Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Agility
Super 4 Super 8
Mini Comfort
RAFSKUTLUR
Í MIKLU ÚRVALI
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Það skal skýrt tekið fram að ég
elska bæði takkó og fisk en hug-
myndin um að splæsa þetta saman
hljómaði dálítið eins og grillað
slátur með guacamole. Kristín tók
vel á móti mér í fallegu íbúðinni
sinni í Laugarneshverfinu sem hún
deilir með eiginmanni sínum,
tveggja ára dóttur og hinum tign-
arlega Sir Alex (Ferguson) sem er
stór hvítur köttur af Maine Coon-
kyni.
Maturinn var nánast tilbúinn og
Kristín notaði tímann til að segja
mér frá því hvernig hún þróaði
uppskriftina. „Ég fékk þetta á
heilann eftir að hafa séð myndina I
love you man þar sem allir voru
alltaf að borða fiskitakkó. Mig
langaði að prófa og lagði því mikla
vinnu í að gúggla mér til óbóta og
finna rétta grunninn. Uppskriftin
sló strax í gegn og er í algjöru
uppáhaldi,“ segir Kristín sem er
mikill matgæðingur og veit fátt
skemmtilegra en að elda.
Kristín segir að viðbrögðin hafi
verið æði blendin í byrjun þegar
hún bauð gestum í mat og fiski-
takkóið var í boði. „Fólki fannst
þetta smá skrítið fyrst en núna er
uppskriftin orðin að fastarétti hjá
ansi mörgum. Ég get sagt enda-
lausar frægðarsögur af takkóinu
en þú verður bara að prófa.“
Og ég prófaði. Því er skemmst
frá að segja að fiskitakkóið hennar
Kristínar Soffíu er geggjað. Allir
mínir fordómar hafa fuðrað upp og
þetta er eitthvað sem ég mun klár-
lega bjóða upp á á mínu eigin
heimili. Kristín segir jafnframt að
börn séu alveg jafn hrifin af því og
fullorðnir sem er fullkomlega rök-
rétt í ljósi þess hvað það er bragð-
gott en bætir því við að til sé bæði
sumar- og vetrarútgáfa af því. „Á
veturna erum við í djúpsteiking-
unni eins og þú ert að prófa en
á sumrin erum við aðeins
léttari á því. Þá grillum við
fiskinn oft,“ segir Kristín
og ég ímynda mér að það
sé alveg jafn gott.
Fiskitakkó!
Þessi réttur kemur upp-
haflega frá Baja í Mexíkó
en er líka gríðarlega vinsæll
víða í Bandaríkjunum og þá
sérstaklega Kaliforníu. Það eru til
endalausar útgáfur af honum og
oft er fiskurinn djúpsteiktur. Í
þessari er þorskurinn grillaður
sem gerir réttinn léttari og sum-
arlegri.
Með þessu er borin fram sósa
sem heitir einfaldlega hvít sósa,
pico de gallo og svo niðursaxað
kínakál og guacamole. Hér kemur
uppskriftin fyrir fjóra – nákvæm
hlutföll eru svolítið smekkur hvers
og eins.
Fiskurinn
800 g ósaltaðir þorskhnakkar
1 bjór
6 msk. hveiti
1 tsk. lyftiduft
Mexíkósk kryddblanda – paprika,
cumin, cayenne, kóríander
salt og pipar
repjuolía
Hrærið saman hveiti, kryddi og
lyftidufti. Blandið við bjór, bland-
an á að vera á við þykkt lakk.
Skerið fiskinn niður í bita á
stærð við feita putta og þurrkið
vel með eldhúspappír. Hitið olíu í
potti eða djúpri pönnu, mér finnst
pannan þægilegri en bitarnir verða
að ná að fljóta í olíunni. Athugið
hitastigið á olíunni með því að
setja dropa af deigi út í, það á
að steikjast strax. Veltið bit-
unum upp úr hveiti, dýfið of-
an í deigið og svo beint í ol-
íuna. Djúpsteikið fiskinn í
sirka 3 mínútur.
Hvíta sósan
1 hrein jógúrt
1 lime
2 msk. majónes
dill
salt & pipar
Hrærið saman eina hreina dollu
af jógúrti og majónesi. Kreistið út
í þetta eitt gott lime og kryddið
síðan með góðum skammti af dilli,
salti og pipar.
Pico de Gallo
3 stórir tómatar
½ rauðlaukur
ferskur kóríander
1 hvítlauksrif
½ ferskur rauður chili (má sleppa)
1 lime
salt og pipar
Skerið tómatana í smá teninga
og saxið laukinn fínt. Blandið öllu
saman í skál og geymið látið
standa í hálftíma áður en smakkað
er til þar sem bragðið af hvítlauk-
num og kóríandernum getur verið
lengi að skila sér.
Pönnukökurnar eru hitaðar. Ég
nota litlar pönnukökur.
Ég set fyrst chili majó (til dæm-
is Sriracha majó). Ofan á fiskinn,
kemur svo guacamole, pico de
gallo og svo niðursaxað kínakál.
Hið goðsagnar-
kennda fiskitakkó
Kristínar Soffíu
Fiskitakkó! Má það? Velti ég fyrir mér þegar lítil
fluga hvíslaði því að mér að borgarfulltrúinn Kristín
Soffía Jónsdóttir væri þekkt fyrir þessa yfirburða
uppskrift sem gengur víst kaupum og sölum á net-
inu. Úr varð að Kristín Soffía féllst á að elda þennan
dularfulla rétt fyrir mig til að ég gæti myndað mér
mína eigin skoðun.
Einföld samsetning svo er takkóinu raðað saman eftir smekk.
Eldhugi og matargæðingur Kristín
Soffía er borgarfulltrúi Samfylking-
arinnar.
Morgunblaðið/Eggert