Morgunblaðið - 19.05.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
ol pium 350Nú jóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
ym
maxipodium 500
b
MANDUCA
BURÐARPOKINN
Manduca burðarpokinn er hannaður með
það markmið að leiðarljósi að barn geti
viðhaldið M-stellingu fóta og mjaðma.
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is bambus.is
Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Viðskiptablaðið fjallaði í vikunnium Sósíalistaflokkinn og verka-
lýðsfélagið Eflingu, sem nú hafa
sameinast, nema ef til vill að formi
til: „Hún lét ekki mikið yfir sér frétt-
in um að Þráinn
Hallgrímsson, hinn
þaulreyndi skrif-
stofustjóri Eflingar,
hefði látið af störfum
hjá stéttarfélaginu,
en hann hefur starf-
að hjá félaginu frá
stofnun og þar áður
hjá hinni sögufrægu
Dagsbrún.
Fyrr í mán-uðinum tók
Viðar Þorsteinsson
við nýju starfi fram-
kvæmdastjóra hjá
Eflingu. Þráinn mun
hafa orðið manna mest hissa, þegar
Viðar var kynntur á starfsmanna-
fundi sem nýr framkvæmdastjóri –
ekki skrifstofustjóri – en aðrir
starfsmenn Eflingar eru sagðir ugg-
andi um að frekari hreinsana sé að
vænta.
Viðar er í framkvæmdastjórnSósíalistaflokksins og kunnur
róttæklingur á vinstri jaðri vinstri
jaðars íslenskrar þjóðmálaumræðu.
Miklar sviptingar hafa verið í Efl-
ingu að undanförnu, en í mars sigr-
aði Sólveig Anna Jónsdóttir, annar
flokksbroddur Sósíalistaflokksins,
formannsslaginn í Eflingu með yfir-
burðum.“
Yfirtaka skósveina GunnarsSmára Egilssonar á verkalýðs-
félagi er umhugsunarverð fyrir
launþega, en skýrist þó sennilega af
alvarlegu áhugaleysi almennings á
verkalýðsfélögum.
Þannig nýtur núverandi formaðurEflingar aðeins stuðnings 12,7%
félagsmanna og formaður VR hefur
10,7% félagsmanna á bak við sig.
Viðar
Þorsteinsson
Sósíalistar hefja
hreinsanir á ný
STAKSTEINAR
Gunnar Smári
Egilsson
Veður víða um heim 18.5., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 6 léttskýjað
Akureyri 6 skýjað
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 9 rigning
Ósló 18 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 15 heiðskírt
Helsinki 18 heiðskírt
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 16 léttskýjað
París 18 heiðskírt
Amsterdam 11 skýjað
Hamborg 13 skýjað
Berlín 14 skýjað
Vín 21 léttskýjað
Moskva 16 skúrir
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 15 þrumuveður
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 27 skýjað
Winnipeg 7 rigning
Montreal 11 skýjað
New York 17 alskýjað
Chicago 17 þoka
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:59 22:50
ÍSAFJÖRÐUR 3:36 23:23
SIGLUFJÖRÐUR 3:18 23:07
DJÚPIVOGUR 3:22 22:26
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Borið hefur á því undanfarna mán-
uði að stöðumælaverðir hafa sektað
ökumenn sem lagt hafa á lóðinni
Klapparstíg 19. Meira að segja hef-
ur það gerst að eigendur lóð-
arinnar hafi fengið sektir, þegar
þeir hafa lagt þar. Allar sektirnar
eru í óþökk eigenda lóðarinnar sem
er eignarlóð og hafa þeir kvartað
formlega við bílastæðasjóð Reykja-
víkur.
Ákvörðun felld úr gildi
Eigendur lóðarinnar hafa lengi
átt í samskiptum við Reykjavíkur-
borg og lagt til ýmsar tillögur um
uppbyggingu á lóðinni. Í síðustu
umferð lögðu þeir fram, að tillögu
borgarinnar, tillögu að deiliskipu-
lagi sem gerði ráð fyrir verndun
steinbæjarins og að byggja nokkur
lítil hús á lóðinni. Í því fólst að rífa
íbúðarhúsið á Veghúsastíg 1 sem
dæmt hefur verið ónýtt. Eftir að
tillagan hafði verið samþykkt í
skipulagsráði og borgarráði til-
kynnti formaður skipulagsráðs,
Hjálmar Sveinsson, að hann hefði
skipt um skoðun og var tillagan
felld í borgarstjórn.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála taldi rannsókn máls-
ins og rökstuðningi áfátt og felldi
ákvörðun borgarstjórnar úr gildi.
Þannig stendur málið.
Stefán S. Guðjónsson, talsmaður
eigenda lóðarinnar, bendir á að
vinna eigendanna hafi alla tíð geng-
ið út á það að þeir gætu haft eðli-
legar tekjur af lóð sinni en ekki
fengið vegna afstöðu Reykjavík-
urborgar. Því skjóti það skökku við
að borgin í gegn um bílastæðasjóð
sé farin að hagnýta sér hana.
„Ég er ekki löglærður maður en
hef heyrt á það minnst að þetta
kynni að flokkast undir nytjastuld,“
segir hann.
Tilbúnir í samstarf
Eigendurnir gera athugasemdir
við að lagðar séu á sektir vegna
stöðubrota þegar menn leggja inni
á lóðinni. Þeir segjast aftur á móti
áhugasamir um að semja um að
Bílastæðasjóður innheimti gjöld
vegna stöðubrota fyrir hönd lóð-
areigenda og óska jafnframt eftir
upplýsingum um sektir sem lagðar
hafa verið á ökumenn sem lagt
hafa inni á lóðinni hingað til.
Morgunblaðið/Valli
Klapparstígur 19 Ökumenn sem leggja á lóðinni greiða gjarnan stöðugjald
enda sjálfsali fyrir framan, þótt lóðin sé ekki á forræði borgarinnar.
Sekta ökumenn í
óþökk lóðareiganda
Allt um sjávarútveg