Morgunblaðið - 19.05.2018, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Tafir áfram-kvæmd-
um vegna skipu-
lags og
leyfisveitinga
eru umfjöllunarefni greinar
eftir Sigurð Hannesson,
framkvæmdastjóra Sam-
taka iðnaðarins, í Við-
skiptamogganum í fyrra-
dag. Sigurður bendir á að of
fáar íbúðir hafi verið reist-
ar á undanförnum árum og
það hafi leitt til mikilla
verðhækkana á húsnæði.
Þessar verðhækkanir séu
langt umfram launahækk-
anir og ógni ekki einungis
efnahagslegum stöð-
ugleika, heldur félagsleg-
um stöðugleika. Kaup-
máttur hafi aukist verulega
undanfarin misseri, en sí-
vaxandi húsnæðiskostn-
aður samfara lítilli upp-
byggingu íbúða skekki
myndina. Telur Sigurður að
tafir í skipulagi og hjá
byggingafulltrúum sveitar-
félaga og kröfur af ýmsu
tagi valdi samfélaginu
kostnaði, sem hugsanlega
hlaupi á milljörðum króna á
ári þegar allt sé talið.
Morgunblaðið hefur að
undanförnu flutt fréttir þar
sem verktakar kvarta sáran
undan seinagangi. Pétur
Guðmundsson, stjórnar-
formaður Eyktar, sagði í
viðtali fyrr í mánuðinum að
bíða hefði þurft í 11 mánuði
eftir því að Reykjavíkur-
borg afgreiddi eignaskipta-
lýsingu á Bríetartúni 9-11.
Íbúðirnar verði vegna
þessa og annarra tafa af-
hentar mun síðar en til
hefði staðið. Þessum töfum
fylgdi mikill vaxtakostn-
aður og íbúðirnar yrðu fyrir
vikið dýrari en ella.
Ekki er langt síðan um-
boðsmaður borgarbúa í
Reykjavík fjallaði um
seinaganginn hjá umhverf-
is- og skipulagssviði
Reykjavíkur. Í áfanga-
skýrslu hans kom fram að
hann hefði þurft að bíða að
meðaltali í um 80 daga eftir
svörum frá sviðinu, en sam-
bærilegur svartími hjá öðr-
um sviðum hefði verið um
13 dagar. Þar var eitt mál
rakið þar sem borgarbúi
hafði sent inn fyrirspurn
vorið 2016. Svar hafði enn
ekki borist þegar áfanga-
skýrslan kom út í febrúar á
þessu ári og hafði umboðs-
maður þó reynt
að leggja borg-
arbúanum lið.
Borgin sjálf er
ekki undanþegin
seinaganginum.
Sigurður Hannesson bendir
á það í grein sinni að þegar
Reykjavíkurborg stóð fyrir
breytingunni á húsnæðinu
á Hlemmi til að búa til að-
stöðu fyrir veitingamenn
var það sama uppi á ten-
ingnum. „Tafir á veitingu
byggingaleyfis, m.a. vegna
skipulagsmála, ásamt öðr-
um ástæðum, leiddu til þess
að þetta verkefni tafðist um
nærri ár, upphaflega stóð
til að hefja starfsemi haust-
ið 2016 en það tókst ekki
fyrr en í ágúst 2017,“ skrif-
ar Sigurður. „Með öðrum
orðum, þá reyndu borgaryf-
irvöld á eigin skinni hversu
óskilvirkt kerfið er.“
Auðvitað er það að vissu
leyti til fyrirmyndar að
borgin fá sömu trakter-
ingar og aðrir, en um leið
ætti það að opna augu
þeirra, sem fara með völd-
in, fyrir vandanum fyrst
raunir almennings duga
ekki til.
Vandann má finna um allt
land, en áhrifin eru mest í
Reykjavík og á höfuðborg-
arsvæðinu af þeirri einföldu
ástæðu að þar er mest um
framkvæmdir.
Nú er aðeins vika í kosn-
ingar og því er full ástæða
til að halda þessum málum
á lofti og þrýsta á um að
þjónustan verði bætt,
áhersla lögð á að auka hag-
kvæmni og reynt að draga
úr þeim óþarfa viðbótar-
kostnaði, sem kerfið veldur.
Skipulagsmál ber vissulega
að taka alvarlega og þar má
ekki veita afslátt. Verktak-
ar eiga ekki að komast upp
með að stytta sér leið.
Hins vegar á kerfið að
vera skil- og hraðvirkt. Það
á ekki að vera eins og
hindrunarhlaup þegar ráð-
ist er í framkvæmdir þann-
ig að við hvert fótmál
spretti fram nýjar kröfur
og skilyrði, þröskuldar og
tálmar. Kerfið á að þjóna
almenningi, en ekki al-
menningur kerfinu. Þá
keyrir um þverbak þegar
óskilvirkni og seinagangur
kerfisins leiðir til þess að
húsnæði verður dýrara í en
ella og hefur áhrif á lífs-
kjör.
