gera það sem þeim sýnist“ og þá m.a. að „breiða út einhvern fjárans sjúk- dóm“. Lagið var fordæmt þegar það var gefið út á sínum tíma og sagði gítarleikari sveitarinnar, Slash, nokkrum árum síðar að hann sæi ekki eftir að hafa gefið lagið út en þætti miður að hljómsveitin hefði mætt mótlæti vegna þess. Rose sagði nokkrum árum eftir útgáfu lagsins að hann hefði kallað þel- dökka Bandaríkjamenn niggara í textanum eftir að hafa lent í því að þeldökkt fólk reyndi að ræna hann. Bætti hann því við að hann skildi ekki hvers vegna þeldökkir mættu kalla hver annan niggara en hvítur maður mætti ekki nota það orð yfir þeldökkan. Hvað innflytjendur varðar sagði Rose að þeir fengju margir hverjir störf í matvöru- verslunum og kæmu svo fram við hann eins og hann væri óvelkom- inn, að því er fram kemur í frétt dagblaðsins Guardian um málið. Umdeilt lag ekki á endurútgáfu AFP Á tónleikum Axl Rose, söngvari Guns N’ Roses, á tónleikum árið 2012. ICQC 2018-20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.