Morgunblaðið - 19.05.2018, Síða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
✝ Birna Jóhanns-dóttir fæddist á
Þórshöfn á Langa-
nesi 26. september
1938. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 9. maí
2018.
Foreldrar hennar
voru Lára Lárus-
dóttir frá Heiði á
Langanesi, f. 12.12.
1908, d. 8.4. 1997 og
Jóhann Snæbjörn Snæbjörnsson
frá Barká í Hörgárdal, f. 2.9.
1902, d. 2.9. 1978.
Systkini Birnu eru: Erla, f.
1930, d. 2012, Bragi, f. 1931, d.
2010, Arnþrúður Heiðrún, f. 1932,
d. 1990, Hörður, f. 1934, d. 2012,
Baldur, f. 1934, Hermann, f. 1941,
Sigrún, f. 1942, Sæmundur
Snorri, f. 1947, Lárus Margeir, f.
1948, Trausti, f. 1951.
Þann 12.12. 1958 giftist Birna
Óttari Sævari Magnússyni, f.
25.6.1937. Foreldar hans voru
Hólmfríður Oddsdóttir, f. 19.9.
1899, d. 3.5. 1984, og Magnús
Sveinsson, f. 9.7. 1892, d. 22.12.
1951. Þau skildu. Börn þeirra eru:
1) Hörður Reimar, f. 23.8. 1957.
Hann eignaðist þrjá syni með
Guðrúnu Daníelsdóttur, þau
skildu. Daníel Guðmundur, f.
Magnea Þórey og Þorsteinn Jök-
ull.
4) Snæbjörn, f. 16.2. 1968.
Hann eignaðist þrjú börn með
Salvöru Pétursdóttur, þau skildu.
Silvía Sól, f. 1994, unnusti: Hlyn-
ur F. Viggósson, Pétur Örn, f.
1995, Birna Rún, f. 2000, unnusti:
Daniel K. Larsen.
5) Kolbrún, f. 10.11. 1969. Hún
eignaðist barn með Guðrúnu S.
Guðbrandsdóttur, þær skildu.
Hugrún Hanna, f. 2006. Sambýlis-
kona Kolbrúnar er Kristín
Amelía Þuríðardóttir, f. 1979,
börn hennar: Bergur, f. 2002,
Arnar, f. 2004, Hanna, f. 2008.
Birna ólst upp á Þórshöfn á
Langanesi og á Heiði á Langa-
nesi.
Sjö ára flutti Birna ásamt fjöl-
skyldu sinni til Borgarness.
Birna og Óttar hófu sambúð
ung að aldri á Bjarkargrund á
Akranesi. Þau fluttu árið 1963 í
Borgarnes, þar byggðu þau hús
sitt að Sæunnargötu 11. Birna
flutti til Reykjavíkur árið 2004,
að Neðstaleiti, þar bjó hún til
dauðadags.
Ævistarf Birnu var tengt mat,
hún vann sem matráðskona á sjó,
sláturhúsinu í Borgarnesi, vega-
vinnuflokkum á Vesturlandi, hjá
BTB og Dvalarheimili aldraðra
Borgarnesi. Birna var forstöðu-
kona róluvallar Borgarness á
sumrin í áratug.
Útför Birnu fer fram frá
Borgarneskirkju í dag, 19. maí
2018, og hefst athöfnin klukkan
14.
26.11. 1985, Sindri
Snær 26.8. 1990,
Birkir Mar, f. 12.1.
1995. Fyrir átti
Hörður Helgu Dögg,
f. 8.11. 1976, með
Svövu Einarsdóttir,
barn hennar: Mathi-
as Dagur Helguson
f. 2009.
2) Jóhanna Lára,
f. 22. 4. 1959. Hún
eignaðist þrjú börn
með Steinari Snorrasyni, þau
skildu. Sævar Birnir, f. 28.9. 1984,
í sambúð með Elínu Ásu Magn-
úsdóttur f. 1981, barn þeirra:
Birnir Elí, f. 2015, fyrir átti Elín
Matthías Þór Árnason, f. 2009,
Þórdís f. 1986, Arna Björg, f.
1994, Jóhanna er í sambandi með
Gunnari Þ. Geirssyni f. 25.3. 1959.
3) Magnús Sævar, f. 31.8. 1962.
Hann eignaðist þrjú börn með S.
Þóreyju Guðlaugsdóttur, þau
skildu. Lára, f. 1984, maki Jón F.
