Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
M.BENZML 350 BLUETEC 4MATIC
nýskr. 09/2013, ekinn 66 Þ.km, dísel (259hö),
sjálfskiptur. Glæsilegt eintak! Verð 7.390.000 kr.
Raðnúmer 287767
KIA SPORTAGE LUXURY
nýskr. 03/2017, ekinn 59 Þ.km, dísel, sjálfskiptur,
leður, 19“ felgur o.fl. Tilboðsverð 4.190.000 kr.
Raðnúmer 230787
ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI
MINI ONE COUNTRYMAN
nýskr. 07/2014, ekinn 54 Þ.km, bensín, 6 gíra.
Geggjaður bíll! Verð 2.880.000 kr.
Raðnúmer 257394
KIA SPORTAGE EX
nýskr. 03/2017, ekinn 60 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur. Mjög snyrtilegt og flott eintak!
Tilboðsverð 3.950.000 kr. Raðnúmer 230790
KIA SPORTAGE LUXURY
nýskr. 11/2016, ekinn 40 Þ.km, dísel, sjálfskiptur,
leður, aukafelgur, krókur o.fl.Verð 4.290.000 kr.
Raðnúmer 257865
Bílafjármögnun Landsbankans
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Hörmulegar fréttir bárust frá Mar-
okkó um miðjan apríl: að menn
vopnaðir rifflum hefðu verið á ferð í
skjóli nætur og stráfellt götuhunda í
nokkrum fallegum strandbæjum.
Dýraverndarsinnar, sem höfðu
reynt að sinna þessum hundum,
gelda þá og bólusetja, greindu frá
voðaverkunum og birtu ljótar mynd-
ir af blóðugum hræjum ferfætling-
anna sem hafði verið staflað upp.
Reyndust það vera stjórnvöld sem
höfðu gert byssumennina út af örk-
inni, en tilefnið var heimsókn sendi-
nefndar FIFA sem var væntanleg til
Marokkó til að skoða aðstæður og
ákveða hvort landið fái að hýsa
heimsmeistaramótið í knattspyrnu
árið 2026. Marokkó vildi sýna sendi-
nefndinni sínar bestu hliðar og ein-
hver hafði ákveðið að það að hafa
hunda á vappi gæti farið illa í gest-
ina.
Aftökur og dauðsföll
Götuhundarnir í Marokkó eru
ekki þeir fyrstu sem gjalda fyrir
offors stjórnvalda í tengslum við
íþróttaviðburði. Mannréttinda- og
dýraverndarsamtök hafa lengi bent
á að alltof oft séu mannréttindi brot-
in og dýravelferð fótum troðin þegar
efnt er til stórra íþróttamóta.
„Er skemmst að minnast Ólymp-
íuleikanna í Ríó de Janeiro þar sem
lögreglan gekk fram af mikilli hörku
gegn ákveðnum samfélagshópum og
tók fólk jafnvel af lífi án dóms og
laga á götum úti,“ segir AnnaL-
úðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Ís-
landsdeildar Amnesty International.
„Þá hafa mannréttindasamtök mikl-
ar áhyggjur af hörmulegum aðbún-
aði farandverkafólks sem undirbýr
HM í knattspyrnu í Katar árið 2022,
en Amnesty International hefur
kallað eftir umbótum þar að lútandi,
að ofbeldisfullt atvinnuleyfiskerfi
sem þar viðgengst verði bannað um
leið og gerð verður rannsókn á þeim
dauðsföllum sem orðið hafa í
tengslum við undirbúning heims-
meistaramótsins þar í landi.“
Hallgerður Hauksdóttir hjá Dýra-
verndarsambandi Íslands segir líka
algengt að dýrin líði fyrir íþrótta-
viðburði mannfólksins. Þannig hafi
stjórnvöld í Rússlandi verið harð-
lega gagnrýnd fyrir að drepa þús-
undir hunda í aðdraganda vetraról-
ympíuleikanna í Sochi árið 2014 og
grunsemdir hafi verið um hunda-
dráp vegna Ólympíuleikanna í Bras-
ilíu 2016. Þegar Kína hélt leikana ár-
ið 2008 var hundum og köttum
smalað af götunum í massavís og
dýrin drepin með ómannúðlegum
hætti.
