Morgunblaðið - 19.05.2018, Page 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
Frábær smurefni sem einangra og verja
koma í veg fyrir tæringu eins og verkfæra og rafmagnsvara.
Fyrir bílinn – verkfæri – skotvopn – reiðhjól
Hvernig gengur
barninu mínu í skól-
anum og hvernig líður
því? Hvernig gengur
samstarf foreldra við
kennara? Þetta eru
spurningar sem for-
eldrar velta oft fyrir
sér. Það er eðlilegt að
við foreldrar fylgjumst
markvisst með hvernig
börnunum okkar líður í
skólanum og hvernig námið gengur.
Það er okkar hlutverk að hvetja þau
til náms og reyna eftir bestu getu að
aðstoða þau við námið. Til þess að svo
megi verða þurfum við góðar upplýs-
ingar frá skólasamfélag-
inu, frá kennurum. Við
þurfum að vera í góðu
sambandi um þau verk-
efni sem liggja fyrir
hverju sinni og það er
okkar hlutverk að sjá til
þess að börnin okkar
læri heima.
Það verkefni getur
verið mismunandi erfitt
vegna þess að börnin
okkar eru misjöfn og
sum hafa fullt annað
skemmtilegt að gera en
að læra. Þeim hættir því stundum til
að trassa námið og fara frekar að
gera eitthvað sem þeim finnst
skemmtilegra.
Mikilvægasta hlutverk okkar for-
eldra er uppeldishlutverkið og hluti
þess er sú ábyrgð sem við berum með
því að fylgjast vel með skólastarfinu
og náminu. Til að efla færni foreldra á
þessu sviði ætlar Miðflokkurinn að
auka samtal og samstarf milli kenn-
ara og foreldra í skólum Kópavogs.
Við vitum líka að til þess að skólarnir
í Kópavogi verði í fremstu röð þá þarf
að laða til bæjarins bestu kennarana.
Það ætlar Miðflokkurinn að gera með
því að skapa kennurum góð starfs-
skilyrði og betri kjör.
Í leikskólanum hafa leikskólakenn-
arar yfirgripsmikla þekkingu á hegð-
un og framkomu barna og við for-
eldrar getum í auknum mæli nýtt
okkur það. Foreldrar ungra barna
hafa kallað eftir aukinni fræðslu um
uppeldisaðferðir. Þess vegna ætlar
Miðflokkurinn að bjóða foreldrum
barna 6 ára og yngri að sækja nám-
skeið þar sem kenndar eru aðferðir
og viðbrögð við hegðun barna. Þau
námskeið eru liður í lýðheilsustefnu
sem Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Miðflokksins,
setti af stað þegar hann stofnaði ráð-
herranefnd um lýðheilsu. Með því að
auka færni foreldra við uppeldið er
einnig hægt að hafa áhrif á heil-
brigðan lífsstíl barna og ungmenna,
þ.e.a.s. hvíld, svefn, hreyfingu, mat-
aræði og sporna þannig gegn lífs-
stílstengdum sjúkdómum.
Ef þú, kjósandi góður, ert sammála
okkur og hefur áhuga á þessum mál-
um er sterkur leikur að merkja X við
M þann 26. maí. XM lýðheilsukveðj-
ur.
Mennta- og uppeldismál í Kópavogi – skólar í fremstu röð
Eftir Unu Maríu
Óskarsdóttur »Miðflokkurinn vill
skóla í fremstu röð
og ætlar að auka samtal
milli kennara og for-
eldra í Kópavogi og
skapa kennurum góð
starfsskilyrði ogbetri
kjör.
Una María Óskarsdóttir
Höfundur er varaþingmaður og
uppeldis-, menntunar- og lýð-
heilsufræðingur. Hún skipar 4.
sæti framboðslista Miðflokksins í
Kópavogi og var verkefnisstjóri
ráðherranefndar um lýðheilsu.
Ég er einn af þeim
sem fara með sól í
sinni og klæddir í
sparifötin á kjörstað.