Eiríksson, f. 1976, börn þeirra:
Kolbrún Líf og Eiríkur Frímann,
Óttar Sævar, f. 1993, d. 2014,
barn hans Viktoría Ósk, f. 2014,
Eyþór Arnar, f. 1998, unnusta:
Lena H. Örvarsdóttir, f. 1999,
fóstursonur Guðlaugur Ólafsson
Schram, maki Helga Sveinsdóttir,
börn þeirra: Sveinn Nökkvi,
Elsku hjartans mamma mín!
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku besta mamma mín,
hvíldu í friði.
Þín dóttir,
Hanna Lára.
Birna Jóhannsdóttir kvaddi
þessa jarðvist í síðustu viku eftir
erfið veikindi undanfarna mán-
uði.
Á slíkum tímamótum koma
upp í hugann margar góðar minn-
ingar, sem ég er þakklátur fyrir.
Ég kynntist Birnu fljótlega
eftir að við Hanna Lára fórum að
hittast á síðari hluta árs 2015.
Þessi smávaxna en knáa kona
var alltaf létt í bragði þegar við
hittumst, alltaf fékk maður þétt
faðmlag og koss á kinn og alltaf
var stutt í spaugið hjá henni.
Við Birna náðum vel saman og
aldrei bar nokkurn skugga á okk-
ar samband, og þótti mér mjög
vænt um hana og hversu vel hún
tók mér, þessu nýja „viðhengi“
inn í sína fjölskyldu.
Ég kvaddi Birnu seint um
kvöld þann 8. maí sl., ég tók þétt í
höndina á henni, beygði mig nið-
ur að henni og sagði: „Birna mín,
þetta er Gunni, ég er að fara heim
núna“ – og í sömu andrá opnaði
hún augun upp á gátt smá stund
og lokaði þeim svo aftur rólega,
það er augnablik sem ég gleymi
aldrei. Ég kyssti hana á ennið og
bauð henni góða nótt. Síðar þá
um nóttina var hún látin.
Börnin hennar og barnabörn
voru henni stoð og stytta í veik-
indum hennar, allt fram á síðasta
dag og færi ég þeim öllum inni-
legar samúðarkveðjur.
Það er alltaf sárt að sjá á eftir
fólkinu sínu fara en þannig er víst
gangur lífsins. En við sem eftir
stöndum yljum okkur við góðar
minningar.
Kæra Birna, fleyi þínu hefur
nú verið ýtt úr vör og góðar vætt-
ir færa þig yfir að bakkanum hin-
um megin, þar verður tekið vel á
móti þér – það veit ég.
Hvíl í friði.
Guðdómlegur geisli blíður
greiðir skuggamyrkan geim;
á undra vængjum andinn líður
inn í bjartan friðarheim.
(Hugrún)
Gunnar Þór Geirsson.
Elsku Birna mín.
Það er fullt af minningum sem
munu ylja mér um ókomna tíð um
þig og tímann okkar saman sem
var því miður alltof stuttur. Ég er
mjög þakklát fyrir að hafa fengið
að kynnast þér og njóta alls þess
sem þú ert. Þú tókst mér og börn-
unum mínum opnum örmum og
hittir okkur í hjartastað. Börnin
sáu í þér það sem þau höfðu átt í
föðurömmu sinni, húmor, um-
hyggjusemina og gleði. Það er
ómetanlegt og ekki sjálfgefið að
finna að börnin mín væru þín líka.
Þú samfagnaðir svo innilega með
okkur þegar við vorum að fara að
gera eitthvað skemmtilegt, hvatt-
ir okkur til að lifa lífinu, njóta og
beiðst spennt eftir sögum en sér-
staklega eftir myndum á Facebo-
ok sem þú dundaðir við að skoða.
Það var dásamlegt að hlusta á þig
kveðja okkur með fallegu orðun-
um þínum sem við munum áfram
nota. Takk, elsku Birna mín, fyrir
tímann okkar saman, miklu
meiri.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég langa ævi.
(23. Davíðssálmur)
Kveðja,
Kristín Amelía Þuríðardóttir.
Elsku amma Birna.
Hér er smá kveðja frá mér til
þín.
Nú flogin ert þú burt,
elsku amma mín.
Himinninn er blár og fagur,
fuglasöngur heyrist í kyrrðinni.
