Morgunblaðið - 19.05.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Einbýlishús í Vesturbænum óskast
Höfum verið beðin að útvega viðskiptavini okkar 250-350 fm
einbýlishús í Vesturbænum.
Nánari uppl. veitir: Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali.
Raðhús í Fossvogi óskast
Höfum verið beðin að útvega viðskiptavini okkar raðhús í Fossvogi.
Nánari uppl. veita: Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali og
Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali.
Einbýlishús í Fossvogi óskast
Höfum verið beðin að útvega viðskiptavini okkar einbýlishús í
Fossvogi.
Nánari uppl. veita: Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali og
Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali.
Eignir óskast
588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Alpár Katona og Zoltán Szénássý,
fjallgöngu- og skíðamenn frá Rúm-
eníu, sem lentu í snjóflóði á Vatna-
jökli um miðjan dag á fimmtudag,
safna nú kröftum á Höfn í Horna-
firði eftir svaðilfarir undanfarinna
daga.
„Við áttum ekki von á því að lenda
í snjóflóði og það var slæm tilfinning
að berast með flóðinu,“ segir Katona
og bætir við að félagi hans hafi farið
alveg á kaf.
„Við vorum í áfalli fyrstu mínút-
urnar þegar við uppgötvuðum að all-
ur okkar búnaður hafði sópast burt.
Við höfum stundað fjallgöngur í 20
ár og náðum fljótt áttum. Það er
mikilvægt að hugsa skýrt og taka
réttar ákvarðanir í þeim aðstæðum
sem við lentum í. Fljótlega fundum
við mat, vatn og svefnpokana okkar
en skíði, tjald og annar búnaður
fannst ekki. Það sem týndist eru
bara dauðir hlutir sem skipta ekki
máli í dag,“ segir Katona, sem er
þakklátur björgunarsveitarmönnum
sem hann segir að hafi fundið þá
mjög fljótt og allt skipulag hafi verið
til fyrirmyndar.
Verst að týna skíðunum
Katona segir að það hafi verið
verst að týna skíðunum.
„Við hefðum ekkert komist áfram
án skíða í þeim stormi sem þarna
geisaði og þess vegna ákváðum við
að grafa okkur í fönn. Við vorum
búnir að vera lengi á ferðinni og því
orðnir mjög þreyttir,“ segir Katona
og heldur áfram að hrósa björgunar-
sveitarmönnum sem tóku þátt í leit-
inni.
„Þeir gáfu okkur að drekka, létu
okkur hafa þurr föt, sjúkraliði kíkti
á okkur og ég held að það hafi verið
sálfræðingur sem talaði við okkur í
heitum bílnum á leiðinni. Þegar á
Höfn var komið keyrðu þeir okkur á
gististað og kvöddu,“ segir Katona.
Þeir Szénássý ætluðu að hvíla sig
í gærkvöldi eftir að hafa vakað
meira og minna í tvo sólarhringa.
„Eftir góðan svefn verður allt
betra. Við fljúgum af landi brott á
þriðjudag og vonumst til þess að
geta skoðað meira af hinu fallega Ís-
landi fyrir þriðjudaginn,“ segir Kat-
ona, sem ætlar að koma aftur með
fjölskylduna.
„Það var búið að segja okkur hvað
það væri fallegt á Íslandi og við
sáum það þegar við keyrðum með-
fram suðurströndinni að Höfn. Okk-
ur langar að fara gullna hringinn ef
hægt er áður en við förum heim,“
segir Katona, sem vildi í lok viðtals-
ins senda björgunarmönnum sínar
innilegustu þakkir frá innstu hjarta-
rótum fyrir björgunina.
18 klukkustunda aðgerð
Friðrik Jónas Friðriksson, sem
stjórnaði aðgerðum vegna björgun-
arinnar á Vatnajökli, segir að björg-
unaraðgerðir hafi staðið yfir í 18
klukkustundir og af öllum þeim sem
þátt tóku í þeim hafi um það bil 20
manna hópur verið að störfum allan
tímann.
„Fjallamönnunum varð ekki
meint af snjóflóðinu og vistinni á
jöklinum líkamlega en andlega hlýt-
ur þetta að hafa tekið á,“ segir Frið-
rik. Hann segir að annar mannanna
hafi verið orðinn mjög kaldur.
Allir komu heilir heim
„Þeir voru hætt komnir en brugð-
ust rétt við aðstæðum. Þeim var
brugðið og voru þreyttir en leið vel
eftir aðhlynningu frá okkur. Við
keyrðum þá á gistihús á Höfn upp úr
hádegi þar sem þeir ætluðu að hvíl-
ast,“ segir Friðrik og bætir við að
allir hafi komist heilir heim og það
sé það sem skipti öllu máli.
Náðu fljótt áttum og segja
mikilvægt að hugsa skýrt
Ljósmynd/Úr einkasafni
Björgun Zoltán Szénássy og Alpár Katona úrvinda á leið til Hafnar í Hornafirði eftir svaðilfarirnar á Vatnajökli.
Í áfalli fyrstu mínúturnar Allur búnaðurinn sópaðist burt með snjóflóðinu
Fjallalíf Szénássý og Katona hafa klifið fjöll í 20 ár og hafa mikla reynslu af
fjallaferðum. Þeir brugðust hárrétt við erfiðum aðstæðum á Vatnajökli.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Lífið hefur verið óskaplega gott við
mig og ég á mörgum mikið að þakka.
