Morgunblaðið - 19.05.2018, Síða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Tap Eimskips á fyrsta fjórðungi árs-
ins nam 1,6 milljónum evra, eða um
198 milljónum króna á núverandi
gengi, samanborið við 200 þúsund
evra hagnað á sama tímabili árið
2017. Tekjur félagsins hækkuðu um
8,4% milli ára en þær námu 155,5
milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi.
Tekjur félagsins jukust einkum
vegna aukins flutningamagns í áætl-
unarsiglingum á Norður-Atlantshafi
og í flutningsmiðlun.
Rekstrargjöld hækkuðu um 14,1
milljón evra milli ára og námu 148,3
milljónum evra á fyrsta fjórðungi.
Hækkun rekstrargjalda umfram
aukningu í tekjum má einkum rekja
til kostnaðar við tvö ný skip sem
bæst hafa í flotann frá sama tímabili
í fyrra. Rekstrargjöld hækkuðu
einnig vegna hærri launakostnaðar,
aukins olíukostnaðar og kostnaðar í
tengslum við skil á leigugámum.
Magn í áætlunarsiglingum Eim-
skips á Norður-Atlantshafi jókst um
4% á fjórðungnum, en innflutningur
til Íslands var undir áætlun, einkum
vegna samdráttar í bílainnflutningi.
Skýringar óljósar
Jóhann Viðar Ívarsson hjá hluta-
bréfagreiningu IFS segir tvennt nei-
kvætt við uppgjörið. „Það er annars
vegar í grunninn hvað arðsemin er
lág. Magn- og tekjuvöxturinn í eigin
flutningum félagsins er fínn, og
magnaukning í sendingarþjónustu
einnig en það er greinilega eitthvað
að í þeim hluta starfseminnar því
tekjuaukning af flutningaþjónustu
er talsvert undir magnaukningunni.“
Hann segir jafnframt áhyggjuefni
hver skýring félagsins á þessu er og
hversu óskýr hún er. „Hún er að
sendingarþjónusta í Afríku hafi
gengið illa vegna gjaldeyrisvanda-
mála eða viðskiptadeilna á svæðinu,
allt eftir því hvaða tilkynningu frá fé-
laginu maður les. Það kemur óþægi-
lega á óvart að það sé þetta svæði
sem veldur því að þessi fjórðungur
sé vonbrigði fyrir alla samstæðuna.“
Snorri Jakobsson hjá Capacent
segir að töluverður mótvindur sé í
rekstri Eimskips. Hann nefnir
hækkandi olíuverð, styrkingu krón-
unnar gagnvart dollar og óróa á ís-
lenskum vinnumarkaði. „Við erum
að sjá sömu þróun bæði hjá Eimskip
og Icelandair þar sem til viðbótar við
almenna óvissuþætti hjálpar félög-
unum ekki að eiga við íslenskan
vinnumarkað og íslenska krónu.“
Fyrsti ársfjórðungur skilar yfir-
leitt lægstri framlegð í rekstri Eim-
skips, en það á almennt við um skipa-
félög á heimsvísu. Síðastliðin fimm
ár hefur fyrsti ársfjórðungur skilað
að meðaltali 16,5% af afkomu ársins.
Afkomuspá Eimskips gerir ráð fyrir
að EBITDA-hagnaður ársins verði á
bilinu 57 til 63 milljónir evra.
Eins og áður hefur komið fram, þá
tilkynnti Yucaipa, stærsti eigandi
Eimskips, í lok nóvember um mögu-
leika á sölu á 25,3% eignarhlut sínum
í félaginu. Síðan þá hefur markaðs-
virði félagsins lækkað um rúmlega
fjórðung. steingrimur@mbl.is
Ljósmynd/Larus Karl Ingason
Eimskip Markaðsvirði hefur dregist
saman um fjórðung síðan í nóvember.
Tap hjá Eimskip á
fyrsta ársfjórðungi
Afkoman óviðunandi að mati greinenda
Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Fyrirtæki til sölu
• Steypuframleiðsla og flutningastarfsemi
• Veitingastaður í miðborg Reykjavíkur
• Lífstílsverslun með fatnað og gjafavöru
• Iðnfyrirtæki með málmsmíði og innflutning
• Gistihús í miðborginni
• Jeppaferðir um hálendið
• Heildsala með hárvörur og tengda vöruflokka
• Ísbúðir á Reykjavíkursvæðinu
• Heildverslun með fæðubótarefni
• Öflugar verslanir í Kringlunni
Hér eru nokkur dæmi um fyrirtæki til sölu hjá okkur:
Investis er með yfir 50 fyrirtæki á
sölulista. Um er að ræða fyrirtæki í
verslun, iðnaði, ferðaþjónustu og veitinga-
starfsemi. Einnig rekstrareiningar úr fyrirtækjum auk
sameiningatækifæra. Um 500 fjárfestar eru á póstlista
okkar, þeir fá vikulega upplýsingar um fjárfestingar-
tækifæri
Alltaf til staðar
www.n1.is facebook.com/enneinn
Maí tilboð
35% afsláttur
9.718 kr.