Það fer að rökkva,
ég finn hvernig næturdöggin færist yfir
mér verður kalt.
Ég horfi upp í himininn,
og sé þar ljós,
þetta ljós ert þú.
Mér hitnar,
ég finn hvernig þú vakir yfir mér.
Á degi sem fugl,
á nóttu sem ljós í myrkrinu.
(Þórdís St.)
Þín,
Þórdís.
Elsku amma.
Ég mun aldrei gleyma þér. Þú
bakaðir bestu lummur í heimi. Þú
ert amma sem ekki er hægt að
gleyma. Elska þig alltaf, ég mun
aldrei gleyma þér.
Þín,
Hugrún Hanna.
Birna
Jóhannsdóttir
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 10-17 alla virka daga
✝ Hermann Ingi-mundarson
fæddist á Hafnar-
hólmi 9. júní 1948.
Hann lést á heil-
brigðistofnun Vest-
urlands 29. apríl
2018.
Foreldrar hans
eru Ingimundur
Loftsson f. 22.7.
1921, d. 15.8. 1983
og Ragna Kristín
Árnadóttir f. 9.6. 1931. Þau
bjuggu á Hafnarhólmi í Stranda-
sýslu, fluttust síðar á Drangsnes.
Systkini Hermanns eru:
Guðrún f. 19.4. 1947, Árni f.
2.3. 1950, d. 7.6. 2013, Guð-
brandur f. 14.5. 1951, Svanur
Hólm f. 27.12. 1952, Loftur f.
12.6. 1954, d. 17.12. 1977, Hanna
f. 8.11. 1955, Hafdís Hrönn f.
17.4. 1958, Erling Brim f. 15.9.
1960 og Gunnar Ingi f. 21.1.
1969,d. 10.2. 2008. Bróðir Her-
manns samfeðra var Sigurður
Jón f. 3.2. 1944, d. 11.5. 1978.
Hermann giftist Krystynu
Stankiewicz þann 29.10. 1992 og
eiga þau eina dóttur. Dóttir
þeirra er Inga f. 7.2. 1993 og
kærasti hennar er Gunnar Páll
Birgisson f. 13.8. 1984.
Af fyrra hjóna-
bandi átti Her-
mann: Hilmar
Vignir f. 20.3.
1973, kona hans er
Hólmfríður Krist-
jana Smáradóttir f.
3.11. 1974 og eiga
þau 3 börn. Kristín
Björk f. 19.11.
1974, sambýlis-
maður hennar er
Ólafur Svavarsson
f. 18.9. 1976 og eiga þau 5 börn.
Sæunn f. 25.5. 1978, sambýlis-
kona hennar er Harpa Lind
Magnúsdóttir f. 7.12. 1979 og
eiga þær 4 börn. Heiðrún f. 12.8.
1983.
Hermann ólst upp á Hafnar-
hólmi en fór ungur að stunda
sjóinn. 17 ára fór hann á vertíð í
Sandgerði og sigldi t.d. til Eng-
lands með afla. Eftir þriggja ára
vertíðarsetu fluttist hann á
Drangsnes. Þar stundaði hann
sjó og var m.a. vélstjóri í frysti-
húsinu á Drangsnesi. Eftir þá
vinnu keypti hann sinn eigin bát,
Snæbjörn ST68 og gerði hann
út.
Útför Hermanns fer fram frá
Drangsneskapellu í dag, laug-
ardaginn 19. maí, klukkan 13.
Elsku pabbi, ég skrifa þetta
með söknuði.
Að alast upp á Drangsnesi var
yndislegur tími. Þegar við krakk-
arnir vorum að flytja að heiman
kynntist pabbi Krystynu og vor-
um við svo ánægð fyrir hans hönd
að vera ekki einn út lífið. Síðan
eignuðust þau Ingu systur, það
var mikill gleðigjafi fyrir þau að
ala upp barn saman.
Pabbi spilaði mikið á harmon-
iku og píanó. Sæa systir náði ein-
hverjum tökum á því, en Inga
fékk alla hæfileikana hans til að
spila á hljóðfæri, aftur á móti fékk
ég veiðidelluna eins og pabbi.
Öll sumur var farið á Drangs-
nes með barnabörnin og pabba
fannst ekkert skemmtilegra en að
fara með okkur á veiðar, hvort
sem það var á Sæbirni, trillunni
hans, til að veiða risaþorska á
veiðistangir, (veit ekki hversu
marga spúnum við höfum tapað á
þessum veiðum) eða uppí Urriða-
vatn.
