Morgunblaðið - 10.05.2018, Síða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Hvor í sína áttina Misjafnt er hvað fólk aðhefst í frítíma sínum; sumir fara í golf en aðrir fara í reiðtúr. Þessir tveir voru á ferð við golfvöllinn í Mosfellsbæ á dögunum.
Hari
Þjónustukannanir
sýna aukna ánægju
með þjónustu Hafn-
arfjarðarbæjar við eldri
borgara á milli ára, en
við sjálfstæðismenn vit-
um að það má gera enn
betur í þeim efnum. Og
það ætlum við að gera
fáum við til þess stuðn-
ing í sveitarstjórn-
arkosningunum.
Eitt af því sem farið
var af stað með á kjörtímabilinu,
sem senn er á enda, var markviss
heilsuefling eldri borgara sem hefur
notið mikilla vinsælda. Fór bærinn í
það verkefni í samstarfi við Janus
Guðlaugsson íþróttafræðing og hafa
þannig hundruð Hafnfirðinga, 65 ára
og eldri, stigið stór
skref í að efla heilsu
sína og auka þar með
lífsgæði.
Hafnarfjörður er
heilsueflandi samfélag
og leggur áherslu á
góða aðstöðu til úti-
vistar og hreyfingar,
jafnt innan dyra sem
utan. Ánægjulegt er
að sjá hve eldri borg-
arar hafa nýtt sér vel
íþróttahús bæjarins til
göngutúra yfir vetr-
artímann. Þá hefur
Hafnarfjarðarbær nýlega hækkað
frístundastyrkinn sem eldri borg-
urum stendur til boða, og er eina
sveitarfélagið sem greiðir þannig
niður íþrótta- eða líkamsræktarþátt-
töku þessa aldurshóps. Þá er einnig
frítt í sund fyrir Hafnfirðinga 67 ára
og eldri og hyggst Sjálfstæðisflokk-
urinn stórbæta alla aðstöðu til
heilsueflingar við útisundlaugina,
Suðurbæjarlaug.
Lækkun fasteignaskatta
á eldri borgara
Á þessu kjörtímabili hefur af-
sláttur eldri borgara á fast-
eignasköttum verið aukinn umtals-
vert. Hafnarfjörður er nú kominn í
hóp þeirra sveitarfélaga sem veita
mestan afslátt til ellilífeyris- og ör-
orkuþega. Það gerir mörgum eldri
borgurum kleift að búa í eigin hús-
næði lengur en ella. Öldungaráð
Hafnarfjarðar hefur verið í góðu
samstarfi við bæjaryfirvöld und-
anfarin ár og hefur ráðið lagt
áherslu á lækkun fasteignaskatts á
fundum sínum með bæjar- og fjöl-
skylduráði.
Öflugur bær – öflug þjónusta
Í Hafnarfirði getum við státað af
öflugri heima- og ferðaþjónustu fyr-
ir aldraða og bærinn styður vel við
það góða félags- og tómstundastarf
sem félag eldri borgara stendur fyr-
ir. Æskilegt er að fjölga enn frekar
möguleikum til félagsstarfs þeirra
og koma upp aðstöðu fyrir skapandi
tómstundastarf. Einnig er brýnt að
fjölga dagdvalarrýmum. Þá viljum
við sjálfstæðismenn að byggðar
verði íbúðir með þjónustukjarna fyr-
ir eldri borgara og aðstöðu til fé-
lagsstarfs miðsvæðis á Völlum í
þeim ört vaxandi bæjarhluta.
Með haustinu verður opnað glæsi-
legt hjúkrunarheimili við Sólvang
þar sem miðstöð öldrunarþjónustu
verður og unnið er að því að fjölga
hjúkrunarrýmum um 33 og sér nú
vonandi fyrir endann á því.
Við sjálfstæðismenn viljum halda
áfram á þessari braut og tryggja
eldri borgurum þá allra bestu þjón-
ustu sem völ er á. Traustur rekstur
bæjarins þar sem ábyrgð og festa
ríkir í fjármálum er grundvöllur
þess að hægt sé að auka enn frekar
þjónustuna og ætlum við sjálfstæð-
ismenn okkur að halda því áfram á
næsta kjörtímabili.
