Morgunblaðið - 19.05.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Eldgos sem urðu hér á árunum 1973-2014
gerðu boð á undan sér. Fyrirboðarnir voru
jarðskjálftar sem urðu yfirleitt skömmu áður
en gosin brutust út. Þetta kemur fram í nýrri
grein eftir dr. Pál Einarsson jarðeðlisfræðing
sem birtist í maíhefti vísindaritsins Frontiers
in Earth Science, (Short-Term Seismic Prec-
ursors to Icelandic Eruptions 1973-2014).
Jarðhræringar fara á undan
Á þessu tímabili urðu 21 eldgos, svo staðfest
sé. Auk þess urðu mörg kvikuinnskot sem
náðu ekki upp á yfirborðið. Öllum þessum at-
burðum fylgdu jarðhrær-
ingar sem einkenna kviku-
hreyfingar. Áður en
eldgosin brutust út mæld-
ust jarðskjálftar sem fylgja
eldvirkni og var fyrirvarinn
frá 15 mínútum upp í 13
daga. Í um helmingi eldgos-
anna var þessi fyrirvari inn-
an við tvær klukkustundir.
Óvenju langir
fyrirvarar
Þrjú eldgosanna urðu með óvenju löngum
fyrirvara. Þannig liðu 30 klukkustundir frá því
að jarðhræringar komu fram á mælum þar til
Heimaeyjargosið braust út aðfaranótt 23. jan-
úar 1973. Fyrirvari gossins í Gjálp 1996 var 34
klukkustundir og 13 dagar áður en Bárðar-
bunga gaus 2014 og jarðeldar komu upp í
Holuhrauni. Talið er að hinn langa fyrirvara
að Heimaeyjargosinu 1973 megi rekja til þess
að kvikan braut sér leið af 15-25 kílómetra
dýpi.
Forleikurinn að Gjálpargosinu var óvenju-
legur, að því er segir í grein Páls. Upphaf at-
burðarásarinnar var flókið og komu líklega
fleiri en eitt kvikuhólf við sögu. Aðdragandinn
að gosinu í Bárðarbungu var líka sérstakur því
kvikan ruddist nær lárétt undir yfirborðinu 48
kílómetra leið áður en hún braust upp í Holu-
hrauni.
Aðdragandi 14 af eldgosunum 21 sem urðu á
tímabilinu sást nógu snemma til að hægt var
að vara fólk við aðsteðjandi eldgosi. Í fjórum
tilvikum til viðbótar sáust teikn um að eldgos
væri aðsigi áður en gossins varð vart. Í ein-
ungis þremur tilvikum sást til eldgosanna áður
en mælar voru athugaðir og merki um jarð-
hræringar sáust.
Hekla sker sig úr íslenskum eldfjöllum því
hún gýs með miklu styttri fyrirvara en önnur
eldfjöll. Skammtímafyrirvarinn hefur einungis
verið 23-79 mínútur áður en eldgos hefst. Þessi
skammi fyrirvari er sérstakt áhyggjuefni
vegna umferðar ferðamanna í hlíðum fjallsins
og flugumferðar yfir það. Auk þess hafa eldgos
í Heklu yfirleitt byrjað af miklum krafti.
Morgunblaðið/RAX
Holuhraun Aðdragandinn að eldgosinu var langur því kvikan úr Bárðarbungueldstöðinni ruddist 48 km leið undir yfirborðinu áður en hún kom upp í gosinu.
Eldgosin gera boð á undan sér
Fyrirboðar eldgosanna eru jarðskjálftar Hekla kemur með stuttum fyrirvara og af krafti
Páll
Einarsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Sauðburðurinn hefur gengið þokkalega en hefði líka
mátt ganga betur. Það er svolítið af dauðum lömbum,“
segir Sigríður Bryndís Karlsdóttir, bóndi á Geirmund-
arstöðum á Skarðsströnd í Dölum. Hún bætir því við að
frjósemi sé góð þetta árið og þegar svo hátti til sé al-
gengara að lömb drepist.
Sauðburður er meira en hálfnaður á Geirmundar-
stöðum. Í fyrradag voru um 150 ær óbornar.
Mikið álag er á sauðfjárbændum á sauðburði og sést
það á Bryndísi og Þórði Baldurssyni, manni hennar, og
systur hennar sem er þeim til aðstoðar við burðarhjálp-
ina, þegar þau brugðu sér heim til að fá sér kaffisopa.
„Það er að teygjast aðeins á manni,“ segir Bryndís.
Þau hjónin skipta vaktinni á nóttunni á milli sín og
eru þar einnig mestallan daginn. „Við erum þrjú enda
þarf að hugsa um þetta allan sólarhringinn,“ segir
Bryndís.
Veðrið í maí hefur ekki hjálpað, skipst hefur á kuldi
og rigningar. Það vill til að þau hafa gott húspláss og
geta látið allar ærnar bera inni og þurftu ekki að
hleypa lambfénu út þegar veðrið var sem verst.
Unga fólkið flýr eins og fætur toga
Ekki líst bændunum á Geirmundarstöðum vel á
stöðu sauðfjárræktarinnar í landinu vegna verðfalls á
afurðum þeirra. „Staðan hlýtur að vera hrikaleg hjá
ungu fólki sem nýlega er búið að skuldsetja sig með
kaupum á jörðum og búum,“ segir Þórður.
Hann segir að þeir fáu sauðfjárbændur sem eftir eru
á Skarðsströnd haldi sjó. „Ætli meðalaldurinn sé ekki
um 60 ár. Við bíðum í 10 ár og þá leggst þetta af,“ seg-
ir Þórður og bætir aðspurður við um áhuga unga fólks-
ins á að taka við: „Það flýr eins og fætur toga.“
Það er að teygjast aðeins á
manni í sauðburðinum
Sauðburðurinn á Geirmundarstöðum gengur þokkalega
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Karað Bryndís Karlsdóttir heldur nýbornu lambi á með-
an ærin karar það. Hún á von á þremur til viðbótar.
Svartiskógur, Sviss&Alsace
sp
ör
eh
f.
Haust 3
Heillandi staðir mæta okkur í þessari yndislegu ferð um
Svartaskóg, Sviss og Alsace héraðið í Frakklandi. Í ferðinni
munum við kynna okkur helstu aðdráttaröfl þessara
þriggja landa á þessu dásamlega svæði og sjáum m.a.
kraftmestu fossa meginlands Evrópu, Rínarfossa. Gist
verður í bænum Lörrach alla ferðina.
15. - 22. september
Fararstjóri: Ester Helgadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 199.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!