Þannig sé ég fyrir
mér 26. maí næst-
komandi, þegar kosið
verður til borg-
arstjórnar Reykja-
víkur.
Margar góðar
ástæður eru til að
hlakka til þess dags,
ekki síst ef borgarbúum lánast að
losna við utangátta ráðstjórnina úr
Ráðhúsinu.
Nú er óvenju fjölbreytt val enda
16 listar í boði, þannig
að allir ættu að finna
einhvern framboðslista
við sitt hæfi.
Það er vel. Á nýliðnu
kjörtímabili starfaði ég
sem áheyrnarfulltrúi í
hverfisráði Laugardals
og þekki að því leyti
betur til starfa hinna
ýmsu borgarfulltrúa en
fjölmiðlar hafa greint
frá.
Ef marka má skoð-
anakannanir virðist
gott framlag Svein-
bjargar Birnu, óháðs borgarfulltrúa,
ekki hafa náð verðskuldaðri athygli
borgarbúa. Það er miður og úr því
vil ég bæta.
Skipulagsslys
Allt kjörtímabilið reyndi Svein-
björg að vekja athygli fráfarandi
meirihluta ráðstjórnarinnar á þeirri
blindgötu sem hann stefnir að í
skipulagsmálum. Má þar nefna
trassaskap í úthlutun lóða fyrir
íbúðabyggð, óvild í garð flugvallarins
og þrengingu stofnbrauta frá norðri
til suðurs, sem er ekki aðeins óþægi-
leg fyrir þá sem sitja fastir í umferð
heldur beinlínis hættuleg í neyð-
artilvikum. Einnig má nefna þéttingu
byggðar án bílastæða og í sama stíl
og fyrirhugað þjóðarsjúkrahús við
Hringbraut, þar sem gestir og starfs-
menn þurfa að leggja bílum í nær-
liggjandi hverfum, sé þess kostur. Þá
hefur Sveinbjörg gagnrýnt að gömul
kosningaloforð um Sundabraut eru
svikin, með því að athafnamaðurinn
Ólafur Ólafsson fékk góðfúslega leyfi
Dags fyrir íbúðabyggð þar sem
brautin átti að koma. Nú, þegar kem-
ur að skuldadögum, dregur Dagur
upp einhverja óljósa borgarlínu úr
pípuhatti sínum. Fáum dylst þó að
þessi lína myndi kafkeyra borgarsjóð
sem er verulega skuldsettur.
Gæluverkefni eða lögbundin
þjónusta?
Sveinbjörg hefur gagnrýnt sóun
fjármuna borgarinnar í æðstu yf-
irstjórn, – glórulausa eyðslu í ónauð-
synlegar nefndir og embætti til að
hygla pólitískum vildarvinum. Allt
þetta hefur gerst á sama tíma og lög-
bundin verkefni sveitarfélagsins eru
sniðgengin. Ábyrg og heiðarleg
stjórnun fjármála borgarinnar þýðir
að meiri peningar eru afgangs til
þjónustu við borgarbúa. Þannig get-
ur meirihlutinn sakast við sjálfan sig
fyrir að hafa í 8 ár svikið íbúa Laug-
ardalshverfisins um aðstöðu til inn-
anhúsíþrótta. Þessu ætlar Svein-
björg m.a. að breyta fái hún til þess
umboð.
Vissulega eru komin fram mörg
framboð, auk framboðsins „Borgin
okkar“, sem taka undir þennan mál-
flutning Sveinbjargar og vona ég
borgarbúa vegna að þeim gangi vel.
Þess vegna kýs ég Sveinu
Eftir Sigurð
Þórðarson
Sigurður
Þórðarson
» Gott framlag Svein-
bjargar Birnu, óháðs
borgarfulltrúa, virðist
ekki hafa náð verðskuld-
aðri athygli borgarbúa.
Það er miður og úr því
vil ég bæta.
Höfundur starfar við blaðamennsku.
siggi@ginseng.is