Alltaf var það pabbi sem veiddi
mest, við hin fórum yfirleitt tóm-
hent heim, hann var bara fæddur í
að veiða! Þetta var gert ár eftir ár,
einnig var mikið farið í Hveravík
að veiða, pabbi var í skýjunum
þegar makríllinn kom og það var
svo skemmtilegt að veiða svona
saman, oft á tíðum fóru Andri
Smári og Tristan Hilmarssynir
með okkur að veiða, þetta var frá-
bær tími sem lifir í minningunni
um yndislegan mann, hann Her-
mann Ingimundarson, Drangs-
nesing í húð og hár.
Bræðurnir 5 sem hafa farið frá
okkur í lifandi lífi horfa nú á okkur
á himninum og við vitum að þeir
eru allir þarna saman ásamt Ingi-
mundi afa. Elsku pabbi, við systk-
inin elskum þig og munum sakna
þín en eigum góðar minningar.
Hvíldu í friði.
Þín dóttir,
Kristín Björk
Hermannsdóttir.
Kæri sonur, með þessum orð-
um kveð ég þig með söknuði.
Hví var þessi beður búinn
barnið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: ,,Kom til mín!“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum.
(Björn Halldórsson í Laufási)
Hvíl í friði.
Mamma.
Í dag kveð ég bróður minn
Hermann. Við slíka kveðju fer
hugurinn að reika og minningar
safnast upp. Ungur fór hann til
sjós og steig ölduna eins og eng-
inn væri morgundagurinn. Fór á
vertíð og sigldi með aflann. Eftir
vertíðir kom hann heim með
Volkswagen-bjöllu ásamt Árna
bróður sem einnig er fallinn frá.
Síðar á ævinni eignaðist hann sinn
eigin bát og gerði út með góðum
árangri. Fiskinn og duglegur
bróðir. Ég minnist hans sem ungs
manns sem var flottur töffari með
Polaroid-sólgleraugu á leið á
útihátíð í Húsafelli. Hermann var
upp á sitt besta á Bítlaárunum og
tónlist átti hug hans. Hann spilaði
á harmoniku og hljómborð. Her-
mann var fínasti bróðir, spaug-
samur og skemmtilegur. Hann
var gjafmildur við okkur yngri
systkinin og voru jólin okkur
skemmtileg þegar þeir bræður
komu heim með gjafir. Ein jólin
fékk ég dúkku sem var mér mjög
kær. Dúkkan er ennþá til ásamt
fleiru sem ég fékk frá honum. Það
er gott til þess að hugsa að við vor-
um alltaf góðir vinir. Við áttum
góða tíma saman, fórum í nokkrar
ferðir út í Grímsey á bátnum hans
þar sem við skoðuðum fuglalífið
enda var hann mikið náttúrubarn.
Hermann bjó lengst af á
Drangsnesi þar sem hann eignað-
ist fjölskyldu og með fyrri konu
sinni átti hann fjögur börn. Það
var ekki algengt á þessum árum
að vera einstæður faðir en honum
tókst það nokkuð vel. Hann elsk-
aði börnin sín og var mjög um-
burðarlyndur þegar þau voru að
vaxa úr grasi og húsið fullt af vin-
um.
Hermann giftist Krystynu og
eignaðist með henni eina dóttur.
Hann var hamingjusamur með
henni og átti með henni gott líf.
Með þeim höfum við átt góða og
skemmtilega tíma. Það var gaman
að horfa á þau gera og græja
garðinn sinn þar sem margar til-
raunir fóru fram. Þau voru sam-
taka í að rækta ýmislegt annað
góðgæti.
Það var erfitt að horfa á þennan
flotta hrausta mann verða lasinn
og geta ekki lengur stundað sjó-
inn eins og honum lét best. En
hann var handlaginn og vandvirk-
ur. Hann fann sér eitt og annað að
gera. Nú í seinni tíð var hann að
saga út í krossvið. Þetta eru fal-
legir munir sem þurfti mikla ná-
kvæmni til að gera. Handsagaðar
hillur með fullt af fínum myndum.
Þegar ég sá þetta fyrst hjá honum
ákvað ég að eignast eitthvað af
þessum hlutum. Þessi handverk
eru meistarasmíði. Hermann
barðist við sjúkdóma, fékk hvít-
blæði og hjartaáföll en einhvern
veginn náði hann sér alltaf aftur.