Heilsan er góð og auðvitað er stór-
kostlegt að geta farið út í göngutúr
alltaf þegar gott er veður. Það hefur
gefið mér mikið,“ segir Kristín
Helgadóttir, sem er 100 ára í dag.
Hún er Landeyingur að uppruna, bjó
í áratugi á Selfossi en hefur síðustu
árin dvalist á Sólvöllum, dvalarheim-
ili aldraðra á Eyrarbakka. Hún held-
ur upp á afmælið í dag og hefur góð-
um gestum verið boðið í kaffi af því
tilefni.
Kristín er frá bænum Ey í Vestur-
Landeyjum, dóttir Helga Pálssonar
og Margrétar Árnadóttur bænda
þar. Hún ólst upp við öll algeng
sveitastörf en fór
seinna í vist og
þjónustustörf í
Reykjavík, eins
og alsiða var á
þeim tíma. Árið
1955 fluttist
Kristín með dótt-
ur sína, Önnu
Þóru Einars-
dóttur, á Selfoss
til þess að vera
Arnheiði systur sinni til halds og
trausts, en hún hafði þá barnshafandi
misst mann sinn frá ungum syni.
Fannst gaman að ferðast
„Ég festi rætur á Selfossi og vann
lengi hjá Kaupfélagi Árnesinga og
sinnti þar ýmsum störfum,“ segir
Kristín, sem var lengi í sambúð með
Einari heitnum Sigurjónssyni vega-
verkstjóra. „Þegar við Einar kynnt-
umst hafði hann misst konuna sína
frá fimm börnum, sem öll urðu sem
mín eigin og hafa reynst mér vel. Við
Einar, sem lést árið 2003, áttum frá-
bæran tíma saman og ferðuðumst
mikið bæði innanlands og utan. Fór-
um til dæmis oft í sólina á veturna en
í innanlandsferðir á sumrin, sem var
mjög skemmtilegt,“ segir Kristín,
sem er enn vel ern og fylgist með
málefnum líðandi stundar.
„Sjónin er nokkuð farin að gefa sig
svo ég horfi lítið á sjónvarpið eða les
blöðin. Hins vegar hlusta ég mikið á
útvarpið, ýmsa fína músík og svo er
kvöldsagan þessar vikurnar afar
skemmtileg; lestur Þorsteins Hann-
essonar á Ofvitanum eftir Þórberg
Þórðarson,“ segir Kristín að síðustu.
Fer út í gönguferðir og
hlustar á Ofvitann í útvarpi
Sunnlendingurinn Kristín Helgadóttir er 100 ára í dag
Kristín
Helgadóttir
Ellefu af átján lögheimilisskrán-
ingum í Árneshrepp á Ströndum
hafa verið felldar niður af Þjóðskrá
Íslands. Skráningarnar voru gerðar
á tímabilinu 24. apríl til 5. maí sam-
kvæmt tilkynningum um flutninga í
Árneshrepp. Ástæða niðurfellingar
lögheimilisskráninganna er sú að
þær eru taldar tilhæfulausar. Látið
hefur verið að því liggja að þær hafi
verið gerðar í því skyni að breyta af-
stöðu hreppsnefndarinnar til bygg-
ingar Hvalárvirkjunar.
„Það voru taldar yfirgnæfandi lík-
ur á að þetta fólk hefði ekki fasta bú-
setu á viðkomandi stöðum í skilningi
laga um lögheimili,“ sagði Ástríður
Jóhannesdóttir, sviðsstjóri stjórn-
sýslusviðs Þjóðskrár, um málið.
„Þetta byggist á þeim gögnum sem
lágu fyrir, m.a. lögregluskýrslum.
Það er misjafnt hvað liggur fyrir í
hverju máli, en eins og í öllum mál-
um byggist þetta á tilkynningum og
upplýsingum frá aðilum málanna og
utanaðkomandi upplýsingum einnig,
t.d. skýrslum lögreglu.“
Niðurfelling skráninganna hefur
þá afleiðingu að umsækjendurnir
verða aftur skráðir á þau lögheimili
sem þeir höfðu fyrir.
Lögheimilis-
skráningum
hafnað
Ellefu skráningum
um lögheimili í Ár-
neshreppi snúið við
Quake, verk fyr-
ir selló og kamm-
ersveit eftir Pál
Ragnar Pálsson
tónskáld, hlaut í
gær aðalverð-
launin á Al-
þjóðlega tón-
skáldaþinginu –
International
Rostrum of
Composers, sem
nú er haldið í Búdapest. Ríkis-
útvarpið hafði tilnefnt í keppnina
tónverk eftir tónskáldin Pál Ragn-
ar, sem deilir verðlaununum með
hollensku tónskáldi, og Hildi
Guðnadóttur og var Hildur valin á
heiðurslista þingsins fyrir tón-
verkið Point of Departure. Sam-
kvæmt frétt á vef RÚV verða verð-
launin til þess að sinfóníuhljómsveit
franska ríkisútvarpsins pantar nýtt
verk hjá Páli Ragnari.
Quake eftir Pál
Ragnar það besta
Páll Ragnar
Pálsson