Morgunblaðið - 19.05.2018, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Sumarkort og námskeið
á sérstöku vortilboði
Kynntu þér málið á jsb.is
FARÐU
FERSK
inn í sumarið!
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra kynnti stofnun Þróunar-
miðstöðvar heilsugæslu í gær en í
þessari stofnun felst rúmlega 80
milljóna króna fjáraukning til ís-
lensku heilsugæslunnar.
Þróunarmiðstöðin leysir af hólmi
Þróunarstofu Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins sem hefur verið
starfrækt frá árinu 2009. Eitt af
meginmarkmiðum stofnunarinnar
er að samræma og samhæfa heil-
brigðisþjónustu á landsvísu og þann-
ig tryggja jafnan aðgang allra lands-
manna að sambærilegri heilsugæslu
óháð landshlutum.
Skipar fagráð með
breiðri fagþekkingu
Heilbrigðisráðherra mun skipa
fagráð Þróunarmiðstöðvarinnar en í
því mun sitja fulltrúi frá hverri heil-
brigðisstofnun sem rekur heilsu-
gæslustöð, einn fulltrúi sjálfstætt
starfandi heilsugæslustöðva, einn
frá heilbrigðisvísindasviði Háskóla
Íslands og einn frá heilbrigðisvís-
indasviði Háskólans á Akureyri.
Forstöðumaður Þróunarmiðstöðv-
arinnar verður ráðinn af Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins.
„Við búum við mjög gott heil-
brigðiskerfi á alþjóðlegan mæli-
kvarða en við vitum líka að það er að
sumu leyti brotakennt og skortir
samfellu í þjónustunni,“ sagði Svan-
dís er hún tilkynnti stofnun mið-
stöðvarinnar.
Heilsu-
gæsla
samræmd
Ráðherra Svandís Svavarsdóttir.
Þróunarmiðstöð
heilsugæslu stofnuð
Morgunblaðið/Valli
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Áformað er að opna um 30 veitinga-
staði í miðborginni á næstu 18 mán-
uðum. Margir verða á nýjum þétting-
arreitum sem hafa verið lengi í
undirbúningi. Þá er áformað að opna
nokkra staði árið 2020.
Skal tekið fram að staðirnir verða
af öllum stærðum og gerðum. Allt frá
litlum stöðum í Granda mathöll yfir í
stóra staði sem kostar jafnvel hundr-
uð milljóna að standsetja.
Nokkrir staðanna verða við Aust-
urhöfn og Hafnartorg. Þau rými eru í
eigu fasteignafélagsins Regins.
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Reg-
ins, segir aðspurður að eðlilega hafi
hægt á vexti ferðaþjónustunnar, vöxt-
urinn geti ekki verið með veldisvexti
til eilífðarnóns. Hins vegar megi ekki
tala markaðinn niður þó að nú hægi á.
Áformin voru endurskoðuð
Helgi segir áform um fjölda veit-
ingarýma á Hafnartorgi hafa verið
endurskoðuð út frá stöðunni á veit-
ingamarkaði í miðbænum.
„Nú er mikið talað um erfiða stöðu
á þessum markaði. Við hjá Regin telj-
um jákvætt að ferðaþjónustan vaxi
ekki áfram eins hratt og hún hefur
gert. Það er gott að það hægi á grein-
inni, innviðir okkar lands ráða ekki
við svo mikla þenslu. Nú fáum við
tækifæri til að bæta innviði, gæði
þjónustu og styrkja samkeppnishæfni
fyrirtækja. Við megum ekki gleyma
því að hingað kemur gríðarlegur
fjöldi ferðamanna. Árlegur vöxtur
upp á 5-10% vegur því þungt,“ segir
Helgi.
Hann segir Regin leigja rými undir
nokkur veitingahús. Reginn horfi til
langs tíma og kjósi að hafa leiguna
hóflega.
„Við vitum af nokkrum verkefnum
þar sem búið er að keyra svo upp leig-
una að staðirnir ráða ekki við það. Við
hjá Regin teljum ekki rétt að starfa
þannig,“ segir Helgi.
Hann bendir á að Marriott Edition
hótelið við Hörpu muni laða að fágæt-
isferðamenn. Hótelið og önnur starf-
semi á Austurbakkasvæðinu verði
segull fyrir Reykjavík.
10-12 þúsund á fermetra
Haft var eftir Hrefnu Sætran veit-
ingamanni í Morgunblaðinu í gær að
verið væri að loka veitingastöðum.
Sérfræðingur sem óskaði nafn-
leyndar sagði leiguverðið í mörgum
veitingarýmum of hátt. Verðið hefði
verið hækkað í 10-12 þúsund krónur á
fermetra. Með hliðsjón af því og
hækkandi launakostnaði ætti ekki að
koma á óvart þótt rekstur þyngdist.
Sambærileg úttekt birtist í Morg-
unblaðinu í fyrrasumar. Síðan hafa
nokkrir veitingastaðir verið opnaðir í
miðborginni. Meðal þeirra eru Sum-
ac, Lauf og Nostra á Laugavegi, Gott
Reykjavík í Hafnarstræti, Lamb
Street Food á Granda og Lof á Mýr-
argötu. Nýja samantektin er ekki
tæmandi. Margt er í pípunum.
