Morgunblaðið - 10.05.2018, Side 32
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt nýtt
deiliskipulag fyrir svæði milli
Hraunbæjar og Bæjarháls í Árbæj-
arhverfi. Í breytingunum felst að
heimilt verður að byggja um 200
íbúðir á reit sem áður var opið grænt
svæði.
Gert er ráð fyrir að húsin geti ver-
ið 2-5 hæðir. Bílastæði ofanjarðar
verða um 200. Hraunbær er fjöl-
mennasta gata Reykjavíkur og þar
búa á þriðja þúsund manns.
Íbúar í Hraunbæ 144 gerðu alvar-
legar athugasemdir við þessi áform
borgarinnar en þau voru auglýst
fyrr á þessu ári.
„Við mótmælum því þessu mikla
byggingamagni sem á að troða á
svæðið milli ofanverðs Hraunbæjar
og Bæjarháls. Þótt byggðin næst
Hraunbænum eigi samkvæmt tillög-
unum jafnan að vera lægri (raðhús á
tveimur hæðum) eru 4-5 hæða
blokkirnar norðan við þau ráðandi
og verða eins og múr sem tekur allt
útsýni úr íbúðunum við Hraunbæ,
m.a. til Esjunnar,“ segir m.a. í bréfi
íbúanna til borgarinnar.
„Alvarlegur forsendubrestur“
Íbúarnir segja að ein af ástæðum
þess að fólk kýs að búa í úthverfi sé
„Múr sem tekur allt útsýni
úr íbúðunum til Esjunnar“
Morgunblaðið/Rósa Braga
Árbæjarhverfi Við Hraunbæ sunnanverðan er löng röð af fjölbýlishúsum.
Húsin við götuna eru 3-4 hæðir og byggð á sjöunda áratug síðustu aldar.
Íbúar við Hraunbæ ósáttir við nýja 200 íbúða byggð
Laugardaginn 12. maí næstkomandi
stendur til að safna saman þeim sem
eiga æskuminningar úr Skjólunum í
Reykjavík, nánar tiltekið frá Vega-
mótum við Nesveg og í Granaskjól-
inu. Fyrirhugað er að hittast við
Vegamót kl. 13 og ganga saman um
æskuslóðirnar.
Núverandi íbúar eru sagðir vel-
komnir og hvattir til að mæta en all-
nokkrir þeirra eru af annarri og
þriðju kynslóð frumbyggja Skjól-
anna. „Markmiðið er fyrst og fremst
að hafa gaman af, hitta gamla vini og
félaga, spjalla saman, rifja upp
bernskubrekin og leikina. Gaman
væri ef einhverjir hefðu uppi í erm-
inni sögulegan fróðleik af svæðinu
eða skemmtilegar sögur að segja
frá. Ekki síður væri áhugavert að
heyra af upplifun þeirra sem nú búa
við Nesveg og Granaskjól þar sem
farið verður um,“ segir í tilkynningu
frá aðstandendum göngunnar.
Gengið verður frá Vegamótum
suður Nesveg að Kaplaskjóli og síð-
ar inn Granskjólið að Vegamótum.
Eftir röltið er ætlunin að koma sam-
an á Rauða ljóninu yfir spjalli og
hressingu.
Frekari upplýsingar má nálgast á
Facebook-síðunni Skjólarar.
Ljósmynd/Ólafur B. Schram
Skjólarar Frá síðustu göngu um Vesturbæinn, á gamlar æskuslóðir.
Skjólarar koma sam-
an í Vesturbænum
25%
Vinur við veginn
Smellugashylkin eru sterk en
mjög létt og þægileg í
meðförum. Skipt er um hylki
með aðeins einu handtaki.
Gasáfyllingin fæst með 25%
afslætti til 13. maí.
AFSLÁTTUR AF
SMELLUGASI
TIL 13. MAÍ
Framsögur:
• Birgir Guðjónsson læknir, MACP, FRCP
• Guðjón Baldursson, læknir
• Guðjón Sigurbjartsson, viðskiptafræðingur
• Hallgrímur Þór Sigurðsson, meðeigandi hjá Nordic
arkitektastofunni í Noregi
• Ólafur Sæmundsson, byggingstjóri.
• Dr. Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfræðingur FSFFí, lektor
• Sigurður R. Ragnarsson forstjóri ÍAV
• Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri.
Skráning frá 13:45.
Fundurinn hefst kl. 14:00 og stendur til 16:30.
Skráning er á www.betrispitali.is/skraning.
Ráðstefnugjald kr. 1.500.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
NÝTT ÞJÓÐARSJÚKRAHÚS
Á BETRI STAÐ EÐA VIÐBYGGING
VIÐ HRINGBRAUT?
Hvað vinnst, hvað tapast?
FÖSTUDAGINN 11. MAÍ 2018
KL. 14:00-16:30, Í NORRÆNA HÚSINU
Opinn fundur Samtaka um betri spítala á betri stað með
fagfólki á ýmsum sviðum og fulltrúm stjórnmálaflokkanna
í höfuðborginni.
• Hvernig á að velja stað fyrir þjóðarsjúkrahús?
• Tekur lengri tíma að byggja nýjan spítala á nýjum stað?
• Er dýrara að byggja nýjan Landspítala á nýjum stað?
• Er Hringbraut vandamál fyrir sjúkraflutninga?
• Hvað er mikilvægast að gera fyrir heilbrigðiskerfið meðan
beðið er eftir nýjum spítala?
Fjallað verður um þessar spurningar og fleiri frá ýmsum hliðum
af sérfræðingum. Síðan munu fulltrúar framboðanna í borginni
lýsa sinni afstöðu.
Vigdís
Hauksdóttir,
Miðflokkurinn
Hjálmar
Sveinsson,
Samfylkingin
Dóra Björt
Guðjónsdóttir,
Píratar
Snorri
Marteinsson,
Höfuðborgar-
listinn
Ágúst Örn
Gíslason,
Frelsis-
flokkurinn
Kolbrún
Baldurs-
dóttir, Flokkur
fólksins
Eyþór
Arnalds,
Sjálfstæðis-
flokkur
Sveinbjörg
Birna Svein-
björnsdóttir,
Borgin okkar
Reykjavík
Guðmundur
Þorleifsson,
Íslenska
þjóðfylkingin
Þorvaldur
Þorvaldsson,
Alþýðu-
fylkingin