Því fannst manni eins og hann
yrði eilífur þar sem ekkert virtist
bíta á hann. Það verður öðruvísi
að koma í litla þorpið okkar. Það
verður annar bragur á kaffiboll-
anum og spjallið verður ekki það
sama.
Í stórum systkinahópi er komið
stórt skarð. 5 bræður farnir frá
okkur alltof snemma. Faðir okkar
fór líka alltof snemma. En svona
er lífið. Sorg og gleði eru vinir í
okkar fjölskyldu rétt eins og hjá
svo mörgum öðrum.
Ég sé fyrir mér ykkur alla 5
bræður bralla eitt og annað á æðri
stað og pabba gamla horfa á og
hafa gaman af. Ykkar er allra
saknað og mun ég heiðra minn-
ingu ykkar eins og ég get. Í dag er
ég þakklát fyrir það sem ég átti og
glöð með það sem ég á.
Hafdís.
Hermann bróðir hefur gengið
sín síðustu spor hér á jörð. Hann
kynntist því fljótt að ef mann lang-
aði í eitthvað þurfti að vinna fyrir
því. Hann fór ungur til sjós og reri
þá bæði á heimabátum og á vertíð-
um fyrir sunnan, því þá tíðkaðist
að fara suður á vertíð til að draga
björg í bú og geta eignast eitt-
hvað. Þannig eignaðist hann sinn
fyrsta bíl, T 319, ásamt Árna bróð-
ur. Seinna eignaðist Hermann
sinn eigin bát, Sæbjörn ST, og
reri honum meðan heilsa leifði.
Hann var alltaf nokkuð fiskinn.
Eftir að heilsan gaf sig beitti
Hermann, þó að önnur höndin
væri eiginlega alveg máttlaus,
hann lyfti henni bara eins og hann
vildi hafa hana. Hann var nefni-
lega ótrúlega þrár og það fleytti
honum áfram í mörg ár.
Hermann var búinn að fá sinn
skerf af veikindum, fékk hjarta-
áfall fyrst 45 ára og seinna annað,
þá stóð minn maður tæpt og fékk
far með þyrlu suður, en vissi lítið
af því. Ekki var þó allt búið því
Hermann fékk hvítblæði og var
mjög mikið veikur. Og enn fleytti
Hafnarhólmsþráin honum ansi
langt, en hann náði sér eiginlega
aldrei að fullu eftir það. Svo bilaði
heilsan bara smátt og smátt og
hafa síðustu árin verið honum
mjög erfið.
Hermanni fannst alltaf mjög
gaman að veiða og gat staðið og
kastað fyrir fiski tímunum saman
og oft þegar keyrt var norður stóð
Hermann við gömlu sundlaugina í
Hveravík, að veiða. Hermann var
mjög músíkalskur og spilaði á
harmonikku og munnhörpu.
Handlaginn var hann eins og sjá
má á heimili hans að Grundargötu
10. Hann og Krystyna kona hans
voru mjög samtaka í þeim málum.
Hermann smíðaði líka einstak-
lega fallega hluti í bílskúrnum
meðan heilsan leifði. Ég má til
með að láta fylgja eina sögu af
okkur og pabba á T 319.
Einu sinni sem oftar þurfti að
sækja mjólk á Sandnes, á leiðinni
er brekka sem lætur lítið yfir sér
inn eftir, en á leiðinni til baka var
hægt að svífa ef gefið var í og Her-
mann gaf vel í og sveif og pabbi
missti andann. Hermann sneri sér
glottandi að honum og spurði: „Á
ég að snúa við og sækja hann?“
(andann) Pabbi bara horfði og
sagði ekki orð á leiðinni en hugs-
aði honum örugglega þegjandi
þörfina. Svona var Hermann púki
í sér.
Áföll fjölskyldunnar hafa verið
mörg og erfið síðustu ár og enn
stendur hetjan hún mamma keik
þó að höggin séu þung, svo þung
að manni finnst nóg um. „Þetta er
lífið,“ segir hún bara, „við ráðum
ekki.“
Ég kveð Hermann bróður minn
og vona að skref hans verði léttari
hér eftir. Ég votta eiginkonu hans,
börnum og öllum ættingjum sam-
úð. Megi minning Hermanns lifa
með okkur öllum.
Kveðja,
Hanna.
Hermann
Ingimundarson