Morgunblaðið - 10.05.2018, Side 50

Morgunblaðið - 10.05.2018, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Agility Super 4 Super 8 Mini Comfort RAFSKUTLUR Í MIKLU ÚRVALI Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Það skal skýrt tekið fram að ég elska bæði takkó og fisk en hug- myndin um að splæsa þetta saman hljómaði dálítið eins og grillað slátur með guacamole. Kristín tók vel á móti mér í fallegu íbúðinni sinni í Laugarneshverfinu sem hún deilir með eiginmanni sínum, tveggja ára dóttur og hinum tign- arlega Sir Alex (Ferguson) sem er stór hvítur köttur af Maine Coon- kyni. Maturinn var nánast tilbúinn og Kristín notaði tímann til að segja mér frá því hvernig hún þróaði uppskriftina. „Ég fékk þetta á heilann eftir að hafa séð myndina I love you man þar sem allir voru alltaf að borða fiskitakkó. Mig langaði að prófa og lagði því mikla vinnu í að gúggla mér til óbóta og finna rétta grunninn. Uppskriftin sló strax í gegn og er í algjöru uppáhaldi,“ segir Kristín sem er mikill matgæðingur og veit fátt skemmtilegra en að elda. Kristín segir að viðbrögðin hafi verið æði blendin í byrjun þegar hún bauð gestum í mat og fiski- takkóið var í boði. „Fólki fannst þetta smá skrítið fyrst en núna er uppskriftin orðin að fastarétti hjá ansi mörgum. Ég get sagt enda- lausar frægðarsögur af takkóinu en þú verður bara að prófa.“ Og ég prófaði. Því er skemmst frá að segja að fiskitakkóið hennar Kristínar Soffíu er geggjað. Allir mínir fordómar hafa fuðrað upp og þetta er eitthvað sem ég mun klár- lega bjóða upp á á mínu eigin heimili. Kristín segir jafnframt að börn séu alveg jafn hrifin af því og fullorðnir sem er fullkomlega rök- rétt í ljósi þess hvað það er bragð- gott en bætir því við að til sé bæði sumar- og vetrarútgáfa af því. „Á veturna erum við í djúpsteiking- unni eins og þú ert að prófa en á sumrin erum við aðeins léttari á því. Þá grillum við fiskinn oft,“ segir Kristín og ég ímynda mér að það sé alveg jafn gott. Fiskitakkó! Þessi réttur kemur upp- haflega frá Baja í Mexíkó en er líka gríðarlega vinsæll víða í Bandaríkjunum og þá sérstaklega Kaliforníu. Það eru til endalausar útgáfur af honum og oft er fiskurinn djúpsteiktur. Í þessari er þorskurinn grillaður sem gerir réttinn léttari og sum- arlegri. Með þessu er borin fram sósa sem heitir einfaldlega hvít sósa, pico de gallo og svo niðursaxað kínakál og guacamole. Hér kemur uppskriftin fyrir fjóra – nákvæm hlutföll eru svolítið smekkur hvers og eins. Fiskurinn 800 g ósaltaðir þorskhnakkar 1 bjór 6 msk. hveiti 1 tsk. lyftiduft Mexíkósk kryddblanda – paprika, cumin, cayenne, kóríander salt og pipar repjuolía Hrærið saman hveiti, kryddi og lyftidufti. Blandið við bjór, bland- an á að vera á við þykkt lakk. Skerið fiskinn niður í bita á stærð við feita putta og þurrkið vel með eldhúspappír. Hitið olíu í potti eða djúpri pönnu, mér finnst pannan þægilegri en bitarnir verða að ná að fljóta í olíunni. Athugið hitastigið á olíunni með því að setja dropa af deigi út í, það á að steikjast strax. Veltið bit- unum upp úr hveiti, dýfið of- an í deigið og svo beint í ol- íuna. Djúpsteikið fiskinn í sirka 3 mínútur. Hvíta sósan 1 hrein jógúrt 1 lime 2 msk. majónes dill salt & pipar Hrærið saman eina hreina dollu af jógúrti og majónesi. Kreistið út í þetta eitt gott lime og kryddið síðan með góðum skammti af dilli, salti og pipar. Pico de Gallo 3 stórir tómatar ½ rauðlaukur ferskur kóríander 1 hvítlauksrif ½ ferskur rauður chili (má sleppa) 1 lime salt og pipar Skerið tómatana í smá teninga og saxið laukinn fínt. Blandið öllu saman í skál og geymið látið standa í hálftíma áður en smakkað er til þar sem bragðið af hvítlauk- num og kóríandernum getur verið lengi að skila sér. Pönnukökurnar eru hitaðar. Ég nota litlar pönnukökur. Ég set fyrst chili majó (til dæm- is Sriracha majó). Ofan á fiskinn, kemur svo guacamole, pico de gallo og svo niðursaxað kínakál. Hið goðsagnar- kennda fiskitakkó Kristínar Soffíu Fiskitakkó! Má það? Velti ég fyrir mér þegar lítil fluga hvíslaði því að mér að borgarfulltrúinn Kristín Soffía Jónsdóttir væri þekkt fyrir þessa yfirburða uppskrift sem gengur víst kaupum og sölum á net- inu. Úr varð að Kristín Soffía féllst á að elda þennan dularfulla rétt fyrir mig til að ég gæti myndað mér mína eigin skoðun. Einföld samsetning svo er takkóinu raðað saman eftir smekk. Eldhugi og matargæðingur Kristín Soffía er borgarfulltrúi Samfylking- arinnar. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.