Morgunblaðið - 19.05.2018, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Íbúar í Hafnarfirði voru 29.412 talsins þann 1. janúar 2018.
Útsvarsprósentan í Hafnarfirði er 14,48%.
176 frambjóðendur eru á þeim átta listum sem bjóða fram í Hafnar-
firði, en 11 munu taka sæti sem bæjarfulltrúar eftir kosningar.
Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum árið 2014 var 60,6%.
Hafnarfjörður
fólki vantaði húsnæði, bæði leigu-
húsnæði og smærri eignir sem það
gæti keypt sér. Binda margir vonir
við frekari uppbygginu á Völlunum í
þessu tilliti.
Annað verkefni sem bíður nýrr-
ar bæjarstjórnar, að sögn viðmæl-
enda blaðsins, er að þrýsta á um
samgöngubætur á Reykjanesbraut-
inni. Mikil umferðarteppa myndist
gjarnan seinnipartinn þegar flug-
umferð er hvað mest og bílaröð sé frá
álverinu og langt inn í bæinn.
Þarf að sinna viðhaldi
Flestir voru sammála um að
tími væri kominn á viðhald, eins og
Guðjón nefnir. „Það þarf átak fyrir
gatnakerfið og það er uppsöfnuð við-
haldsþörf á ýmsum eignum bæjar-
ins. Það jaðrar til dæmis við að vera
orðið pínlegt að fara inn í Suðurbæj-
arlaugina. Íþróttahúsið í Kaplakrika
er sömuleiðis orðið lúið. Það var
flottasta hús landsins þegar það var
opnað 1990 en ekkert hefur verið
gert fyrir það síðan,“ segir Guðjón.
Miðbærinn í blóma
Talsverð uppbygging hefur ver-
ið í miðbænum. Veitingastaðir og
kaffihús hafa sprottið upp og menn-
ingar- og listalíf er í blóma í Hafnar-
borg og Bæjarbíói.
„Svona vil ég sjá miðbæinn og
ég vil að hann fái að byggjast áfram
út ströndina, frekar en að lögð sé
áhersla á þéttingu byggðar. Það má
ekki stugga við þessu. Ég held að
það hafi verið Einar Bárðarson sem
sagði að miðbærinn væri að verða
eins konar Notting Hill Íslands og
mér finnst það góð samlíking. Þetta
andrúmsloft þarf að fá að þróast
áfram. Þá njóta bæjarbúar góðs af
en ferðamenn og aðrir hafa líka mik-
ið að sækja hingað,“ segi Guðjón
Árnason.
Morgunblaðið/Eggert
Höfnin Miðbær Hafnarfjarðar hefur blómstrað og margir vilja að starfsemin og þjónusta þar nái út að höfn.
Morgunblaðið/Eggert
Innfæddur Guðjón Árnason er ánægður með bæinn sinn og telur bjarta
tíma fram undan. Hann vill þó að ráðist verði í viðhald á eignum bæjarins.
væri ekki síst ástæða þess að þeir
létu sjá sig. „Kaffitíminn er heil-
agur,“ sagði einn karlanna ákveð-
inn.
Allir karlar eru velkomnir með-
an húsrúm leyfir en hægt er að
kynna sér starfsemina á heimasíð-
unni Karlariskurum.com eða senda
línu á hordur@redcross.is.
hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Í skúrnum Vilhelm Sverrisson, Hallgrímur Guðmundsson, Jóhann S. Gunn-
arsson, Hannes Gíslason, Steindór V. Guðjónsson og Birgir Þór Ólafsson.
Hvað segja kjósendur?
Morgunblaðið/Eggert
Kolbeinn Björnsson
forstjóri og annar stofnenda
Mink campers
„Það á bara að sameina öll
þessi sveitarfélög. Kerfið er svo
óskilvirkt með þessi litlu bæj-
arfélög með 5-6 flokka á hverj-
um stað og fleiri hundruð
manns í framboði. Í einu
sveitarfélagi væri auðveldara
að sinna samgöngumálum,
skipulagsmálum, húsnæðis-
málum, umhverfismálum og
skólamálum.“
Bergrún Íris
Sævarsdóttir
teiknari og
rithöfundur
„Það þarf að efla
list- og verkgreinar í
grunnskólum Hafn-
arfjarðar og stór-
auka fé til bóka-
kaupa á
skólabókasöfnum.“
Ólafur Gunnar Sverrisson
einn stofnenda Íshússins
„Ég vil að stjórnmálamenn vinni
fyrir fólk og geri þetta að mann-
legu samfélagi, ekki einhverju
arðgreiðslusamfélagi. Grunn-
þarfir fólks snúa að menntakerfi,
heilbrigðiskerfi, húsnæði, heitu
vatni og rafmagni. Þær eiga ekki
að vera hagnaðardrifnar. Af
hverju á orkuveita að greiða arð
til einhvers? Hún á bara að þjóna
okkur og halda verðinu niðri.
Sama gildir með bankakerfið,
menntakerfið og heilbrigðiskerfið.
Ég vil að það sé frítt fyrir alla, frítt
fyrir börnin mín.“
Næst verður farið á Seltjarn-
arnes og í Mosfellsbæ og fjallað
um það sem þar er efst á baugi
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar
26. maí.
Á þriðjudag
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
g auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
g fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
o
o