Morgunblaðið - 19.05.2018, Qupperneq 15
aukaleikurum. Við fórum í búninga og
vorum keyrð í rútu á tökustað, en þá
var varpað yfir okkur svörtum skikkj-
um með hettum, því það hafði sést til
dróna svífandi yfir, paparazzar að
reyna að ná myndum af leikurum á
leið í tökur. Í þessum skikkjum vorum
við eins og flokkur af költ-liði, í hala-
rófu,“ segir Sara og hlær. „Það var líka
tjald yfir settinu á tökustaðnum, til að
verjast drónum. Þegar við mættum í
tökuverið voru símarnir okkar gerðir
upptækir svo við tækjum ekki myndir,
allt var háleynilegt. Ég vissi ekki
hvaða kvikmynd þetta var fyrr en
fyrsta tökudaginn þegar ég komst að
því að þetta væri nýjasta Star Wars
myndin, það hreyfði ekki mikið við
mér, því ég er enginn Star Wars aðdá-
andi, en fannst það skemmtilegt
samt,“ segir Sara og hlær, en myndin
kemur út núna í maí, og heitir Solo: A
Star Wars Story, og fjallar um eina
persónu sagnaflokksins, Han Solo.
Þúsund manns skráðu sig
„Eitt af því sem gaman var að
gera var að spjalla við hina statistana
og ég komst að því að fólk hafði áhuga
á því hvað aðrir í hópnum væru búnir
að fá mörg verkefni sem aukaleikarar,
hversu lengi þau voru búin að starfa
við þetta og í hvaða myndum áður en
þeir fengu vinnu við þessa mynd. Þeg-
ar ég sagði þeim aðspurð að þetta væri
mitt fyrsta verkefni fannst þeim það
fyndið og ég heppin, ég var algjör ný-
liði. Það höfðu að þeirra sögn þúsund
manns skráð sig hjá umboðsskrifstof-
unni þegar fréttist að hún ætti að finna
statista í Star Wars. Margir þeirra
sem vinna sem aukaleikarar, „safna
myndum“, vilja leika í þessum frekar
en hinum og þessi mynd var ein af
þeim, alla vega fyrir aðdáendur Star
Wars. Nokkrir þeirra voru á þessum
tíma að leika í Star Wars og Queen og
höfðu verið í Blade Runner, ég gat þá
sagt þeim að ég hafði fengið beiðni um
að vera syngjandi nunna í Queen-
myndinni. Beiðnin var að syngja línu í
laginu Bohemian Rhapsody og senda
umboðsskrifstofunni. En ég hefði ekki
getað tekið það að mér, af því ég fór úr
landi á þeim tíma sem tökurnar voru,“
segir Sara sem hafði stuttu áður farið
á söngnámskeið hjá gospelsöngkonu í
kjallaranum á St Martin in the Fields-
kirkjunni á Trafalgartorginu, og
skráði sig í framhaldinu í kór Íslend-
inga í London. Hún segir það hjálpa til
við að fá vinnu sem aukaleikari, að
geta sungið, þó hún hafi farið á nám-
skeiðið til að frelsa röddina eins og hún
orðar það.
Ævintýralegur ljómi yfir
Sara segir að vel hafi verið farið
með aukaleikarana. „Við vorum þarna
í tvo daga, í 12 tíma á dag og passað
var upp á að við yrðum ekki svöng, það
voru tvær innréttaðar rútur á tökustað
fyrir okkur, með borðum og bekkjum
og þar var nóg af tei og kexi sem er
ákaflega enskt. Við fengum mikinn og
góðan morgunmat, hádegisverð, síð-
degiskaffi og kvöldverð. Mikill tími fór
í bið, en það var bara gaman, ég las,
spjallaði við fólk, fylgdist með stórleik-
urunum og öllu hinu fólkinu og öllum
græjunum. Þetta er heill heimur og
ævintýralegur ljómi yfir. Það var
áhugavert að kynnast aukaleik-
urunum, þetta er allskonar fólk, vel
menntað og úr öllum stéttum, mikið af
listafólki. Þarna var til dæmis fugla-
fræðingur með afar sérstakt útlit, eins
og brjálaður vísindamaður, enda sagð-
ist hann oft fá slík hlutverk. Svo var
þarna maður sem virtist vera einfari
og leit út eins og rokkstjarna en hann
var einmitt í Queen myndinni. Eina
konuna í aukaleikarahópnum kann-
aðist ég svo mikið við, og þegar ég
sagði það við hana kom í ljós að hún
hefur leikið aukahlutverk í sjónvarps-
þáttunum EastEnders í 20 ár, leikur
þar búðareiganda og kemur af og til
fyrir í þáttunum. Það er hellingur af
fólki sem lifir af því einvörðungu að
vera statistar í kvikmyndum og sjón-
varpsþáttum. Þessi kona og maðurinn
hennar hafa gert það í áraraðir,“ segir
Sara. „Þarna var líka týpa sem vildi
verða uppgötvuð og varð fúl ef hún var
ekki sett nálægt aðalfjörinu á töku-
stað.“
Máttum ekki horfa í augun
á leikurum né ávarpa þá
Sara segir það hafa verið góða
skemmtun að spjalla við hina aukaleik-
arana.