Eftir Rósu
Guðbjartsdóttur » Við sjálfstæðismenn
viljum halda áfram
á þessari braut og
tryggja eldri borgurum
þá allra bestu þjónustu
sem völ er á.
Rósa
Guðbjartsdóttir
Höfundur er oddviti
Sjálfstæðisflokksins og formaður
bæjarráðs Hafnarfjarðar.
Vel hlúð að eldri borgurum í Hafnarfirði
Fyrir síðustu kosn-
ingar lofaði Samfylk-
ingin 3.000 leiguíbúð-
um fyrir „venjulegt
fólk“. Fjórum árum
síðar bólar ekkert á
þeim. Í stað þess að nú
séu íbúðir á hagstæð-
ara verði en fyrir fjór-
um árum er reyndin
önnur.
Hvar eru íbúðirnar?
Verðið er 50% hærra. Íbúðirnar
skiluðu sér ekki á markaðinn. Íbúð-
irnar finnast bara í kynningarefni.
Búið er að úthluta fjölda lóða, en
þær eru bundnar skilyrðum og hafa
ekki verið byggðar.
Það skiptir litlu máli
hverju er lofað en öllu
hvað er efnt. Húsnæð-
isstefna núverandi
borgarstjórnar hefur
skilað dýrum og fáum
íbúðum. Uppsöfnuð
þörf fyrir húsnæði hef-
ur aukist á hverju ári. Í
fyrra voru tíu nýir íbú-
ar um hverja íbúð í
Reykjavík. Ekki
minnkaði markaðs-
bresturinn við það.
Borgin bjó til húsnæðisskort
Á ráðstefnu Samtaka atvinnulífs-
ins í gærmorgun kom skýrt fram
hvernig tafir við skipulagsvinnu í
Reykjavík hafa valdið skorti á hús-
næðismarkaði. AirBnB hefur tekið
til sín mikið af íbúðum og hefur
ráðaleysi borgarinnar leitt til þess
að íbúum í miðborg Reykjavíkur
hefur fækkað mikið á síðustu árum.
Skortur á nýjum íbúðum ásamt mik-
illi álagningu borgarinnar á húsnæði
hefur hrakið marga úr borginni.
Ungt fólk er í vaxandi mæli heima
hjá foreldrum. Byggingarréttur á
íbúð getur kostað 7-10 milljónir.
Nærri helmingur kostnaðar við nýja
íbúð í Reykjavík er fólginn í gjöldum
borgarinnar, vaxtakostnaði og öðr-
um gjöldum. Aðeins helmingur
kostnaðarins er hinn eiginlegi bygg-
ingarkostnaður; steypa, lagnir og
innréttingar.
Raunsæjar lausnir
D-listi Sjálfstæðisflokksins hefur
boðað hagkvæmar húsnæðislausnir
á hagstæðum svæðum. Spennandi
húsnæðiskostir í Örfirisey við
Granda sem henta vel fyrir fyrstu
kaup munu rísa ef við fáum til þess
umboð í kosningunum 26. maí. Sama
er að segja um Keldur þar sem þjón-
usta og byggð fara vel saman. Við
horfum ennfremur til þess að efla
Breiðholtið og þá ekki síst með upp-
byggingu við Mjódd sem liggur á
frábærum stað í miðju höfuðborg-
arsvæðisins með góðar tengingar.
Allir þessir kostir munu að sama
skapi létta á umferð, sem er mjög
mikil í vesturátt á morgnana og í
austur síðdegis. Með því að íbúð-
arbyggð sé í nálægð við vinnustaði
minnkar álag á vegakerfið. Þessar
lausnir eru nauðsynlegar til að ná
jafnvægi á húsnæðismarkaðnum.
Með þessu verður Reykjavík aftur
samkeppnishæf. Það er það sem
þarf.
Eftir Eyþór Arnalds »Húsnæðisstefna nú-
verandi borgar-
stjórnar hefur skilað
dýrum og fáum íbúðum.
Uppsöfnuð þörf fyrir
húsnæði hefur aukist á
hverju ári.
Eyþór Arnalds
Höfundur er borgarstjóraefni Sjálf-
stæðisflokksins.
Húsnæði fyrir fólk