Morgunblaðið - 19.05.2018, Side 14
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
London er dásamlega al-þjóðleg borg, hún hefurþennan gamla íhaldssamabreska grunn, en ofan á
hann kemur fólk allsstaðar að úr heim-
inum. Svo blandast öll þessi menning
saman og úr því spretta margar nýjar
hugmyndir. Ég upplifi mig sem Lond-
onbúa, en líka sem útlending, sem er í
góðu lagi, af því borgin er full af út-
lendingum,“ segir Sara Björnsdóttir
listakona, sem búið hefur í London
undanfarin þrjú ár og starfar þar að
list sinni.
„Mitt eðli er líklega sígaunaeðli,
ég hef ekki tekið almennilega upp úr
töskunum og er á miklum flækingi.
Það hentar mér mjög vel. Ég ræð mér
sjálf og mér finnst gott að vera ekki
bundin og geta farið þegar mér hentar.
Það er svo mikilvægt að fara í burtu og
opna á sér heilann fyrir nýjum upplif-
unum og því að maður viti ekki allt.“
Reynsla í Óðali feðranna
London býður upp á ýmis tæki-
færi, m.a getur fólk sem þar býr skráð
sig hjá umboðsskrifstofum þar sem
það gefur kost á sér sem aukaleikara í
kvikmyndum. Og Sara gerði það.
„Þetta er tilvalið fyrir mig sem
listamann, að hlaupa í vinnu sem auka-
leikari til að vinna fyrir salti í grautinn,
því ég get valið hvaða verkefni ég tek
að mér og hvenær. Þetta byrjaði allt á
því að Íslendingur sem var að vinna við
nýju Blade Runner myndina var beð-
inn um að aðstoða við að finna hóp af
ljóshærðum kvenkyns íslenskumæl-
andi aukaleikurum, eldri en fimmtíu
ára. Ég sló til og sendi inn mynd af
mér með upplýsingum, en svo kom
þetta aldrei til, því þetta endaði í
myndinni sem hópur af Svíum, held
ég. En í framhaldinu skráði ég mig hjá
nokkrum umboðsskrifstofum og fljót-
leg fóru að berast möguleg verkefni,“
segir Sara og bætir við að vinna auka-
leikara geti verið með ýmsu móti, oft í
hópsenum, en líka sem einstaklingar.
„Ég er ekki algjör nýliði, því ég
var aukaleikari fyrir margt löngu í
kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar,
Óðali feðranna, þá var ég í heilt sumar
úti í sveit við æfingar og upptökur og
ég fékk meira að segja línu til að
segja.“
Svartar skikkjur til varnar
paparözzum með dróna
Sara skráði sig í verkefni sem
hentaði henni í tíma, en hún vissi ekki
hvaða kvikmynd það væri, eina sem
hún vissi var að um stórmynd var að
ræða. „Ég var kölluð inn í mátun á
búningum og myndatöku og fékk
djobbið. Þetta reyndist allt saman
mjög áhugavert og gaman að fá að
kynnast þessum heimi kvikmyndanna.
Þegar ég kom í upptöku tíu dögum síð-
ar var ég í hópsenu með mörgum
Hélt að Emily
Clark væri
ofan af Skaga
Í hópi aukaleikara í London er allskonar áhugavert
fólk, m.a fuglafræðingar og einfarar. Sara Björns-
dóttir listakona tók að sér verkefni sem aukaleikari í
nýjustu Star Wars myndinni og lenti í ýmsu.
Listakona Sara segir eðli
sitt vera sígaunaeðli.
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Einnig getum við úvegað
startara og alternatora
í allskonar smávélar
frá Ameríku
Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði
í alternator og startaraviðgerðum.
Við höfum áratuga reynslu í
viðgerðum fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Verkstæðið er með öll nauðsynleg
tæki og tól til þessara verka.
Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í
prufubekk til að tryggja að allt sé
í lagi. Þeim er einnig skilað
hreinum og máluðum.