Morgunblaðið - 19.05.2018, Side 1
Hin ýmsu andlitÓlafs Egils
20. MAÍ 2SUNNUDAGUR
Áttræð ogaldrei litiðbetur út
Linda Hilmars-dóttir heldurkonunglegaveislu ítilefni afkonunglegubrúðkaupi 2
Jane Fonda 8
018
Öðruvísiveganréttir
girnilegir
réttir
ættaðir
frá Víet-nam 22
6
Hattar ogenskt te
L A U G A R D A G U R 1 9. M A Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 117. tölublað 106. árgangur
GJÖRNINGUR
Á SVIÐI ÞJÓÐ-
LEIKHÚSSINS
AUKALEIKARI
Í STAR WARS-
KVIKMYND
SARA BJÖRNSDÓTTIR 14STRÍÐ 53
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hóf í
gær lokaundirbúning sinn fyrir heimsmeist-
aramótið í Rússlandi en þá mættu fyrstu
fimm leikmennirnir sem komnir voru í frí
frá félagsliðum sínum á æfingu á Laugar-
dalsvellinum. Þeir hófu æfinguna í glaða-
sólskini en síðan skall á hríð og Sigurður
Þórðarson kom Herði Björgvini Magnússyni
til hjálpar með vettlinga.
Fjölmiðlar víða um heim sýna íslenska
landsliðinu og þátttöku þess á heimsmeist-
aramótinu mikinn áhuga. Sjónvarpsstöðvar
frá flestum heimshornum hafa heimsótt
landið til að fræðast um íslenska knatt-
spyrnuundrið og aðrar hyggja á Íslands-
ferð.
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari
hefur verið í tugum viðtala og er nánast
fullbókaður að sögn Ómars Smárasonar,
markaðsstjóra og upplýsingafulltrúa KSÍ.
Ómar segist fá margar sérkennilegar
spurningar, en sú skrýtnasta hafi tengst
mörgæsum og mataræði Íslendinga.
» 10 og Íþróttir
Morgunblaðið/Eggert
Skin og skúrir á fyrstu æfingunni fyrir HM
Tíu voru myrtir
og tíu eru særðir
eftir að 17 ára
nemandi við fram-
haldsskóla í Santa
Fe í Texas í
Bandaríkjunum
skaut á nemendur
og kennara skól-
ans.
Að því er fram
kemur í frétt
BBC hefur árásarmaðurinn, Dimitr-
ios Pagourtzis, verið hnepptur í varð-
hald.
Pagourtzis notaði skotvopn sem
faðir hans á og hafði leyfi fyrir.
Ríkisstjóri Texas, Greg Abbott,
sagði að mismunandi tegundir af
sprengjum hefðu fundist í nálægð við
framhaldsskólann. Hann sagði að
árásarmaðurinn hefði viljað svipta sig
lífi en skort kjarkinn til þess. »28
Tíu manns
féllu í Texas
Skotárás í fram-
haldsskóla í Santa Fe
Árás 10 myrtir og
10 slasaðir í skóla.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Áformað er að opna minnst 30 veit-
ingahús í miðborg Reykjavíkur á
næstu 18 mánuðum. Samhliða þess-
ari sögulegu fjölgun bendir margt til
að mörg veitingahús í miðborginni
standi ekki undir núverandi leigu.
Það gæti þýtt sársaukafulla aðlögun.
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri
Regins, segir dæmi um að búið sé að
„keyra svo upp leiguna að staðirnir
ráða ekki við það“. Vegna breyttrar
stöðu í veitingageiranum hefur Reg-
inn endurskoðað áform um fjölda
veitingarýma á Hafnartorgi.
Þurfa fleiri ferðamenn
Eins og rakið var í Morgunblaðinu
í gær eru vísbendingar um að spár
um fjölgun ferðamanna í ár rætist
ekki. Það sama gildir um veitingahús
og hótel að fyrirhugað er að stórauka
starfsemina í miðborginni næstu ár.
Mun sá rekstur eiga mikið undir því
að ferðamönnum fjölgi meira. Þeir
hagsmunir ná líka til lífeyrissjóða.
Mörg veitingahús fylgja hótelum.
Má þar nefna að við Laugaveg og
Lækjargötu eru að rísa þrjú hótel
sem verða með jafnmörgum veitinga-
húsum. Við Skúlagötu, Snorrabraut,
Hörpu, Héðinsreit og Austurvöll eru
sambærileg áform. Þá verður á
næstu vikum opnað nýtt hótel með
veitingahúsi á Tryggvagötu. Þessi
hótel munu rúma á annað þúsund
gesti hverja nótt, sem samsvarar
hundruðum þúsunda gistirýma á ári.
Frumskógarlögmálið ræður
Níels S. Olgeirsson, fyrrverandi
formaður Matvís, segir félagið ekki
hafa haft undan mikilli fjölgun veit-
ingahúsa í miðborginni. Þeim hafi
fjölgað svo hratt að samtökin hafi
ekki getað sinnt eftirliti með aðbún-
aði starfsfólks sem skyldi. Ítrekað sé
brotið á rétti þess. „Frumskógar-
lögmálið er látið ráða í miðbænum.
Það er vísvitandi svínað á fólki,“ segir
Níels.
Áform um tugi veitinga-
húsa á tímum samdráttar
Reginn endurskoðar áform um veitingarými á Hafnartorgi
Morgunblaðið/Frikki
Matur og vín Tugir nýrra veitinga-
húsa myndu kalla á hundruð starfa.
MHyggjast opna um 30 … »22
Rúmlega 100 manns eru látnir eftir
að Boeing 737-flugvél brotlenti
skömmu eftir flugtak frá Havana,
höfuðborg Kúbu. Samkvæmt BBC
lifðu þrír farþegar brotlendinguna af
en eru enn í lífshættu samkvæmt
Granma, fréttablaði kúbverska
kommúnistaflokksins. Kúbverska
ríkisflugfélagið hafði fengið vélina
að láni hjá mexíkóska flugfélaginu
Demojh. Förinni var heitið til borg-
arinnar Holguin á austanverðri
Kúbu. Vélin brotlenti á þjóðveginum
milli Boyeros og Havana.
AFP
Kúba Mannskætt flugslys varð nærri
kúbversku höfuðborginni, Havana.
100 látnir
í flugslysi