Verð áður: 14.950 kr.
3.244 kr.
Verð áður: 4.990 kr.
8.866 kr.
Verð áður: 13.640 kr.
9.037 kr.
Verð áður: 13.903 kr.
9.742 kr.
Verð áður: 14.987 kr.
12.935 kr.
Verð áður: 19.990 kr.
Fristads jakki vattfóðraður
Vnr: 9613 122221
Vatteraður léttur og flottur jakki.
Hægt að sérpanta í dökkbláum.
Litur: Svart. Stærðir: XS-3XL.
Fristads pólóbolur
Vnr: 9613 100780
Pólóbolur með hnepptu hálsmáli.
Hægt að sérpanta fl liti.
Litur: Svartur, Dökkblár.
Stærðir: XS-4XL.
Fristads jakkapeysa
Vnr: 9613 125026
Fristads jakkapeysa.
Hægt að sérpanta fl liti.
Litir: Grár/svartur. Stærðir: S-3XL.
Fristad buxur
Vnr: 9613 121632
Streach efni sem gerir buxurnar mjög
þægilegar að vera í. Henta vel í alla
almenna vinnu. Litur: Svart og grátt.
Stærðir: 48-66.
Fristads hettupeysa
Vnr: 9613 LYS7783/110309
Efni: 100% polyester.
Litur: Svartur. Stærðir: XS- 3XL.
Jogging iðnaðarbuxur
Vnr: 9613 126512
Lausir vasar fyrir iðnaðarmenn.
Vasar á lærum. Frábærar buxur fyrir
iðnaðarmanninn Litur: Svart.
Stærðir: XS-2XL.
Akureyri s. 440 1420 •Höfn s. 478 1940 • s. 456 3574 • Húsavík s. 440 1448
• Blönduós s. 467 1010s. 440 1330 •Ólafsvík s. 436 1581 • s. 456 1245
s. 474 1293 • Reykjanesbær s. 421 4980 • Vestmannaeyjar s. 481 1127
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Icelandair Group hefur ákveðið að
hefja söluferli á Icelandair Hotels og
fasteignum þeim sem tilheyra hótel-
rekstri fyrirtækisins. Í tilkynningu
frá félaginu segir Björgólfur
Jóhannsson forstjóri að markmiðið sé
að selja meirihlutann í félaginu og
með því sé ætlunin að skerpa á
kjarnastarfsemi fyrirtækisins og fjár-
festa frekar í vexti þess á því sviði, í
stafrænum lausnum, aukinni sjálf-
virkni og nýjum flugvélum. Forsvars-
menn fyrirtækisins munu samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hins veg-
ar ekki útiloka að Icelandair Group
verði áfram eigandi að minnihluta í fé-
lagi utan um hótelreksturinn. Segir
Björgólfur í fyrrnefndri tilkynningu
að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi
fundið fyir miklum áhuga á félaginu
að undanförnu, bæði frá innlendum
og erlendum aðilum.
Icelandair Hotels er með 23 hótel
innan sinna vébanda, þar af 10 sem
rekin eru undir nafni Hótels Eddu
sem er sumarhótelakeðja. Á þessum
hótelum eru 1.937 herbergi, 876 í
Reykjavík, 450 á landsbyggðinni
ásamt 611 herbergjum á fyrrnefndum
Eddu-hótelum. Þá vinnur fyrirtækið
einnig að opnun nýs hótels við Aust-
urvöll í samstarfi við Hilton sem
stefnt er að því að opna árið 2019.
Ekki er hægt að nálgast nákvæmar
upplýsingar niðurgreindar á starf-
semi Icelandair Hotels í reikningum
Icelandair Group þar sem rekstrar-
tölur þaðan eru tvinnaðar saman við
starfsemi Iceland Travel. Samanlagð-
ar tekjur þeirrar starfsemi námu
218,7 milljónum dollara í fyrra, jafn-
virði 22,9 milljarða króna. Samkvæmt
fyrrnefndri tilkynningu Icelandair
Group er ekki stefnt að því að selja
starfsemi Iceland Travel. Verður sú
starfsemi hluti af kjarnastarfsemi
Icelandair Group ásamt ferðaskrif-
stofunni VITA.
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir er
framkvæmdastjóri Icelandair Hotels.
Icelandair býður hótel-
starfsemina til sölu
Morgunblaðið/Ásdís
Hótel Hilton Reykjavík Nordica er meðal þeirra eigna sem nú eru til sölu.
23 hótel um land allt sem tilheyra rekstrinum í dag