Það á ekki að vera
eins og hindrunar-
hlaup að ráðast í
framkvæmdir}
Tálmar og þröskuldar
Á
ferðalögum mínum um landið að
undanförnu hef ég alls staðar hitt
sjálfstæðismenn sem eru að ræða
við bæjarbúa um áherslur sínar
næstu fjögur árin. Þar er á ferð-
inni öflugt fólk sem skilur að það er í okkar
heimabyggð sem hjartað slær, þar höfum við
fest rætur. Eftir viku göngum við til sveitar-
stjórnarkosninga og ráðum framtíð okkar nær-
umhverfis. Sveitarstjórnarmál eru þau stjórn-
mál sem skipta okkur oft mestu í daglega lífinu
og við fáum að öllu jöfnu mestu um ráðið.
Það eru þó ekki stjórnmálin ein sem gera
heimabyggð okkar að þeim góða stað sem hann
er heldur er það fólkið í hverju bæjarfélagi,
frumkvæði þess, gleði og atorkusemi. Það er
verkefni stjórnmálanna að búa til umgjörðina
svo að fólk fái að dafna. Ef umgjörðin er ekki í
lagi finna allir fyrir því, einstaklingar, fjöl-
skyldur og fyrirtæki. Það er þá sem þjónustan verður
verri, vanrækslan eykst og útsvarið hækkar.
Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur með góða sögu í sveit-
arstjórnum um allt land, í hverju og einu sveitarfélagi,
þekktur fyrir góða stjórnsýslu, stefnufestu og samfellu í
störfum. Flokkur með öflugt félagsstarf og flokkur sem
fólk treystir til góðra verka í þágu sveitarfélagsins og
þeirra sem þar búa. Í þeim sveitarfélögum þar sem Sjálf-
stæðisflokkurinn er í meirihluta er starfsemin í blóma,
grunnþjónustu við borgarana er sinnt af ábyrgð og fjár-
málin eru í góðu jafnvægi. Það er ekki sjálfgefið.
Þetta sjáum við vel í forystusveitarfélögum
víða á landsbyggðinni og umhverfis höfuð-
borgina. Við höfum samanburðinn við önnur
sveitarfélög þar sem aðrir hafa ráðið för –
eins og í Reykjavík þar sem grunnþjónustan
er vanrækt og fjármálin látin reka á reið-
anum en gæluverkefnin og glæruverkefnin
ganga fyrir.
Á meðan borgaryfirvöld í Reykjavík láta
stjórnkerfið í borginni vinna við að viðhalda
sjálfu sér láta sjálfstæðismenn stjórnmálin
snúast um fólkið eins og sést í þeim sveitar-
félögum þar sem sjálfstæðismenn eru í meiri-
hluta.
Ástæða þess að Sjálfstæðisflokkurinn er
stærsti flokkurinn og hefur fengið svo góðan
hljómgrunn hjá kjósendum er sú að við kunn-
um til verka, við leggjum áherslu á góða
grunnþjónustu og umgöngumst fjármuni
borgaranna af varúð. Þannig rekum við blómlega byggð
og búum á sama tíma í haginn fyrir framtíðina.
Það skiptir miklu máli hvernig haldið er á málum í
sveitarfélögunum. Það skiptir máli að hafa yfirsýn yfir
verkefnin, næman skilning á samfélaginu, sýna ráðdeild
og forgangsraða í grunnþjónustu. Þannig eiga allar
byggðir landsins tækifæri.
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Þar sem hjartað slær
Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálf-
stæðisflokksins.
aslaugs@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Tilfellum sýkinga af völdumsalmonellu fjölgaði talsvertá árinu 2017 frá árunum áundan. Samtals greindust
64 tilfelli í fyrra en árið 2016 greind-
ust 20 tilfelli og einungis 10 árið 2015.
Þetta kemur fram í nýrri farsótta-
skýrslu Landlæknisembættisins.
Í skýrslunni segir að óvenju-
margar sýkingar hafi greinst af völd-
um salmonella enteritidis, 12 talsins,
en allar reyndust þær upprunnar er-
lendis fyrir utan hugsanlega eina. Á
árinu greindust einnig 11 einstakl-
ingar með iðrasýkingu af völdum
bakteríunnar salmonella typhim-
urium, sem er aukning umfram það
sem vænta má, en typhimurium er
langalgengasta sermisgerðin af salm-
onellu hérlendis. Frá 2007 hafa 50 til-
felli af typhimurium komið upp á Ís-
landi en aldrei jafn mörg á einu ári og
í fyrra. Átta þeirra greindust í ágúst
2017 og virtust sýkingarnar vera af
innlendum toga. Leiddu rannsóknir á
þessum bakteríum í ljós að þær voru
samstofna í sjö tilfellum og hafa fund-
ist á svínabúi hér á landi. Í einu tilfelli
var um þriggja ára barn í Mosfellsbæ
að ræða sem var með annan salmon-
ellustofn, sem við nánari greiningu
reyndist vera sami stofn og ræktast
hefur úr hrossum hér á landi. Þessir
bakteríustofnar tengdust ekki hóp-
sýkingum af völdum salmonella typh-
imurium á Norðurlöndum, sem vart
varð við um svipað leyti.
