Morgunblaðið - 10.05.2018, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Ísfell ehf, Óseyrarbraut 28
220 Hafnarfjörður, Sími 5200 500
www.isfell.is, isfell@isfell.is
Höfum á lager mikið úrval af alskyns vinnufatnaði, hífi- og festingabúnaði, krönum og talíum, snjókeðjum,
pökkunarlausnum og fallvarnarbúnaði. Í vörulistanum á www.isfell.is er að
finna ítarlegar upplýsingar um allar vörur.
Vinnufatnaður Hífilausnir Kranar og talíur Snjókeðjur Pökkunarlausnir Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna!
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Af hálfu Faxaflóahafna sf. er áhugi á
því að háspennukerfi verði komið fyr-
ir í nýjum hafnarbakka utan Klepps
og samþykkir stjórn Faxaflóahafna
sf. að hagkvæmni þess verði skoðuð í
samvinnu við hagsmunaaðila. Jafn-
framt lýsir stjórn Faxaflóahafna sf.
yfir vilja til að skoða samstarf við
hagsmunaaðila um önnur tækifæri í
aukinni notkun raforku, sem fallin
eru til þess að draga úr losun gróð-
urhúsalofttegunda á hafnarsvæðum
fyrirtækisins.
Þetta segir í ályktun sem stjórn
Faxaflóahafna hefur samþykkt.
Á grundvelli reglugerðar um
brennisteinsinnihald eldsneytis skipa
hefur stjórn Faxaflóahafna sam-
þykkt að öll skip sem geta tengst raf-
magni skuli landtengd meðan þau
liggja í höfn. Unnið er að styrkingu á
núverandi rafdreifikerfi hafnarinnar
með það að markmiði að tengja fleiri
skip en mögulegt hefur verið hingað
til. Stærri skip, svo sem flutningaskip
og skemmtiferðaskip verða ekki
tengd rafmagni frá landi nema til
komi háspennukerfi, sem er kostn-
aðarsamt verkefni. Þær erlendu
hafnir sem hingað til hafa komið upp
slíkum búnaði hafa notið til þess
verulegra styrkja frá opinberum að-
ilum, segir í ályktuninni.
Landtengingar mikilvægar
Í tillögu að þingsályktun um
stefnumótandi byggðaáætlun fyrir
árin 2018 til 2024 er m.a. kveðið á um
styrkja innviði fyrir rafvæðingu
hafna, þ.m.t. aðgengi að raforkuteng-
ingum í höfnum. Þetta eigi að stuðla
að orkuskiptum í samgöngum. Til
þess að ná árangri í háspennuvæð-
ingu hafna sé ljóst að til þarf að koma
stefnumótun ríkis og fjárframlag til
að hrinda verkefninu í framkvæmd.
Stjórn Faxaflóahafna sf. lýsir yfir
vilja til þess að taka þátt í mótun
stefnu á þessu sviði, en mikilvægt er
að orkufyrirtæki og fulltrúar skipa-
útgerða komi einnig að málum. Með
landtenginu stærri skipa og tilkomu
afhendingarbúnaðar háspennu sé án
vafa unnt að ná raunverulegum ár-
angri í að takmarka losun gróður-
húsalofttegunda í höfnum landsins,
en þeim árangri verður ekki náð
nema með samstilltu átaki allra aðila.
Ísland hefur undirgengist skuld-
bindingar í loftslagsmálum með und-
irritun Parísarsamkomulagsins og
skuldbundið sig til að ná ákveðnum
árangri fyrir árið 2030. Faxaflóa-
hafnir sf. hafa ásamt 104 fyrirtækjum
á Íslandi undirritað yfirlýsingu um
aðgerðir í loftslagsmálum og aðgerð-
ir til að minnka losun á gróðurhúsa-
lofttegundum. Loftslagsmál séu því
einn af meginþáttum vottaðarar um-
hverfisstjórnunar fyrirtækisins. Ís-
land sé háð siglingum og auðlindum
hafsins og því blasi sú skylda við að
grípa verði til markvissra aðgerða
svo vinna megi gegn hlýnun og súrn-
un sjávar.
Með auknum siglingum á norður-
höfum eykst mengun og hætta á
mengunarslysum ef ekkert er að
gert. „Aðgerðarleysi leiðir einnig til
þess að minni líkur eru á því að skuld-
bindingar Parísarsamkomulagsins
verði uppfylltar,“ segir í ályktuninni.
Morgunblaðið/Þórður
Risaskip til hafnar Stóru skemmtiferðaskipin sem hingað koma menga umtalsvert. Mikilvægt er að geta tengt þau við háspennukerfi rafmagns.
Dregið verði úr mengun
Innan Faxaflóahafna eru
stærstu hafnir landsins
og um þær fer megnið
af vöruinnflutningi og
útflutningi. Stjórn fyrir-
tækisins hefur sam-
þykkt ýmsar aðgerðir til
að draga úr mengun.
Vinnsla á kolmunna er nú hafin hjá
fiskmjölsverksmiðju HB Granda á
Akranesi eftir að Víkingur AK
landaði þar um 2.600 tonnum um
síðustu helgi. Að undanförnu hefur
veiðst vel af kolmunna í færeyskri
lögsögu og saxast á kolmunnakvót-
ann.
Á heimasíðu HB Granda er talað
við Albert Sveinsson, skipstjóra á
Víkingi AK, en skipið var á þriðju-
dag á leið á miðin í sinni fimmtu
kolmunnaveiðiferð eftir að veiðar
hófust að nýju fyrir tæpum mánuði.
,,Það er búin að vera mjög jöfn og
góð veiði. Það var reyndar kraftur í
henni á tímabili og menn voru að fá
400 til 500 tonna hol eftir sex til
átta tíma,“ segir Albert m.a. á
heimasíðunni.
Vinna kolmunna hjá
HB Granda á Akranesi
Mótun markvissrar aðgerða-
áætlunar um orkuskipti í ís-
lenskum höfnum með uppbygg-
ingu rafinnviða fyrir skip og
annarrar haftengdrar starfsemi
eru kjarninn í samningi sem
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
iðnaðar- og nýsköpunarráð-
herra undirritaði nýlega við
fyrirtækin Íslenska Nýorku og
Hafið-Öndvegissetur. Stefnt er
að því að niðurstöðum verði
skilað fyrir árslok.
Sérstaklega verður skoðað
með hvaða hætti stjórnvöld geti
hvatt til og stuðlað að frekari
uppbyggingu innviða og dregið
úr bruna jarðefnaeldsneytis og
mengun í íslenskum höfnum
með notkun innlendrar orku.
Samvinna verður höfð við hafnir
landsins, skipaútgerðir og orku-
og veitufyrirtæki.
Orkuskipti
í höfnum
SAMNINGUR YFIRVALDA