Íþróttahreyfingarnar
hafa tekið sig á
Góðu fréttirnar eru þær að það
virðist horfa til betri vegar í þessum
málum. Líney Rut Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri ÍSÍ, segir að hjá
samtökum eins og alþjóðaólymp-
íuhreyfingunni megi greina aukna
meðvitund um mannúðarmál og þess
sé betur gætt nú en áður að Ólymp-
íuleikar bitni ekki á fólki, dýrum eða
lífríki. Á síðsta ári samþykkti ólymp-
íuhreyfingin nýjar reglur sem gera
enn ríkari kröfur til þeirra landa
sem hýsa leikana um að þau standi
rétt að mannréttindamálum. „Fjöldi
íþróttahreyfinga, mannréttinda-
samtaka og annarra hagsmunaaðila
hefur líka nýlega tekið höndum sam-
an á nýjum vettvangi, Mega Sport-
ing Events Platform for Human
Rights (MSE Platform), þar sem
unnið er að því með markvissum
hætti að mannréttindi séu virt þegar
stórir íþróttaviðburðir, af hvaða toga
sem er, eru haldnir,“ segir hún.
Klara Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri KSÍ, segir knattspyrnuhreyf-
ingar á Norðurlöndunum m.a. hafa
beitt sér sérstaklega í málum far-
andverkamanna í Katar. Var Klara
hluti af tuttugu manna sendinefnd
sem skoðaði aðstæður og reyndi að
leggja sitt lóð á vogarskálarnar.
„Knattspyrnusambönd Norðurlanda
hafa sameinast um að þrýsta á móts-
haldara og á FIFA um að ástandið í
Katar verði bætt,“ segir hún og
harmar að stór íþróttamót eins og
HM í Katar skuli stundum eiga sínar
skuggahliðar. „Það er okkar bjarg-
fasta trú að við getum haft áhrif til
góðs og að knattspyrna eigi að vera
jákvætt sameiningarafl.“
Erum að bregðast
íþróttafólkinu okkar
Fréttirnar frá Marokkó benda þó
til þess að enn sé pottur víða brot-
inn. „Mér þætti viðeigandi að
íþróttahreyfingarnar vektu máls á
þessu, enda varpar þjáning dýra og
manna stórum skugga á marga
íþróttaviðburði,“ segir Hallgerður
hjá Dýraverndarsambandinu. „Því
miður virðist fólk alltof oft velja að
leiða þetta hjá sér og ekki vilja
hrófla við því þegjandi samkomulagi
sem ríkir um að svona hlutir séu í
lagi. Við erum ekki aðeins að bregð-
ast varnarlausum dýrum og fólki
sem á um sárt að binda, heldur erum
við líka að bregðast íþróttafólkinu
okkar með því að senda það til
keppni á mótum þar sem viðburð-
urinn beinlínis veldur þjáningu eða
dauða annarra.“
Þegar dýr og
menn gjalda fyrir
íþróttaviðburði
Margir hafa áhyggjur af stöðu verkafólks í Katar vegna
HM Í Marokkó voru götuhundar drepnir vegna FIFA
AFP
Hættur Farandverkamenn ganga til vinnu sinnar við al-Wakrah leikvanginn í Katar, fyrir HM í knattspyrnu 2022.
Hundruðir manna hafa látið lífið við byggingaframkvæmdir eftir að ljóst var að landið myndi hýsa keppnina.
Anna
Lúðvíksdóttir
Hallgerður
Hauksdóttir
Líney Rut
Halldórsdóttir
Klara
Bjartmarz
Getty Images/iStockphoto
Sakleysingjar Hvolpar spóka sig um í marokkósku þorpi. Aðgerðir stjórn-
valda beindust að hundum í bæjum sem fulltrúar FIFA vildu heimsækja.