„Flestar af þessum salmonellu-
sýkingum eru að utan en það komu
upp hérna tveir litlir faraldrar innan-
lands sem margir sýktust af. Þessar
matarbornu sýkingar eru þannig að
ef þetta kemst í matvæli geta margir
sýkst,“ segir Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir. Spurður hvort náðst
hafi að rekja uppruna sýkingarfarald-
ursins í fyrra segir hann það ekki
hafa tekist. „Nei, ekki nákvæmlega.
Við erum með salmonellu hér innan-
lands og innlent smit, hvaðan sem
það svosem kemur upphaflega.
Stundum getum við rakið það til
ákveðinna matvæla en stundum
gengur ekki vel að finna nákvæmlega
örsokina.“
Sjaldgæf tegund salmonellu
Í byrjun nóvember 2017 greind-
ust sýkingar af völdum salmonella
poona hjá fjölskyldu á höfuðborg-
arsvæðinu. Slík sermisgerð hefur
ekki greinst á Íslandi síðan 2008 en
þá greindust salmonella poona í hóp-
sýkingu meðal aldraðra og starfs-
manna á sambýli á höfuðborgarsvæð-
inu. Í tilfellinu í fyrra var faðir sýktur
en hann var einkennalaus á meðan
kona hans og dóttir voru með niður-
gang. Fór svo að vista þurfti dóttur-
ina á spítala. Fjölskyldan hafði ekki
dvalið erlendis og hafði því sýkst hér
á landi. Í ágúst 2017 ræktaðist þessi
salmonella í ryksýni frá sojamjöli
sem kann að hafa verið gefið gælu-
dýrum en það tókst ekki að tengja
það sýkingunni í fjölskyldunni.
Þrír einstaklingar greindust
með sýkingu af völdum enteróhae-
morrhagísks e. coli O157 á árinu
2017. Ekki tókst að finna uppruna
smitsins né tengingu þeirra í milli.
Greindust einnig þrír einstaklingar
með e.coli árið 2016 en einungis einn
2015.
Árin 2007 og 2009 komu upp litl-
ar hópsýkingar af völdum þessarar
bakteríu, en ekki tókst þá að rekja
uppruna sýkingarinnar með vissu. Þá
greindust 25 tilfelli af gíardíusýkingu
á Íslandi. Þeir sem greindust voru á
öllum aldri en þó einungis einn eldri
en 60 ára. Er þetta fjölgun frá árinu
2016, þegar 19 greindust.
Salmonellusýkingar
jukust milli ára
Algengustu sermisgerðir á Íslandi
Heimild: Landlæknisembættið
2015
2016
2017
2
2 8
12 11
13 13
10
20
64
Salmonellusýkingar á Íslandi 2013-2017
2013 2014 2015 2016 2017
Salmonella
enteritidis
Salmonella
typhimurium
1
Salmonellufaraldri var fyrst lýst á Íslandi árið 1954 vegna mengaðra mat-
væla af völdum salmonella typhimurium. Stór hópsýking af völdum salm-
onellu braust svo út á höfuðborgarsvæðinu árið 1962 þegar 185 ein-
staklingar greindust og voru 30 þeirra lagðir á sjúkrahús. Þeir höfðu neytt
olíusósu eða majónes sem innihélt sýkt andaregg. Faraldurinn stóð í tvo
mánuði og tók langan tíma að finna orsakir sýkingarinnar. Önnur umfangs-
mikil hópsýking vegna salmonellu kom upp í Búðardal árið 1987. Alls
greindust 74 einstaklingar en salmonellan átti rætur að rekja til sýktra
matvæla sem dreift var frá veitingasölunni í Dalabúð vorið 1987. Sýkillinn,
salmonella goldcoast, leyndist í hráu svínakjöti og er talinn hafa dreifst
fyrst og fremst í þremur fermingarveislum. Hópsýkingar komu einnig upp
árið 1988 og 1996. Í septembermánuði árið 2000 greindist 181 einstakl-
ingur með matarsýkingu af völdum salmonellu á Reykjavíkursvæðinu.
Salmonellu fyrst lýst 1954
HÓPSÝKINGAR Á ÍSLANDI