Morgunblaðið - 10.05.2018, Qupperneq 37
Íbúar í sveitarfélögunum á Norðurlandi eystra eru samtals 30.453 en
21.632 eru á kjörskrá.
Stærsta sveitarfélagið er Akureyrarkaupstaður en íbúar þar eru 18.787.
Fæstir íbúar eru í Tjörneshreppi, 58 talsins.
Í kosningunum 26.maí munu 85 frambjóðendur taka sæti í 13 sveitar-
stjórnum, hreppsnefndum og bæjarstjórnum á Norðurlandi eystra.
Morgunblaðið/Hari
ur þegar breska ferðaskrifstofan
Superbreak var með ferðir hingað.
Það verkefni tókst glimrandi vel og
framhald verður á. En flugvöllurinn
er orðinn flöskuháls. Aðstaðan er
þannig að menn ráða ekki við
þetta. Það þarf að bæta aðflugs-
búnað og erfitt er að framkvæma
vegabréfaskoðun. Að auki er
Akureyrarflugvöllur varaflugvöllur
fyrir Keflavík, það hefur komið fyr-
ir að ekki er pláss fyrir allar vélar.
Það er mikill samhugur í
landshlutanum um þetta. Þetta
skiptir ferðaþjónustuna gríðarlegu
máli og er um leið mjög stórt at-
vinnumál, sennilega það stærsta á
svæðinu fyrir utan rafmagnið.“
Hann segir að tilkoma Vaðla-
heiðarganga muni bæta samgöngur
mikið en önnur stór samgöngu-
framkvæmd bíði úrlausnar. „Hér
ríkir mikill einhugur um Dettifoss-
veg. Það er forgangsverkefni að
klára hann. Þetta hefur gengið of
hægt og það er langur kafli eftir.
Menn þrýsta á um að þetta sé klár-
að þannig að framkvæmdin fari að
virka. Það er rosalega stór hluti af
þeirri náttúruupplifun sem ferða-
menn sækja í á svæðinu að ná
þessum hring. Og þótt þetta sé
ekki hagsmunamál beint fyrir íbúa
er óhemju sterk samstaða um þetta
mál.“
Umhverfismál á dagskrá
Fyrir utan áðurnefnd þrjú stór
mál eru ýmis mál sem snúa að fjöl-
skyldum sem upp komu í samtölum
við íbúa. Víða þykir betur mega
hlúa að barnafjölskyldum og ung-
mennum. Til að mynda krefjast
margir þess að börn verði tekin
fyrr inn á leikskóla en nú er. Þetta
á ekki síst við um stóru þéttbýlis-
kjarnana.
Þá eru umhverfismál meira í
umræðunni en áður. Sífellt fleiri
láta sig sorphirðu og endurvinnslu
varða. Eins eru rafbílar fólki nokk-
uð hugleiknir. Telja margir íbúar
að fjölga þurfi hleðslustöðvum til
að raunhæft sé að rafbílavæða flot-
ann.
Tveir þriðju búa á Akureyri
Íbúum á Norðurlandi eystra
hefur fjölgað að undanförnu. Fjölg-
unin nam um 800 manns frá árs-
lokum 2016 og til ársloka 2017. Alls
búa ríflega 30 þúsund íbúar á
svæðinu. Þar af búa tveir þriðju
hlutar á Akureyri og nágrenni en
afgangurinn deilist niður á tólf
sveitarfélög. Þessi sterki þjón-
ustukjarni mótar mjög uppbygg-
ingu á svæðinu og sumum finnst að
minni staðir verði útundan.
Þetta kemur til dæmis fram í
máli Agnesar Önnu Sigurðar-
dóttur, framkvæmdastjóra Brugg-
smiðjunnar Kalda á Árskógssandi
og Bjórbaðanna.
„Við á Árskógssandi erum
hluti af Dalvík og Bjórböðin eru,
að ég held, stærsti ferðamanna-
staðurinn hér. Vegurinn hér niður
að Bjórböðunum fékkst ekki mal-
bikaður í fyrra og aðkoman er
slæm. Þannig er þetta. Bíllinn sem
þrífur göturnar á Dalvík þrífur allt
þar en kemur ekki hingað fyrr en
búið er að hringja fimm sinnum.
Hér eru samt bara þrjár götur sem
þarf að sópa. Við verðum útundan í
þessu bæjarbatteríi og það held ég
að eigi við um fleiri,“ segir Agnes,
sem kveðst telja að sameining
sveitarfélaga myndi bæta stöðuna.
Vill sameina sveitarfélög
„Ég hefði viljað sjá að við
myndum sameinast, allur Eyja-
fjörðurinn. Ég held að það væri
farsælt fyrir okkur. Þá væri ein
stjórnsýsla, það væri skynsamt fólk
sem ynni fyrir alla. Ég held að það
sé alltaf hættulegt þegar eru litlar
einingar, þegar það er ein stærri
og margar litlar í kring. Þá er auð-
velt að hugsa bara um miðjuna.
Grímsey og Hrísey sameinuðust
Akureyri og ég held að það hafi
verið mjög farsælt. Maður heyrir
sömu raddir í Svarfaðardal og hér.
Fólk upplifir það þannig að hægt
sé að gera hluti í stóru þorpunum
en ekki þeim litlu.“
Húsavík Kísilver PCC á Bakka gjörbreytir atvinnulífinu í bænum.
Agnes Anna
Sigurðardóttir,
Árskógssandi
„Ég hefði viljað sjá
að við myndum sam-
einast, allur Eyja-
fjörðurinn. Fólk upp-
lifir það þannig að
hægt sé að gera hluti
í stóru þorpunum en
ekki þeim litlu.“
Pétur Þór Jónasson, Akureyri
„Flugvöllurinn er orðinn flöskuháls.“
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Óhætt er að segja að fjölgun
ferðamanna hafi gjörbreytt
framboði af veitingastöðum og
ýmiskonar afþreyingu á Norð-
urlandi eystra. Á Akureyri
hefur veitingastöðum og kaffi-
húsum fjölgað og það sama er
uppi á teningnum víðast hvar.
Ferðamenn geta nú smakk-
að spennandi bjór hjá Kalda á
Árskógsströnd, Segli 67 á
Siglufirði og Húsavík Öl og
skellt sér í bjórbað hjá Kalda.
Þá er ómissandi fyrir fólk
sem heimsækir Siglufjörð að
kíkja við á súkkulaðikaffihúsi
Fríðu Bjarkar Gylfadóttur.
Þar er hægt að fá handgerða
konfektmola úr belgísku úr-
valssúkkulaði, meðal annars
bjórkonfektmola, gráðaosta-
konfektmola, rúgbrauðs-
konfektmola og sítrónukon-
fektmola. Ekki skemmir fyrir
að loft staðarins er veggfóðrað
með gömlum síðum úr Morg-
unblaðinu og listaverk Fríðu
eru til sölu á staðnum.
Fjölbreytni þrífst
Morgunblaðið/Hari
Bjórböðin Nýjung fyrir ferða-
menn á Norðurlandi eystra.
Súkkulaði
og bjór
Morgunblaðið/Hari
Dalvík Steingrímur Sigmar býr á Akureyri en rær oftast frá Siglufirði á sumrin.
Næst verður haldið á höfuð-
borgarsvæðið og fjallað um það
sem þar er efst á baugi fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar 26. maí.
Á laugardag
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Alhliða þjónusta fyrir vökvadælur
og vökvamótora
Sala - varahlutir - viðgerðir