Hyggjast opna um 30 veit-
ingahús næstu 18 mánuði
Gríðarleg fjárfesting áformuð í miðborginni Húsaleigan orðin íþyngjandi
Hverfisgata 94-96
Snorrabraut 547
Laugavegur 4-6 Brynjureitur
Klapparstígur
Frakkastígsreitur (2)
Radisson Red hótel
Skúlagötu 26
Tryggvagata 10-14 (2)
Lækjargata 12
Vegamótastígur 7-9
Landssímahúsið1
Höfðatorg6
Hörpuhótel
Austurhöfn (5) Hafnartorg3
Skólavörðustígur 32 Laugavegur 95-994
Laugavegur 55
Dæmi um áformuð
veitingahús í miðborginniMýrargata 18
Héðinsreitur5
Grandinn
mathöll (9)
Hverfisgata 85-932
1. Icelandair Parliament Hótel.
2. Ágiskun framkvæmdaaðila.
Ekki ákveðið. 3. Jafnframt kemur
annað veitingahús til greina.
4. Fleiri leigurými verða í húsinu.
Fjöldi veitingahúsa ekki ákveðinn.
5. Fleiri leigurými verða í húsinu.
Fjöldi veitingahúsa ekki ákveðinn.
6. Það kemur til greina að hafa
veitingarými á jarðhæð.
7. Tímasetning gæti breyst.
Tilbúið 2018 Tilbúið 2019 Tilbúið 2020
Fjöldi veitingastaða í svigum
45% þeirra íbúa Sandgerðis og Garðs
sem þátt tóku í atkvæðagreiðslu um
nýtt nafn á sveitarfélagið skiluðu
auðu. Voru flest atkvæðin í þeim
dálki. Greidd voru atkvæði á milli
tveggja nafna. Heiðarbyggð fékk
fleiri atkvæði en Suðurbyggð, 64%
þeirra sem afstöðu tóku.
Atkvæði í seinni umferð nafna-
kosningarinnar voru talin í gær. 500
tóku þátt, heldur færri en í fyrri um-
ferðinni þegar greidd voru atkvæði
milli fimm nafna, en það samsvarar
tæplega 20% þeirra íbúa sem rétt
áttu á að taka þátt.
Niðurstaðan er leiðbeinandi fyrir
nýja sveitarstjórn. Róbert Ragn-
arsson verkefnastjóri viðurkennir að
fjöldi auðra bendi til þess að margir
hafi ekki viljað þessi nöfn. Nöfnin tvö
fengu mun færri atkvæði en í fyrri
umferðinni sem þýðir að fjöldi fólks
hefur fallið frá stuðningi við þau.
Nafnið Suðurnesjabyggð var tals-
vert í umræðunni en örnefnanefnd
hafnaði þeirri tillögu. Róbert segir að
vissulega geti ný sveitarstjórn ákveð-
ið það nafn eða önnur en eigi þá á
hættu að ráðherra vilji virða álit ör-
nefnastofnunar og staðfesti ekki
nafnið. Segir hann að ekki hafi fund-
ist dæmi um að ráðherra hafi gengið
gegn áliti stofnunarinnar.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Garður Byggðahverfin í Garði verða í Heiðarbyggð ef ný sveitarstjórn
ákveður að taka upp það nafn sem flest atkvæði fékk í atkvæðagreiðslu.
Auðir reyndust
atkvæðamestir
Níels S. Olgeirsson, fyrrverandi formaður Matvæla- og
veitingafélags Íslands, Matvís, segir mörg dæmi um
að pottur sé brotinn í veitingarekstri í miðborginni.
Hröð fjölgun veitingastaða feli í sér margvíslegar
áskoranir.
„Undanfarin ár hefur verið áskorun að manna stað-
ina. Það tekur fjögur ár að mennta mannskapinn í
matreiðslunni og þrjú ár í framreiðslunni. Sú fjölgun
útskrifaðra nemenda dugir ekki til því þróunin er svo
hröð. Þetta er orðinn svolítill frumskógur. Frumskógar-
lögmálið er látið ráða í miðbænum. Það er vísvitandi svínað á fólki.
Það er mikið álag og mikil keyrsla,“ segir Níels.
Hann segir veitingamenn ítrekað brjóta á kjarasamningsbundnum
réttindum félagsmanna í Matvís. „Við höfum haft í nógu að snúast við
að leita réttar okkar félagsmanna. Menn fara út fyrir öll velsæmismörk
í að túlka kjarasamningana og losa sig undan ýmsum þáttum sem eru
í kjarasamningum. Þetta komast menn upp með í krafti þess að það er
verið að ráða marga útlendinga. Þeir þekkja síður sína stöðu. Svo er
verið að setja þá í röng stéttarfélög. Við önnum ekki vinnustaðaeftirlit-
inu. Við náum ekki utan um það. Þetta er orðið svo mikið,“ segir Níels
sem segir Matvís hafa lagt mikið upp úr slíku eftirliti.
Frumskógarlögmálið ráðandi
BROTIÐ Á STARFSMÖNNUM VEITINGAHÚSA
Níels S. Olgeirsson