„Við vorum meðal annars að
hlæja að og velta fyrir okkur stétta-
skiptingunni í kvikmyndaheiminum.
En ég lærði líka ýmislegt af þeim og
þau voru óþreytandi við að gefa mér
ráð og benda á góðar umboðs-
skrifstofur. Sem aukaleikari fer maður
á sett, er dregin hingað og þangað og
fær „kjú“ um hvað maður á að gera.
Maður á bara að hlýða leiðbeiningum,
einskis spyrja og ekki vera til trafala.
Við megum ekki horfa í augun á aðal-
leikurunum og ekki ávarpa þá, enda
eru þeir í sínum heimi að einbeita sér.“
Sara segir að hana hafi á þessum
tíma langað mikið í kúrekaskó, og þeg-
ar hún sá konu í kúrekaskóm fyrir ut-
an pásurútuna, fór hún að snusa í
kringum hana til að skoða skóna.
„Þegar ég leit upp af skónum sá
ég að hún starði á mig undrandi. Ég
kannaðist roslega við andlitið á henni,
datt helst í hug að hún væri ofan af
Skaga,“ segir Sara og skellihlær, en
hún er uppalin á Akranesi. „Einu sinni
Skagamaður, alltaf Skagamaður,“ seg-
ir Sara og bætir við að ástæðan fyrir
því að hún kannaðist svona við meinta
’Skagapíu’, hafi verið sú að þetta var
konan sem lék hvíthærðu drekamóð-
urina í Game of Thrones, Emily Clark.
„Þess vegna kannaðist ég svona
við hana og hélt hún væri af Skag-
anum, frábær tenging,“ segir Sara og
skellir upp úr.
Hún segir að í einu atriðinu hafi
gleymst að gefa henni „kjú“, sem
henni fannst fjarska fínt.
„Þegar hrópað var „action“ fór ég
af stað og hugsaði: „Hér er ég í Star
Wars að gera það sem mér sýnist.“
Það var mjög skemmtileg og fríkuð til-
finning að detta í þetta flæði, kannski
hafa allir þeir gjörningar sem ég hef
gert hjálpað til. Ef þetta atriði verður
ekki klippt út, og ég sé sjálfa mig þeg-
ar myndin verður sýnd, þá á ég eftir að
hlæja,“ segir Sara og tekur fram að
hún hafi ekki hugmynd um hvort
nokkurt af þeim atriðum sem hún var í
verði klippt út eða ekki. En hún hlakk-
ar til að takast á við fleiri verkefni sem
aukaleikari, því hún hefur fengið nokk-
uð af beiðnum nú í vor, sumarið er
greinilega tíminn.
Ljósmynd/Stilla úr kvikmyndinni
Solo Í nýju kvikmyndinni segir
frá ævintýrum Han Solo, frá því
hann var ungur, og í hlutverkinu
er Alden Ehrenreich, en flestir
kannast við Han Solo leikinn af
Harrison Ford í eldri myndunum.
Ég hugsaði: „Hér er ég í
Star Wars að gera það
sem mér sýnist.“
DAGLEGT LÍF 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Ein með öllu. 28 ára mamma greindist með
Crohn´s sjúkdóm 2008. 33 ára pabbi greindist
með Crohn´s sjúkdóm 2015. Þriggja ára dóttir
þeirra greindist með Colitis Ulcerosa 18 mánaða.
29 ára bókmennta-
fræðingur. Greindist
15 ára með Crohn’s
sjúkdóm.
51 árs tækniteiknari
og listmálari. Greindist
rúmlega þrítug með
Colitis Ulcerosa.
73 ára afi með Crohn´s
sjúkdóm. Greindist
árið 2010, sama dag
og 28 ára dóttir hans
greindist með Colitis
Ulcerosa.
Stuðningsfulltrúi í
Lækjarskóla. Greindist
árið 1990 með Colitis
Ulcerosa.
CCU samtökin – www.ccu.is - eru hagsmunasamtök einstaklinga með langvinna bólgusjúkdóma í
meltingarvegi, Crohn´s sjúkdóm og Colitis Ulcerosa, einnig þekktir sem IBD (Inflammatory Bowel Diseases).
Rúmlega 50 lönd í 5 heimsálfum taka þátt í að vekja athygli á sjúkdómunum, hvetja til rannsókna og
styðja við yfir 10 milljón manns sem lifa með IBD í heiminum í dag.
„Þú sérð það ekki utan á mér“
19. maí – Alþjóðlegur IBD dagur
8 ára skólastrákur á
Akureyri sem æfir
sund og trommuleik.
Greindist 6 ára með
Colitis Ulcerosa.
51 árs grunnskóla-
kennari. Greindist
43 ára með Colitis
Ulcerosa. Ég reyni að
láta sjúkdóminn ekki
stjórna lífi mínu.
Þrítug tvíburamamma
sem er búin að vera
með Crohn’s sjúkdóm
hálfa ævina.
7 ára fótboltastrákur
á Skaganum. Greindist
15 mánaða með
Colitis Ulcerosa.
34 ára jarðvinnu-
verktaki. Greindist
árið 2004 með
Crohn’s sjúkdóm.
19 ára strákur með
Colitis Ulcerosa.
Mottó: Gotta risk it
for the biskit.