Morgunblaðið - 19.05.2018, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Sigtryggur Sigtrygsson
sisi@mbl.is
Borgarráð samþykkti á fundi sín-
um á fimtudaginn að halda nýtt út-
boð á lausum lóðum í Úlfarsárdal
innan tveggja mánaða og hafna til-
teknum tilboðum sem gerð voru í
lóðaútboði í lausar lóðir í Úlfars-
árdal sem lauk 4. maí síðastliðinn.
Á útboðsfundi sem haldinn var
í kjölfar útboðsins staðfestu bjóð-
endur tilboð í byggingarrétt fyrir
177 íbúðir af þeim 255 íbúðum sem
boðnar voru, eða tæp 70%. Heild-
arupphæð staðfestra tilboða í
byggingarrétt var 755 milljónir
króna fyrir utan gatnagerðargjöld
sem áætluð eru um 300 milljónir.
Ekki voru staðfest tilboð í bygg-
ingarrétt í Úlfarsárdal fyrir 78
íbúðir og munar þar mest um 46
íbúðir í fjölbýli.
Hæstu gildu tilboð í bygging-
arrétt án gatnagerðargjalda voru
eftirfarandi í krónum talið. Í sviga
er verð per fermetra:
Einbýli: 6.547.000 (23.807)
Parhús: 20.000.500 (32.521)
Tvíbýli: 7.323.000 (26.154)
Raðhús: 37.500.000 (46.875)
Fjölbýli: 319.200.000 (35.000)
„Niðurstöður þessa útboðs
sýna að enn er eftirspurn eftir
byggingarrétti lóða og það mælir
með að haldið verði annað útboð
vegna samkeppnissjónarmiða,“
segir m.a. í greinargerð skrifstofu
eigna og atvinnuþróunar, sem lögð
var fram á fundi borgarráðs.
Ráðið stóð frammi fyrir tveim-
ur valkostum, að bjóða lóðirnar út
eða selja þær á föstu verði.
Fram kemur í greinargerðinni
að ekki var gert gilt tilboð í bygg-
ingarrétt á einni fjölbýlishúsalóð
með 46 íbúðum fyrir lögaðila og
óseldur er byggingarréttur á átján
einbýlishúsalóðum fyrir ein-
staklinga, byggingarréttur á fjór-
um tvíbýlishúsalóðum fyrir ein-
staklinga og byggingarréttur á
tveimur raðhúsalóðum fyrir ein-
staklinga.
Þá samþykkti borgarráð, að
ósk skrifstofu eigna og atvinnu-
þróunar, að hafna tilboðum í þrjár
einbýlishúsalóðir. Við heildartölu á
lóðum fyrir einbýlishús munu því
bætast þrjú hús þar sem einungis
eintaklingum er heimilað að bjóða
í byggingarrétt.
400 íbúðir í uppbyggingu?
Byggingarrétturinn, sem nú
var boðinn út, tilheyrir bæði grón-
ari hluta hverfisins sem og nýju
svæði við Leirtjörn. Nýlega var
ráðstafað byggingarrétti við Leir-
tjörn fyrir 148 íbúðir, m.a. til Bú-
seta og Bjargs íbúðafélags sem
rekin eru án hagnaðarmarkmiða.
Að því gefnu að borgarráð sam-
þykki niðurstöður tilboða eru um
400 íbúðir að fara í uppbyggingu í
Úlfarsárdal.
Lóðir í Úlfarsárdal
boðnar út að nýju
Mynd/Reykjavíkurborg
Úlfarsárdalur Hverfið hefur verið að byggjast upp undanfarin ár. Þegar það er fullbyggt verða þar um 1.300 íbúðir.
Eru í grónari hluta hverfisins og á nýju svæði við Leirtjörn
Dalurinn
» Úlfarsárdalur er íbúða-
svæði í suðurhlíðum Úlfars-
fells.
» Í Úlfarsárdal verður 1.300
íbúða hverfi .
» Við Úlfarsá er að rísa
16.000 fermetra mannvirki
sem verður menningarmiðja
Grafarholts og Úlfarsárdals.
Það mun hýsa leikskóla,
grunnskóla, frístundir, menn-
ingarmiðstöð, almennings-
bókasafn, sundlaug og íþrótta-
hús. Íþróttafélag hverfisins er
Fram.
Borgarráð hefur staðfest samþykktir fyrir nýtt félag sem
heitir Þjóðarleikvangur ehf. Fram kemur í greinargerð
að hinn 12. apríl sl. hafi verið samþykkt í borgarráði að
stofna undirbúningsfélag á vegum Reykjavíkurborgar,
ríkisins og KSÍ. Hlutverk félagsins er að undirbúa loka-
ákvörðun um endurnýjun Laugardalsvallar og í kjölfarið
byggingu þeirra mannvirkja sem ákveðið verði að
byggja.
Með stofnun félagsins skapist einnig aðstæður til að
vinna að öðrum þáttum verkefnisins, m.a. undirbúningi
skipulagsbreytinga, kynningarmálum, tillögum um eign-
arhald og nánari greiningu á afleiddum kostnaði. Hið ný-
stofnaða félag er einkahlutafélag og heimilisfang þess er
að Tjarnargötu 11, Reykjavík.
„Tilgangur félagsins er að undirbúa byggingu þjóð-
arleikvangs í Laugardal í stað Laugardalsvallar, ásamt
byggingu, kaupum og sölu fasteigna og eignarhluta í öðr-
um félögum, sala þjónustu hvers konar, reka fasteignir
sem og að annast lánastarfsemi og annan skyldan rekst-
ur,“ segir m.a. í samþykktum þess.
Hlutafé félagsins er krónur fimm hundruð þúsund og
verður hver hlutur að fjárhæð kr. 1 -króna að nafnverði.
Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum og þeir kjörn-
ir á aðalfundi ár hvert. Skal Reykjavíkurborg tilnefna tvo
stjórnarmenn til kjörs. Þá skal Íslenska ríkið tilnefna tvo
stjórnarmenn til kjörs og Knattspyrnusamband Íslands
tilnefna einn til kjörs. Annar þeirra stjórnarmanna er
Reykjavíkurborg hefur tilnefnt skal vera stjórnarfor-
maður félagsins. Stjórn félagsins ræður framkvæmda-
stjóra og ákveður starfskjör hans. sisi@mbl.is
Stofna Þjóðarleikvang ehf.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugardalsvöllur Mikil uppbygging er áformuð þar.
TILBOÐSVERÐ FRÁ
2.459.000 KR. ÁN VSK
3.050.000 KR. ME
Ð VSK
CITROËN JUMPY
MODUWORK - aukið flutningsrými
Nálægðarskynjarar að aftan
Þrjár lengdir í boði – allt að 4 metra
flutningsrými
FJÖLHÆFUR & STERKUR
LENGDIN SKIPTIR MÁLI
BAKKAÐU AF ÖRYGGI
KOMDU &MÁTAÐU
CITROËN JUMPY Í DAG!
citroen.is
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
300.000KR.AFSLÁTTUR